Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
R
afik Hariri, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Líbanons, sem var ráð-
inn af dögum í sprengjutilræði í
fyrradag, var vellauðugur kaup-
sýslumaður og átti stóran þátt í
endurreisn landsins eftir borgarastyrjöldina
1975–90. Óttast er að morðið verði mjög af-
drifaríkt þar sem margir Líbanar litu á hann
sem helstu von landsins um hagsæld og pólitísk-
an stöðugleika.
Forsætisráðherrann fyrrverandi var á meðal
hundrað auðugustu manna heims. Auður hans
gerði honum kleift að vera tiltölulega sjálf-
stæður í stjórnmálunum en hann forðaðist þó að
bjóða Sýrlendingum birginn
opinberlega. Sýrlendingar eru
með 15.000 hermenn í Líbanon,
hafa ráðið því hverjir gegna
æðstu embættunum og í raun
tekið mikilvægustu ákvarð-
anirnar.
Hariri tók afstöðu gegn af-
skiptum Sýrlendinga af stjórn-
málum landsins og varð þekktur
sem „þögli andstæðingurinn“.
Hann var öflugur en starfaði að
miklu leyti á bak við tjöldin.
Hariri hafði yfirumsjón með endurreisn Líb-
anons eftir borgarastyrjöldina og var forsætis-
ráðherra í tíu af síðustu fjórtán árum áður en
hann sagði af sér í október síðastliðnum. Hann
hafði árum saman deilt hart við Emile Lahoud,
forseta Líbanons og bandamann sýrlenskra
stjórnvalda.
Hariri þótti gæddur miklum persónutöfrum
og hafði góð sambönd víða í heiminum, var til að
mynda náinn vinur Jacques Chirac, forseta
Frakklands.
Þótt Hariri forðaðist að styggja sýrlensk
stjórnvöld sökuðu bandamenn þeirra hann um
að hafa beitt sér fyrir ályktun öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna þar sem þess var krafist að
Sýrlendingar kölluðu hersveitir sínar í Líbanon
heim. Bandaríkjamenn og Frakkar gengust fyr-
ir ályktuninni og hún var samþykkt í sept-
ember.
Auðgaðist í Sádi-Arabíu
Hariri átti ættir að rekja til smábænda og
fæddist í hafnarborginni Sídon fyrir sextíu ár-
um. Hann hófst af sjálfum sér og varð einn af
auðugustu og valdamestu mönnum Mið-
Austurlanda.
Hann hóf afskipti af stjórnmálum á sjöunda
áratug aldarinnar sem leið þegar hann stundaði
viðskiptanám við Arabíska háskólann í Beirút
og hreifst af hugsjónum arabískra þjóðernis-
sinna. Hann flutti síðan búferlum
til Sádi-Arabíu og stundaði
kennslu og bókhald þar til hann
stofnaði eigið fyrirtæki. Hann
auðgaðist mjög á bygging-
arstarfsemi – atvinnugrein sem
var í miklum blóma vegna olíuauðs
Sádi-Arabíu.
Dugmikill og stjórnsamur
Á þessum tíma hafði hann góð
sambönd í konungsfjölskyldunni
og hann varð sádi-arabískur rík-
isborgari 1987. Hann var vinur
Fahds konungs og
notfærði sér sam-
böndin í Sádi-Arabíu
til að afla fjár til að
endurreisa Líbanon.
Hariri eignaðist
einnig tölvufyrirtæki
og hann haslaði sér
völl í banka- og
tryggingastarfsemi,
fasteignaviðskiptum
og sjónvarpsrekstri.
Seinna keypti hann franskt fyrirtæki, Oger,
sem varð eitt af stærstu byggingarfyrirtækj-
unum í Mið-Austurlöndum.
Hariri lagði einnig fé í ýmsa góðgerða-
starfsemi í Líbanon þegar borgarastríðið geis-
aði og greiddi allan kostnaðinn af friðar-
ráðstefnu múslíma og kristinna Líbana í Taif í
Sádi-Arabíu árið 1989. Ráðstefnan leiddi til
friðarsamnings og þegar átökunum lauk sendi
hann vinnuvélar byggingarfyrirtækis síns á göt-
urnar til að fjarlægja rústirnar.
Samkvæmt Taif-samningnum átti forsætis-
ráðherra Líbanons að koma úr röðum súnní-
múslíma og Hariri tók við embættinu í október
1992. Hann þótti mjög skeleggur og dugmikill í
endurreisnarstarfinu en var einnig gagnrýndur
fyrir að vera of stjórnsamur. Hann missti emb-
ættið árið 1998 vegna deilu við Lahoud um
hvernig efla ætti efnahaginn. Hann var síðan
beðinn um að mynda nýja ríkisstjórn í október
2000 eftir stórsigur í þingkosningum.
Hann naut stuðnings vestrænna ráðamanna
og fór á fund George W. Bush Bandaríkja-
forseta í Washington árið 2002.
Hariri sagði af sér í október eftir að líbanska
þingið samþykkti stjórnarskrárbreytingu sem
gerði Lahoud forseta kleift að gegna embættinu
í þrjú ár til viðbótar. Hariri greiddi þó atkvæði
með breytingunni og undirritaði úrskurð þar
sem Lahoud var heimilað að halda embættinu,
að því er virðist vegna þrýstings frá Sýrlend-
ingum. Eftir afsögnina lýsti hann ekki afdrátt-
arlaust yfir stuðningi við stjórnarandstöðuna en
lagðist gegn stjórninni á bak við tjöldin án þess
að gagnrýna sýrlensk stjórnvöld opinberlega.
Var leyniþjónusta að verki?
Dagblöð í Líbanon létu í ljósi áhyggjur af því
að morðið á Hariri kynni að verða til þess að
borgarastríð hæfist að nýju í landinu. Enn-
fremur er óttast að morðið verði til þess að
þingkosningar verði ekki haldnar í maí eins og
gert hefur verið ráð fyrir. Kosningarnar gætu
ráðið úrslitum um hvort landið verður áfram
undir stjórn Sýrlendinga eða öðlast fullt sjálf-
stæði.
Leiðtogar líbönsku stjórnarandstöðunnar
saka stjórnina í Beirút og ráðamennina í Sýr-
landi um að bera ábyrgð á morðinu. Þeir krefj-
ast þess að sýrlensku hersveitirnar fari frá Líb-
anon og stjórnin segi af sér.
Áður óþekktur hópur, sem kallar sig „Sigur
og heilagt stríð í Stór-Sýrlandi“, lýsti morðinu á
hendur sér og kvaðst hafa ráðið Hariri af dög-
um vegna náinna tengsla hans við konungsfjöl-
skylduna í Sádi-Arabíu.
Margir fréttaskýrendur efast þó um að þessi
hópur hafi verið að verki og telja líklegt að ein-
hver öflug leyniþjónustustofnun hafi staðið fyrir
tilræðinu. Sprengjuárásin var augljóslega þaul-
skipulögð og ljóst þykir að tilræðismennirnir hafi
fengið mjög ýtarlegar og nákvæmar upplýsingar
um ferðir forsætisráðherrans fyrrverandi.
Árásin var svo nákvæm og sprengingin svo
öflug að Hariri átti enga möguleika á að komast
lífs af, að sögn fréttaskýranda breska ríkis-
útvarpsins BBC, Jims Muirs. Hann telur ólík-
legt að lítill og óþekktur hópur hafi burði til að
fremja slíkan verknað.
Nokkrir fréttaskýrendur í Líbanon telja að
ísraelska leyniþjónustan Mossad hafi verið að
verki. Þeir segja hana hafa vitað að grunur
myndi strax falla á Sýrlendinga og morðið yrði
að öllum líkindum til þess að Bandaríkjastjórn
beitti þá meiri þrýstingi.
Þekktasti útlagi Líbanons, Michel Aoun, fyrr-
verandi hershöfðingi, kvaðst vera sannfærður
um að Sýrlendingar hefðu myrt Hariri. „Í hvert
skipti sem við höfum reynt að losna við Sýrlend-
inga hafa verið gerðar árásir á Líbana sem
leggjast gegn þeim,“ sagði hann.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, fordæmdi
þó tilræðið og sagði það „skelfilegan glæp“. Sýr-
lendingar gagnrýndu einnig viðbrögð Banda-
ríkjastjórnar sem áréttaði kröfu sína um að
Sýrlendingar kölluðu „hernámsliðið“ heim.
Myrtu Sýrlendingar
„þögla andstæðinginn“?
Fréttaskýring | Óttast er að borgarastríð geti
blossað upp að nýju í Líbanon eftir morðið á Rafik
Hariri, sem barðist á bak við tjöldin gegn afskiptum
sýrlenskra ráðamanna af stjórnmálum landsins.
Reuters
Líbanskir stuðningsmenn Rafiks Hariris í heimaborg hans,
hafnarborginni Sídon, halda á myndum af forsætisráð-
herranum fyrrverandi og mótmæla morðinu á honum.
’Nokkrir frétta-skýrendur í
Líbanon telja að
ísraelska leyni-
þjónustan hafi
verið að verki‘
ÚR VERINU
BÆJARSTJÓRN Akraness hefur
óskað eftir fundi með stjórn útgerð-
arfélagsins HB Granda til að ræða
fyrirætlanir félagsins um starfsemi á
Akranesi. Forstjóri HB Granda segir
ekki fyrirhugað að draga úr starfsem-
inni á Akranesi.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, segir að eins og búast hafi mátt
við hafi orðið ákveðnar breytingar á
starfseminni HB á Akranesi eftir
sameininguna við Granda. Hann segir
Akurnesinga ekki hafa sérstakar
áhyggjur af því að HB Grandi dragi
úr starfsemi í bæjarfélaginu, enda
hafi það komið fram hjá forsvarmönn-
um fyrirtækisins að það standi ekki
til. „Auðvitað er það fyrirtækisins að
ákveða sína starfsemi. Okkur langar
aftur á móti að ræða við forsvars-
menn fyrirtækisins, við höfum ekki
rætt við þá eftir sameininguna en því
er ekki að leyna að óskað var eftir
fundinum í tilefni af þeim breytingum
sem nýlega urðu á yfirstjórn fyrir-
tæksins,“ segir Gísli og vísar til þess
þegar Sturlaugi Sturlaugssyni var
vikið úr forstjórastóli HB Granda fyr-
ir skemmstu. Sturlaugur var aðstoð-
arframkvæmdastjóri HB fyrir sam-
einingu við Granda en tók við
stjórnartaumunum í sameinuðu fé-
lagi. Fyrir skömmu sameinuðust
Tangi hf. á Vopnafirði og útgerðar-
félagið Svanur HB Granda og eftir
það er eignarhlutur fyrrum eigenda
HB í félaginu um 7%. Fyrrum fram-
kvæmdastjóri HB og núverandi
starfsmannastjóri HB Granda, Har-
aldur Sturlaugsson, sendi um síðustu
helgi frá sér yfirlýsingu þar sem hann
segir að breytingar á yfirstjórn fé-
lagsins hafi verið teknar utan
stjórnarfundar af meirihluta stjórnar
án sinnar aðkomu eða þátttöku en
Haraldur á sæti í stjórn félagsins.
Árni Vilhjálmsson, stjórnarformaður
HB Granda, vildi að svo stöddu ekki
tjá sig um yfirlýsingu Haraldar þegar
eftir því var leitað.
Aukin starfsemi á Akranesi
Eggert Benedikt Guðmundsson,
nýráðinn forstjóri HB Granda, segir
breytingar á yfirstjórn félagsins að
undanförnu ekki þýða að gera eigi
sérstakar breytingar á starfsemi þess
á Akranesi. Hann segir félagið nú
með starfstöðvar á fjórum stöðum á
landinu og stöðugt sé í skoðun hvern-
ig reka megi þær á sem hagkvæm-
astan hátt. „Markmiðið er að nýta
hvern stað sem best. Í því skyni höf-
um við aukið vinnslu á ákveðnum
vörum á Akranesi, til dæmis á loðnu-
hrognum. Við höfum líka haldið uppi
ákveðinni sérhæfingu á hverjum stað
fyrir sig. Þannig leggjum við áherslu
á vinnslu á karfa og ufsa í Reykjavík
en vinnum þorsk og ýsu á Akranesi og
Vopnafirði. Við höfum til að mynda
ekið þorski og ýsu frá Vopnafirði til
Akraness, því bolfiskvinnslan á
Vopnafirði er lokuð á meðan þar er
frystur uppsjávarfiskur.“
Eggert segir að HB Grandi hafi
verið að breyta áherslum sínum í
vinnslu á uppsjávarfiski, með því að
auka frystingu til manneldis enda sé
afurðaverð á manneldisvöru mun
hærra en á mjöli og lýsi til fóðurgerð-
ar. Í þessu skyni hafi verið lögð meiri
áhersla á landfrystingu uppsjávar-
fisks á Vopnafirði og auk þess sé í lok
apríl von á nýju og afkastamiklu skipi,
Engey RE, sem sé sérstaklega keypt
til að frysta uppsjávarfisk úti á sjó.
Akranesbær vill ræða
við stjórn HB Granda
Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson
Loðnuskipið Faxi RE landar loðnu á Akranesi.
STEFÁN Stefánsson athafnamaður segir
mikla spennu í Beirút í Líbanon en hann
var staddur skammt frá vettvangi
sprengjutilræðisins sem
varð Rafik Hariri, fyrr-
verandi forsætisráðherra
Líbanons, að bana í fyrra-
dag. Hann segir spreng-
inguna hafa verið mjög
öfluga, hús og byggingar
hafi skolfið.
Stefán hélt áleiðis til Ís-
lands í gær eftir vikudvöl
í Líbanon en þar var hann
m.a. að heimsækja vini
sína. „Þegar sprengingin varð voru kunn-
ingjar mínir, Íslendingur og Líbani, nýbún-
ir að keyra á milli þessara húsa þar sem
sprengingin varð,“ sagði Stefán í samtali
við Morgunblaðið. „Ég var sjálfur staddur
um fimmtán mínútna akstur frá vettvangi
tilræðisins og það hristist allt húsið hjá
mér. Þetta var gríðarlega öflug spreng-
ing.“
Kveðst Stefán fyrst hafa haldið að um
jarðskjálfta væri að ræða. Eldra fólk, sem
myndi borgarastyrjöldina landinu, hefði
hins vegar áttað sig strax á því að það hefði
orðið sprenging einhvers staðar.
Stefán sagði loftið lævi blandið í Beirút.
Menn pössuðu sig m.a. á því að tala ekki gá-
leysislega þannig að aðrir heyrðu til. Frétt-
ir væru um að Sýrlendingar í Líbanon
héldu sig innandyra, nokkrir hefðu orðið
fyrir barsmíðum í fyrrakvöld. „Það telja sig
allir hérna vita að Sýrlendingar hafi staðið
fyrir tilræðinu. Þetta var öflugasta spreng-
ing frá því að borgarastyrjöldinni lauk og
það hafa alltaf verið einhver tilræði af og
til, undantekningalaust hafa þar verið
drepnir menn sem talað hafa illa um af-
skipti Sýrlands af málum hér,“ sagði hann.
Mikil spenna í Beirút
Stefán Stefánsson