Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 34

Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Benedikta Ingi-björg Þorláks- dóttir fæddist í Hafn- arfirði 16. febrúar 1911. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 6. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þorlákur Benedikts- son, f. 25. ágúst 1886, d. 7. des. 1968, og Valgerður Anna Bjarnadóttir, f. 26. sept. 1890, d. 27. júní 1945. Systkini Bene- diktu voru Elka Guð- björg, f. 23. jan. 1915, d. 15. maí 1992, og Guðmundur, f. 19. mars 1920, d. 25. mars 2000. Benedikta giftist 9. okt. 1938 Ólafi Tómassyni, stýrimanni hjá Eimskipafélagi Íslands, síðar full- trúa hjá Pósti og síma, f. 11. júlí 1908, d. 26. des. 1977. Dætur þeirra eru: 1) Ólafía Hrönn, f. 11. mars 1939, gift Sigurbirni Valde- marssyni, börn þeirra eru: a) Benedikt, kvæntur Guðrúnu Kristjánsdóttur, börn þeirra eru: Björn Andri, Atli Steinn og Borg Dóra, b) Helga Hrönn, gift Guð- mundi Óskarssyni, börn þeirra eru: Stefán Óli og Birta Lind, c) Margrét, gift Mustapha Mo- ussaoui, barn þeirra er Adam. 2) Gerður, f. 30. mars 1943, d. 24. jan. 1986, giftist Ásgeiri M. Jónssyni, börn þeirra eru: a) Ólafur Jón, kvæntur Maríu Pílar Gómez, börn þeirra eru: Axel Markús og Kristrún María, b) Gerður Rós, gift Sigurði Heiðari S. Wiium, börn þeirra eru: Sigurður Jóel, Sandra Rós og Karin Rós. Benedikta útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands 1935 og vann við hjúkrun í nokkur ár. Síð- astliðið ár bjó hún á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Benediktu verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Benna fæddist í Hafnarfirði og Benna lést í Hafnarfirði, eða amma Benna eins og þú varst kölluð af okkur í fjölskyldunni. Þú varst alltaf Hafnfirðingur þótt þú byggir lengst- an tíma af ævi þinni í Reykjavík og Garðabæ. Mig langar til að þakka þér umhyggju þína og hjálp við okk- ur börnin þín stór og smá, og hvað þið Óli voruð samhent í því meðan hans naut við. Þú varst orðin veik, þreytt og háöldruð kona í lokin og þráðir hvíldina. Blessuð sé minning þín. Þinn tengdasonur, Sigurbjörn. Elsku amma mín. Það er með söknuði í hjarta sem ég sest niður til að skrifa þessi kveðjuorð. Eftir að hafa átt þig að alla ævi er það svo skrítið að vera án þín. En í hjarta mínu er jafnframt djúpt þakklæti, þakklæti til Guðs að hafa átt þig sem ömmu mína, alltaf svo kærleiksrík og dugleg. Ég minnist sérstaklega þess tíma þegar ég sem strákur dvaldi oft löngum stundum hjá þér og afa á heimili ykkar í Bergstaðastræti 11. Það var gott heimili þar sem gott var að vera. Heimilishaldið til fyrir- myndar og þú sást alltaf til þess að manni liði vel og hefði nóg að bíta og brenna. Ég man svo vel eftir skvaldrinu úr eldhúsinu, potta- glamrinu og óminum úr útvarpinu. Páfagauknum Haddí sem vissi ná- kvæmlega klukkan hvað afi kæmi heim úr vinnunni og flögraði þá til hans og settist á kollinn á honum. Og elsku afi, sem ég á svo góðar minn- ingar um, sérstaklega man ég eftir sögunum sem hann las fyrir mig svo oft áður en ég fór að sofa. Á föstu- dögum fékk ég oftar en ekki að hlaupa út í lúgusjoppuna sem stað- sett var rétt hjá gamla Borgarbóka- safninu til að kaupa eina Spur og smá bland í poka til að maula með svarthvítu bíómyndinni um kvöldið. Þetta voru góðir dagar. Fljótlega eftir andlát afa fluttir þú á Kleppsveginn. Þangað vandi ég komur mínar reglulega. Þar spjöll- uðum við saman um heima og geima og þú sem endranær hafðir ávallt ákveðnar skoðanir á hlutunum. En hvort sem við vorum sammála eða ósammála sá maður ætíð hvað bjó í hjarta þínu, umhyggja og kærleiki. Oftar en ekki spjölluðum við saman yfir soðinni ýsu eða kjötbollum sem þú hafðir matreitt af kostgæfni því þú gættir þess vandlega að ég færi aldrei frá þér svangur. 24. janúar 1986 var erfiður dagur. Þú misstir dóttur þína og ég hana mömmu. Á meðan á veikindum mömmu stóð og eftir andlát hennar sýndir þú umhyggju þína í minn garð og systur minnar sem aldrei fyrr. Oftar en ekki dvaldir þú hjá okkur í Mosó, sérstaklega meðan pabbi var erlendis að fljúga. Alltaf dugleg og ósérhlífin varstu okkur fyrirmynd, þú gekkst okkur í móð- urstað. 1990 keyptir þú fallega íbúð fyrir eldri borgara í Kirkjulundi 8 í Garðabæ. Þar bjóst þú til ársins 2003, eða svo lengi sem heilsan leyfði. Heyrnin og sjónin voru farin að gefa sig, einnig áttir þú það til að fá svimaköst. Það getur sjálfsagt enginn nema sá sem reynt hefur vit- að hvað það er að geta ekki lesið lengur eða horft á sjónvarpið, varla hlustað á útvarp. Geta ekki notið þess að vera innan um fjölskylduna því að öll hljóð runnu saman í eitt. Á Hrafnistu í Hafnarfirði áttir þú þína síðustu daga. Þú varst fædd í Hafnarfirði og þar vildir þú líka eiga þitt ævikvöld. Ég man einu sinni þegar ég kom til þín í heimsókn og spurði hvort þig vantaði eitthvað úr búðinni. Þú svaraðir um hæl og sagðir: „Sjón og heyrn, það væri fínt.“ Þetta sagðir þú við mig í létt- um tón en undir niðri lá alvaran. Alla þína ævi hefur dugnaður og hjálpsemi einkennt líf þitt. Ég veit að þessir síðustu mánuðir voru þér efiðir því þér fannst sem þú værir ekki lengur til nokkurs gagns. En, elsku amma, nú er ævistarfi þínu lokið, líf þitt hefur verið sem opið bréf lesið af mörgum til eftirbreytni. Í hjarta mínu lifir þú áfram sem vitnisburður og í hjarta þeirra sem þekktu þig. Ég sakna þín en syrgi þig ekki eins og þeir sem ekki hafa von, ég kveð þig að sinni þar til við sjáumst á ný á betri stað ásamt afa og mömmu. Þinn dóttursonur, Ólafur Jón. Hún amma mín er dáin. Hún fékk nú að fara, loksins hefði hún líklega orðað það. Síðustu misserin voru erfið og hún aldrei sátt við að tapa sínum eiginleikum að sjá og heyra vel það sem var að gerast í umhverf- inu hjá henni. En í dag getum við öll hugsað til þess að hún er komin á betri stað – henni líður miklu betur. Fyrstu minningarnar um ömmu eru tengdar við Bergstaðastræti. Þar bjuggu amma og afi fyrstu árin sem ég man eftir og í gegnum öll menntaskólaárin mín. Þær voru margar heimsóknirnar og þarna hittumst við barnabörnin oft og lék- um okkur í stigaganginum frammi. Einnig var það svo gott að geta skot- ist stutt til ömmu þegar tími gafst til á menntaskólaárunum. Það var svo mikill munur að koma og hitta ömmu síðustu fáein árin miðað við þau mörgu sem á undan höfðu runnið sitt skeið. En alltaf var það gott og móttökurnar voru alltaf á sama veg. Það var sama hvort maður var lítill polli að koma í ömmu og afa heimsókn, á unglingsárunum að skjótast eftir skóladaginn í menntaskólanum eða þegar fjöl- skyldan mín tók að stækka og við komum í heimsóknir til Íslands. Alltaf var gott að koma og hitta ömmu, enginn slapp án þess að fá kaffi eða annan drykk og nóg af meðlæti. Það er líka klárt að amma hafði sínar skoðanir á ýmsum hlut- um og það var góð æfing að rabba um hin ýmsu mál. Eitt af því sem við spjölluðum alltaf um var Ísland – og það að búa á Íslandi – en þar lágu leiðir okkar ekki alltaf saman. Auð- vitað var þetta allt í góðu gríni en hjá ömmu var alltaf alvöru undirtónn í röddinni sem sagði: Þú verður nú að minnsta kosti að eiga heima á Ís- landi líka. Eitt af því sem gladdi mig og fjöl- skylduna mína var að fá hana ömmu í heimsókn til okkar í útlöndum. Sér- staklega man ég vel eftir heimsókn hennar til Lúxemborgar, stuttu eftir að við fluttum þangað 1995. Við áttum góðar stundir, ferðuð- umst um löndin í kring og spjölluð- um að sjálfsögðu um þá „ömmustað- reynd“ að best væri nú samt að búa á Íslandi. Ég veit að amma var sátt við þessar æfingar okkar, þó að það tæki alltaf sinn tíma í spjallinu í hvert skipti sem við fluttum á milli landa og kannski sérstaklega þegar við færðum okkur núna sunnar í álf- unni. En hún vissi að okkur öllum leið og líður vel og það var henni mikilvægast. Við brostum saman að þessari farmennsku minni, enda er það nú heldur ekki óvenjulegur þátt- ur í fjölskyldunni. Í lok langrar og góðrar ferðar ömmu minnar eru helstu hugsanirn- ar þakkir og góðar stundir. Hún fékk að njóta góðrar heilsu lengst af og þannig verður minningin mín í framtíðinni. Takk fyrir, amma mín. Benedikt Sigurbjörnsson. Ég kynntist ömmu Bennu fyrst þegar hún bjó ennþá í Bergstaða- strætinu. Hún tók mér alltaf sem einu af barnabörnunum sínum, enda hef ég kallað hana ömmu Bennu frá fyrstu tíð. Okkur Benna fannst oft gaman að spjalla við hana um heima og geima og fundum þá oft fyrir hversu mikið tímarnir breytast. Hún var af töluvert annarri kynslóð en við og ég tel það hverjum og einum hollt að staldra við og átta sig á hvað við lifum í miklum hraða. Ættjarðar- ást Bennu var gríðarlega sterk. Hún átti mjög erfitt með að skilja flandur okkar með fjölskylduna milli landa. Hún lifði alltaf í voninni um að við myndum sjá að okkur og koma heim. Hún var frábærlega hress fram yfir níræðisaldurinn, fór allra sinna ferða sjálf og bakaði pönnukökur í hvert sinn sem hún átti von á hers- ingunni í heimsókn. Það var einnig ósjaldan að hún bauðst til að létta undir með afmælisveislum barnanna með því að koma með pönnsur. Hún hefur loks fengið frið og eins og Borg Dóra (6 ára) sagði: „Nú hlýtur hún bæði að sjá og heyra betur.“ Við þökkum góðar stundir. Megi hún hvíla í friði. Guðrún Kristjánsdóttir. Sinna verka, nýtur seggja hver; sæll er sá er gott gerir. Heimur okkar breytist dag frá degi. Það sem var er ekki lengur. Vinir kveðja einn af öðrum og halda til samfunda við ástvini, sem áður eru farnir yfir móðuna miklu. Stundin sem beðið var eftir er loks upprunnin. Í minningunni glóir á ljúfar og góðar stundir sem ylja okkur. Vorum við nógu forvitin um tím- ana þegar Benedikta og hennar fólk voru að alast upp í Firðinum? Tíma erfiðleika, fátæktar og þrotlausrar lífsbaráttu? Dugnaður þeirra sem á undan hafa gengið hefur rutt brautina fyrir niðjana, sem nú reynir á að verði gæfusmiðir framtíðar. Ung að árum hóf Benna nám í hjúkrun, og meðal annarra vinnu- staða var Vífilsstaðaspítali, sem varð vettvangur kynna hennar og verð- andi eiginmanns, Ólafs Tómassonar, stýrimanns. Þau eignuðst tvær dæt- ur, Ólafíu Hrönn og Gerði. Gæfuhjólið snerist með þeim í löngu og farsælu hjónabandi. Heim- ili þeirra var búið gestrisni og hlýju sem við nutum ríkulega og var ávallt tilhlökkunarefni að hitta þau hjón og njóta við þau samvista. Ólafur mikill heimsmaður og fróður, óspar á að gefa öðrum sýn inn í heim hins siglda manns. Benna var hógværa hlýja myndarhúsmóðirin, sem bjó manni sínum friðsamlegt og fallegt heimili, sem þau opnuðu vinum og vanda- mönnum. Þær voru ófáar veislurnar sem við þáðum og eftirminnilegar. Hamingjan bjó lengi í húsi þeirra. En sorgin gleymir engum. Ólaf mann sinn missti Benna 1977. Og svo yngri dótturina 1986 úr illvígum sjúkdómi frá tveimur börnum. Sá mikli missir setti mark á ástríka móður og ástvini, en nú hefst nýtt líf hjá Bennu, þar sem allt verður nýtt og betra á ný. Fjölskyldunni vottum við samúð okkar við missi ættmóður, en sam- gleðjumst að þrautum hennar er nú lokið. Að leiðarlokum viljum við þakka velvilja og vinarhug þeirra hjóna á lífsleiðinni og biðjum Bennu sællar farar og góðrar heimkomu. Valgerður og Hreinn Bergsveinsson. BENEDIKTA ÞORLÁKSDÓTTIR Mig langar að minn- ast Guðbjargar Guð- mundsdóttur með örfá- um orðum. Við unnum í fjöldamörg ár fyrir sama málefni, það er að styðja sjúka til sjálfsbjarg- ar. Þegar ég kom ung stúlka til starfa á skrifstofu SÍBS komst ég smátt og smátt í kynni við umboðsmenn sam- takanna víðs vegar um land. Þau kynni urðu mismikil eftir fjarlægð og hugsanlega líka stærð umboða. Sum- ir umboðsmenn komu oft á aðalskrif- stofu samtakanna aðrir sjaldan eða aldrei. Alltaf voru tengslin þó sterk á þessum árum og eitt átti þetta fólk sameiginlegt, það var allt saman þýð- GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Guðbjörg Guð-mundsdóttir fæddist á Stóru- Drageyri í Skorradal 7. október 1929. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Skjóli að morgni 1. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 7. febrúar. ingarmiklir hlekkir í sterkri keðju hugsjóna- fólks sem barðist fyrir betra lífi sjúkra á Ís- landi. Umboðið á Grett- isgötu 26 var sterkt umboð. Fyrst þegar ég man eftir var það rekið af Halldóru Ólafsdóttur en Guðbjörg starfaði þá þegar með henni. Hall- dóra var umsvifamikil kona og áberandi dugn- aðarforkur en Guð- björg stóð ævinlega til hlés. Samt var það svo undarlegt að maður tók strax eftir henni. Hún var svo sterk- ur persónuleiki. Ekkert var henni jafnóljúft eins og það að láta á sér bera. Hún vildi vinna sín verk óáreitt og í friði fyrir augum heimsins. Eftir fráfall Halldóru rak Guðbjörg um- boðið í litlu versluninni í kjallara hússins við Grettisgötu og þar var allt í hennar yfirlætislausa stíl. Þessi hljóðláta allt að því feimna kona vann þrekvirki á sviði fjáröflunar fyrir SÍBS og hún vann miklu lengur en heilsa hennar leyfði. Undirrituð, sem á þeim tíma var framkvæmdastjóri Happdrættis SÍBS, ber töluverða ábyrgð á því hversu Guðbjörg stóð lengi í fjáröfluninni. Hún var samtök- unum einfaldlega svo dýrmæt. Þau máttu ekki missa krafta hennar, já þá litlu krafta sem hún átti eftir. Og hún stóð meðan stætt var. Mér hefur verið sagt að Guðbjörg hafi gegnt eins konar hlutverki fé- lagsmálafulltrúa á svæðinu umhverf- is Grettisgötu 26. Fólk sem átti í vanda leitaði óhikað til hennar með hvers kyns úrlausnarefni. Sagt er að hún hafi séð um lyfjaskammta fyrir veika nágranna sem ekki gátu ann- ast slíkt sjálfir. Hún mun hafa gætt barna úr nærliggjandi götum og bor- ið ábyrgð á ótrúlegustu málum fólks auk þess sem hún var sjálfkjörinn sálusorgari þeirra sem til hennar leituðu. Þetta var allt unnið í kyrr- þey, engin orð um það við aðra, ekk- ert mas eða slúður. Nefndi maður við hana sjálfa að líklega væri hún ýms- um betri en enginn, þá leit hún upp þessum dökku tindrandi augum, brosti góðlátlega og breytti snarlega um umræðuefni. Gæfuspor hennar eða góðverk voru ekki til að bera á torg. Þeir voru því margir sem leið áttu niður þrepin í litlu verslunina og erindin margvísleg. Þar var fólki ekki vísað frá og alltaf nægur skiln- ingur og hlýja til að miðla. Þarna var kona með stórt hjarta en engar kröf- ur fyrir sjálfa sig. Hún lifði alls ekki sjálfri sér heldur lifði hún öðrum alla tíð. Hún bókstaflega gaf öðrum líf sitt. Ég er þakklát fyrir að hafa feng- ið að kynnast Guðbjörgu Guðmunds- dóttur og starfa með henni. Hún var mikil kona og mannbætandi. Blessuð sé minning hennar. Helga Friðfinnsdóttir. Barn að aldri lýsti ég því einhvern tíma yfir í heyranda hljóði að ég ætl- aði að giftast henni Guddu. Eigi man ég lengur hver ástæðan var fyrir þessari yfirlýsingu. Var það sælgæt- ið í búðarborðinu? Prinspólóið og kókið í ísskápnum? Nei, ætli það hafi verið hugarþelið, þessi nærgætni og væntumþykja sem hún sýndi okkur krökkunum í nágrenninu. Ég fór að heiman og stofnaði fjölskyldu en eftir sat Gudda í búðinni. Svo liðu árin, ég skildi og kom aft- ur um tíma. Gudda var ekki búin að gleyma heitstrengingu minni því þegar hún Ásta mín átti í fyrsta sinn erindi í búðina og kynnti sig varð Guddu að orði: „Og enn má ég bíða!“ Þegar maður kemur aftur á fornar slóðir eru það ekki breytingarnar sem vekja fyrst og fremst athygli manns heldur einmitt það sem ekki hefur breyst. Þegar maður gekk inn í búðina til Guddu eftir langa fjarveru var það eins og að fara nokkra áratugi aftur í tímann. Sami gólfdúkurinn, sömu leikföngin í hillunum, sömu dúkk- urnar í glugganum og Gudda hand- fjatlaði sama trékassann sem geymdi alla SÍBS-happdrættismið- ana. Maður gaut augum á sælgætis- borðið og bjóst hálft í hvoru við að finna það sama og var á boðstólum fyrir nokkrum áratugum. Ég er sem sagt fæddur og uppal- inn aðeins tveim húsalengdum frá búðinni á horni Grettisgötu og Frakkastígs þar sem Gudda vann lungann úr ævinni. Og örlögin hög- uðu því á þann veg að ég flutti í þetta sama hús og hefi verið þar undan- gengin tíu ár. Fyrir fáum árum breyttist búðin hennar Guddu í kvikmyndaver þeg- ar Óskar Jónasson og félagar voru að vinna við gerð myndarinnar Perlur og svín. Því umstangi tók hún af sama æðruleysi og öllu öðru í lífinu. Gudda var í búðinni meðan þrek leyfði. Þeir sem helst áttu erindi til hennar seinni árin voru einstæðing- ar í nágrenninu og gamlir kunningj- ar. Parkinsonveiki hrjáði hana sein- ustu æviárin en nú er þrauta- göngunni lokið. Sigurður Jón Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.