Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 36
ÁSDÍS Ósk Valsdóttir sölufulltrúi hjá Remax fasteignasölu í Mjódd afhenti á dögunum Ullu Magnús- son, formanni SOS-barnaþorp- anna, styrk að upphæð krónur 260 þúsund. Ásdís Ósk ákvað á síðasta ári að verja vissri upphæð af þóknun fyrir hverja fasteign sem hún selur til SOS-barnaþorpanna. Styrkurinn verður nýttur í ís- lenska húsið í nýja SOS-barna- þorpinu í Úkraínu. Ásdís Ósk skorar á aðra sem standa í fasteignasölu að gera slíkt hið sama, segir í frétta- tilkynningu. Styrkur til SOS- barnaþorpanna 36 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR AFMÆLI Flestum lands- mönnum mun það kunnugt að löngum hefur þess þótt gæta að rígur nokkur væri milli Eyrbekkinga og Stokkseyringa. Sumir hafa blásið að þeim glæðum. Aðrir borið klæði á vopn. Undirritaður, sem er Eyrbekkingur, ját- ar það fúslega að hon- um finnst landslag fegurra á Stokkseyri. Strandlengjan með grasi vöxnum hólmum og fjölbreyttum gróðri setur hug- þekkan svip á umhverfið. Fjallasýn svipuð í báðum plássum. Mikill og stöðugur samgangur var jafnan milli þorpanna og nutu báðir stað- irnir fjölþættra menningarstarfa sömu manna. Má þar t.d. nefna bræðurna Jón Bjarna, Ísólf, Pálm- ar, Júlíus og Gísla Pálssyni menn- ingarfrömuði. Í dag er það samt annar Stokks- eyringur sem mér er efst í huga. Það er fulltrúi sígrænna sólarlanda, góðvildar og gleði, daglegur gestur og heimamaður í miðbæ Reykjavík- ur, síkátur, með bros á vör og glettni í augum, Gunnar Hjálmtýs- son. Hann er 85 ára í dag. Ég hefi áður vakið athygli á þætti Bernhöftanna í merku fram- lagi þeirra til glaðlegra og betra lundarfars. Þess gætir fljótlega á fyrri hluta nítjándu aldar er Bern- höftarnir setjast að í Bankastræti og hefja bakstur sinn og brauða- og kökugerð, að mörgum þeirra fylgir létt lund og jákvætt hugarfar. Ég átti því láni að fagna að eiga góðkunningja, Ludvig Hjálmtýs- son, en hann átti til Bernhöftanna að telja. Fjölþætta hæfileika mun hann einnig hafa sótt til Hjálmtýs, föður síns, en hann var kunnur at- hafnamaður sem tók virkan þátt í félagsstarfsemi, m.a. leikstarfsemi. Eiginkona hans, María Hansen, ein hinna mörgu Bernhöftssystkina, tók jafnan þátt í leiksýningum kvenfélaga í Reykjavík. Diddú, söngkona, er lifandi eftirmynd hennar. Ég efast um að gaman- semi, gleðihlátrar og jafnvel hlátra- sköll hafi nokkurs staðar hljómað af slíkri einlægni og innileik eins og GUNNAR HJÁLMTÝSSON á samkomum þeirra systkina. „Lífsgleði njóttu, svo lengi kost- ur er“ má segja að hafi verið kjörorð þeirra. Það er Gunnar Hjálmtýsson sem gleðiboðskapur dags- ins er helgaður. Marg- ur Reykvíkingur hugs- ar hlýlega til hans í dag. Þakkar sólskins- bros hans og létta lund. Minnist ánægju hans og starfsgleði við gatnahreinsun mið- bæjarins, á Lækjartorgi og rúnt- inum. Hvernig hann sveiflaði kúst- inum léttilega og sópaði bréf- sneplum, gosdrykkjarumbúðum, flöskutöppum og öðru rusli í vagn- inn sem hann ók og með fylgdu glaðbeittar athugasemdir: Á ekki að fara úr skónum þegar búið er að pússa svona vel? Að minnsta kosti bursta þá vel. Mér verður oft hugsað til þess hve mjög bæjarbúar skulda þeim samtíðarmönnum, sem lýstu upp umhverfi sitt og alfarleið með gam- ansemi og glettni. Hugsum okkur alla fýlupúkana og þrúgandi skammdegisþunga sem lagði lág- skýjaþunglyndisbólstra yfir allan sjóndeildarhringinn og réð daglát- um. Auðvitað réðu daprar kring- umstæður, veikindi og basl mestu um skapferli og viðmót, en þá ræt- ast orð Einars Benediktssonar: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,/ sem dropi breytir veig heillar skálar. Heimili Gunnars, foreldra hans og systkina stóð lengi á Sólvalla- götu. Gunnar hefir jafnan verið umvafinn ást og umhyggju fjöl- skyldu sinnar. Það sannaðist líka sl. laugardag er ættingjar hans héldu honum samsæti á heimili Þórs Magnússonar, fyrrverandi þjóðminjavarðar. Þar söng Páll Óskar við undirspil Moniku Abend- roth sem lék á hörpu. Slíkan hörpu- leik heyrir maður ekki fyrr en á himnum. Vigdís, fyrrum forseti, heiðraði afmælisbarnið með nærveru sinni. „Og skólskinið ljómaði um bæ- inn.“ Pétur Pétursson þulur. FRÉTTIR Elsku amma. Það er bæði sárt og skrítið að þurfa að kveðja þig, en samt er mér efst í huga þakk- læti. Ég er þakklátur fyrir það hvað við fengum að hafa þig lengi og hvað þú fékkst að fara með mikilli reisn. Ég er líka þakklátur fyrir all- ar stundirnar sem ég fékk að eyða með þér, þá sérstaklega þegar ég var yngri og þú passaðir okkur bræðurna. Ég er líka stoltur af þér og því sem þú afrekaðir í lífinu, hélst myndarlegt heimili og ólst upp góð og dugleg börn. Þú varst góð, glæsileg og skemmtileg kona og frábær amma. Minning þín mun lifa í mér og hin- um afkomendum þínum og það er notaleg tilhugsun að vita að þú vak- ir yfir okkur. Takk fyrir allt og Guð blessi þig, Haukur. Hildur Björnsdóttir, föðursystir mín, var einstaklega aðlaðandi og skemmtileg frænka. Eðlislæg glað- værð, gott skopskyn og alúðleg framkoma heillaði þá sem umgeng- ust hana og ávann henni fjölda tryggra vina. Fyrstu bernskuminn- ingar mínar tengjast heimsóknum til Hildar og Gísla Kærnested og barna þeirra, þegar þau bjuggu á Sólvallagötunni í nágrenni við Önnu ömmu mína, móður Hildar. Það var kostur að geta komið við á nokkrum heimilum frændfólks og heimsótt ömmu og síðan nokkur systkini föð- ur míns heitins í einni og sömu ferð í Vesturbæinn. Vinátta við þau var snemma innsigluð og mótaðist fyrst og fremst af umhyggjusemi þeirra í minn garð. Um 1950 var gert átak til að leysa húsnæðisörðugleika í bænum með byggingu íbúðarhúsa í Bústaða- hverfinu, þar sem alþýðufólki gafst kostur á að eignast húsnæði með hagstæðum lánum, sem Reykjavík- urbær hafði milligöngu um. Fjöl- skylda mín settist þá að við Bú- staðaveginn en Hildur og Gísli og börn fluttu í Hólmgarðinn, næstu götu við, og var stutt að skjótast á milli húsa. Í þessu nýja hverfi, sem reis upp á grænum grundum og langt úr kallfæri við aðra bæjar- hluta, voru samankomnar nokkur hundruð fjölskyldur víðsvegar að úr Reykjavík og urðu nú að stofna nýtt nágrannasamfélag. Við þær aðstæður var mikill styrkur að vita af ættingjum og nánum vinum skammt frá. Þannig hófst samgang- ur milli heimilanna með tíðum, gagnkvæmum heimsóknum. Ófáar voru ferðirnar, sem ég fór með móður minni og stjúpa í heimsókn til Hildar og Gísla, þar sem ég gat lagt við eyru og hlustað eftir orð- ræðu fullorðna fólksins um landsins gagn og nauðsynjar. Auk þess var spennandi að hitta frændur mína þá Óla Björn og Anton Örn, sem voru nokkru eldri og ég leit talsvert upp HILDUR B. KÆRNESTED ✝ Hildur Björns-dóttir Kærnested fæddist í Reykjavík 27. nóvember 1916. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Sóltúni 2, 31. janúar síðast- liðinn og var jarð- sungin frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 8. febrúar. til. Systurnar Ásthild- ur Birna og Sigrún Gróa, sem yngri voru, nutu einnig alúðar for- eldranna á traustu bernskuheimili. Hild- ur var margvíslegum kostum búin til að skapa fjölskyldu sinni myndarlegt heimili af mikilli smekkvísi. Og þess nutu gestir henn- ar í ríkum mæli. Gísli Kærnested var burt kallaður í blóma lífsins. Það var á ferm- ingardaginn minn 1957 að tengdafólk og nánir vinir áttu síðast samfundi með honum. Nokkrum dögum síðar varð hann bráðkvaddur, hné niður og varð ör- endur er þau hjónin voru á leið inn í kvikmyndahús á sunnudagskvöldi. Skiljanlega urðu þá mikil umskipti í lífi Hildar, er hún þurfti að sjá fyrir börnunum ein. Hún hóf störf í Út- vegsbankanum og vann þar um ára- tugaskeið. Er mér það kunnugt af ummælum samstarfsfólks og við- skiptavina, að Hildur hafi verið frá- bær starfskraftur og einstaklega góður fulltrúi fyrir bankann, sam- vizkusöm, jákvæð og velviljuð öll- um. Hildur fór ekki dult með að hún hefði á þessum erfiðleikatímum og oft síðar átt góða að, einkum móður sína, systkini sín og maka þeirra, og nefndi þá gjarnan Sigríði systur sína og Bjarna Benediktsson eig- inmann hennar sérstaklega. Hún gat þess líka að Jóhann Hafstein hefði sem bankastjóri Útvegsbank- ans reynzt sér einstaklega vel, að taka sig í vinnu, einstæða móður, sem litla sem enga reynslu hafði af störfum utan heimilis. Hildur var vinmörg og starfaði um langt árabil í Oddfellowreglunni í félagsskap góðra vinkvenna, sem hún mat mikils. Það var alltaf skemmtilegt að heyra systurnar úr Ánanaustum, þær Ástu, Hildi, Sigríði og Auð- björgu, rifja upp atvik úr Reykja- víkurlífinu eins og það var í upp- vexti þeirra. Á seinni árum fræddist ég enn betur af Hildi um líf foreldra hennar og systkina heima í Ánanaustum. Barnahópur- inn var stór og heimilisfaðirinn skipstjóri, sem var úti á sjó mestan hluta ársins. Börnin urðu því að taka höndum saman um heimilis- haldið og umönnun yngri systkina með ömmu Önnu. Svo komu áföllin hvert af öðru. Systir kölluð brott af sjúkdóms völdum, nýgift. Þrír bræðurnir fórust nokkrum árum síðar í sjóslysum með fárra vikna millibili. Síðan önnur systir og svo faðirinn. Á örfáum árum var þetta stóra skarð höggvið í ástvinahóp- inn. Sjálf missti Hildur eiginmann sinn á bezta aldri og Óli Björn son- ur hennar lézt af völdum hjarta- sjúkdóms rúmlega fertugur. Aðrir nánir ættingjar og vinir hurfu á brott með sviplegum hætti. Æðru- leysið og kjarkurinn, trúin og kær- leikurinn hefur verið áberandi í fari frændfólks míns og verið því mikil stoð, þegar verst gegndi. Seinustu árin átti Hildur við sjúkdóm að stríða og lá lengi rúm- föst. Fyrir nokkrum árum dvaldist hún um skeið á líknardeild Landa- kotsspítala. Enga manneskju hef ég heyrt ræða jafnopinskátt um vilja sinn til að deyja, og láta um leið í ljós innilega gleði sína yfir vænt- anlegum endurfundum við horfna ástvini á æðra tilverustigi. Hildur dó ekki þá og flutti á hjúkrunar- heimilið Sóltún, þar sem hún átti nokkur æviár enn og andaðist 88 ára gömul. Við Steinunn vottum börnum og öðrum vandamönnum Hildar samúð okkar um leið og við kveðjum með hlýju þessa góðu frænku mína og biðjum henni Guðs blessunar á endurfundum við horfna ástvini. Markús Örn Antonsson. Gengin er mæt kona, Hildur Björnsdóttir frá Ánanaustum, sem ung giftist móðurbróður mínum Gísla Kærnested og tók þá upp ætt- arnafn hans. Hildur var því hluti af tilverunni allt frá því ég man fyrst eftir mér, en afar miklir kærleikar voru með þeim systkinum Sigrúnu móður minni og Gísla. Kom þar m.a. til að aðeins þau tvö náðu full- orðinsaldri úr stórum systkinahópi. Var mikill samgangur á milli heim- ila mömmu og pabba og Gísla og Hildar og nutum við krakkarnir þess ríkulega með gagnkvæmum heimsóknum, við til þeirra í hvert sinn er komið var til Reykjavíkur, fyrst á Sólvallagötu síðan í Hólm- garðinn og þau til okkar að Klepp- járnsreykjum í Borgarfirði. Það var því svart skýið sem fyrir sólu dró vorið 1957 þegar Gísli féll frá, aðeins 42 ára gamall, og Hildur stóð eftir með fjögur börn, það yngsta á fjórða ári. Úr varð að Hild- ur kom til okkar í Reykholtsdalinn með þær Ásthildi og Sigrúnu Gróu þetta örlagaríka vor og allt kapp var lagt á að lifa sem eðlilegustu lífi í skugga þessa mikla harmleiks. Þrátt fyrir ungan aldur gerði ég mér vel grein fyrir hve erfið sporin hennar Hildar voru þetta sumar og í raun aðdáunarvert hvernig hún tókst á við lífið og gjörbreyttan hag. Í minningargrein sem Bjarni heitinn Benediktsson ritaði um Gísla svila sinn lýsir hann einkar vel því lífsmynstri sem Hildur og Gísli bjuggu við, segir þau ekki hafa verið efnuð en haft til að bera mikið samlyndi og hollustu hvort við ann- að. Orðrétt sagði Bjarni „Heimili þeirra var ætíð fallegt enda ríktu þar gestrisni og höfðingslund.“ Vel mælt, eins og Bjarna var von og vísa. Þáttur Hildar í heimili þar sem saman fóru gestrisni og höfð- ingslund var stór, það fundum við vel sem þess nutum. Enn er mér minnisstætt símtal snemma að morgni í júlímánuði árið 1970 þegar mamma hringdi og sagði mér þá sorgarfregn að Bjarni og Sigríður kona hans hefðu brunn- ið inni í sumarhúsi á Þingvöllum ásamt dóttursyni sínum. Enn knúði því sorgin dyra hjá Hildi, í þetta sinn sá hún á bak elskulegri systur, mági og litlum sólargeisla þeirra. Haustið 1981 fæ ég enn erfitt símtal, þegar Hildur hringir og seg- ir að Óli Björn, elsti sonur sinn hafi veikst mjög alvarlega. Skömmu síð- ar lést hann, aðeins 43 ára að aldri. Hildur missir þarna son sinn liðlega fertugan og hafði áður misst mann sinn álíka gamlan. Við höfðum á orði hve mikið væri á eina mann- eskju lagt, en með ólíkindum var hvað hún Hildur var sterk og hvernig hún gat í raun haldið lífs- hlaupinu áfram þrátt fyrir ítrekuð stór áföll. Komu þar án efa til mannkostir góðir og döpur reynsla frá unga aldri, en á þrítugsaldri missti Hildur 5 systkini sín. Lengi má víst manninn herða. Síðast hitti ég Hildi rétt fyrir síð- ustu jól. Þótti mér þá ljóst að hverju stefndi, en allt til hins síð- asta var hún einstaklega viðræðu- góð og minnug á liðna tíð. Samveru- stundir með henni, nú síðustu ár á Landakoti og í Sóltúni skildu mann ríkari eftir. Fyrir hönd bræðra minna og fjöl- skyldna okkar allra flyt ég þeim Antoni, Ásthildi, Sigrúnu og Sirrý og fjölskyldum þeirra einlægar samúðarkveðjur. Kveðjur sendum við og til eftirlifandi systkina Hild- ar og alls frændgarðs hennar og vina. Blessuð sé minning konunnar sterku Hildar Kærnested. Óli H. Þórðarson. Morgunblaðið birtir minningargrein- ar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkostur- inn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bil- um – mælt í Tools/Word Count). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.