Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Hafðu samband við okkur og fáðu nánari
upplýsingar um þetta skemmtilega starf
á www.friendtex.is eða hafðu samband
við Ragnar eða Margréti i síma 568-2870
Viltu gerast söluaðili?
Óskum eftir að ráða
sölufólk til að selja
Friendtex fatnað á
heimakynningum
Við gerum fatainnkaupin
miklu skemmtilegri
Langar þig að nota frítíma þinn til selja
fallegan fatnað og afla þér tekna á
skemmtilegan hátt? Þá skaltu gerast
söluaðili hjá Friendtex. Við leitum eftir
duglegum og glaðlegum einstaklingum.
Matreiðslumaður
Dagvinna
Framsækið matvælafyrirtæki óskar eftir mat-
reiðslumanni sem fyrst.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða á
box@mbl.is, merktar: „Matreiðslumaður —
16664.“
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Styrkir
Orkusjóður
Auglýsing um styrkveitingar 2005
Í 2. grein reglugerðar um Orkusjóð nr. 514/2003
eru tilgreindar heimildir til styrkveitinga úr
Orkusjóði:
„Að veita styrki eða áhættulán til hönnun-
ar eða smíði frumgerðar tækja og búnaðar
til rannsóknar og nýtingar orkulinda.“
„Að veita styrki til sérstakra verkefna á
sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t.
til fræðslu og upplýsingastarfsemi.“
„Að veita styrki til verkefna sem stuðla
að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefna-
eldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu
um slík verkefni.“
Á árinu 2005 styrkir Orkusjóður verkefni á eftir-
töldum sviðum í þeim mæli sem fjármunir
hans hrökkva til:
a. Verkefni sem leiði til hagkvæmrar
orkunotkunar.
Sérstök áhersla er lögð á:
1. Að stuðla að hagkvæmri orkunýtingu
og orkusparnaði.
2. Að afla þekkingar á þessum sviðum og
miðla henni.
3. Að hvetja til rannsókna- og þróunarstarfs
er að þessu miðar.
b. Verkefni sem leiði til minni notkunar
jarðefnaeldsneytis.
Sérstök áhersla er lögð á:
1. Þekkingaröflun og samstarf.
2. Nýjar leiðir til orkuöflunar/orkuframleiðslu.
Umsóknarfrestur er til 4. mars 2005.
Umsóknum skal skila til Orkusjóðs, Borgum
við Norðurslóð, pósthólf 102, 602 Akureyri.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins
og á os.is. Frekari upplýsingar eru veittar í sím-
um 563 6083 og 894 4280, netfang jbj@os.is.
Orkuráð.
Tilkynningar
Tillaga að breytingu
á aðalskipulagi Hveragerðis
1993-2013
Klettahlíð 11
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar auglýsir hér með
tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hveragerðis
1993-2013. Í tillögunni felst að svæði ofan við
Klettahlíð og vestan við Breiðumörk, sem skil-
greint er sem íbúðarsvæði breytist í blandaða
landnotkun stofnana- og athafnasvæðis.
Á svæðinu er fyrirhugað að reisa þvottahús fyrir
Dvalarheimilið Ás í Hveragerði með
aðkomu frá Klettahlíð.
Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrif-
stofunum í Sunnumörk 2, frá og með fimmtu-
deginum 17. febrúar 2005 til fimmtudagsins
17. mars 2005.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við breytingartillöguna. Frestur til þess
að skila inn athugasemdum rennur út fimmtu-
daginn 31. mars 2005. Skila skal skriflegum
athugasemdum á bæjarskrifstofur Hveragerð-
isbæjar, Sunnumörk 2, 810 Hveragerði.
Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við
breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, telst
samþykkur henni.
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar.
Mosfellsbær
Deiliskipulag
á reiðleið frá Vestur-
landsvegi við Varmá að
reiðleið í landi Reykja-
hvols í Mosfellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 2. febrúar sl.
var samþykkt tillaga að deiliskipulagi reið-
leiðar frá Vesturlandsvegi við Varmá að
reiðleið í landi Reykjahvols í Mosfellsbæ.
Skipulagstillagan tekur til aðalreiðleiðar
sem liggur frá Vesturlandsvegi við Varmá
um Völuteig og þverar Hafravatnsveg,
liggur svo um land Teigs, Sólvalla og
Reykjahvols að reiðleið vestan Reykja-
borgar.
Tillaga að deiliskipulagi
íbúðarsvæðis við Grænu-
mýri og Hamratún í Mos-
fellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 2. febrúar 2005
var samþykkt til kynningar tillaga að deili-
skipulagi íbúðarsvæðis við Grænumýri og
Hamratún í Mosfellsbæ.
Skipulagssvæðið afmarkast af byggð við
Hlíðartún og Hamratún til vesturs, Aðal-
túni til norðurs, Flugumýri til austurs og at-
hafnalóðum við Grænumýri til suðurs.
Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði heimilt
að byggja alls 57 íbúðir, þar af 24 íbúðir í
einnar til tveggja hæða raðhúsum og 33
íbúðir í þriggja til fjögurra hæða fjölbýlis-
húsum. Aðkoma verður að sjö raðhúsum
frá Hamratúni en að öðru leyti verður að-
koma um Grænumýri og nýja götu út frá
Flugumýri.
Tillögurnar verða til sýnis í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar, Þverholti 2, fyrstu hæð, frá
16. febrúar til 17. mars nk. Jafnframt
verður hægt að skoða tillögunar á heima-
síðu Mosfellsbæjar: www.mos.is undir:
Framkvæmdir, deiliskipulag.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu
hafa borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar
fyrir 31. mars nk. Þeir, sem ekki gera at-
hugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Auglýsing
um tillögu að deiliskipulagi lóða
nr. 1-8 við Stórholt og 1-6 við Háholt
á Þórshöfn, Þórshafnarhreppi.
Með vísan til 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 og samþykktar hreppsnefndar
Þórshafnarhrepps 2. febrúar 2005 er hér með
auglýst tillaga að deiliskipulagi lóða nr. 1-8
við Stórholt og 1-6 við Háholt á Þórshöfn,
Þórshafnarhreppi.
Lóðirnar sem um ræðir eru á „athafnasvæði“,
samkvæmt aðalskipulagi, rúmlega 3 ha að
stærð og afmarkast af Langanesvegi í vestri
og Langholti í suðri.
Skipulagstillagan, ásamt greinargerð, verður
til sýnis á skrifstofu Þórshafnarhrepps á
Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn frá og með miðviku-
deginum 16. febrúar 2005 til miðvikudagsins
16. mars 2005.
Þeir, sem hafa athugasemdir fram að færa við
framangreinda skipulagstillögu, skulu skila
þeim skriflega til skrifstofu Þórshafnarhrepps
á Fjarðarvegi 3, Þórshöfn, eigi síðar en
30. mars 2005.
Hægt verður að nálgast tillöguna á heimasíðu
Þórshafnarhrepps — http://www.thorshofn.is
— frá og með 16. febrúar 2005.
Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við
skipulagstillöguna innan framangreinds frests,
skoðast samþykkur henni.
Þórshöfn, 16. febrúar 2005.
Björn Ingimarsson,
sveitarstjóri Þórshafnarhrepps,
Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.
Félagslíf
HELGAFELL 6005021619 VI
Erindi
GLITNIR 6005021619 II
I.O.O.F.181852168Gk.Kk.
I.O.O.F. 9 18502168½ II
I.O.O.F. 7 1852167½ SK
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.