Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 40

Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes EF ÞÚ HELDUR ÁFRAM AÐ ÞYNGJAST Á ÞEIM HRAÐA SEM ÞÚ GERIR NÚNA... ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ SKYGGJA Á SÓLINA EFTIR 17 ÁR HVERT ERTU AÐ FARA? AÐ NÁ Í KLEINUHRING OG VASALJÓS HÉRNA ER HEIMSFRÆGI HOKKÍLEIK- MAÐURINN AÐ FARA AÐ SPILA FYRSTA LEIK ÁRSINS ÞJÓÐSÖNGURINN BYRJAR EFTIR 5 SEKÚNDUR BYRJAR LEIKURINN... DÓMARINN SLEPPIR PÖKKNUM... EFTIR EINA MÍNÚTU VERÐUR MÉR VÍSAÐ AF VELLI! KANNANIR VIKUNAR LÍTA VEL ÚT FYRIR ÞIG PABBI ÞAÐ ER GOTT AÐ HEYRA ÞÚ HEFUR SJALDAN NOTIÐ EINS MIKILS FYLGIS SEM PABBI HEIMILISINS OG MEÐ ÞVÍ AÐ GERA EITT GÓÐVERK Í DAG GÆTIR ÞÚ NÁÐ METFYLGI OG TRYGGT AÐ ÞÚ VERÐIR PABBI Á NÆSTA KJÖRTÍMABILI GÓÐ TILRAUN KALVIN. FARÐU AÐ VASKA UPP OG HANN FREMUR PÓLITÍSKT SJÁLFS- MORÐ Risaeðlugrín © DUPUIS BLA BLA... BLABLABLA BLA BLABLA... ANSANS! VIÐ KOMUMST EKKI LENGRA VIÐ VERÐUM AÐ SNÚA VIÐ. OG ÞAÐ EFTIR 3 TÍMA GÖNGU HLJÓÐ! VIÐ SEM VORUM ALVEG AÐ KOMA SÉRÐU ANNAN MÖGULEIKA? HLJÓÐ SEGI ÉG! ÉG ER AÐ REYNA AÐ HUGSA HÉRNA! ÉG ER VISS UM AÐ HANN FINNUR LAUSN Á VANDANUM VEGNA ÞESS AÐ HANN ER SVO GÁFAÐUR ÉG FANN LAUSNINA!! HVAÐ SAGÐI ÉG? MEIRI HÖRKU Í ÞETTA STRÁKAR! ÞIÐ VERÐIÐ AÐ FARA AÐ HREYFA YKKUR OFTAR, ÞETTA ER AUMKUNNARVERT! Dagbók Í dag er miðvikudagur 16. febrúar, 47. dagur ársins 2005 Víkverji er einnþeirra sem not- færa sér nettengingu til að vinna heima. Það er reynsla hans að tengingin geri honum auðveldara að sam- hæfa starf og fjöl- skyldu. Maki Víkverja er jafnframt svo vel settur að hann getur unnið að heiman. Þeg- ar heimasætan veiktist um daginn gátu hjónin skipst á að vera heima en jafnframt verið í sambandi við starfið, þótt afköstin hafi dreg- ið dám af aðstæðum. Víkverji getur farið heim aðeins fyrr á daginn en lýkur svo dagsverk- inu síðdegis eða um kvöldið heiman frá sér. Fyrir bragðið nær hann oft að eiga rólega samverustund með börnunum áður en farið er að elda og sinna nauðsynlegum heimilisstörfum. Það finnst honum ómetanlegt. Tvennt er það sem Víkverji hefur fyrirvara á varðandi heimavinnuna. Í fyrsta lagi kemur hún ekki í stað viðveru á vinnustað. Umhverfið hefur áhrif á vinnuna og maður sem situr einangraður heima hjá sér fer á mis við eðlilegan takt starfsdagsins. Í öðru lagi er hætt við að þeir sem taka vinnuna með sér heim auki álagið á fjöl- skylduna því að heima- vinnan verður viðbót við dagvinnuna. Reynslan á heimili Vík- verja er sú að verið er af og til í vinnunni fram að háttatíma. En auðvitað á við í þessu tilfelli að hér veldur hver á heldur. Niður- staðan er að minnsta kosti sú að Netið hafi gjörbylt aðstæðum Víkverja í vinnunni og komi sér vel bæði fyrir vinnuveitanda og Vík- verja. x x x Undirbúningur sumarleyfisinsstendur yfir hjá fjölskyldu Vík- verja. Hugmyndin er að nota keppn- isferð unglingsins á heimilinu sem tilefni til Ítalíufarar. Víkverji tekur eftir því þegar hann leitar að gist- ingu á Netinu að gistimöguleikarnir á Ítalíu eru ótalmargir og fjöl- breyttir. Hann rekur sig hins vegar á að þegar eru ýmsir áningarstaðir fullbókaðir í byrjun júlí. Það er því auðsjáanlega ástæða til að vera snemma á ferðinni og skipuleggja fríið, a.m.k. þegar fara á til Ítalíu. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is               Fossvogur | Þessi fallega stytta af „Stráknum með fiskinn“ hefur vakið for- vitni margra kynslóða ungra Íslendinga og hafa ófá börnin án efa spurt for- eldra sína hvers vegna „strákurinn pissar svona mikið?“ Nú er verið að rífa gömlu Nestisstöðina í Fossvoginum og til stendur að ný stöð rísi á lóðinni. Á meðan á framkvæmdunum stendur var styttan fjarlægð, en aðdáendur henn- ar þurfa engu að kvíða, því styttan mun að öllum líkindum í framtíðinni prýða áningarsvæði vestan stöðvarinnar, þar sem Olíufélagið hefur boðið Reykja- víkurborg styttuna að gjöf. Morgunblaðið/Jim Smart Strákurinn með fiskinn MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sálm. 27, 1.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.