Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fi 17/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Fö 4/3 kl 20
Lau 5/3 kl 20, Su 13/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 20/2 kl 14 Su 27/2 kl 14
Su 6/3 kl 14 - AUKASÝNING
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
SÝNINGAR HALDA ÁFRAM EFTIR PÁSKA
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 6/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fi 17/2 kl 20, Su 20/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 24/2 kl 20, Fö 25/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 3/3 kl 20, Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Allra, allra síðustu sýningar
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Aðalæfing mi 23/2 kl 20 - 1.000
Frumsýning fi 24/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 26/2 kl 20, Mi 2/3 kl 20
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 20/2 kl 20. Su 27/2 kl 20, Fi 3/3 kl 20
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Forsýning í kvöld kl 20 - kr. 1.000
Aðalæfing fi 17/2 kl 13 - kr. 1.000
Frumsýning fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
VESTURFARARNIR - NÁMSKEIÐ
Í samstarfi við Mími-símenntun
Í kvöld kl 20 - Helga Ögmundardóttir
Mi 23/2 - Böðvar Guðmundsson
Innifalið: Boð á Híbýli vindanna
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið og Litla svið
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“SNILLDARLEIKUR”
• Föstudag 18/2 kl 20 LAUS SÆTI
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
VS Fréttablaðið
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Áfram LA!“
S.A. Viðskiptablaðið
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 18.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 19.2 kl 20 Örfá sæti
Sun. 20.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 25.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 26.2 kl 20 Örfá sæti
Fös. 04.3 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 05.3 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Frumsýning 19.feb uppselt
Mið. 23.2 nokkur sæti laus
Fös 25.2
Lau 26.2
Sun 27.2
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 555 2222 www.hhh.is
Brotið
sýnir
eftir þórdísi Elvu ÞorvaldsdótturBachmann
Það sem getur komið fyrir ástina
3. sýn. 18. feb. kl 20 – Uppselt • 4. sýn. 20. feb. kl. 19 – Uppselt
5. sýn. 25. feb. kl. 20 – Örfá sæti laus • 6. sýn. 27. febrúar kl. 19 – Örfá sæti laus
7. sýn. 4. mars kl. 20 – Örfá sæti laus • 8. sýn. 6. mars kl. 19 – Örfá sæti
9. sýn.12. mars kl. 19 – Örfá sæti laus.
Ekki er hleypt inn í salin eftir að sýningin hefst
Tosca – Vetrarkvöld með Puccini og Verdi,
í Laugarborg mið. 23. febrúar kl. 20.30
Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór og
Kurt Kopecky, píanó flytja aríur og dúetta úr Toscu og úr öðrum óperum
eftir Puccini og úr óperum eftir Verdi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
Rauð tónleikaröð #4
Anton Bruckner ::: Sinfónía nr. 8
Hljómsveitarstjóri ::: Petri Sakari
Sími 545 2500 I www.sinfonia.is
Bruckner
og Sakari
Petri Sakari stýrir
frumflutningi á 8. sinfóníu
Bruckners hér á landi. Bruckn-
er kallaði verkið „leyndardóm-
inn“ sinn enda verkið töfrandi
og stórfenglegt.
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN
17. FEBRÚAR KL. 19.30
Samverustund Vinafélagsins hefst kl. 18.00
í Sunnusal Hótel Sögu. Árni Heimir Ingólfsson
tónlistarfræðingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Verð 1000 kr. Súpa og brauð innifalið.
FYRSTU tónleikar af 6 áformuðum
á vormisseri „15:15“ raðarinnar fóru
fram á laugardag við síðkomula en
allgóða aðsókn.
Engin gafst tón-
leikaskráin, hvað
þá munnlegar
kynningar, en á
misserisskrá
mátti þó skilja að
tvö verk væru í
boði. Eitthvað
hlaut að hafa
breytzt í millitíð-
inni, því ekki varð
undirritaður var við fleiri en eitt
verk. Það stóð í um 50 mínútur; að
mestu „kollektífur“ hópspuni, enda
nótur sýnilega af skornum skammti.
Auk þess sást stjórnandinn, Pétur
Grétarsson, aðeins setja samspilinu
púlsrænar skorður í örfáum stuttum
köflum.
Ég hafði aðeins heyrt slagverks-
hópinn einu sinni áður, og einungis
með erlend verk eftir Crumb og
Takemitsu. Í þetta sinn var allt hins
vegar heimakokkað, en titillaust.
Nafn hópsins virtist því miklu síður
tengt bæheimska smámeistaranum
Jirí Antonin Benda (1722–95) en
samheitinu yfir flækju, hóp eða
þvögu. Sbr. „allt í einni bendu“.
Stemmdi það líka betur við afslappað
viðhafnarleysi hópsins gagnvart
stallsettri listmúsík, sem líklega er
bæði styrkur hans og veikleiki.
Fullyrt hefur verið að spuni sé
bara hraðasta aðferðin við tónsmíð-
ar, og er freistandi að fallast á það
þegar snjöll djasssóló eða snarstefj-
unarkennd orgelverk hins unga
Bachs koma upp í hugann. Annað
mál er að tryggja sannfærandi heild-
arsvip þegar margir spinna saman,
þótt enginn skyldi útiloka slíkt að
fyrra bragði. Hér sem í öðru sköp-
unarferli hlýtur [sam]æfingin að
gera meistarann. Enda fékk maður
fljótt hugboð um að Bendumenn
væru að þróa spónnýja grein, mitt á
milli skrifaðs og óskrifaðs, er gæti
átt eftir að skila athygliverðum
árangri – og jafnvel efnt fornan
framúrstefnudraum um „nie erhörte
Klänge“.
Uppsettir hljóðnemar gerðu hópn-
um kleift að læra af staðbundinni
reynslu, hljóðstýra útkomunni eftir á
og jafnvel gefa hana út. En þótt slík
útgáfa gefi kannski lítið í aðra hönd,
þá sýndi fyrirkomulagið alltjent
fram á óvenjufrjóa lausn á eilífðar-
vanda dvergvaxins tónlistarmarkað-
ar, þar sem upplagastærðir eru í
músarmynd og hver dagskrá nýtist
varla nema í eitt skipti á sviði.
Og hvernig var svo verkið? Því er
ekki fljótsvarað, enda reyndist hljóð-
heimurinn svo margleitur að hrað-
skáld hefði leikandi getað ort langt
ljóð upp úr margvíslegum hug-
myndatengslum hans, allt frá hroll-
vekju til hláturs. En þó að afurðin
stæðist tæplega ítrekaða hlustun af
hljómdiski (a.m.k. ekki óklippt), hélt
margt furðugóðri athygli, og varð á
köflum m.a.s. vart við ákveðna við-
leitni til formbyggingar er lofaði
góðu um framhaldið.
TÓNLIST
Borgarleikhúsið
Slagverkshópurinn Benda (Eggert Páls-
son, Pétur Grétarsson og Steef van Oost-
erhout slagverk; Snorri S. Birgisson pí-
anó). Gestir: Jóel Pálsson kontrabassa-
klarínett og David Bobroff kontrabassa-
básúna. Laugardaginn 12. febrúar kl.
15.30.
Slagverkstónleikar
Pétur Grétarsson
Ríkarður Ö. Pálsson
STRÆTI Jims Cartwright hefur
ýmsa kosti sem gera það að ákjósan-
legu verkefni fyrir metnaðargjarnt
framhaldsskóla-
leikfélag. Persón-
ur hans eru
dregnar einföld-
um dráttum, text-
inn er safaríkur
án þess að vera
upphafinn og
formið er laust í
reipunum þannig
að auðvelt er að
stytta og hagræða
og laga verkið að aldri og þörfum
hópsins. Margrét Sverrisdóttir hefur
notfært sér þetta, og meira að segja
skotið inn í sýninguna tveimur atrið-
um úr Bar Par til að allir þátttakend-
ur fái eitthvað bitastætt að glíma við.
Þetta er aðdáunarverð afstaða til
hópsins og form verkanna gerir þetta
mögulegt.
Nýsköpun er líka í forgrunni í leik-
rýminu, en hópurinn hefur lagt undir
sig hráslagalegan iðnaðarsal og
breytt í leikhús sérstaklega fyrir sýn-
inguna. Leikmyndin er byggð á
vinnupöllum sem teikna á einfaldan
hátt húsin við götuna sem nafn verks-
ins vísar til, og myndar mjög þénan-
lega umgjörð um allar þær litlu sögur
sem sagðar eru af fólkinu sem verkið
fjallar um, vonlausa, atvinnulausa lág-
stéttarbreta sem drepa óhamingju
sinni á dreif eina kvöldstund með
áfengi og skyndikynnum.
Það sem lukkast best í sýningunni
er hve mörgum leikaranna hefur tek-
ist með hjálp leikstjóra síns að gera
efnið „að sínu“, þannig að iðulega var
eins og hér væri á ferðinni verk um
norðlenska ógæfuunglinga á djamm-
inu en ekki norður-ensk fórnarlömb
thatcherismans. Engin tilraun var þó
blessunarlega gerð til að staðfæra eitt
né neitt, þessi áhrif stöfuðu einungis
af áreynslulausri innlifun og afslöpp-
uðum leikstíl sem lagður er til grund-
vallar. Þó bragðmikill texti Cart-
wrights bjóði sífellt heim hættu á
óhemjuskap og leikrænni sjálfsfróun
var hér greinilega hart taumhald á
slíku. Jafnvel mætti segja að örlítið
meira stjórnleysi hefði gefið sýning-
unni meiri lit og kraft án þess að það
kæmi að sök. Þá var líka alveg ljóst að
hinir ungu leikarar áttu mun auðveld-
ara að koma skopinu í verkinu til skila
heldur en þeim þáttum þess sem
dramatískari eru, nokkuð sem meiri
reynsla og leikrænt sjálfsöryggi á eft-
ir að bæta úr hjá þeim sem halda
áfram að leggja stund á leiklist.
Hópurinn er nokkuð jafngóður og
því er það frekar hversu hlutverkin
bjóða upp á mikil tilþrif sem ræður
því hverjir sitja í minninu. Mikael
Þorsteinsson er í fyrirferðarmiklu
hlutverki byttunnar Scullery og
kemst vel frá því að halda sýningunni
saman. Sigurlaug Dagsdóttir átti
yndislegt atriði í hlutverki hinnar af-
gömlu Mollyar. Joey og Claire sem
fara í mótmælasvelti til höfuðs vonsku
heimsins voru fallega leikin af Mikael
Þór Ásgeirssyni og Söndru Kristins-
dóttur. Að lokum verður að geta Sylv-
íu Smáradóttur sem gerði djammboll-
una Dor verulega fyndna og
aumkunarverða.
Stræti er, að því ég best veit, frum-
raun Margrétar sem leikstjóra, og
kemst hún vel frá því. Það er því rétt
að óska henni til hamingju með það,
Pýramusi og Þispu með metnaðar-
fulla og skemmtilega sýningu og Hús-
víkingum með efnilega unglinga og
nýtt leikhús sem þeir ættu að heim-
sækja hið bráðasta.
LEIKLIST
Pýramus og Þispa, leikfélag
Framhaldsskólans á Húsavík
Höfundur: Jim Cartwright, þýðandi: Árni
Ibsen, leikstjóri: Margrét Sverrisdóttir.
Húsavík 12. febrúar 2005.
Stræti
Þorgeir Tryggvason
Jim Cartwright
VINAFÉLAG Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands býður til sam-
verustundar í Sunnusal Hótels
Sögu á morgun klukkan 18.00, en
þar mun Árni Heimir Ingólfsson
tónlistarfræðingur fjalla um átt-
undu sinfóníu Antons Bruckners
sem verður flutt í fyrsta sinn á Ís-
landi á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar kl. 19.30 sama kvöld.
Verð er 1.000 kr. og er súpa, brauð
og kaffi innifalið.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveit-
arinnar var stofnað árið 2002.
Markmið þess er
að efla áhuga á
starfi Sinfóníu-
hljómsveitar Ís-
lands og mynda
tengsl við þá sem
bera hag hennar
fyrir brjósti.
Vinafélag Sinfón-
íuhljómsveit-
arinnar styrkir
fjárhagslega
ákveðin verkefni tengd hljómsveit-
inni. Á þessu starfsári naut gerð
heimildamyndar um tónleikaferð
Sinfóníuhljómsveitar Íslands til
Þýskalands í desember 2003 stuðn-
ings úr sjóðum félagsins. Í október
sl. hélt Vinafélagið umræðufund í
Iðnó um stöðu Sinfóníunnar í sam-
tímanum og hyggst áfram vera
vettvangur fyrir umræðu um mál-
efni hljómsveitarinnar.
Allir eru velkomnir, en áhuga-
samir eru beðnir um að skrá sig
með því að senda tölvubréf á net-
fangið vinafelag@sinfonia.is eða
hringja í síma 545 2500.
Fjallað um Bruckner
Árni Heimir
Ingólfsson