Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 52

Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Heilsukoddar Heilsunnar vegna HÚSFYLLIR var á fundi þar sem grunnskólarnir í Garðabæ kynntu starf sitt foreldrum barna sem hefja nám í grunn- skóla næsta haust. Tæplega 150 foreldrar komu í Tónlistarskóla Garðabæjar í gærkvöldi, og var fundurinn ætlaður til þess að auðvelda þeim að velja grunn- skóla fyrir börnin sín. Foreldrar sem rætt var við eftir fundinn voru sammála um að það væri erfitt að gera upp á milli skólanna, en það væri mjög jákvætt að hafa möguleikann á því að velja. „Mér finnst það gefa fólki meiri möguleika ef það hef- ur ákveðnar skoðanir á umhverfi sínu. Foreldrarnir þekkja börnin sín lang best og vita í hvaða um- hverfi þau passa best,“ segir Hlynur Rúnarsson. Hann og kona hans, Margrét Haraldsdóttir, segjast þó vera nokkuð viss um í hvaða skóla Hafdís Katrín, dóttir þeirra, fer, enda búa þau rétt við Flataskóla, þar sem Margrét er reyndar kennari. „Við búum þarna rétt við og stelpan á auðvelt með að labba í skólann. Mér finnst það blasa svolítið við,“ segir Hlynur. „En ef maður hugsar ekki um staðsetninguna finnst mér þetta allt mjög frambærilegir skólar, ég ætti erfitt val ef það væri jafn langt í alla,“ bætir Margrét við. Staðsetningin skiptir greini- lega miklu máli. „Við höfðum ákveðnar hugmyndir um það sem við vildum, sem byggist helst á því sem drengurinn vill sjálfur, en að sjálfsögðu komum við með opnum huga til að heyra hvað aðrir hafa að bjóða upp á,“ segir Unnur Ýr Kristjánsdóttir. Bjarni Pálsson, maður hennar, segir að þau búi næst Flataskóla, og þangað muni sonur þeirra, Krist- ján Frosti, líklega fara. Í Garða- bæ geta foreldrar barna sem byrja í 1. bekk næsta haust valið á milli Hofsstaðaskóla, Flata- skóla og Barnaskóla Hjallastefn- unnar, en Sjálandsskóli verður svo tekinn í notkun næsta haust. Morgunblaðið/Jim Smart Hlynur Rúnarsson og Margrét Haraldsdóttir (fyrir miðju) kynna sér hvað skólarnir hafa upp á að bjóða, ásamt Hönnu Lóu Friðjónsdóttur. Jákvætt að hafa möguleika á vali Mikill fjöldi foreldra sótti kynningarfund um grunnskóla í Garðabæ UPPI er grunur um að 35 kg af hassi sem tekin voru af 37 ára Íslendingi á landamærum Dan- merkur og Þýskalands í lok síðustu viku hafi átt að fara sjóleiðina til Ís- lands, samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins. Mað- urinn var á bílaleigubíl og mun hafa verið á leið frá Amsterdam og ætlað að keyra í gegnum Þýskaland og Danmörku með hassið í tveimur ferðatöskum sam- kvæmt heimildum. Hann var hins vegar stöðvaður á landamærum og hald lagt á fíkniefnin. Mun hann hafa verið einn í bílnum þegar upp komst um málið. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald vegna rannsóknar dönsku lögreglunn- ar á málinu, sem telst stórt á danskan mæli- kvarða. Tekinn með 35 kg af hassi í Danmörku TVÖFALT fleiri hafa sótt um leyfi til hreindýra- veiða fyrir þetta ár en í boði eru. Hefur orðið sprenging í fjölda umsækjenda um hreindýraveiði- leyfin á seinustu árum en aldrei hafa þó borist jafn margar umsóknir og nú. Í gærdag höfðu borist um 1.600 umsóknir en heimilt er að veiða 800 dýr í ár líkt og verið hefur undanfar- in tvö ár. Árið 2003 bárust 800 umsóknir og í fyrra voru þær 1.162. Umsóknarfrestur rann út á miðnætti í gærkvöldi og eru all- ar líkur á að fleiri umsækjendur eigi eftir að bætast við þegar skriflegar umsóknir sem póstlagðar voru í gær berast í hús, skv. upplýsingum Áka Ármanns Jónssonar, forstöðumanns veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar. Að sögn Áka er bæði um að ræða innlendar og erlendar umsóknir. Áætlar hann að þegar hafi bor- ist um 20–25 umsóknir erlendis frá. Veiðisvæðinu er skipt upp í níu svæði og er ákveðinn kvóti á hverju svæði. Flestar umsóknir eru um leyfi til veiða á svæðum 1 og 2, sem eru á Fljótsdalsheiði. Áki segist ekki hafa neina einhlíta skýringu á þessari miklu aukningu umsókna um veiðileyfin. Sennilegasta skýringin sé þó friðun rjúpunnar. „Önnur gæti svo verið sú að það hefur varla verið þverfótað fyrir matreiðsluþáttum í vetur og í fyrra- vetur þar sem menn hafa verið að elda hreindýr og dásama þau í bak og fyrir.“ Um 1.600 hafa sótt um fá að veiða hreindýr ÖRYGGISNEFND Félags íslenskra flugumferð- arstjóra hefur áhyggjur af flugöryggi á Keflavík- urflugvelli vegna þess að fækkað hefur verið í flug- vallarþjónustudeild slökkviliðsins á vellinum. Frá og með 30. apríl mun hreinsunin heyra undir vélamiðstöð varnarliðsins en ekki slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli. Hafa flugumferðarstjórar áhyggjur af þeirri þróun og telja að þjónustan muni versna. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, segir að þjónustan verði óbreytt og íslensku starfsmennirnir muni halda störfum sín- um. Kjartan Halldórsson flugumferðarstjóri segir að snjómokstur taki nú lengri tíma vegna fækkunar- innar. Öryggi flugfarþega sé í húfi og tafir á flugi séu kostnaðarsamar. Óttast um flugöryggi  Flugumferðarstjórar/11 DÚETTINN Plat, sem gaf út fyrstu breiðskífuna sína í jan- úar síðastliðnum hjá lítilli bandarískri útgáfu, hefur náð undraskjótum árangri. Einkar jákvæðir dómar hafa birst um plötuna undanfarið í ýmsum miðlum og er sveitin á vin- sældalista bandarískra há- skólastöðva. Plat er á leið vest- ur í apríl og fer þá í mánaðar hljómleikaferðalag til að fylgja þessum árangri eftir./46 Ekkert plat „ÞAÐ er bara sumarveður úti,“ sagði lögreglan á Seyðisfirði í gær- kvöldi eftir að hitinn hafði farið í 16 stig fyrr um daginn. Veðrið var með besta móti miðað við árstíma og fólk í fínasta sumarskapi. Sólin lét samt ekki sjá sig og var þungskýjað. Öku- menn juku hraðann aðeins að sögn lögreglunnar enda þjóðvegurinn auður í fyrsta sinn í langan tíma. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var 13 stiga hiti á flugvellinum á Egilsstöðum og 12 stiga hiti í Neskaupstað. Ástæðan fyrir þessum mikla hita sé hnúka- þeyr; loftið hafi verið hlýtt og rakt á vestanverðu landinu. Þegar vind- urinn fari austur yfir hálendið kólni það en hlýni hraðar þegar niður sé komið fyrir austan. Sú hlýnun orsaki meiri hita og þurrt loft. Samkvæmt yfirliti á vef Veður- stofunnar yfir veður í Evrópu í gær var einungis heitara á Malaga á Spáni í gær, 18 stig. Í dag kólnar og spáð er hita í kringum frostmark. Sumarhiti á Seyðisfirði ♦♦♦ ♦♦♦ SÆTTIR náðust milli forystu Framsóknar- flokksins og Kristins H. Gunnarssonar á kvöldverðarfundi þingflokks framsóknar- manna í gærkvöldi. Ákveðið var að Kristinn taki aftur sæti í tveimur þingnefndum á veg- um flokksins, sjávarútvegsnefnd og umhverf- isnefnd og verði varaformaður í báðum nefnd- unum. Einnig tekur hann sæti í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA. Magnús og Birkir víkja sæti Til að rýma fyrir Kristni mun Magnús Stef- ánsson víkja sæti úr umhverfisnefnd og Birk- ir Jón Jónsson víkur úr sjávarútvegsnefnd og EFTA-nefndinni. Að sögn Hjálmars Árna- sonar, formanns þingflokks Framsóknar- flokksins, buðust Magnús og Birkir Jón til að víkja sæti. Hjálmar segir að hann og Kristinn Hann segist einnig reikna með að næsta haust verði skipað upp á nýtt í nefndir þings- ins. „Þá reikna ég með að skipað verði út frá sömu stöðu og ég hafði, þó það þurfi ekki endilega að þýða að ég verði í nákvæmlega sömu nefndum.“ hafi verið að ræða saman allt frá því kjör- dæmisþing framsóknarmanna í Norðvestur- kjördæmi var haldið í haust. „Það hefur leitt til þess að við höfum ákveðið að hann taki sæti til að byrja með í tveimur nefndum,“ sagði Hjálmar. Misklíð liggi í fortíðinni „Við ætlum fyrri misklíð að liggja í fortíð- inni en horfa samhent og bjartsýn til fram- tíðar,“ segir Hjálmar. Kristinn segir þetta vera ágæta niðurstöðu. „Menn eru sammála um að láta liðið vera liðið og vinna saman að framgangi mála eins og áð- ur var. Staða flokksins var auðvitað þannig að menn sáu að það var nauðsynlegt að greiða úr þeim vandamálum sem uppi voru,“ segir Kristinn. Sættir tókust milli forystu Framsóknar og Kristins H. Gunnarssonar Tekur aftur sæti í þingnefndum Morgunblaðið/Þorkell Kristinn H. Gunnarsson og Hjálmar Árna- son kveðjast að loknum kvöldverðarfundi þingflokks framsóknarmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.