Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
84 MILLJARÐA MAÐUR
Björgólfur Thor Björgólfsson er
fyrsti Íslendingurinn til að komast á
lista Forbes yfir ríkustu menn heims
en þar er hann í 488. sæti með eignir
sem nema um 84 milljörðum ís-
lenskra króna.
Vantraust á Markús Örn
Fréttamenn á Ríkisútvarpinu
hafa lýst yfir vantrausti á útvarps-
stjóra vegna ráðningar hans á Auð-
uni Georg Ólafssyni í stöðu frétta-
stjóra útvarpsins og á almennum
starfsmannafundi var samþykkt
ályktun þar sem skorað var á út-
varpsstjóra að endurskoða ákvörðun
sína um ráðninguna. Mennta-
málaráðhera segir hins vegar út-
varpsstjóra rétta aðilann til að meta
hver sé hæfastur í stöðuna.
Um 50 biðu bana
Að minnsta kosti 47 menn týndu
lífi og meira en 80 slösuðust í sjálfs-
morðsárás í mosku sjíta í borginni
Mosul í Norður-Írak í gær. Var þar
margt fólk saman komið vegna út-
farar. Hafa hryðjuverkamenn marg-
sinnis gert mannskæðar árásir á
sjíta og augljóslega í þeim tilgangi
að koma af stað trúarbragðastríði í
landinu. Einn Íslendingur, Börkur
Gunnarsson, er nú í Írak á vegum
Íslensku friðargæslunnar.
Meiri gjaldeyristekjur
Gjaldeyristekjur ferðaþjónust-
unnar losuðu 39 milljarða í fyrra og
jukust um 5,4% milli ára, fyrst og
fremst vegna eyðslu erlendra ferða-
manna innanlands. Að mati Samtaka
ferðaþjónustunnar hefðu tekjurnar
orðið ríflega tveimur milljörðum
meiri ef gengi krónunnar hefði hald-
ist óbreytt.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 36
Fréttaskýring 8 Forystugrein 32
Úr verinu 14 Viðhorf 34
Viðskipti 18/19 Minningar 38/45
Erlent 20/21 Hestar 49
Minn staður 22 Myndasögur 50
Höfuðborgin 23 Dagbók 50/52
Akureyri 23 Staður og stund 52
Austurland 24 Leikhús 54
Suðurnes 25 Bíó 58/61
Menning 22, 53/61 Ljósvakamiðlar 62
Daglegt líf 27/29 Veður 63
Umræðan 30/37 Staksteinar 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks í
borgarráði héldu því fram á borg-
arráðsfundi í gær að borgarstjóri
og R-listinn hafi kúvent í máli
Reykjavíkurflugvallar. Þetta sé
staðfest með samkomulagi borg-
arstjóra við samgönguráðherra um
víðtækar breytingar á svæði
Reykjavíkurflugvallar.
Fulltrúar R-listans héldu því
hins vegar fram að í minnisblaði
borgarstjóra og samgönguráð-
herra standi skýrum stöfum að
með byggingu samgöngumiðstöðv-
ar í Vatnsmýri sé ekki verið að
taka afstöðu til framtíðar Reykja-
víkurflugvallar.
Minnisblað samgönguráðherra
og borgarstjóra varðandi sam-
göngumiðstöð í Vatnsmýri og
Reykjavíkurflugvöll, ásamt
skýrslu undirbúningshóps, var lagt
fram á fundinum.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks sögðu í bókun að samkomu-
lagið staðfesti einnig að allar yf-
irlýsingar um að flugvöllurinn
muni fara hafi verið innantóm orð
og að aldrei hafi staðið til að taka
mark á niðurstöðum kosninganna
frá 2001 um framtíð Vatnsmýr-
arinnar.
Í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlistans segir m.a. að
ákveðin tímamót hafi átt sér stað í
skipulagsmálum Vatnsmýrar með
samkomulagi borgarstjóra og sam-
gönguráðherra. „Samkomulagið
felur í sér að borgin endurheimti
land í Vatnsmýrinni fyrr en ella og
hægt verði að tímasetja uppbygg-
ingaráfanga svæðisins. Áður en til
þeirrar tímasettu uppbyggingar
kemur verður gert heildarskipulag
að svæðinu sem verður vegvísir
um það hvernig svæðið mun líta út
til framtíðar.“
Gagnrýndu fulltrúar R-listans
fulltrúa D-listans og sögðu bókun
þeirra segja allt sem segja þurfi
um stefnu flokksins til málsins;
„Afstöðuleysi flokksins sýnir þann
ágreining sem er innan flokksins
um flugvallarmálið og opinberar
það ábyrgðarleysi sem Sjálfstæð-
isflokkurinn sýnir í hverju málinu
á fætur öðru með afstöðuleysi
sínu.“
Segja borgarstjóra hafa
kúvent í flugvallarmálinu
Engin afstaða til framtíðar
flugvallarins í samkomulagi við
ráðherra, segir í bókun R-listans
HÆSTIRÉTTUR setur ofan í
við lögreglu í dómi sínum í gær
þar sem staðfestur er fimm
mánaða fangelsisdómur yfir 24
ára manni fyrir innbrot. Hann
braust inn í íbúðarhúsnæði í
Garðabæ í nóvember 2002 og
tók þaðan ófrjálsri hendi ýmsa
muni sem áætlaðir voru að
verðmæti tvær milljónir króna.
Í dómi Hæstaréttar segir að
þótt ákærði hefði játað þá hátt-
semi sem honum var gefin að
sök við yfirheyrslu hjá lögreglu
leið hátt á annað ár frá því að
rannsókn lauk og þar til ákæra
á hendur honum var gefin út.
Telur Hæstiréttur þennan
drátt málsins vítaverðan og
brjóta í bága við meginreglu
laga um meðferð opinberra
mála og vera í andstöðu við
stjórnarskrána. Þrátt fyrir
þetta væri ekki annað unnt en
að staðfesta refsiákvörðun hér-
aðsdóms, sem byggðist á
löngum sakarferli ákærða.
Málið dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Markús Sigur-
björnsson, Gunnlaugur Claes-
sen og Hrafn Bragason.
Verjandi var Páll Arnór Páls-
son hrl. og sækjandi Bragi
Steinarsson vararíkissaksókn-
ari.
Vítaverður
dráttur á
lögreglu-
rannsókn
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins stóð fyrir æfingu nemenda í Brunamálaskólanum í góðviðrinu í gær. Æfing-
in var haldin í Norðlingaholti og var kveikt í húsinu Bjallavaði. Var þetta hluti af þjálfunarferlinu fyrir vinnu við
björgun og leit. Nemendurnir reyndu sig í reykköfun og björgun úr eldi og gekk æfingin vel. Var þetta hluti af
svokölluðu atvinnuslökkviliðsmannanámskeiði og var æfingin á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Nemendur temja eldtungur
FORELDRAR grunnskólabarna í
Vesturbæ Reykjavíkur tóku vel í
hugmyndir um skólabúninga á
fræðslufundi í Melaskóla í gær-
kvöldi. Foreldrafélög Landakots-
skóla, Melaskóla, Grandaskóla og
Vesturbæjarskóla stóðu að fundin-
um.
Víða erlendis eru skólabúningar
notaðir og hér á landi hafa nokkrir
skólar tekið upp vísi að þeim. Rætt
var um hvort skólabúningar ættu
rétt á sér, einkum í einstaklingsmið-
aðri menningu eins og ríkir hérlend-
is. Frummælendur voru Ásgeir
Beinteinsson, skólastjóri Háteigs-
skóla í Reykjavík og Leifur Garðars-
son, skólastjóri Áslandsskóla í Hafn-
arfirði.
Ásgeir talaði um þau skilaboð sem
fólk sendir frá sér með klæðaburði
sínum. Hann er andvígur notkun
skólabúninga og nefndi dæmi er-
lendis frá þar sem reglur um klæða-
burð og útlit skólabarna hefðu geng-
ið út í öfgar.
Leifur ræddi um reynslu af skóla-
fatnaði í Áslandsskóla á síðustu
tveimur árum. Hann lagði áherslu á
að þetta væru skólaföt en ekki skóla-
búningar, sem í hans huga væru pils,
buxur, skyrtur og bindi. Hann sagði
að merkja mætti ýmis jákvæð áhrif,
svo sem meiri samkennd og náms-
aga, betri einbeitingu og bætta
ímynd skólans. Hann sagði að ef taka
ætti upp skólafatnað væri samstaða
forráðamanna lykilatriði.
Líflegar umræður sköpuðust með-
al fundarmanna og sögðust sumir
hafa fengið nýja sýn á málið. Flestir
reyndust hlynntir upptöku skóla-
fatnaðar og líklegt er að frekari um-
ræður skapist í kjölfarið.
Foreldrar hlynntir
skólabúningum