Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 25
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Keflavík | „Þetta er yndislegur stað-
ur og yndislegt fólk sem hér vinnur,“
sagði Kristrún Bogadóttir, þjón-
ustunotandi á Hæfingarstöðinni í
Keflavík, en í dag ætlar hún ásamt
kollegum sínum og starfsfólki stöðv-
arinnar að kynna vinnustaðinn meðal
fólks. Þau verða mest í Kjarna við
Hafnargötu í Keflavík en ef veður
leyfir ætla þau að ganga um og út-
deila glaðningi.
Vinnustaðarkynningin á Hæfing-
arstöðinni er liður í kynningarátaki
sem Samband um vinnu- og verk-
þjálfun (SVV) stendur fyrir þessa
dagana. Aðilar að sambandinu eru,
auk Hæfingarstöðvarinnar í Kefla-
vík, 22 vinnu- og hæfingarstöðvar
víðsvegar um landið sem hafa það að
markmiði að hæfa og styðja fatlaða
og aðra í því að nýta vinnugetu sína
og færni.
Í upphafi kynningarátaksins, síð-
astliðinn mánudag, var opnuð á Kjar-
valsstöðum sameiginleg heimasíða
sem aðilar SVV standa að og um leið
kynnt nýtt merki sem sam-
bandsaðilarnir munu framvegis nota
til þess að merkja þau verkefni sem
vinnu- og hæfingarstöðvarnar eru að
vinna að. Merkið er hannað af ungum
listnema í Listaháskóla Íslands,
Daða Hall, og heitir Hlutverk. Merk-
ið stendur fyrir það mikilvæga hlut-
verk sem sinnt er og það starf sem
fram fer á þessum tuttugu og þrem-
ur vinnu- og hæfingarstöðvum sem
eru aðilar að sambandinu.
Kjarnakona með
nóg fyrir stafni
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins kíkti í heimsókn á Hæfingarstöð-
ina í Keflavík á dögunum voru þjón-
ustunotendur í óða önn að pakka og
merkja fermingarkort, enda ferm-
ingar nú í fullum gangi. Einn af þjón-
ustunotendum stöðvarinnar er
Kristrún Bogadóttir úr Grindavík
sem kemur akandi á hverjum virkum
degi með Óskari bílstjóra, ásamt
tveimur samstarfsmönnum úr
Grindavík. Kristrún er alsæl með
vinnuna, en þarna hefur hún starfaði
í 3 ár. Hún var þó ekki að kom út á
vinnumarkaðinn þá, heldur hafði 19
ára starfsreynslu á leikskóla í
Grindavík. „Ég var að klæða börnin
út og gefa þeim að borða. Sum lögðu
sig eftir hádegi og ég var líka úti í
gæslu,“ sagði Kristrún þegar blaða-
maður spurði hana um vinnuna á
leikskólanum. Hún sagði að það hefði
þó verið orðið tímabært að skipta um
starf og að á Hæfingarstöðinni líkaði
henni vel. „Þetta er yndislegur stað-
ur og yndislegt fólk sem hér vinnur.“
– Við hvaða verkefni eruð þið að
vinna núna?
„Við erum í bæklingum hér inni á
lagernum,“ svaraði Kristrún og er
hér að tala um verslunarbæklinga
Flugleiða sem eru um borð í flug-
vélum félagsins. „Við skoðum þá alla
og skoðum hvort þeir eru skítugir
eða rifnir. Ef ekki þá teljum við þá 20
saman í poka. Svo erum við að gera
alls konar trélistaverk, málum á
spýtur og erum með það til sölu. Við
erum komin með alveg helling og við
erum núna að fara að byrja á jóla-
skrautinu, ætlum að vera búin með
það fyrir jól.“
Kristrún nefndi einnig kortin sem
þau voru að pakka, en þjónustunot-
endurnir búa einnig til ýmiskonar
tækifæriskort úr endurunnum papp-
ír og selja. Þá vinna þau einnig fyrir
Húsasmiðjuna, setja skrúfur í plast-
poka og yfirfara öngla í samstarfi við
vinnustaðinn Örva.
– Hvað er nú skemmtilegast?
„Bara allt,“ svararði Kristrún um
hæl, enda líður henni vel í vinnunni.
„Hér er yndislegur starfsandi og all-
ir svo léttir.“
Samheldnin virðist haldast utan
vinnunnar líka því allir þjónustunot-
endur æfa saman boccia með íþrótta-
félaginu Nes, sem er íþróttafélag
Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Kristrún lætur sér hins vegar ekki
nægja að vinna allan daginn og æfa
boccia tvisvar í viku, heldur er hún
líka í tónlistarskóla að læra söng.
Hún sagði að fjölskylda sín væri öll í
söngnum, en viðurkenndi einnig að
Idolið hefði kveikt áhuga, ekki síst
þegar sigurvegarinn í fyrra var úr
hennar heimabæ og hún sagðist hafa
hitt Karl. Kristrún var ekki síður
spennt fyrir Idol-partíi sem búið var
að bjóða þeim í.
Með ósk um góða skemmtun kveð
ég þessa kjarnakonu sem auðheyr-
anlega nýtur lífsins til fulls og lætur
ekkert stöðva sig.
Kristrún Bogadóttir er ánægð með þjónustuna á Hæfingarstöðinni við Hafnargötu
„Hér eru allir svo léttir“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hæfing Kristrún Bogadóttir er þjónustunotandi á Hæfingarstöðinni og
ætlar að fara út til fólksins ásamt öðrum notendum og starfsfólki og kynna
starfsemina. Hér er hún að pakka kortum ásamt Árna Óskarssyni.
TENGLAR
.....................................................
www.hlutverk.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Reykjanesbær | Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra fór um Reykja-
nesbæ í gær. Ferð forsætisráðherra
er liður í þeirri stefnu hans að fara
sem víðast um landið í upphafi
starfstíma síns. Hann heimsótti Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja, Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja og nokkur fyr-
irtæki, meðal annars Kaffitár þar
sem Aðalheiður Héðinsdóttir fram-
kvæmdastjóri sagði honum frá starf-
seminni. Með í för voru meðal ann-
ars Kjartan Már Kjartansson,
Steingrímur S. Ólafsson og Hjálmar
Árnason. Í gærkvöldi hélt ráðherra
síðan opin fund í Duushúsum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ráðherra
skoðar kaffi-
framleiðslu