Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 2
STÓRTENÓRINN Placido Dom- ingo og kona hans Marta Domingo þekktust heimboð forseta- hjónanna Ólafs Ragnars Gríms- sonar og Dorritar Moussaieff á Bessastaði í gær. Domingo og Ana Maria Martinez sem syngur með honum á tónleikum í Egilshöll annað kvöld sátu fund með ís- lenskum blaðamönnum í gær- morgun. Spurningunni klassísku: How do you like Iceland? – svaraði Dom- ingo snaggaralega; – af fyrstu við- kynningu fyndi hann fyrir því að landið væri ungt, hreint og öðru- vísi; hann hlakkaði til að fara í Bláa lónið og skoða borgina. Með þeim á tónleikunum syngur Óperukórinn; Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur og Eugene Kohn stjórnar. /32 Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff, Marta Domingo og Placido Domingo á Bessastöðum í gær. Domingo á Bessa- stöðum 2 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MUNURINN 48 KR. Bónus var með lægsta verðið á vörukörfunni í verðkönnun Morg- unblaðsins, en einungis munaði 48 krónum á Bónus og Krónunni sem var næstlægst. Karfan var á 3.219 í Bónus, en á 3.267 í Krónunni. Versl- anir Bónuss verða lokaðar á sunnu- dag til þess að gefa starfsfólkinu hvíld. Hafísinn nálgast Fiskeldismenn í Mjóafirði eru á varðbergi vegna hættu á að hafís kunni að reka inn í fjörðinn í norðan- áttinni sem spáð er næstu daga og gæti ógnað fiskeldiskvíunum. Þá er samfelld íshella sögð frá Kolbeinsey til Grænlands og hafa Grímseyingar flutt vararafstöð til eyjarinnar og sér- staklega styrktan vír til að varna því að ís fari inn í höfnina. Hildur Vala Idol-stjarna Hildur Vala Einarsdóttir var kjör- in ný Idol-stjarna í Smáralind í gær- kvöldi, en þá lágu úrslit fyrir í Idol- stjörnuleit. Hún vann nauman sigur á Aðalheiði Ólafsdóttur, Heiðu, en þær tvær kepptu til úrslita í keppninni. Stjórn að fæðast Tveir helstu stjórnmálaflokkar sjíta og Kúrda í Írak hafa komið sér saman um skipan í nokkur helstu embættin í væntanlegri ríkisstjórn. Verður Kúrdinn Jalal Talabani for- seti landsins en varaforsetaembættin tvö munu skiptast á milli sjíta og súnníta. Forsætisráðherra verður síðan sjítinn Ibrahim al-Jaafari. Sprenging í Pristina Sprenging varð við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kos- ovo í gær og særðist einn maður. Ekki er vitað hvort um var að ræða árás á þær en spenna er mikil í hér- aðinu. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 34/36 Úr verinu 14 Kirkjustarf 37/40 Viðskipti 18/19 Skák 40 Erlent 20/22 Minningar 41/49 Akureyri 25 Dagbók 52 Suðurnes 25 Víkverji 52 Landið 26 Staður og stund 53 Árborg 26 Velvakandi 53 Daglegt líf 27 Menning 56/61 Ferðalög 28/29 Ljósvakamiðlar 62 Listir 30/31 Staksteinar 63 Forystugrein 32 Veður 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                !  " # $          %            &'( )  *+++                             Í þessari fallegu bók er okkur boðið að slást í hóp með börnunum í Tansaníu og skoða dýrin sem þar búa. Dýrin eru talin – á íslensku og svahílí – og aðstæður þeirra kynntar í leikandi vísum og líflegum myndum. KOMIN Í VERSLANIR! FYRIR skömmu voru undirritaðir samningar milli Haraldar Sveins- sonar, stjórnarformanns Árvakurs hf. útgáfufélags Morgunblaðsins og fjölskyldu hans og Íslandsbanka fyrir hönd ótilgreindra tilboðsgjafa um sölu á u.þ.b. 16% hlut í Árvakri hf. Samkvæmt samþykktum útgáfu- félagsins hafa aðrir hluthafar for- kaupsrétt að þessum hlut og rennur sá forkaupsréttur út innan tveggja mánaða frá tilkynningu til félagsins um að kaup hafi verið gerð. Aðrir hluthafar hafa þann tíma til þess að taka ákvörðun um, hvort þeir nýta sér forkaupsréttinn. Fyrir nokkru skýrði Morgunblað- ið frá því, að Kristinn Björnsson hefði keypt fyrir hönd fjölskyldu sinnar einkahlutafélag í eigu eig- inkonu og barna Ólafs Ó. Johnsons, heitins, sem á liðlega 10% hlut í Ár- vakri hf. Aðrir hluthafar hafa forkaupsrétt FORELDRAR þriggja stúlkna á aldrinum 9–11 ára íhuga að leggja fram kæru til lögreglunnar vegna skemmdarverka óþekkts tölvu- þrjóts sem talinn er hafa brotist inn á heimasíðu telpnanna og við- haft þar dónaskap. Óð hann uppi með klámfenginn dónaskap á gestabók heimasíðunn- ar og breytti bakgrunni síðunnar sjálfrar sem ekki er hægt nema með sérstökum aðgangi. Foreldr- arnir munu óska eftir því að lög- reglan rannsaki hver hafi verið þarna að verki. Að sögn Þrastar Emilssonar, efnisstjóra hjá fólki.is, þar sem heimasíðan er vistuð, hafa komið nokkrar fyrirspurnir til vefjarins vegna óæskilegra færslna á gesta- bókum annarra síðna og hefur þá fyrirtækið aðstoðað við að eyða þeim færslum. Hvað varðar þá háttsemi að fara inn á síðurnar sjálfar og breyta þeim, bendir Þröstur á að enginn geti það nema að hafa lykilorð eiganda síðunnar. Vera kunni að óprúttnir aðilar komist yfir lykilorð með einum eða öðrum hætti. Ekki séu hins vegar miklar líkur á því að hægt sé að „hakka“ sig inn á heimasíðurnar vegna þeirra öryggisstaðla sem eru til staðar á hýslinum. Börn séu ekki eftirlitslaus Þröstur segir mikilvægt að börn séu ekki eftirlitslaus á Netinu auk þess sem enginn netnotandi ætti að samþykkja vistun lykilorða sinna í tölvum því ómögulegt sé að vita hver noti tölvuna næst. Ekki ætti heldur að velja sér lykilorð sem fela í sér hluta kennitölu, af- mælisdaga, gælunöfn eða þvíum- líkt. Ómar Smári Ármansson aðstoð- aryfirlögregluþjónn segir frekar fátítt að atburðir sem þessir komi til kasta lögreglunnar en ástæður fyrir þessari háttsemi geti verið margslungnar. Óboðnir gestir geti haft þann ásetning að stríða eiganda síðunn- ar, sanna fyrir sjálfum sér eða öðr- um að þeir geti komist inn á síður, eða skemma eða stela gögnum af síðunni. Hægt sé þó að rekja dóna- skapinn ef viðkomandi tengist við- komandi tölvu en á hinn bóginn geta aðilar með illt í huga skemmt heimasíður hvar sem er í heim- inum. Viðhafði dónaskap á heimasíðu ungra stúlkna Hross sparkaði í andlit konu KONA hlaut beinbrot í andliti þegar hross sparkaði í hana við bæinn Langholt í Hraungerðis- hreppi í Árnessýslu í gær. Hún var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Foss- vogi og lögð inn á spítalann. Tildrög slyssins voru þau að konan var gangandi með tvö hross í taumi þegar styggð kom að öðru þeirra. Lenti konan aftan við hitt hrossið sem sparkaði í andlit hennar með afturlöppun- um. Músíktilraunir Tíu hljóm- sveitir í úrslit UNDANKEPPNI Músíktil- rauna, hljómsveitakeppni Tónabæjar og Hins hússins, lauk í Tjarnarbíói í gærkvöldi, en þá kepptu tíu hljómsveitir um síðustu sætin í úrslitunum sem fram fara í næstu viku. Alls tóku fimmtíu hljóm- sveitir þátt í tilraununum að þessu sinni og ellefu komust í úrslit: Hello Norbert, Jakobín- arína, Motyl, The Dyers, Gay Parad, Koda, We Painted The Walls, Mjólk, 6 og Fúnk, Mystical Fist, Jamie’s Star og Elysium. Úrslitin verða í Austurbæ föstudaginn 18. mars. BÚAST má við að samkomulag ná- ist í kjaraviðræðum framhalds- skólakennara og samninganefndar ríkisins á morgun, að sögn Að- alheiðar Steingrímsdóttur, for- manns Félags framhaldsskóla- kennara. Samninganefndirnar hafa fundað stíft undanfarna daga og munu einnig funda í dag. „Það eru báðir mjög áfram um að klára þetta. Ekki sé eftir neinu að bíða. Þessu hefur miðað áfram og við ætlum okkur að ljúka þessu, lík- lega á sunnudaginn,“ sagði Aðal- heiður í gærkvöldi. Síðastliðin vika, eða frá því Bandalag háskólamanna og ríkið skrifuðu undir samninga, hefur farið í að útfæra betur launakerfi þess samnings, til að það falli bet- ur að starfs- og samningaumhverfi framhaldsskólanna, að sögn Aðal- heiðar. Kjaraviðræður framhaldsskólakennara Kjarasamningur í burðarliðnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.