Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ GOLDEN GLOBE VERÐLAUN Besti leikari - Jamie Foxxti l i i i  J.H.H. Kvikmyndir .com Besta mynd ársins Besti Leikstjóri - Clint Eastwood Besta Leikkona - Hillary Swank Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman Besti Leikari - Jamie Foxx Besta hljóðblöndun Kvikmyndir.is DV H.J. Mbl. Tilnefnd til 3 Óskarsverðlauna Óperudraugurinn Heimsins stærsti söngleikur birtist nú á hvíta tjaldinu í fyrsta sinn! J A M I E F O X X Mynd eftir Joel Schumacher.Byggt á söngleik Andrew Lloyd Webber. Með Íslandsvininum, Gerard Butler (Bjólfskviða), Emmy Rossum (Mystic River) , Miranda Richardson og Minnie Driver  M.M. Kvikmyndir.com HÁSKÓLABÍÓ LIFE AQUATIC KL. 3-5.30-8-10.30. RAY KL. 3-7.50-10.30 LES CHORISTES (KÓRINN) KL. 3-6-8.10.MILLION DOLLAR BABY KL. 3-5.30-8-10.30. B.I. 14. PHANTHOM OF THE OPERA KL. 3-6-9. B.I. 10. THE AVIATOR KL. 5-10. B.I. 12 Síðasta sýningarhelgi Með tónlist eftir Sigur Rós!li i i Með tónlist eftir Sigur Rós!li i i Bráðfyndin gamanmynd frá Wes Anderson, framleiðenda Royal Tenenbaums með Bill Murray, Owen Wilson, Kate Blanchett og Anjelicu Huston í aðalhlutverkum. r f i fr r , fr l i l ill rr , il , t l tt j li t í l l t r . Bráðfyndin gamanmynd frá Wes Anderson, framleiðenda Royal Tenenbaums með Bill Murray, Owen Wilson, Kate Blanchett og Anjelicu Huston í aðalhlutverkum. r fy i y fr r , fr l i y l ill rr y, il , t l tt j li t í l l tv r .  Ó.H.T. RÁS 2 SÚ VAR tíðin að aðalglíman á leikjatölvumark- aðnum var á milli Nintendo og Sega. Í þeim slag hafði Nintendo betur en þá tók við enn harðari slagur við Sony. Sony hafði betur í leikjatölvunum en hafði ekki roð við lófa- leikjatölvum, þar hefur enginn getað skákað Nintendo hingað til. Á næstu vikum kynnir Sony lófa- leikjatölvuna PlayStation Portable, PSP, og ætlar sér drjúga sneið af leikjatölvumarkaðnum með hana að vopni. Nintendo-menn sitja þó ekki auð- um höndum eins og sannast á Nintendo DS sem kynnt verður hér á landi í dag Það gefur augaleið að DS-tölvan keppir við PSP, en talsverður verðmunur verður á vélunum. Hér á landi mun DS kosta 14.900 kr. og leikir væntanlega kosta 3.990 kr. samkvæmt upplýs- ingum frá umboðinu. Ekki er búið að ákveða verð á PSP. Það er til að flækja málin enn frekar að DS-vélin kemur ekki í stað Game Boy Advance 2, heldur verður hún seld samhliða henni og að auki gengur fjöllunum hærra að væntanleg sé ný GBA. Hægt er að spila allar eldri gerðir leikja í vélinni, sem auðveldar þeim valið sem eiga safn af leikjum fyrir Game Boy Advance en gömlu Game Boy leikirnir ganga ekki í hana (og reyndar vandséð að nokkur maður vilji spila slíka leiki í vélinni). Ef maður er með báðar leikjaraufirnar í er hægt að velja hvorn leikinn maður vill spila. Varla þarf að taka fram að þegar spilaður er GBA leikur sést ekkert á neðri skjánum, enda ekki stuðningur fyrir slíkt í þeim leikjum. Efri skjárinn er framúrskarandi, bjartur og skýr, með upplausnina 256X192 (GBA SP er 240X160). Neðri skjárinn er ekki eins góður en góður samt. Hann er snertiskjár og hægt að nota hann til að spila ýmsa leiki, þ.e. hægt er að nota pennann sem fylgir til að stýra Sonic og fleira má nefna. Það er líka hægt að nota hann til að velja sitthvað sem líka er hægt að velja með A- og B- hnöppunum. Það er svo misjafnt hvað birtist á honum þegar maður er að spila leiki, til að mynda sést yfirlitsmynd í Super Mario 64 DS, en síðan birtast smáleikir eftir því sem maður kemst áfram í leiknum. Í pakkanum er græja sem maður þræðir á þumalputtann og notar svo á skjáinn. Það tekur smá tíma að ná tökum á því, að ná að stýra almennilega, en eftir því sem færnin verður meiri kemur betur í ljós hvað snerti- skjárinn er mikil snilldar viðbót. Hljóð er líka gott, stereo-hljómur sem er skemmtilega nýttur til að mynda í Super Mario 64 DS. Tengi er fyrir hljóðnema. Eitt það skemmtilegasta við vélina er að hún er með innbyggðu þráðlausu neti og fyrir vikið er hægt að spila við aðra DS notendur ef vill. Ekki komst ég yfir aðra vél til að prófa þennan möguleika en samkvæmt erlendum umsögnum er þetta sáraeinfalt – allt að sextán notendur sem eru með DS vél innan 100 metra hrings geta spilað saman ef viðkomandi leikur býð- ur upp á það á annað borð, ekki þarf að vasast í neinni upp- setningu og ekki þarf að vera með neitt sjónvarp eða kapla. Þetta er mjög sniðug viðbót fyrir leiki eins og Goldeneye og líka fyrir Super Mario 64 ef út í það er farið. Ekki er bara að hægt er að spila leiki saman á þráðlausa netinu heldur er líka hægt að spjalla saman og senda teikningar á milli í PictoChat sem er innbyggt í vélarnar. Hægt er að spjalla við allt að sextán í einu með þessum möguleika, en ekki gat ég prófað þetta frekar en að spila við marga samtímis. Ekki er að efa að Nintendo DS verði vinsæl leikjatölva. Hún er ekki dýr og býður upp á ýmsa möguleika aðra en að spila leiki. Eitt af því sem gerir hana hvað eigulegasta er þráðlausi möguleikinn. Vélinni hefur verið vel tekið ytra að sögn Nintendo-manna, enda hafa selst milljón tölvur í Bandaríkjunum og Japan. Nintendo kynnir DS Árni Matthíasson ÞÁTTASTJÓRNANDINN Jay Leno sem stýrir sjónvarpsþætt- inum „The Tonight Show“ gerði grín að söngvaranum Michael Jackson með látbragðsleik í þætti sínum í fyrradag, degi áður en úr því yrði skorið hvort hann mætti segja brandara um Jackson í þætt- inum. Leno gætti þess þó að segja ekki orð í atriðinu sem sýndi hann koma seint til upptökustaðarins, klæddan náttfatabuxum og um- kringdan lífvörðum en Jackson mætti seint til réttarhaldanna í gær klæddur náttfatabuxum og stuttermabol og var sú skýring gefin á því að hann væri að koma beint af sjúkrahúsi. Leno á að bera vitni við rétt- arhöldin yfir Jackson og hefur því verið bannað að tjá sig um málið, eins og öðrum sem að því koma. Hann hefur hins vegar farið fram á undanþágu frá banninu til að geta sagt brandara um Jackson í þætti sínum. Leno gerði orðlaust grín að Jackson Reuters Jay Leno er úrræða- góður grínari. Og eiginkonan hlær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.