Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 27
DAGLEGT LÍF
Það er mikill verðmunur ásumum vörutegundum ílágvöruverðsverslunum umþessar mundir og munar til
dæmis 2.280% á hæsta og lægsta
verði á gulum melónum og 892% á
verði rauðra steinlausra vínberja.
Þetta kemur í ljós þegar kassaverð á
þessum vörum er borið saman en
blaðamenn Morgunblaðsins fóru í
verðkönnun í fjórum lágvöruverðs-
verslunum í gær.
Alls kostaði vörukarfan í Bónus
3.219 krónur á kassa, 3.267 krónur í
Krónunni, 3.665 krónur í Kaskó og
4.218 krónur í Nettó. Munar 48 krón-
um á körfunni í Krónunni og Bónus
en 999 krónum á körfunni í Bónus og
Nettó.
Þegar borið er saman hillu- og
kassaverð kemur í ljós að hilluverð
stemmdi aldrei við kassaverð í Krón-
unni. Í Bónus stefndi hilluverð við
kassaverð í átta skipti af tuttugu og
einu. Hjá Kaskó stemmdi verðið allt-
af og hjá Nettó var einu sinni um mis-
ræmi að ræða. Hjá Bónus og Krón-
unni var karfan ódýrari við kassa
þegar verð á kassa er borið saman við
hilluverð en í Nettó var hún dýrari.
Gos og mjólk skammtað
Það var mismikið að gera í þeim fjór-
um lágvöruverðsverslunum sem
blaðamenn Morgunblaðsins fóru í
eftir hádegi í gær til að gera verð-
könnun. Starfsfólk búðanna var á
þönum við að fylla á hillur enda voru
sífellt fleiri tóm að myndast í vöruhill-
um búðanna. Í gosrekkum einnar
verslunarinnar var miði þar sem stóð
að viðskiptavinir mættu aðeins kaupa
tvær kókflöskur á mann og sums-
staðar var hámarkið fjórir lítrar af
nýmjólk og léttmjólk.
Samt var greinilegt að það voru
ekki allir að fara eftir þessum leið-
beiningum því sumar kerrur voru
hálffullar af gosi og mjólk.
Kíló af eplum á eina krónu
Grænmeti og ávextir voru á nið-
ursettu verði og kostaði kílóið jafnvel
vel innan við tíu krónur á sumum teg-
undum og kíló af eplum og appels-
ínum fór jafnvel niður í eina krónu.
Fólk birgði sig upp af paprikum,
sveppum, appelsínum og eplum, vín-
berjum og jarðarberjum og í kerrum
voru margir pakkar af kaffi á nið-
ursettu verði, Cheeriosi og öðru
morgunkorni. Stærstu páskaeggin
frá Nóa voru óðum að seljast upp og
kartöfluflögur voru auðsjáanlega á
útsölu því viðskiptavinir voru með
jafnvel tíu til tuttugu pakka í körf-
unni. Könnunin var framkvæmd í
Bónus Smáratorgi, Kaskó Vest-
urbergi, Krónunni Bíldshöfða og
Nettó í Mjódd í gær. Farið var á
sama tíma í allar verslanir, klukkan
13.15 og blaðamenn skrifuðu hjá sér
kassaverð og tíndu í körfur vörurnar
sem kanna átti verð á. Komið var í
biðröð við kassa klukkan 14.10. Mis-
jafnt var hversu langar biðraðir voru
við kassana. Þegar verið var að renna
vörunum í gegn á kassa var beðið um
verslunarstjóra.
Lagt var af stað með rúmlega
fimmtíu vörutegundir á lista en ekki
er allur sá listi birtur hér í töflunni
sem fylgir. Einungis er birt verð á
þeim vörum sem fengust alls staðar
og voru til í sömu stærðum.
Ekkert mat er lagt á gæði eða
þjónustu í lágvöruverðsverslununum
fjórum, einungis er um beinan verð-
samanburð að ræða.
VERÐKÖNNUN | Morgunblaðið kannar verð í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuðborgarsvæðinu
Kaskó alltaf með sama verð á hillu og kassa
&'(
:;1/5" "
P&'&$&& "
) 9" #
0; /51 E #
, Q 1R/($/1 "
"" #
$ & #
,< # "## #
!$ 1R 5"* 51 # 5"81 #
S 8&($ $ &" #
" 1$"5& #
>586$" " " $&
-TO$"" #
211( "
M &$"($#$ (
L &#"$ "# # &" #
-/+8 )/8 1R& "" "
-/+8 1R +" "
08 1R'/1 @11$ "
08 1R& "" @11$ "
?& ""8 && )/8
0->,0
)%
01 #
% 8"'
*' %
-/5''
%
?$ ($# -$"6
$
39
$
,9#
$
-&
9 #
"9#
"
3 "" )
3 "" )
3 "" )
3 "" )
'
Morgunblaðið/Árni Torfason
Viðskiptavinir kunna vel að meta lágt vöruverð á ýmsum nauðsynjum þessa dagana.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikið var að gera í Bónus í gær og margir sem birgðu sig upp af vörum á hagstæðu verði.
Krónan og Bónus berj-
ast um lægsta verðið
samkvæmt verðkönnun
Morgunblaðsins í fjór-
um lágvöruverðsversl-
unum í gær. Það er 48
króna verðmunur á
körfunum, Bónus í hag,
ef miðað er við það verð
sem neytendur greiða
við kassa.
’Fólk birgði sig upp afpaprikum, sveppum,
appelsínum og eplum,
vínberjum og jarðar-
berjum.‘