Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 33
FISKELDISMENN í Mjóa-
firði eru á varðbergi vegna
hættu á að hafís kunni að
reka inn í fjörðinn í norðan-
áttinni sem spáð er næstu
daga og gæti ógnað fiskeld-
iskvíunum, en Sæsilfur er
með umfangsmikið eldi í firð-
inum. Veðurstofan spáir
norðaustlægri átt fram eftir
næstu viku.
Í gær áttu fulltrúar Al-
mannavarna og Veðurstof-
unnar fund um útlit og við-
búnað vegna hafíssins en
hafís er nú úti fyrir Vest-
fjörðum, Norðurlandi og
Norðausturlandi. Í norðan-
áttinni næstu daga má gera
ráð fyrir að ísinn berist nær
landi norðanlands.
Siglingaleiðin norðan við
Vestfirði er varasöm í myrkri
og gera má ráð fyrir að ís
berist inn á Norðausturmið,
Austurmið og Austfjarðamið
næstu daga.
Þór Jakobsson veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands
segir ísröndina ná óvenju
langt austur með Norður-
landi. Enn er þó of snemmt
að sögn hans að spá fyrir um
hvort ísinn færist austur með
landinu og hættan því ekki
yfirvofandi. „En það er rík
ástæða til að fylgjast vel með
þessu,“ segir Þór.
Firðir fylltust af ís á
árunum 1965 og 1968
Á árunum 1965 og 1968
kom hafís inn á firði á Aust-
fjörðum. „Þá fylltust hér allir
firðir,“ segir Sigfús Vil-
hjálmsson, oddviti í Mjóa-
firði. „Ef þessi hafís kemur
þá eirir hann engu. Ef þetta
verða hins vegar bara stakir
jakar þá ráða menn vel við
það,“ segir hann.
Sigfús segir of snemmt að
segja fyrir um hver hreyfing
hafíssins verður næstu daga.
„Ég man að gömlu mennirnir
töluðu um að ef ísinn væri
kominn austur og suður fyrir
Langanes þá gæti hann kom-
ið hér inn á einu straumfalli.“
Áætlanir tiltækar
ef í hart fer
Ingólfur Sigfússon, stöðv-
arstjóri við fiskeldið í Mjóa-
firði, er einnig þeirrar skoð-
unar að full snemmt sé að
spá því að ís muni koma inn á
fjörðinn. „Við erum þó með
áætlanir sem hægt er að
grípa til ef í hart fer. Við
verðum að sjá hvernig þetta
þróast. Maður er tiltölulega
rólegur ennþá,“ segir Ingólf-
ur en hann kveðst hafa verið
í sambandi við Þór Jakobsson
veðurfræðing í gær til að afla
upplýsinga um útlitið næstu
daga.
Rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson var í gærdag
statt á Húnaflóa en ísinn er
þar á siglingaleið við Óðins-
boða og heldur áfram að reka
inn Húnaflóa. Getur hann
verið varasamur sjófarendum
í myrkri. Íshröngl og borg-
arjakar eru komnir upp í
Leirhöfn á Sléttu og hafísinn
nálgaðist Grímsey óðfluga í
gær.
„Hafísinn á ekki margar
mílur eftir hérna í eyjuna,“
sagði Óttar Jóhannsson, odd-
viti í Grímsey, um kvöldmat-
arleytið í gær. Ísbrúnin var í
um 6 mílna fjarlægð frá
eynni síðdegis og nálgaðist
hratt. Í gærmorgun var ísinn
12–15 mílur norðaustur af
Grímsey. „Við erum ekki far-
in að sjá neina jaka hér á
fjörum. Veðurspáin lofar ekki
góðu,“ sagði Óttar.
Þriggja mánaða olíu-
birgðir í Grímsey
Grímseyingar eru viðbúnir
því að verða umluktir hafís. Í
gær kom Grímseyjarferjan
Sæfari með vararafstöð, vír
og annan búnað til að
strengja fyrir höfnina ef þörf
krefur, og auk þess vistir og
olíu.
Óttar segir olíubirgðir í
eyjunni þokkalega góðar eða
til allt að þriggja mánaða.
„Það lamast allt atvinnulíf
hér ef þetta gengur eftir,“
segir hann og rifjar upp að
árið 1979 lokaði mikill hafís
höfninni í tæplega mánuð.
Grímseyingar fylgjast
grannt með hreyfingu íshell-
unnar en gáfu sér þó tíma til
að fylgjast saman með Idol-
keppninni í gærkvöldi, að
sögn Óttars. „Það er verið að
stefna öllum í félagsheimilið í
kvöld þar sem við ætlum að
borða saman, fylgjast með
keppninni á stórum skjá og
hafa það notalegt. Það þýðir
ekkert annað en að vera
bjartsýnn.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Veðurfræðingar og fulltrúi almannavarna funduðu í gær á Veðurstofunni vegna hafíssins sem
nálgast landið. F.v. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, Ágúst Gunnar Gylfason hjá almanna-
varnadeild Ríkislögreglustjóra og veðurfræðingarnir Þór Jakobsson og Sigrún Karlsdóttir.
Hafísinn færist
hratt nær landi
í norðanáttinni
!
" #
HAFÍS nálgast Grímsey óðfluga. Flugmenn sem flugu
hingað í gær sögðu samfellda íshellu frá Kolbeinsey
til Grænlands. Því var brugðið á það ráð í morgun
þegar ferjan okkar Sæfari var um það bil hálfnuð til
okkar á Grímseyjarsundi, að snúa henni við til Dal-
víkur. Öruggara þótti að hafa vararafstöð í eyjunni.
Einnig þurfti að sækja sérstakan, sterkan vír til að
strengja yfir höfnina og forða þannig að ís komist inn
í hana.
Helst má líkja umferðinni hjá eyjarbúum, út á Fót
og upp á ey, við sunnudagsumferð niður Laugaveg-
inn. Allir að kíkja eftir og fylgjast með hafísnum.
Eins eru miklar vangaveltur meðal fólks um hvenær
ísinn komi upp að útverðinum góða í norðri. Einn lít-
ill sá svo vel í bílferð sem hann fór með pabba sínum
upp á ey að sjá íshelluna, að hann fullyrti að hann
hefði séð ísbjörn á vappi, en bætti svo við: „Þetta var
húnn.“ Þá var ekkert að óttast.
Allir að fylgjast
með hafísnum
Grímsey. Morgunblaðið.
en ekki gegn okkur, – og þá er ég ekki að tala
um að söngvarinn sé bara með einhverjar
kenjar. Ef fólk vill skapa tónlist saman, þá
tekst þetta, – nema fólk hafi einsett sér að
vera með kenjar.“
Töluðu eins og óperan myndi deyja
Domingo segir marga góða unga tenórsöngv-
ara koma til greina sem arftaka Tenóranna
þriggja, og nefnir í þeim hópi José Cura, Ro-
berto Alagna, Ramón Vargas og jafnvel enn
yngri söngvara eins og Mexíkómanninn Rol-
ando Villazon og Juan Diego Flórez frá Perú.
„Þessir tveir síðastnefndu eru báðir alveg stór-
kostlegir söngvarar af yngstu kynslóðinni, sem
nú er að skríða yfir þrítugt. Annars eru svo
margir góðir söngvarar uppi í dag. Þegar ég
var yngri, talaði mér eldri kynslóð söngvara
ævinlega eins að með þeim myndi óp-
erutónlistin líða undir lok. Ég strengdi þess
heit að tala aldrei þannig. Sumir þeirra fóru
aldrei að hlusta á næstu kynslóð söngvara og
höfðu engan áhuga á þeim, vissu ekki einu
sinni hverjir þeir voru. Mér er það tilhlökk-
unarefni að sjá nýja söngvara vaxa úr grasi.
Þess vegna er ég bæði með söngvarakeppnina
mína sem Ana Maria Martinez sigraði í á sín-
um tíma og Rolando Villazon nú síðast. Við óp-
eruna í Washington höfum við líka sérstakt
prógramm fyrir unga efnilega söngvara. Allir
þessir söngvarar vonast eftir frama í tónlist-
inni og þeir eru margir. Það eru margir með
mikla hæfileika, en á endanum er það fólkið
sem hlustar, sem færir þér það sem það vill
gefa þér. Þetta snýst svo mikið um efnafræð-
ina milli söngvarans og almennings, og það er
almenningur sem á endanum ræður því hver
verður stjarna og hver ekki. Ég sé þrjár kyn-
slóðir söngvara koma á eftir minni – ef við
segjum kynslóðaskiptin verða á um það bil tíu
ára fresti, og söngvarar í dag eru mjög góðir.“
Aðspurður um hvað hann hefði kosið að
starfa við hefði tónlistin ekki komið til greina,
kveðst Domingo hafa átt sér ósköp svipaða
drauma og aðrir spænskir strákar áttu sér.
„Mig langaði að verða fótboltastjarna. En
mikið er ég glaður að ég fór ekki í boltann, því
þá hefði ég verið kominn á aldur fyrir um þrjá-
tíu árum. Ég er því hæstánægður með það
starf sem ég valdi mér. Heimur tónlistarinnar
er svo mikilfenglegur og svo kröftugur, að ég
sé ekki fyrir mér að ég hefði viljað starfa við
annað. Fólk leitar að gleði og hamingju í tón-
listinni, og getur flúið í hana frá hvers-
dagsamstrinu, og mín forréttindi eru að fá að
miðla henni til fólksins.“
Latnesku blæbrigðin í söngnum
Ana Maria Martinez tekur undir orð Domingos
og segir tónlistina svo mikilvægan þátt í lífi
fólks að það sé gæfa að fá að taka þátt í því
hjálpa fólki inn í líknandi heim hennar. Eins og
fram kom í viðtali við hana í Morgunblaðinu
fyrir nokkru, er sálfræðin hin stóra ástríðan í
lífi hennar, og kveðst hún vel geta hugsað sér
að hafa starfað á því sviði þar sem tónlistin og
sálfræðin mætast, til dæmis í rannsóknum á
áhrifum tónlistarinnar á manneskjuna. Það er
athyglisvert hve söngvarar af spænskum og
suður-amerískum uppruna eru áberandi í röð-
um bestu söngvara dagsins í dag, og það stað-
festi Domingo með upptalningu sinni á fram-
úrskarandi tenórum. Sjálf er Ana Maria
Martinez frá Puerto Rico og aðspurð um
ástæðuna fyrir velgengni þessara þjóða í
söngnum segir hún góða söngvara vissulega
koma alls staðar að úr heiminum. „Hvert
menningarsamfélag og hvert tungumál á sér
sitt lunderni og sinn karakter. En það er hugs-
anlegt að tjáningarríkt lunderni þjóðanna sem
þú nefndir hafi eitthvað með þetta að gera; –
svona almennt. Það er þeirra háttur að tjá sig
á dramatískan máta. En svo er það annað; –
mér finnst latnesku þjóðirnar hafa ákveðin
blæbrigði í röddinni, sem eru mjög heillandi.
Hvað þetta er nákvæmlega get ég ekki sagt til
um. En þó verð ég að ítreka að góðir söngv-
arar eru að sjálfsögðu til alls staðar. Í söngv-
arakeppni Domingos sem ég tók þátt í, Oper-
alia, hafa þátttakendur og sigurvegarar komið
víða að.
En mig langar líka að nota tækifærið til að
bæta við það sem Domingo var að segja um
ungu söngvarana. Með því sem hann leggur á
sig til að styðja við bakið á ungum söngvurum,
er hann auðvitað að gulltryggja að þessi hefð
lifi áfram, og dafni vel. Það er nokkuð sem
mér finnst mikils vert.“
rsta sinn til Íslands til að syngja. Hann er alþjóðleg
num óperuheimsins. Bergþóra Jónsdóttir sat blaða-
ginn skortur yrði á arftökum Tenóranna þriggja.
Morgunblaðið/ÞÖKafólks afmælissönginn henni til heiðurs undir stjórn Domingos.
eru að fá að
til fólksins
begga@mbl.is