Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 22
Morgunblaðið/Ómar
Kasparov sigrar Nigel Short í úrslitum Reykjavík Rapid-mótsins í fyrra.
RÚSSINN Garrí Kasparov, sem al-
mennt er talinn öflugasti skákmaður
heims, sagði í gær að hann væri
hættur þátttöku á stórmótum en í
janúar ákvað hann að hætta við að
tefla um heimsmeistaratitilinn, að
sögn AFP-fréttastofunnar. Yfirlýs-
ingin í gær kom þó á óvart en Kasp-
arov var þá nýbúinn að vinna hið
sterka mót í Linares á Spáni enda
þótt hann tapaði síðustu skákinni.
„Ég mun halda áfram að tefla
skák vegna þess að það er bráð-
skemmtilegt en ekki lengur tefla
sem atvinnumaður,“ sagði Kasparov
á blaðamannafundi í Linares. „Ég
ætla að halda áfram að tefla fjöltefli
eða hraðskákir en ekki neitt annað.“
Kasparov sagði að mótið í Linares
væri það besta í heimi „og ég vildi
hætta hérna“ bætti hann við áður en
hann gekk úr salnum.
Hann var áður spurður hvort
hann gæti nefnt einhverja sem gætu
fetað í fótspor hans. Kasparov hik-
aði en nefndi síðan Úkraínumanninn
Sergei Karjakín sem er 15 ára og
Norðmanninn Magnus Carlsen, 13
ára. En síðan sagði hann tímann
myndu leiða í ljós hvort þeir hefðu
jafn mikil áhrif og hann og Bobby
Fischer hefðu haft á skáklistina.
Gagnrýnir FIDE
Heimsmeistarinn fyrrverandi
sagðist hafa tekið þessa ákvörðun
vegna þess að hann hefði verið undir
miklu álagi síðustu árin og sakaði
hann Alþjóðaskáksambandið,
FIDE, um að hafa ekki stutt sig.
Hann hefur árum saman átt í hörð-
um deilum við FIDE og stofnaði
1993 ásamt nokkrum öðrum stór-
meisturum Samband atvinnumanna
í skák (ACP) og háði einvígi við
Bretann Nigel Short um heims-
meistaratitil í nafni samtakanna.
Kasparov sagðist nú vilja lifa sínu
eigin lífi. „Árið 2002 gekk ég í lið
með FIDE í Prag til að reyna að ná
fram einingu um heimsmeist-
araeinvígin,“ segir Kasparov á vef-
síðunni Chessbase News. „Und-
anfarin tvö og hálft ár hafa menn
fjórum sinnum skipulagt keppni um
einn og sameiginlegan titil en í hvert
sinn hefur tímafresturinn runnið út
án þess að tryggt væri fé til að halda
keppnina.“ Hann sagði að skákheim-
urinn væri í kreppu og hann teldi að
með því að draga sig í hlé gæfi hann
öðrum skákmeisturum tækifæri til
að takast á við vandann.
Kasparov er 41 árs gamall, fædd-
ur í borginni Bakú í Aserbaídsjan.
Hann varð á sínum tíma yngsti
heimsmeistari sögunnar, 22 ára, er
hann sigraði landa sinn, Anatolí
Karpov, á níunda áratugnum. Enda
þótt Kasparov hafi tapað titlinum í
hendur Anatolí Kramník árið 2000
er hann sem fyrr stigahæsti skák-
meistari heims en það hefur hann
verið samfleytt síðan 1984. Margir
álíta hann sterkasta skákmann sög-
unnar. Árið 1997 tapaði Kasparov
einvígi við skáktölvuna Deep Blue
en sex árum síðar varð jafntefli í
einvígi hans við Deep Blue Junior og
X3D Fritz.
Barátta gegn Pútín
Kasparov gaf í skyn að hann
myndi nú einkum helga sig skrifum
um skák og sinna stjórnmálum.
„Allt heiðvirt fólk ætti að sameinast
gegn einræði,“ sagði hann. Kasp-
arov hefur að sögn AP-fréttastof-
unnar verið framarlega í flokki
þeirra sem berjast gegn stefnu
Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta
sem margir saka um að þrengja að
lýðræði og frjálsri fjölmiðlun. Á
fundinum í Linares sagði Kasparov
að forsetinn væri „einræðisseggur“.
Hópur er nefnist 2008-nefndin:
Frjálst val og Kasparav starfar með
hefur fullyrt að Pútín og menn hans
hafi falsað úrslit síðustu kosninga.
Hefur verið rætt um að Kasparov
myndi e.t.v. bjóða sig fram til for-
seta í Rússlandi þegar kjörtímabil
Pútíns rennur út 2008.
Garrí Kasparov hættur
þátttöku í stórmótum
Segist ætla að
helga sig skák-
skrifum og
stjórnmálum
22 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Falleg og björt 94 fm íbúð á
2. hæð á einum vinsælasta
stað á Seltjarnarnesi. Komið
er inn í stórt hol og gólf er
með náttúrusteini. Stofan er
parketlögð, rúmgóð með
stórum gluggum og góðu
útsýni. Eldhúsið er rúmgott
með stórum borðkrók,
sprautulakkaðri innréttingu
og náttúrusteini á gólfi. Baðherbergið er með baðkari,
flísalagt og t.f. þvottavél. Tvö svefnherbergi eru í íbúð-
inni, bæði með svölum.
Opið hús í dag kl. 14-16. Úlfur tekur á móti gestum.
Sími 897 3044.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16
MELABRAUT 2, SELTJ.
Sunnudagur 13.03.05
GUÐBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR FANN HARLEY DAVIDSON DRAUMAHJÓLIÐ SITT Á GUGGENHEIM-SAFNINU Í NEW YORK
Í VÍKING MEÐ
GRETTI
JÓN HÁMUNDUR
MARINÓSSON
OG EYÞÓR
GUÐJÓNSSON
Í Tímariti Morgunblaðsins
um helgina er rætt við Jón
Hámund Marinósson og
Eyþór Guðjónsson, sem lagt
hafa í víking með teikni-
myndina Þjóðsögu um Gretti
– spegill á íslenskt samfélag
Fagurkeri á glansandi gæðingi
Olivier Dintinger fánaberi Frakklands
í Reykjavík
Hver er Fred Dalton Thompson?
Kaffi - þjóðardrykkur landans
Miður aldur fær á sig nýjan svip
Meðal efnis
HELGI Ólafsson stórmeistari hefur
oft teflt við Kasparov og segir að
yfirlýsingin marki tímamót í skák-
heiminum. „Þetta er afdrifarík
ákvörðun,“ segir Helgi. „Hvenær
kemur annar slíkur meistari fram á
sjónarsviðið? Hann er stórkostleg-
ur skákmaður, afrekaskráin er
ótrúleg og skákstíllinn mjög glæsi-
legur. Arfleifð hans er mikil, ekki
bara í skákinni
sjálfri, hann hef-
ur líka skrifað
skákbækur sem
eru meist-
araverk.
Ég er reyndar
á þeirri skoðun
að þetta geti
hugsanlega
breytt skákmóta-
haldi í heim-
inum. Það kæmi mér ekkert á óvart
þó að mótshaldarar færu að líta
hýrara auga stutt mót eins og til
dæmis Reykjavik Rapid-mótið í
fyrra. Það var „skák-sjó“ sem laðar
fleira fólk að en þessar löngu, erf-
iðu skákir.
Það má segja að Kasparov hafi
haft mest áhrif allra á umræður um
skák og það er gífurleg eftirsjá að
honum. Hann hefur staðið sig frá-
bærlega þó að maður hafi haft mis-
jafnar skoðanir á alls konar stússi
sem hann hefur verið í.“
Helgi nefnir í þessu sambandi
einvígið við Nigel Short 1993 og þá
ákvörðun þeirra að kljúfa sig út úr
FIDE-keppninni.
„Afrekaskrá-
in er ótrúleg“
Helgi Ólafsson
SKEMMTIKRAFTURINN
Dave Allen, sem varð frægur
fyrir að sitja í leðurstól í sjón-
varpssal með logandi sígarettu
og viskíglas og segja brandara,
er látinn.
Hann varð 68
ára gamall og
fréttavefur
breska ríkis-
útvarpsins,
BBC, hefur
eftir umboðs-
manni hans að
Allen hafi lát-
ist í svefni eft-
ir að hafa átt
við veikindi að stríða.
Allen var írskur og fékk fyrst
tækifærið árið 1959 þegar hann
tók þátt í hæfileikakeppni hjá
BBC. Hann ferðaðist með Bítl-
unum um Bretland og Frakk-
land en varð síðan frægur fyrir
sjónvarpsþætti sína. Hann þótti
oft ósvífinn og gerði oft gys að
kaþólskum klerkum sem þótti
dæmalaust athæfi á Írlandi þar
sem kirkjan hafði enn geysimik-
il völd og áhrif.
Dave Allen
látinn
Dave Allen
BRESKIR fjölmiðlar sögðu frá því á
þriðjudag að sextugur Breti hefði
læknast af insúlínháðri sykursýki
eftir að hafa fengið frumuígræðslu.
Hann þurfi ekki lengur á insúlín-
sprautum að halda og geti lifað
eðlilegu lífi.
Maðurinn, Richard Lane, hefur
þjáðst af sykursýki í þrjá áratugi og
þurfti daglega á fimm insúlínsp-
rautum að halda en insúlínháð syk-
ursýki gerir sjúklinga háða insúl-
ínsprautum ævilangt.
Aðgerðin sem um ræðir felst í því
að frumur, sem framleiða insúlín,
eru teknar úr brisi frumugjafa.
Þeim er svo sprautað í lifur sjúk-
lingsins þar sem þær framleiða in-
súlín, sem hjálpar við að stjórna
blóðsykursmagni líkamans.
Lane gekkst undir þrjár frumu-
ígræðslur áður en þessi árangur
náðist, þá fyrstu í september og þá
síðustu í janúar.
Talsmenn King’s College sjúkra-
hússins í London segja þennan ár-
angur marka upphaf nýs tímabils
fyrir fólk sem þjáist af innsúl-
ínháðri sykursýki. Þeir taka þó
fram að þetta sé ekki fullkomin að-
gerð. Þrír hafi gengist undir hana
við spítalann en aðeins Richard
Lane hafi náð þessum góða árangri.
Ástráður B. Hreiðarsson, yf-
irlæknir á göngudeild sykursjúkra
á LSH, segir of mikið að segja að
Richard Lane hafi læknast af syk-
ursýkinni, of stutt sé síðan frum-
urnar voru græddar í hann. Ástráð-
ur segir sykursýki verða til vegna
þess að líkaminn hafni frumum sem
framleiði insúlín. Með frumu-
ígræðslunni sé verið að sprauta
frumum í líkama, sem vitað sé að
muni hafna þeim því hann bregðist
við þeim sem aðskotahlutum. Rann-
sóknir hafi sýnt að fólk sem gangist
undir frumuígræðslur af þessu tagi
þurfi aftur á insúlínsprautum að
halda að nokkrum mánuðum liðn-
um. Enn fremur segir Ástráður að
Lane þurfi að taka ónæmisbælandi
lyf sem geti haft alvarlegar auka-
verkanir eins og ýmiss konar sýk-
ingar í för með sér. Hann dregur þó
ekki úr mikilvægi árangurs aðgerð-
arinnar og segir hann merkilegan
áfanga í baráttunni við sykursýki.
Segjast hafa læknað
mann af sykursýki
Fáðu úrslitin
send í símann þinn