Morgunblaðið - 12.03.2005, Page 25
Morgunblaðið/Kristján
Heimsókn Jón Már Héðinsson skólameistari sæmdi Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur æðsta heiðursmerki MA, gulluglunni.
HEFÐ er fyrir því í Menntaskólanum á Akureyri að sæma
menntamálaráðherra sem heimsækja skólann í fyrsta sinn í ráð-
herratíð sinni æðsta heiðursmerki skólans, gulluglunni. Á því
var engin undantekning síðdegis í gær þegar Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sótti skólann heim. „Ég
hef verið að reyna að tæla hana til að koma í allan vetur,“ sagði
Jón Már Héðinsson skólameistari sem samkvæmt hefðinni
sæmdi ráðherra heiðursmerki skólans, nældi gulluglu í barm
fyrir fund með kennurum, nemendum og öðru starfsfólki skól-
ans.
Þorgerður Katrín lauk fundaröð sinni í framhaldsskólum
landsins í MA í gær, þeim 28. í röðinni þar sem fjallað hefur ver-
ið um styttingu náms í framhaldsskóla. „Það er við hæfi að enda
hér í þessu mikla menntasetri sem Menntaskólinn á Akureyri
er,“ sagði ráðherra. Hún sagði fyrri fundi hafa verið dýrmæta,
margar góðar ábendingar borist frá skólafólki og þær hefðu
skilað sér. „Það hefur margt mjög athyglisvert komið fram,
fundirnir verið gagnlegir, engar halelújasamkomur því skoð-
anaskipti hafa verið lífleg.“
Engar halelúja-
samkomur
Lauk fundaferð um styttingu
náms í framhaldsskólum í MA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 25
MINNSTAÐUR
Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509
www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Grandahverfi - Vesturbær
Erna Valsdóttir,
löggiltur fasteignasali
Páll Höskuldsson,
Gsm 864 0500
Guðmundur Valtýsson,
Gsm 865 3022
Til okkar hefur leitað viðskiptvinur sem vill kaupa rað-, par- eða
einbýlishús helst við Aflagranda. Afhendingatíminn getur verið
allt að sex mánuðir. Því viljum við koma þeim skilaboðum til þín,
að það vilja fleiri búa í þínu húsi en þig grunar.
AKUREYRI
SUÐURNES
Reykjanesbær | Útlit er fyrir að
framkvæmt verði fyrir 18 milljarða
króna í Reykjanesbæ og næsta ná-
grenni á þessu ári. Er það þrefalt
meira en reiknað var með á sama
tíma á síðasta ári. Eru þetta helstu
niðurstöður Framkvæmdaþings
sem Reykjanesbær efndi til.
Fulltrúar helstu stofnana, fyr-
irtækja og verktaka gerðu grein
fyrir áformuðum framkvæmdum á
þessu ári á Framkvæmdaþingi sem
Reykjanesbær efndi til í fyrradag.
Reykjanesbær leggur liðlega 330
milljónir í nýbyggingar og viðhald,
aðallega við gatnagerð í hinu nýja
Tjarnahverfi en einnig eru nokkrir
fjármunir lagðir í nýtt íþróttasvæði
ofan Reykjaneshallar og lagfær-
ingar á Njarðarbraut. Fram kom
hjá Viðari Má Aðalsteinssyni, fram-
kvæmdastjóra umhverfis- og skipu-
lagssviðs bæjarins, að búið er að út-
hluta öllum lóðum í Tjarnahverfi í
Innri-Njarðvík en þar verða 540 til
550 íbúðir. Vinna við gatnagerð og
lagnir er langt komin og malbikun
gatna hefst í næsta mánuði. Eign-
arhaldsfélagið Fasteign fram-
kvæmir fyrir 1,4 milljarða í Reykja-
nesbæ á þessu ári. Félagið er að
byggja Akurskóla í Tjarnahverfi,
hús fyrir Íþróttaakademíu og inni-
sundlaug við Sundmiðstöðina í
Keflavík, auk minni verkefna.
Gert er ráð fyrir að vinna við
breikkun seinni hluta Reykjanes-
brautar milli Hafnarfjarðar og
Reykjanesbæjar hefjist á þessu ári
en Vegagerðin fer einnig í nokkur
smærri verkefni. Talsverðar fram-
kvæmdir eru áformaðar á vegum
Flugmálastjórnar á Keflavík-
urflugvelli en þó einkum á vegum
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og
var gerð grein fyrir þeim á Fram-
kvæmdaþingi. Áætlað er að fram-
kvæmt verði fyrir 1,6 milljarða á
þessu ári.
Stærsta einstaka framkvæmdin í
Reykjanesbæ á þessu ári er bygg-
ing Reykjanesvirkjunar sem Hita-
veita Suðurnesja tekur í notkun á
næsta ári. Framkvæmt verður fyrir
7,3 milljarða í ár en virkjunin í heild
mun kosta um 11 milljarða.
Verktakar bjartsýnir
Gríðarleg aukning er í fram-
kvæmdum verktaka og einkaaðila
frá fyrra ári, einkum vegna upp-
byggingar í Tjarnahverfi. Fyrstu
íbúðirnar sem Húsanes byggir
verða settar í sölu á næstunni og af-
hentar í sumar. Fleiri verktakar eru
að byggja í hverfinu og víðar í bæn-
um. Þannig eru framkvæmdir að
hefjast á svæði sem Búmenn hafa
fengið úthlutað í Tjarnahverfi. Árni
Sigfússon áætlaði í samantekt á nið-
urstöðum Framkvæmdaþingsins að
verktakar og einstaklingar myndu
framkvæma fyrir 6,8 milljarða á
þessu ári sem eru margföld umsvif
miðað við það sem verktakar áætl-
uðu á sama tíma í fyrra.
Stjórnendur verktakafyrirtækj-
anna voru ánægðir með lóðafram-
boð og gang mála í Reykjanesbæ
þegar þeir gerðu grein fyrir áform-
um sínum. Halldór Ragnarsson hjá
Húsanesi sagði að þjónustan væri
góð í Reykjanesbæ og metnaður
bæjarins til fyrirmyndar. Hann velti
því fyrir sér hvers vegna fólk og
fyrirtæki veldu ekki Reykjanesbæ
til að setja sig niður þegar það væri
að huga að flutningi frá höfuðborg-
inni, til jafns við til dæmis Selfoss,
Akranes, Voga og Grindavík. Taldi
hann að bæjarbúar gætu leitað
hluta skýringarinnar hjá sjálfum
sér. Umræðan um bæinn væri nei-
kvæð svo líkja mætti við grátkór í
fullu starfi. Taldi hann nauðsynlegt
að blása til sóknar og byggja upp já-
kvæða ímynd. Vildi að fyrirtækin í
bæjarfélaginu legðust á eitt um að
styðja slíkt framtak.
Einar Guðberg Gunnarsson hjá
Meistarahúsum sagðist finna að
þeirrar öldu hækkunar á fast-
eignaverði sem riðið hefur yfir höf-
uðborgarsvæðið væri farið að gæta í
Reykjanesbæ. Fyrirspurnir um
íbúðir væru að aukast.
Hraðari uppbygging en
bæjarstjóri gerði ráð fyrir
Þegar Árni Sigfússon bæjarstjóri
tók saman niðurstöður Fram-
kvæmdaþingsins kom í ljós að útlit
er fyrir að framkvæmt verði fyrir 18
milljarða króna á árinu í Reykja-
nesbæ, á flugvallarsvæðinu og á
vegum Vegagerðarinnar á Suð-
urnesjum. Eru það þrefalt meiri
framkvæmdaáform en voru á
þinginu fyrir ári. Tók Árni fram að
hann teldi sig frekar fara varlega í
þetta mat og nefndi fjölda fram-
kvæmda sem hugsanlega hæfust en
ekki væru teknar með í niðurstöður
þingsins. Sagði hann niðurstöð-
urnar koma sér skemmtilega á
óvart, uppbyggingin væri hraðari
en hann hefði átt von á.
Lýsti hann sérstakri ánægju með
hversu vel verktakarnir og einkaað-
ilar hefðu tekið við sér. Hann sagð-
ist hafa verið að spá því að eftir jafn
hraða uppbyggingu og nú stæði yfir
tæki það tíu ár fyrir bæjarfélagið að
ná fjárfestingu sinni til baka, með
fjölgun íbúa og auknum tekjum.
Nefndi hann Kópavog og fleiri bæj-
arfélög í því sambandi. „Mér sýnist
að hér geti þetta gerst á skemmri
tíma, eða 3–5 árum,“ sagði bæj-
arstjóri og vísaði til hraðrar upp-
byggingar í Tjarnahverfi.
Framkvæmt fyrir 18 milljarða í Reykjanesbæ á árinu
Áform um þrefalt meiri
framkvæmdir en í fyrra
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tjarnahverfi Flutt verður inn í fyrstu íbúðirnar í Tjarnahverfi í haust.
Sýning | Joris Rademaker opnar sýningu í
Gallerí +, í Brekkugötu 35 á Akureyri laug-
ardaginn 12. mars kl. 14. Titill sýningarinnar er
„Energy patterns“ og eru til sýnis þrjú ný verk.
Sýningunni lýkur 20. mars.
Galleríið er opið laugar- og sunnudaga milli
kl. 14 og 17 og aðra daga eftir samkomulagi.
Fyrsta sýning af þremur | Guðrún Jóns-
dóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir opna á morg-
un, laugardaginn 12. mars kl. 14, sýningu á Kaffi
Karólínu. Þetta er fyrsta sýningin af þremur
sem þær standa fyrir. Guðrún og Þorbjörg reka
verslunina „Frúin í Hamborg“ sem selur varn-
ing og fatnað eldri en 30 ára. Næstu vikur mun
Frúin í Hamborg standa fyrir sýningum á
myndum sem eiga það sameiginlegt að hafa allar
áður verið í annarra manna eign og tengjast
ákveðnum tískusveiflum fyrri tíma. Uppsetn-
ingin er þrískipt og er sú fyrsta tengd myndum
sem prýddu mörg heimili upp úr 1970. Þá verða
sýndar ljósmyndir frá 1930 til 1960 sem og hand-
málaðar, sem flestar tengjast Mývatnssveit.
Hans einkasonur verður svo kynntur til sög-
unnar á laugardag fyrir páska. Allar myndirnar
eru til sölu. Kosta ekki undir 1.000 kr. og ekki yf-
ir 35.000. Sýningarnar þrjár eru frá 12. mars til
3. apríl. Hver sýning stendur yfir í viku.
Snjór framleidd-
ur í Hlíðarfjalli
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
á fundi í gær fyrir sitt leyti að ráð-
ast í uppsetningu og rekstur bún-
aðar til snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli
nú á árinu 2005.
Fjármögnun stofnkostnaðar var
vísað til stjórnar Vetraríþróttamið-
stöðvar Íslands. Fram voru á fund-
inum lagðar áætlanir um stofn- og
rekstrarkostnað. Einnig staðfest-
ingar KEA, Hölds ehf. og Veitinga-
hússins Greifans um þátttöku fyr-
irtækjanna í rekstrarkostnaði
búnaðarins fyrstu fimm árin.
Bæjarráð fagnaði því frumkvæði
sem fyrirtæki á Akureyri sýna með
þátttöku í rekstrarkostnaði við snjó-
framleiðsluna.
„Ástæða þess að við förum út í
þetta er einfaldlega sú að við viljum
að Akureyri haldi stöðu sinni sem
miðstöð vetraríþrótta á landinu.
Breytingar á veðurfari og snjóalög-
um undanfarin ár gera að verkum
að það er fyllilega þess virði að gera
þessa tilraun og ég vona að hún
gangi vel,“ sagði Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri. Hann sagði mjög
jákvætt að fyrirtæki í bænum
myndu taka þátt í verkefninu. „Það
er jákvætt að þau leggja þessu lið
með þátttöku í rekstri á búnaðin-
um.“
Áætlaður stofnkostnaður við
snjóframleiðslubúnaðinn er 80 til
100 milljónir króna og árlegur
rekstrarkostnaður um 8 milljónir
króna.
SÝNINGIN Matur-inn 2005 verður haldin nú
um helgina, dagana 12. til 13. maí í Verk-
menntaskólanum á Akureyri. Um er að ræða
matvæla- og léttvínssýningu þar sem norðlensk
fyrirtæki eru í forgrunni, en matvælafram-
leiðsla er fjölbreytt á Norðurlandi sem og
tengdar greinar. Alls taka 25 sýnendur þátt.
Í tengslum við sýninguna verður lands-
keppni matreiðslumanna, Matreiðslumaður
ársins, haldinn og nú í 11. sinn. Keppnin fer
fram í kennslueldhúsi VMA og mæta 17 kepp-
endur til leiks og hafa sjaldan verið fleiri,
þannig að búast má við hörkuspennandi
keppni. Jafnframt keppa nemar í framleiðslu,
matreiðslu og kjötiðnaði. Margar uppákomur
verða á svæðinu meðan á sýningu stendur,
fulltrúar líkamsræktarstöðvanna keppa í
heilsusamlokugerð og kunnir einstaklingar
keppa í matreiðslu. Sýningin verður opin báða
dagana frá kl. 11.
Matarhátíð í VMA
SÝNING á verkum Errós verður
opnuð í dag, laugardaginn 12.
mars, í Listasafninu á Akureyri og
stendur hún til 8. maí. Meginuppi-
staðan á sýningunni eru átta risa-
stór málverk úr myndröðinni Lista-
sagan sem gerð voru 1991–1992.
Til að gefa innsýn í vinnuaðferðir
og hugmyndaheim Errós má einnig
sjá fjögur verk þar sem hann klipp-
ir saman myndir annarra lista-
manna frá ýmsum tímabilum 20.
aldar. Sýningin er gerð í samvinnu
við Listasafn Reykjavíkur.
Í frétt frá safninu segir að Erró
hafi alltaf verið óhræddur við að
takast á við nýja tækni og í mynd-
röðinni Listasagan noti hann sams-
konar aðferð og iðnhönnuðir, net
möskva til að ramma inn hverja
mynd. „Í verki eins og t.d. Magritte
endursegir Erró okkur listasöguna;
hann sýnir okkur brot af þekktustu
myndum súrrealistans Magritte
(1898–1967), ásamt persónum sem
voru honum nákomnar.“
Öll verkin á sýningunni bjóða
upp á margskonar túlkun – „Þótt
frummerking myndanna sé skýr í
huga Errós þá eru túlkunarmögu-
leikum áhorfandans lítil sem engin
takmörk sett og það er í raun þekk-
ing hans, menning og andagift sem
mestu ræður um hvernig hann les
eða upplifir verkin,“ segir í frétt
frá Listasafninu.
Listasafnið á Akureyri
Listasaga Errós