Morgunblaðið - 12.03.2005, Síða 36
Kirkjulundi 13 - Garðabæ - s: 565 6900 - taeknisalan@simnet.is
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Garðatorgi 3 • 565 6680 • www.fataleiga.is
ÚTSALA
á glæsilegum
brúðarkjólum.
Verð frá kr 10.000
Leyfðu okkur að vera þinn fyrsti kostur
Síðumúla 13 - 108 Reykjavík Sími: 517-0077 www.granithusid.is
Varanlegt Sígild
Efni Hönnun
Granít Flísar
Marmari Handlaugar
Travertine Blöndunartæki
Onyx Arinfrontar
Sandsteinn Sérlausnir
36 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UMRÆÐA í fjölmiðlum undanfarið
um einkarekna grunnskóla hefur verið
nokkur og hefur Stefán Jón Hafstein
komið þar fram fyrir hönd menntaráðs
Reykjavíkur og núverandi meirihluta
borgarstjórnar. Mörg atriði sem koma
fram í grein hans í Morgunblaðinu 28.
febrúar sl. og í frétt af fundi Samfylk-
ingarinnar 2. mars sl. sem eftir honum
eru höfð, eru röng og misvísandi. Þá
finnast þær tölur sem Stefán Jón til-
greinir í skrifum sínum ekki í ársreikn-
ingum eða stjórnsýsluúttekt Reykja-
víkurborgar.
Í framangreindri grein Stefáns
Jóns í Morgunblaðinu og í frétt af um-
fjöllun fundar Samfylkingarinnar, til-
greinir hann að framlag vegna launa í
grunnskólum Reykjavíkurborgar sé
lægst 290.000 kr. og hæst 360.000 kr.
á nemanda. Í ársreikningum fyrir ár-
ið 2003 er framlag launa lægst
327.848 kr. á nemanda og hæst
577.096 kr., en meðaltal er 442.635 kr.
á nemanda. Þarna munar frá 37.000
til 217.000 kr. á nemanda. Ársreikn-
ingur fyrir 2004 liggur ekki fyrir en
tæplega hafa þessar tölur lækkað þar
og í „Starfsáætlun fræðslumála í
Reykjavík 2005“ er ekki unnt að sjá
launakostnað. Tölur Stefáns Jóns eru
rangar nema að hann sé að tala um
einhvern ótilgreindan eða óskil-
greindan hluta af launakostnaði.
Einkareknir skólar á öðrum stigum
skólakerfisins, þ.m.t. leikskólar,
framhaldsskólar svo og háskólar
njóta sama rekstrarframlags á nem-
anda og nemendur ískólum í eigu hins
opinbera.
Rekstrarkostnaður
Til þess að umræða um rekstrar-
kostnað hafi einhverja merkingu þarf
að taka allan kostnað við rekstur
grunnskólanna, þar með talinn hús-
næðiskostnað. Nú liggja aðeins fyrir
sundurliðaðar tölur frá árinu 2003, en
tölur sem koma fram í „Starfsáætlun
fræðslumála í Reykjavík 2005“ sýna
hins vegar áætlaðan heildarkostnað.
Samanburður þessara talna er eftir-
farandi og er þá miðað við Landakots-
skóla.
(Sjá töflu.)
Skoða verður þennan samanburð
með hliðsjón af eftirfarandi og ef tek-
ið er tillit til þessara athugasemda
ætti meðalkostnaður borgarinnar að
vera nokkuð mikið hærri.
1. Kostnaður vegna ýmissar þjónustu
og langtímafjarvista er innifalinn í
greiðslum til einkareknu grunnskól-
anna en ekki í rekstrartölum grunn-
skóla Reykjavíkur. Tölur fyrir grunn-
skóla Reykjavíkurborgar ættu
þannig að vera hærri en hér er til-
greint.
2. Húsnæðiskostnaður grunnskóla
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2003 er
svokölluð innri leiga og er hún um
1.000 kr./ m² á mánuði. Þetta er leigu-
verð fyrir vörugeymsluhúsnæði í
Reykjavík. Réttara væri að miða
þessa leigu við um 2.000 kr./ m² á
mánuði.
Hagkvæmni eða óhagkvæmni
Þessi samanburður sýnir hins veg-
ar að rekstrartekjur Landakotsskóla
eru um 75% af meðalrekstrarkostnaði
Reykjavíkurborgar eins og hann er
reiknaður í ársreikningi borgarinnar
árið 2003. Landakotsskóli er nú rek-
inn með halla, en ef hann fengi aukið
framlag þannig að framlag Reykja-
víkurborgar og skólagjöld stæðu und-
ir kostnaði yrði rekstrarkostnaður
hans um 90% af meðalframlagi
Reykjavíkurborgar til eigin skóla.
Fullyrðing Stefáns Jóns á fundi Sam-
fylkingarinnar um óhagkvæmar
rekstrareiningar einkareknu grunn-
skólanna eru því rangar er varðar
Landakotsskóla. Þessi fullyrðing
hans er því undarleg en kannski er
hann að drepa málinu á dreif með til-
vísunum í tölur sem ekki finnast í árs-
reikningum fræðslumála.
Umfjöllun Stefáns Jóns um tíma-
mótasamning borgarinnar við Landa-
kotsskóla í Morgunblaðinu 28. febr-
úar sl. er ekki rétt. Þar talar hann um
fullan styrk frá borginni og nýmæli,
en lýsir ekki tillögu borgarinnar frek-
ar. Hann spyr „Er það vond hugmynd
eða góð?“. Hugmynd borgarinnar
hefur ekki verið lögð fram.
Sanngirni
Það hlýtur að vera sanngirnismál að
börn í einkareknu skólunum standi
jöfn öðrum nemendum í Reykjavík
hvað varðar fjárframlög vegna þeirra.
Jafnaðarmönnum ætti því að renna
blóðið til skyldunnar og sjá til þess að
jafnræði ríki. Því tökum við heils hugar
undir orð Kjartans Valgarðssonar á
fundi Samfylkingarinnar, sem fram
koma í frétt Morgunblaðsins 2. mars sl.
Þá finnst okkur einnig vert að
benda á það að Landakotsskóli hefur
starfað frá 1896, eða í tæp 110 ár.
Hann er elsti starfandi grunnskóli í
Reykjavík. Hefð hans er því löng og
hefur árangur nemenda verið fram-
úrskarandi. Má þar nefna að nemend-
ur skólans í 4., 7. og 10. bekk hafa
ávallt síðustu ár verið í þremur efstu
sætum í samræmdu prófunum.
Edda Lína Helgason, Eva
Garðarsdóttir Kristmanns og
Þórunn Erhardsdóttir fjalla
um rekstrarkostnað og
framlög til grunnskóla
Edda Lína Helgason
Þórunn er formaður foreldrafélags
Landakotsskóla, Eva er gjaldkeri
foreldrafélags Landakotsskóla og
Edda Lína er foreldri barns í
Landakotsskóla.
Eva G. Kristmanns Þórunn Erhardsdóttir
Rekstrarframlag frá R-borg til grunnskóla árið 2003:
Heildarkostnaður:
meðaltal allra grunnskóla 637.033 kr./ nemanda
lægst 478.208 kr./ nemanda
hæst 819.814 kr./ nemanda
Landakotsskóli (án skólagjalda)*: 302.910 kr./ nemanda
Landakotsskóli (með skólagjöldum)*: 446.910 kr./ nemanda
Áætlun fyrir árið 2005
Heildarkostnaður:
meðaltal allra grunnskóla 654.847 kr./ nemanda
lægst 519.893 kr./ nemanda
hæst 833.759 kr./ nemanda
Landakotsskóli (án skólagjalda)*: 330.970 kr./ nemanda
Landakotsskóli (með skólagjöldum)*: 492.970 kr./ nemanda
*Tölur fyrir Landakotsskóla sýna annars vegar framlag Reykjavíkur og hins vegar
framlagið að viðbættum skólagjöldum:
’Það hlýtur að verasanngirnismál að börn í
einkareknu skólunum
standi jöfn öðrum nem-
endum í Reykjavík hvað
varðar fjárframlög
vegna þeirra.‘
Mismunun einkennir stefnu R-listans
í málefnum einkarekinna grunnskóla