Morgunblaðið - 12.03.2005, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Kvöldvaka í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 13.
mars, verður kvöldvaka í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði og hefst hún kl.
20. Slíkar kvöldvökur eru haldnar
í kirkjunni einu sinni í mánuði og
jafnan valið ákveðið umfjöllunar-
efni hverju sinni.
Að þessu sinni verður fjallað um
ástina og hjónabandið og reynt að
svara þeirri spurningu hvernig
gott hjónabandi eigi að vera. Það
er hljómsveit kirkjunnar sem að
venju spilar og kór Fríkirkjunnar
leiðir sönginn undir stjórn Arnar
Arnarsonar.
Að lokinni kvöldvöku verður
svo kaffi og spjall í safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Gospelnámskeið í
Hafnarfjarðarkirkju
HELGAR-gospelnámskeið hófst í
Hafnarfjarðarkirkju og Strand-
bergi í samstarfi Hafnarfjarð-
arkirkju og Hafnarfjarðarbæjar í
gær. Það mun halda áfram laug-
ardaginn 12. mars frá kl. 10–16
og sunnudaginn 13. mars frá kl.
10–13.
Það er Óskar Einarsson, hljóm-
listarmaður, sem leiðir tónlistar-
starf og Gospelsveit Hvítasunnu-
kirkjunnar sem er aðal
leiðbeinandi og leiðtogi á nám-
skeiðinu ásamt Hrönn Svans.
Gospelnámskeiðið mun enda á
opnum og ókeypis tónleikum sem
hefjast í kirkjunni kl. 14 á sunnu-
daginn kemur og á eftir er opið
hús í Strandbergi.
Kvennakirkjan í
Árbæjarkirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í Árbæjarkirkju sunnu-
daginn 13. mars kl. 20.30. Séra
Sigríður Guðmundsdóttir prédikar
og er umfjöllunarefnið boðun Mar-
íu. Kór Kvennakirkjunnar leiðir
sönginn við undirleik Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur. Á eftir verður
kaffi í safnaðarheimilinu.
Fimmtudaginn 17. mars kl. 20
heldur Kvennakirkjan örþing í
Kvennagarði, Laugavegi 59, 4.
hæð, undir yfirskriftinni: Fyr-
irmynd mín og framtíðarsýn.
Þrjár konur lýsa fyrirmyndum
sínum og hvernig þær eru öðrum
fyrirmyndir, þær ræða einnig um
framtíðarsýn sína sem útivinnandi
konur og hvernig vinna þeirra,
nám og heimilisstörf togast á.
Frummælendur verða: Margrét J.
Hallgrímsson hjúkrunarfræðingur,
Rósa Björg Guðmundsdóttir kokk-
ur og Þóra Björnsdóttir hjúkr-
unarforstjóri. Kaffi og kleinur
verða á boðstólum.
Hjálp, ég
er að eldast!
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hall-
grímskirkju næstkomandi sunnu-
dag kl. 10 mun Þórir Guðbergsson
félagsráðgjafi flytja erindi sem
hann nefnir: Hjálp, ég er að eld-
ast!
Það eru mikil umskipti í lífinu
þegar árin færast yfir, börnin fara
að heiman, starfsdeginum lýkur,
að ekki sé talað um ef heilsan bil-
ar. Er hægt að búa sig undir þessi
umskipti? Hvernig er hægt að lifa
auðugu lífi þegar aldurinn færast
yfir? Þórir hefur langa reynslu af
því að vinna með öldruðum auk
þess sem hann hefur tekið fjölda
viðtala og ritað bækur um efnið.
Allir, bæði ungir og gamlir, eru
velkomnir á fyrirlesturinn.
Að fyrirlestrinum loknum, kl.
11, hefst messa í umsjá sr. Sig-
urðar Pálssonar og barnastarf í
umsjá Magneu Sverrisdóttur
djákna.
Kvöldmessa í
Laugarneskirkju
NÚ ER komið að kvöldmessu
marsmánaðar í Laugarneskirkju,
13. mars kl. 20.30.
Að þessu sinni eru það leiðtogar
í hópi leikmanna sem annast alla
þjónustu. Sigurbjörn Þorkelsson
framkvæmdastjóri stjórnar guðs-
þjónustunni og prédikar, Hafdís
M. Einarsdóttir kórfélagi og leið-
togi í 12-sporastarfinu flytur
trúarvitnisburð sinn og fleiri
koma að þjónustunni. Sem fyrr er
það djasskvartett Gunnars Gunn-
arssonar sem leikur, þar eru auk
hans þeir Matthías M. Hemstock,
Sigurður Flosason og Tómas R.
Einarsson. Kór Laugarneskirkju
leiðir sönginn. Að guðsþjónustu
lokinni er boðið til fyrirbæna við
altarið og kaffidrykkju í safn-
aðarheimilinu.
Athugið að djassinn hefst í hús-
inu kl. 20 svo gott er að koma
snemma í góð sæti og njóta alls
frá byrjun.
Kristniboðsvika
KRISTNIBOÐSVIKU Kristniboðs-
sambandsins lýkur nú um helgina
með samkomum í kvöld og á
morgun í húsi KFUM og K á
Holtavegi 28. Samkomurnar eru
fjölbreyttar og skemmtilegar.
Sagt er frá kristniboði í máli og
myndum. Hugleiðingar fluttar út
frá Guðs orði o.fl. Línuhappdrætti
og veitingar eru í boði.
Í kvöld kl. 20.30 mun Guðrún
Birna Guðlaugsdóttir, kennari,
hefja samkomuna með orðum og
bæn. KSS-bandið leikur og syng-
ur, Hermann Ingi Ragnarsson seg-
ir frá lífi sínu í Ísrael og Hanna
Gísladóttir íhugar orðin „rísið upp
og óttist ekki“. Eftir samkomuna
er sjoppan opin.
Á sunnudag hefst samkoman kl.
17. Hún ber yfirskriftina Kristni-
boð og fjölskyldan. Þráinn Har-
aldsson, guðfræðinemi, hefur upp-
hafsorð og bæn. Guðný Jónsdóttir,
sem var nýlega í Eþíópíu, sýnir
myndir. Rannveig Káradóttir leik-
ur á flautu og sr. Guðmundur
Karl Brynjarsson er með hugleið-
ingu. Eftir samkomuna verður
boðið upp á eþíópískan mat. Sölu-
borðið er á sínum stað og dregið
verður í hinu vinsæla línuhapp-
drætti.
Allir eru hjartanlega velkomnir
á samkomurnar.
Sunnudagaskóli
Norðfjarðarkirkju
BARNASTARF sunnudagaskólans
verður á morgun, sunnudag, í
kirkjunni kl. 11. Sunnudagaskól-
inn á Eskifirði kemur í heimsókn.
Söngur, gleði og gaman. Á eftir
fáum við okkur eitthvað í gogginn
saman.
Börn og foreldrar, ömmur og
afar, allir velkomnir.
Umsjónarmenn og sókn-
arprestur.
Freddie og Carroll
Filmore í Frí-
kirkjunni Kefas
SUNNUDAGINN 13. mars verða
hjónin Freddie og Carroll Filmore
í Fríkirkjunni
Kefas. Samkoman hefst kl. 14
og eru allir velkomnir.
Tvískipt barnastarf er fyrir 1–6
ára og 7–12 ára á samkomutíma.
Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og
samfélag eftir samkomu.
Ráðherrar og
þingmenn lesa úr
Passíusálmunum
9. FEBRÚAR sl., á öskudag kl.
18:00 hófust stuttar helgistundir í
Grafarvogskirkju sem eru alla
virka daga föstunnar, í 31 skipti
alls. Síðasta stundin mun verða
23. mars nk. Hver helgistund
stendur yfir í fimmtán mínútur.
Þessar helgistundir bera yf-
irskriftina „Á leiðinni heim.“ Fólk
getur komið við í Grafarvogs-
kirkju að loknum vinnudegi og
hlustað á lestur úr einum pass-
íusálmi í hvert sinn. Að þessu
sinni lesa ráðherrrar og alþing-
ismenn lesa úr Passíusálmunum.
Í næstu viku munu þingmenn-
irnir og ráðherrarnir Einar K.
Guðfinnsson, Rannveig Guðmunds-
dóttir, Guðni Ágústsson, Jónína
Bjartmarz og Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir lesa.
FYRIR lokaumferð Linares ofur-
mótsins hafði rússneski skáksnilling-
urinn Garry Kasparov (2804) vinn-
ingsforskot á Veselin Topalov (2757).
Þeir mættust í síðustu umferð þar
sem Búlgarinn snjalli hafði hvítt. Eft-
ir að Kasparov hafði með vandaðri
taflmennsku jafnað taflið glutraði
hann því niður og eftirfarandi staða
kom upp að loknum 26. leik svarts:
Það er auðvelt að sitja heima og
velta þessari stöðu fyrir sér með
tölvuforrit fyrir framan sig en öllu
örðugra er að taka ákvörðun yfir
borðinu í úrslitaskák á stærsta móti
ársins. Hins vegar er kjarni stöðunn-
ar einfaldur. Það er óumflýjanlegt að
báðir aðilar þurfa að ýta peðum sín-
um áfram á báðum vængjum borðs-
ins á meðan hvítur er sá eini sem taka
mun frumkvæði að því að breyta
peðastöðunni á miðborðinu. Þegar
peðastaðan á vængjunum er orðin
ljós er eina vinningsáætlun hvíts að
búa til reit fyrir hvíta kónginn á ann-
aðhvort e5-reitnum eða f5. Vandinn
liggur í að finna svarið til að ná þess-
um markmiðum.
27. h4?
Sýnt hefur verið fram á að óvitur-
legt var að ákvarða stöðu h-peðsins
með þessum hætti. 27. Kg4 hefði unn-
ið þar eð þá hefði hann haft þann
möguleika að leika h-peðinu fram um
einn reit eða tvo eftir hentugleika.
27... g6?
Tapleikurinn. 27... h6 hefði haldið
jöfnu þar sem eftir 28. Kg4 g6 nær
hvítur ekki tökum á fyrrnefndum lyk-
ilreitum vegna þess að það er gagn-
kvæm leikþröng. Eftir textaleikinn
þvingar hvítur fram vinning.
28. b4 b5 29. Kf4 h6 30. Kg4! og
svartur gafst upp þar sem eftir 30...
a6 31. a3 er svartur nauðbeygður til
að gefa vald kóngsins af f5 reitnum
með 31...Kf7 og þá vinnur hvítur eftir
32. h5! g5 33. exd5 exd5 34. Kf5. Úr-
slitin í skákinni þýddu að þeir luku
báðir keppni með 8 vinninga af 12
mögulegum en Kasparov var úr-
skurðaður sigurvegari þar sem hann
hafði unnið oftar með svörtu. Loka-
staðan mótsins varð þessi:
1.-2. Garry Kasparov (2804) og
Veselin Topalov (2757) 8 vinninga af
12 mögulegum
3. Viswanathan Anand (2786) 6½ v.
4. Peter Leko (2749) 6 v.
5. Michael Adams (2741) 5½ v.
6.-7. Francisco Vallejo Pons (2686)
og Rustam Kasimdzhanov (2678) 4 v.
Flestum að óvörum hélt Kasparov
blaðamannafund skömmu eftir að
skák hans var lokið gegn Topalov.
Hann tilkynnti þar að þetta hefði ver-
ið síðasta kappskák hans og ferli hans
sem atvinnuskákmanni væri lokið.
Þessa ákvörðun hefði hann tekið áður
en mótið hófst. Vissulega væri mögu-
leiki að hann tefldi áfram en þá ekki
sem atvinnumaður í alvöru keppnum.
Hann kvaðst hafa velt þessari
ákvörðun fyrir sér í þó nokkurn tíma
en hafi ekki undir neinum kringum-
stæðum viljað hætta taflmennsku í
jafn lélegu formi og hann hafi verið í
fyrir hálfu ári. Það hefði þess vegna
verið gott að sigra á rússneska meist-
aramótinu sl. haust og nú á ofur-
mótinu í Linares. Ástríða hans fyrir
skáklistinni sé enn til staðar og það
hafi hjálpað honum að ljúka ferlinum
með stæl. Að hans sögn er hann mað-
ur stórra markmiða og nauðsynlegt
sé fyrir hann að keppa að einhverju.
Hann verði að hafa eitthvað til að
sanna og til þess þarf áræði. Í dag
hinsvegar sér hann ekki fram á að
geta sett sér nokkur markmið né náð
að uppfylla drauma sína sem atvinnu-
maður í skák. Staða heimsmeistarans
í skák sé í miklu uppnámi og það
standi skákinni fyrir þrifum. Á síð-
ustu tveim árum hafi hann lagt mikið
á sig til þess að Prag-samkomulagið
næði fram að ganga og að til yrði einn
heimsmeistari. Hinsvegar hafi öllum,
að því er virðist, þótt gott að hann
kæmist ekki aftur í færi við heims-
meistaratignina. Þegar það hafi legið
fyrir að FIDE hafi í janúar sl. hætt
enn á ný við einvígi hans við handhafa
heimsmeistaratitils þeirra hafi hann
tekið endanlega ákvörðun um að
hætta eftir mótið í Linares. Þessi enn
eina kalda vatnsgusa hefði leitt til
þess að honum hafi fundist að hann
væri ekki lengur hluti af skákheim-
inum. Hann hefði helst kosið að fá
tækifæri til að tefla einvígi við Kram-
nik og sigra áður en hann hefði sest í
helgan stein. Örlögin hinsvegar
spunnu sinn vef á annan veg. Að-
spurður kvaðst hann ætla að skrifa
meira um skák, ljúka ritröð sinni um
heimsmeistarana í skák og skrifa bók
þar sem skák væri notuð til að hjálpa
fólki að taka ákvarðanir í lífinu. Bókin
á að koma út á fimmtán tungumálum
en vinnuheitið á ensku er ,,How life
imitates chess“. Einnig kvaðst hann
sinna stjórnmálum ,,eins og allir heið-
virðir menn sem berðust gegn ein-
ræðisherranum Putin“.
Þessi ákvörðun Kasparovs er rök-
rétt og það var vel til fundið að hún
var tekin eftir gott gengi á jafn öflugu
móti eins og Linares. Alþjóðlegi
skákheimurinn er í mikilli kreppu og
sérstaklega eru heimsmeistaramálin
í lamasessi. Þó að Garry hafi átt sinn
þátt í að koma þeim málum í þennan
farveg verður það ekki tekið af hon-
um að hann er besti skákmaður sem
uppi hefur verið. Þó að allur saman-
burður sé erfiður þá er það skoðun
höfundar þessara lína að taflmennska
hans hafi verið engu lík. Hann var
alltaf skrefi á undan andstæðingnum
og bestu skákir hans bera vitni um
gríðarlega hæfileika, reiknigetu og
ótrúlega ástríðu. Á þessum tímamót-
um er virðingarvert að skoða síðustu
skákina sem hann vann sem atvinnu-
skákmaður en það var í tíundu skák
hans á Linares mótinu.
Hvítt: Michael Adams (2741)
Svart: Garry Kasparov (2804)
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. Be2
Dc7 8. Dd2 b5 9. a3 Bb7 10. f3 Rc6
Upp er komin óalgeng staða í Sikil-
eyjarvörn en þá byrjun hefur Kasp-
arov beitt með frábærum árangri all-
an sinn feril. Næsti leikur hvíts orkar
tvímælis.
11. O-O-O b4! 12. axb4 Rxb4 13. g4
Be7 14. g5 Rd7 15. h4 Rc5 16. Kb1
Hb8! 17. h5 O-O 18. g6 Bf6 19. Hdg1
Ba8!
Frábær leikur sagði Kasparov eft-
ir skákina. Undirbúningur fyrir stór-
skotaliðsárás meðfram b-línunni er
hafinn. Næsti leikur hvíts lokar fyrir
g-línuna.
20. Bg5?! Be5 21. gxh7+ Kxh7 22.
Rb3??
Þó að svartur hafi vissulega staðið
betur að vígi þá var þessi afleikur
óþarfi. Flétta svarts er einföld og
áhrifarík.
22... Rxc2! 23. Rxc5 Ra3+ 24. Ka2
Dxc5 25. Ra4 Rc2! 26. Kb1
Hvítur gat ekki þegið drottninguna
vegna mátsins á b2. Eftir textaleikinn
bíður hans ekki mikið betri örlög.
26... Da3 og hvítur gafst upp.
Skákmót öðlinga
Skákmót öðlinga, 40 ára og eldri,
hófst á afmælisdegi Bobby Fischers,
miðvikudaginn 9. mars. Teflt er í fé-
lagsheimili TR í Faxafeni 12 og
mættu 18 keppendur á miðvikudag-
inn. Enn er hægt að skrá sig til leiks
en næsta umferð fer fram miðviku-
daginn 16. mars. Ólafur S. Ásgríms-
son hefur haft umsjón með þessum
mótum mörg undanfarin ár og hægt
er að skrá sig í mótið með því að hafa
samband við hann í síma 895-5860.
Sjö umferðir verða tefldar og er um-
hugsunartíminn 90 mínútur á 30 leiki
og svo 30 mínútur til að ljúka skák-
inni. Mótinu lýkur 27. apríl með hrað-
skákmóti og verðlaunaafhendingu.
Kasparov sigrar í
Linares og er hættur sem
atvinnuskákmaður
SKÁK
XXII. Linares mótið
Kasparov og Topalov
urðu jafnir og efstir
22. febrúar–10. mars 2005
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is
Kasparov á hinum tilfinninga-
þrungna blaðamannafundi.
Topalov sigraði Kasparov í lokaumferðinni.