Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 55
DAGBÓK
Íslendingasögur I-III
Heimskringla I-III
Tilboð
7.980 kr.
7.000 kr.
afsláttur Tilboð
2.980 kr.
4.000 kr.
afsláttur
Tilboð
7.980 kr.
9.000 kr.
afsláttur
Tilboð
4.900 kr.
12.000 kr.
afsláttur
Tilboð
4.980 kr.
15.000 kr.
afsláttur
Tilboð
6.990kr.
8.000 kr.
afsláttur
Stórvirki á gjafverði
Við bjóðum til
fermingarveislu
Lækjargötu 2a, sími 511 5001, opið k l . 10–22 alla daga.
Tækni.
Norður
♠KG75
♥Á92
♦ÁD65
♣ÁK
Suður
♠ÁD10842
♥5
♦G732
♣63
NS melda sig upp í sex spaða án af-
skipta AV. Vestur kemur út með lauf.
Sagnhafi leggur niður trompásinn í
öðrum slag og austur hendir hjarta.
Hvernig myndi lesandinn spila?
Ef tígullinn er 3-2 þarf engar
áhyggjur að hafa, því vörnin má fá slag
á tígul. Hættan er sú að annar mót-
herjinn sé með fjórlit og fái tvo slagi á
tígul. Það er góð og gild hugmynd að
leggja niður tígulásinn fyrst til að verj-
ast kóng blönkum, en hins vegar eru
meiri líkur á því að kóngurinn sé í fjór-
lit og það má ráða við slíka stöðu með
réttri tækni.
Til að byrja með er hjartað trompað
út, vestur aftrompaður og síðari lauf-
slagurinn tekinn. Í ljósi þess að austur
átti ekkert tromp er líklegra að hann
sé með tígullengdina og því er nú
litlum tígli spilað að gosanum heima.
Hafi austur byrjað með kónginn fjórða,
verður hann að dúkka. Gosinn á þá
slaginn og síðan er tígli spilað að blind-
um og dúkkað til austurs ef vestur
fylgir ekki lit.
Snúum dæminu við og segjum að
vestur hefði ekki fylgt lit í fyrsta
tromp, en þá er hann líklegri til að vera
með lengd í tígli. Eftir hreinsun á hlið-
arlitum væri nú best að spila tígli á
drottningu og síðan litlum tígli úr borði
og dúkka til vesturs ef hann reynist
eiga fjórlit.
Þetta er ekki flókin tækni, eftir á að
hyggja, en sú fyrsta hugsun að leggja
niður tígulás getur hæglega leitt hina
bestu spilara á villigötur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. c4 e5 2. g3 Rf6 3. Bg2 Rc6 4. Rc3 Bc5
5. a3 a5 6. e3 O-O 7. Rge2 Ba7 8. O-O
d6 9. Rd5 Rxd5 10. cxd5 Re7 11. d4
Rg6 12. h3 f5 13. dxe5 dxe5 14. b4 axb4
15. axb4 f4 16. Rc3 Bd7 17. Kh2 Df6 18.
Re4 Df5 19. g4 Df7 20. d6 Bc6 21. b5
Bxb5 22. Rg5 Dd7 23. dxc7 fxe3 24.
Dxd7 Bxd7 25. fxe3 Hxf1 26. Bxf1 Re7
27. Bc4+ Kf8 28. Ba3 Bc6 29. Bc5 b6
Staðan kom upp á meistaramóti
Taflfélagsins Hellis sem lauk fyrir
skömmu. Jóhann Helgi Sigurðsson
(2061) hafði hvítt gegn Lenku Ptácní-
kovu (2280). 30. Bxe7+! Kxe7 31.
Hxa7! Hc8 hvítur hefði vakið upp
drottningu eftir 31... Hxa7 32. c8=D.
32. Ba6 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Furugerði 1, Norðurbrún 1 og Hæð-
argarður 31. | Vetrarferð verður hinn
17. mars. Farið verður að Gullfossi og
Geysi, borðað á Hótel Geysi. Lagt
verður af stað frá Norðurbrún 1 kl.
9.30 og síðan teknir aðrir farþegar.
Skráning í Furugerði í s. 553-6040, í
Norðurbrún í s. 568-6960 og í Hæð-
argarði í s. 568-3132.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í
Breiðfirðingabúð sunnudaginn 13.
mars, fjórði dagur í fjögurra daga
keppni. Kaffiveitingar, allir velkomnir.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fyr-
irhugað er að námskeið í stafgöngu
hefjist 15. mars kl. 9, leiðbeinandi
Halldór Hreinsson, upplýsingar og
skráning í síma 588-2111. Sinfónu-
hljómsveit Íslands býður eldri borg-
urum á tónleika 18. mars kl. 10.30.
Miðar á skrifstofu FEB, Faxafeni 12.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Gönguhópur fer frá Kirkjuhvolskjall-
aranum kl. 10.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Föstudag-
inn 18. mars kl. 16 verður opnuð í Bog-
anum listmunasýning Maríu Jóns-
dóttur frá Kirkjulæk í Fljótshlíð, m.a.
syngur Gerðubergskórinn undir stjórn
Kára Friðrikssonar. Allir velkomnir.
Hraunsel | Á morgun verður lagt af
stað á Hótel Örk kl. 16 frá Hraunseli.
Komið verður við á Höfn, Hjallabraut
33 og Hrafnistu.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Gönguhópur Háaleitishverfis
fer frá Hæðargarði 31 alla laugardags-
morgna hvernig sem viðrar. Boðið
upp á teygjuæfingar og vatn að
göngu lokinni. Tilvalin samverustund
fyrir alla fjölskylduna. Upplýsingar í
síma 568-3132.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist verður í
dag í sal IOGT í Stangarhyl 4. Spila-
mennskan hefst kl. 20.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund alla laugardaga kl. 20.
Einnig eru bænastundir alla virka
morgna kl. 7–8. Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
kvöld kl. 20.30 á Holtavegi 28. „Rísið
upp og óttist ekki.“ Upphafsorð og
bæn: Guðrún Birna Guðlaugsdóttir.
Fjölbreytt dagskrá og söngur, KSS-
bandið, Hermann Ingi og fleira. Hug-
leiðing: Hanna Gísladóttir. Sjoppa og
kaffi á könnunni.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
MENNINGARFRÖMUÐIRNIR Guðrún
Jónsdóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir
opna í dag kl. 14 sýningu á Kaffi Karólínu í
Listagilinu á Akureyri. Þetta er fyrsta
sýningin af þremur sem þær Guðrún og
Þorbjörg standa fyrir, en þær reka saman
fornverslunina „Frúin í Hamborg,“ þar
sem finna má ýmiss konar gamalt dót og
fatnað.
Á sýningunum er að finna myndir sem
eiga það sameiginlegt að hafa allar áður
verið í annarra manna eign og tengjast
ákveðnum tískusveiflum fyrri tíma. Mynd-
irnar á fyrstu sýningunni, þeirri sem nú er
opnuð, tengjast munum sem prýddu mörg
heimili upp úr 1970, t.d. drengurinn með
tárið o.s.frv. Eins gefur að líta útsaums-
myndir frá sama tímabili.
Allar myndirnar á sýningum Guðrúnar
og Þorbjargar eru til sölu. Sýningarnar
þrjár standa frá 12. mars til 3. apríl. Hver
sýning stendur yfir í viku.
Frúrnar í Hamborg
á Kaffi Karólínu