Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 58
ÞRIÐJA hljóðsversplata Coldplay mun bera heitið X&Y
og verður gefin út 6. júní af Parlophone. Óhætt er segja
að beðið hafi verið eftir þessari plötu með óþreyju, enda
er Coldplay, með Chris Martin í broddi fylkingar, ein
vinsælasta hljómsveit heims í dag. Fyrsta smáskífan,
„Speed of Sound“ kemur hins vegar út 23. maí. Platan
kemur í kjölfar A Rush of Blood to the Head sem út kom
2002 en fyrsta plata Coldplay, Parachutes, kom út árið
2000. Báðum þessum plötum var feikivel tekið og hafa
þær selst í yfir sextán milljónum eintaka samtals.
X&Y var tekin upp á síðasta ári í Bretlandi og stýrði
sveitin sjálf upptökum ásamt þeim Danton Supple
(Morrissey, Elbow) og Ken Nelson (Badly Drawn Boy,
X og Y
Coldplay-drengirnir til í tuskið árið 2005.
Kings of Convenience). Í opinberri fréttatilkynningu
segir að lögin nýju séu byggð á kunnuglegum grunni um
leið og sveitin sæki inn á áður ókunnar lendur.
Í sumar hefst svo umfangsmesta tónleikaferðalag
sveitarinnar til þessa.
Tónlist | Ný plata frá Coldplay
58 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.303
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyj iAlan cummingl i
Sýnd kl. 1.50, 3.50 og 6 Ísl tal / kl. 2 og 4. Enskt tal
jamie kennedyi Alan cummingl i
CLOSER
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Ó.Ö.H. DV
S.V. MBL.M.M.J. Kvikmyndir.com ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ
ÓTTA UNGRA BARNA
! I I
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Ó.H.T. Rás 2
i ll l l
Tvær vikur á
toppnum í USA
Will Smith er
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
A MIKE NICHOLS FILM
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Will Smith og
Kevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins! J.H.H. kvikmyndir.com
“…það mátti því búast við því að
Closer væri góð mynd en hún er gott
betur en það.”
Þ.Þ. FBL
Hann trúir
ekki að vinur
hennar sé til
þar til fólk
byrjar að
deyja!
FRUMSÝNING
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM
MAGNAÐA SPENNUTRYLLI
MEÐ ROBERT DE NIRO SEM
FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.50.
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l
kl. 5.40, 8 og 10.20.
FRUMSÝND 18. MARS.1 . .
Sló í gegn í USA
Flott mynd. Töff tónlist (HOPE
með Twista, BALLA með
Da Hood & Mack 10). Byggð á
sannri sögu. Með hinum eina
sanna töffara, Samuel L.
Jackson (“The Incredibles”).
l tt . ff t li t (
i t ,
).
i . i i
t ff , l .
( I i l ).
I I I
ATH: Nýja Star Wars EP III sýnishornið
frumsýnt á undan myndinni!
SKOSKA nýrokksveitin Franz Ferd-
inand heldur tónleika í Kaplakrika 27.
maí næstkomandi. Hljómsveitin sló í
gegn í fyrra með samnefndum frum-
burði sínum sem gefinn var út af
óháða merkinu Domino Records og
hefur í dag selst í yfir tveimur millj-
ónum eintaka. Lög eins og „Take Me
Out“ og „The Dark Of The Matinée“
hafa notið mikilla vinsælda í útvarpi
og Franz Ferdinand tókst hið fágæta
á síðasta ári, að njóta vinsælda jafnt
hjá gagnrýnendum og almenningi.
Sveitin hefur sópað að sér verðlaun-
um undanfarið og er í hæstu hæðum
vinsældanna nú um stundir.
Tónlist Franz Ferdinand er eins
konar melódískt síðpönk, undir áhrif-
um frá hljómsveitum eins og Gang of
Four, Wire, Spandau Ballet og
Simple Minds. Framreiðsla sveit-
arinnar á þessum graut er þó það
glæsileg og grípandi að svo virðist
sem einhver sammannlegur popp-
strengur hafi verið sleginn, með áð-
urnefndum afleiðingum.
Sagði í umsögn þessa blaðs um téða
fyrstu plötu sveitarinnar (18. febrúar,
2004): „… allt þetta gerir Franz
Ferdinand algjörlega að sínu með öf-
undsverðu átakaleysi ... „artí“ en
hreint ótrúlega grípandi og „grúví“
… Þetta er algerlega „brilliant
stöff“!“
Áhrifa Franz Ferdinand er meira
að segja farið að gæta hjá ungum ís-
lenskum rokksveitum, á yfirstand-
andi Músíktilraunahátíð, má merkja
bæði hljóma og klæðaburð sem hægt
er að rekja til þessara geysivinsælu
sveitar.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
hljómsveitina á síðustu Hróars-
kelduhátíð og kom þá í ljós að bassa-
leikari hennar, Bob Hardy, er mikill
áhugamaður um Ísland. Var hann for-
vitinn um staðhætti og menningu hér
og hafði greinilega kynnt sér ýmsa
hluta er snúa að landi og þjóð.
„Hin erfiða seinni plata“ er vænt-
anleg í sumar og eru lög af henni tek-
in að hljóma á tónleikum sveitarinnar.
Það er Hr. Örlygur sem heldur tón-
leikana. Nánari upplýsinga um miða-
sölu og upphitunarbönd er að vænta
síðar. Enginn sveit sló jafn óforvarandis í gegn á síðasta ári og Franz Ferdinand.
Tónleikar í Kaplakrika
Tónlist | Hljómsveitin Franz Ferdinand til Íslands í maí