Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 61
DÖRTHE Eickelberg er leikstjóri
myndarinnar Fairies and Other
Tales, heimildamyndar um álfatrú
á Íslandi. Hún er nú stödd hér á
landi ásamt Katinku Kocher
myndatökumanni, sem gerði
myndina með henni, í tilefni af
frumsýningu myndarinnar í
Goethe-Zentrum í dag. „Mig lang-
aði alltaf til að heimsækja Ísland,
náttúrufegurðarinnar vegna,“ seg-
ir Eickelberg, spurð hvers vegna
hún hafi ákveðið að gera myndina.
„Ég var hálfpartinn með Ísland á
heilanum. Þegar ég fór í bókabúð
lá leiðin beint í ferðalagadeildina
til að finna efni um Ísland,“ segir
hún.
Þannig komst hún að raun um
að á Íslandi væri sterk álfatrú.
„Það fannst mér heillandi, enda
felst hálfgerð þversögn í því, þar
sem Íslendingar eru mjög nútíma-
leg og frjálslynd þjóð, að hún skuli
halda sig við þessa heiðnu trú.
Þetta var ástæðan fyrir því að ég
ákvað að gera myndina,“ segir
hún.
Eickelberg og Kocher komu
hingað fyrst í nóvember 2002 og
dvöldu í einn mánuð við kvik-
myndatökur. „Þar sem skjólstæð-
ingar okkar, álfarnir, voru ósýni-
legir og forðuðust myndavélar í
ofanálag, ákváðum við að nota
teikningar til að leiða þá fram í
dagsljósið. Þegar við komum hins
vegar heim til Þýskalands, eftir
tökurnar, komumst við að því að
70% upptaknanna voru skemmd,“
segir Eickelberg. Hálfu ári seinna
komu þær aftur til landsins og
tóku allt upp aftur. „Þá sagði fólk
við okkur: „Kom það ykkur virki-
lega á óvart, að myndavélarnar
skyldu bila, eftir að hafa tekið
myndir af hólum og hæðum án
þess að spyrja leyfis?“ Við fengum
því miðil, Hermund Rósinkranz, til
að vísa okkur veginn og leiðbeina
okkur um álfaheima. Fyrsta töku-
daginn sagði hann við okkur að
við myndum festa á filmu eitthvað
yfirskilvitlegt, þótt við sæjum það
ef til vill ekki þegar það gerðist.
Hann reyndist sannspár,“ segir
hún.
Myndin hefur verið sýnd á kvik-
myndahátíðum víðsvegar um
heiminn og hlotið afar góða dóma.
Meðal annars hefur hún verið
sýnd í Brasilíu, Taívan, Ítalíu,
Sviss, Spáni og til stendur að sýna
hana í Kóreu. „Við erum mjög
spenntar að sjá viðbrögð Íslend-
inga,“ segir hún.
Kvikmyndir | Þýsk heimildamynd um íslenska álfa frumsýnd
Myndavélafælin myndefni
Morgunblaðið/Jim Smart
Fairies and Other Tales verður sýnd í Goethe-Zentrum, Laugavegi 18, kl. 20 og
22 í dag. Aðgangur er ókeypis.
J A M I E F O X X
ÁLFABAKKI
LIFE AQUATIC VIP KL. 5.30-8-10.30.
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 2-3.45-6.15.
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 12-2.30-4-6.30.
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 2-4-6.
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 2-4.
LIFE AQUATIC KL. 1.30-4-5.30-8-10.30. COACH CARTER KL. 12-1.30-4-5.30-8-10.40.
LEMONY SNICKETS KL. 1.30-3.45.
LEMONY SNICKETS KL. 12-2-4.
HITCH KL. 3-5.30-8-10.20
RAY KL. 5.20-8-10.30. CLOSER KL. 6-8.
THE INCREDIBLES KL. 1.30-3.45-6.
THE INCREDIBLES KL. 2-6.
CONSTANTINE KL. 3-5.30-8-10.30. B.I. 16 ÁRA
CONSTANTINE KL. 6-8.15-10.30. B.I. 16 ÁRA
CONSTANTINE KL. 10.10. B.I. 16 ÁRACONSTANTINE KL. 8-10.20. B.I. 16 ÁRAMILLION DOLLAR BABY KL. 8-10.30.
WHITE NOISE KL. 8.15-10.30. B.I. 16 ÁRAPHANTHOM OF THE OPERA KL. 6-8-10. B.I. 10.
PHANTHOM OF THE OPERA VIP KL. 2.
KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
Flott mynd. Töff tónlist
(HOPE með Twista, BALLA
með Da Hood & Mack 10).
Byggð á sannri sögu. Með
hinum eina sanna töffara,
Samuel L. Jackson
l tt y . ff t li t
( i t ,
).
y ri .
i i t ff r ,
l .
Tilnefnd til 3
Óskarsverðlauna
Heimsins stærsti söngleikur
birtist nú á hvíta tjaldinu í
fyrsta sinn!
Óperudraugurinn
Mynd eftir Joel Schumacher.
Byggt á söngleik
Andrew Lloyd
Webber.
Mbl.
DV
HELVÍTI VILL
HANN,
HIMNARÍKI
VILL HANN
EKKI,
JÖRÐIN
ÞARFNAST
HANS
Sló í gegn í USA
Magnaður spennutryllir með Keanu
Reeves og Rachel Weisz í
aðalhlutverki.
Ó.H.T. RÁS 2
M.M. Kvikmyndir.com
MÍNUS og Brain Police verða með
tvenna tónleika á Gauki á Stöng í
dag, bæði fyrir alla aldurshópa og
hina líka. Jón Björn Ríkharðsson,
trommuleikari í Brain Police, segir
það mikilvægt að sinna yngri aldurs-
hópnum. „Ég man eftir því að þegar
ég var lítill var ekkert gert fyrir
þennan aldurshóp. Maður hugsar
bara til bernskuáranna og vill gera
betur. Vonandi að sem flestir krakk-
ar nýti sér það, mæti á svæðið og
hafi gaman af,“ segir hann.
Nýr gítarleikari í Brain Police
„Þetta verður líka frumsýning á
nýjum gítarleikara. Gítarleikarinn
okkar frá upphafi, Gunnlaugur Lár-
usson, er hættur í hljómsveitinni. Í
staðinn fyrir hann er kominn Búi
Bendtsen, sem hefur gert garðinn
frægan með Fídel og Manhattan,“
segir hann en Búi er líka útvarps-
maður á X-FM. „Þetta er búið að
styrkja bandið og mannskapurinn er
jákvæður. Allir eiga það sameig-
inlegt að ætla að ná langt.“
Tónlist | Mínus og Brain Police
Fyrir alla
aldurshópa
Mínus og Brain Police spila á
Gauki á Stöng milli 17 og 19 í dag
fyrir alla aldurshópa. Ókeypis inn.
Sérstakir gestir Solid I.V. Kl. 23
spila sveitirnar tvær með Dr.
Spock, Nilfisk og Days of Our
Lives. Aðgangseyrir 1.200 kr.
ingarun@mbl.is
Úr verður mikið gengi þegar
hljómsveitirnar Mínus og Brain
Police stilla sér upp saman.