Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir,
tengdasonur, mágur, frændi og vinur,
GUÐMUNDUR ÁRNI JÓNSSON,
Skúlagötu 61,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 3. mars.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 15. mars kl. 11.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Sigríður B. Árnadóttir,
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir,
Jón Gunnarsson, Nína S. Hannesdóttir,
Árni Kristmundsson, Geirlaug Egilsdóttir,
Gunnar Jónsson,
Nína Karen Jónsdóttir, Karl Gunnarsson
og aðrir aðstandendur.
Í dag kveð ég Gest
mág minn, skólabróður,
vinnufélaga og tryggan
vin í rúm 30 ár. Við
kynntumst fyrst 1967 er ég fór að
læra bifvélavirkjun en hann við vél-
virkjun hjá Vélsmiðju Húnvetninga á
Blönduósi. Við leigðum saman her-
bergi hjá Ragnari frænda mínum og
Ellu konu hans í Kópavogi, þegar við
vorum í Iðnskólanum í Reykjavík.
Þær voru margar langar og erfiðar
ferðirnar á milli Reykjavíkur og
Blönduós á þessum árum.
Þá var ekki búið að byggja upp
þessa vegi sem eru í dag, og vega-
gerðin opnaði aðeins tvisvar í viku.
Ekki voru komnir gemsar til að tala
sig í gegnum skaflana, en stundum
voru margar skóflur á lofti þegar
færð var erfið og margir þurftu að
komast á milli landshluta og þá var
gott að hafa Gest. Það var sama hvað
Gestur tók sér fyrir hendur, hann
vann alltaf á við tvo.
Gestur var mikill söngmaður og
söng í mörg ár í kór. Ég heyrði einu
sinni að það þyrfti ekki nema þrjá í
kvartett ef þeir hefðu Gest með sér.
Svo mikill var krafturinn í Gesti.
Við hættum báðir störfum hjá Vél-
smiðju Húnvetninga árið 1977, það ár
tók Hitaveita Blönduóss til starfa og
Gestur var ráðinn Hitaveitustjóri en
ég stofnaði Bílaþjónustuna Bönduósi.
Saman sátum við í stjórn Hitaveit-
unnar í 20 ár.
Einnig voru við í Björgunarsveit-
inni Blöndu og í slökkviliðinu á
Blönduósi til fjölda ára.
Árið 1989 tóku fjölskyldur okkar
saman land á leigu undir sumarbú-
stað hjá Jóni og Ingu að Ási í Vatns-
dal. Við byrjuðum á að girða landið,
búa til veg og brú, rækta tún og
planta trjám. Síðan byggðum við okk-
ur sumarhús.
Fjölskyldur okkar eru búnar að
eiga margar ánægjustundir saman í
leik og starfi við þessa uppbyggingu.
Að lokum vil ég þakka Gesti mági
mínum fyrir ánægjulega samfylgd í
GESTUR
ÞÓRARINSSON
✝ Gestur Þórarins-son fæddist í
Árbæ á Blönduósi 11.
júlí 1947. Hann lést á
gjörgæsludeild Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúss v/Hring-
braut laugardaginn
19. febrúar síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Blönduós-
kirkju 5. mars.
gegnum árin. Ragnhildi
systir minni og afkom-
endum votta ég samúð
mína.
Sól mun rísa á ný og
lífið heldur áfram.
Lárus Helgason.
Í afmælidagabókinni
minni er eftirfarandi
vísa skráð fyrir 11. júlí.
Af langri reynslu lært
ég þetta hef,
að láta drottinn ráða,
meðan ég sef,
en þegar ég vaki, þá vil ég sjálfur ráða,
og þykist geta ráðið fyrir báða.
(Káinn.)
Þennan dag árið 1947 var Gestur
fæddur og um ýmsa hluti átti vísan
vel við hann. Því miður varð ævin
ekki löng í árum talið en það starf
sem hann var búinn að skila hér í hér-
aði og víðar var á við langa starfsævi
sumra annarra.
Kynni okkar Gests hófust þegar
faðir okkar systkina hélt upp á 50 ára
afmæli sitt í maí 1967. Í veisluna kom
margt manna. Einn þeirra var ungur
piltur sem var ráðinn bílstjóri nokk-
urra annarra. Við þekktum hann ekki
þá, en fáum vikum seinna kom bíll í
Þórormstunguhlað á laugardegi. Boð
voru gerð fyrir Ragnhildi, hún fór til
dyra og henni boðið á ball á Laug-
arbakka. Var það auðfengið ef ég færi
með. Smátt og smátt þróuðust kynni
Gests og Ragnhildar. Hinn 11. ágúst
1970 fæddist þeim sonur og 14. nóv-
ember sama ár giftumst við systurn-
ar í Blönduóskirkju og Helgi skírður
um leið. Þau Gestur og Ragnhildur
settust að á Blönduósi og byggðu sér
hús að Urðarbraut 4 þar sem þau
bjuggu síðan og áttu gott heimili.
Gestur gekk í iðnskóla þar sem
hann valdi sér pípulagnir að viðfangs-
efni og gerðist meistari í þeirri iðn.
Urðu pípulagnir og skyld störf starfs-
vettvangur hans upp frá því. Hann
stofnaði fyrir nokkrum árum fyrir-
tækið Lagnaverk og var á lokastigi
við að innrétta vandað húsnæði fyrir
starfsemina þegar hann lést.
Gestur var um skeið hitaveitustjóri
á Blönduósi og sá um rekstur hita-
veitunnar og viðhald. Algengt var þá
að hann stæði með skófluna niðri í
skurði og mokaði ef honum þótti ekki
ganga nógu vel með verkið. Einnig
hringdi margur sem ekki kunni að
stilla termóstatið eða vatnsstreymið í
hann og leitaði ráða. Þá hlustaði hann
um stund en sagði svo: „Ég kem“, og
lagði á. Var hann síðan rokinn út og
var hvorki spurt um klukkuna eða
daginn. Þannig var hann alltaf boðinn
og búinn til að hjálpa öðrum enda
hjálpsemi í blóð borin. Þá voru veðrin
ekki alltaf blíð þegar eitthvað sló út í
hitaveitunni og hann þurfti að fara
fram í Reyki en á leiðinni þangað get-
ur orðið afar hvasst.
Gestur var meðalmaður á hæð, lið-
lega vaxinn og samsvaraði sér vel.
Hann var kvikur í hreyfingum og lið-
tækur íþróttamaður, fremur örlynd-
ur og fljótur að taka ákvarðanir.
Hann var gleðimaður og söngvinn,
hann hafði háa tenórrödd, kunni mik-
ið af söngtextum og söng um skeið í
kórnum. Í eðli sínu var hann mikill
fjölskyldumaður og óþreytandi að
sinna sínu fólki þegar lausar stundir
gáfust frá vinnu en þær voru stund-
um stopular.
Ég og fjölskylda mín þökkum Gesti
fyrir allar skemmtilegu stundirnar á
þessum árum og óskum honum góðr-
ar heimkomu. Og þegar ég labba til
fuglanna er dimmir lít ég til stjarn-
anna og minnist söngsins sem hann
söng svo oft „Upp á himins bláum
boga…“
Við vottum Ragnhildi, Helga,
Kristjönu, Þórarni, Helgu, tengda-
sonum og barnabörnum, einnig föð-
urnum Þórarni og tengdamömmunni
Helgu sem og systkinum og öllum
öðrum vinum og ættingjum okkar
samúð.
Björg.
Látinn er Gestur Þórarinsson vél-
virki á Blönduósi, allt of snemma að
okkur finnst vinum hans og sam-
ferðamönnum, og er hans sárt sakn-
að. Þeim sem þekktu Gest Þóra, eins
og hann var alla jafnan kallaður, kom
það mjög svo á óvart að eitthvað væri
að angra hann innvortis, því maður-
inn hefur alla tíð verið slík hamhleypa
til vinnu, að athygli hefur vakið, og
var einnig svo undir það síðasta.
Gestur var hitaveitustjóri Blöndu-
óssbæjar þegar hitaveitan frá Húna-
völlum var lögð til Blönduóss, og trú-
lega ekki alltaf gengið snemma til
hvílu, en þessu starfi sinnti hann af
dugnaði og trúmennsku í hátt á ann-
an áratug.
Undanfarin ár hefur Gestur stund-
að pípulagningavinnu, sem er ekki
létt vinna, og reynir þar mikið á þrek
manna og úthald, og var ég í sumar
síðast að dást að vinnusemi og atorku
þessa góða drengs, er hann var að
vinna lítils háttar fyrir mig.
En svona er lífið, enginn veit hver
næstur er, og er það efalaust best
þannig.
Eftir að þau hjónin Ragnhildur og
Gestur komu sér upp trjálundi og
Elsku faðir minn, sonur okkar og bróðir,
REYNIR DAVÍÐ ÞÓRÐARSON,
sem lést aðfaranótt laugardagsins 5. mars,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju þriðjudaginn
15. mars kl. 14:00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jan Gunnar Reynisson,
Sigríður Jóna Gísladóttir, Þórarinn Heiðmann Guðmundsson,
Þórður Matthías Sigurðsson, Kristín Sigurjónsdóttir,
Eva Rakel Þórðardóttir Allen, Rodney Allen,
Valur Smári Þórðarson, Emilía Birna Harðardóttir,
Sindri Heiðmann Þórarinsson, Elín María Heiðarsdóttir
Róbert Þórðarson, Sigurfinna Pálmadóttir,
Þórður Matthías Þórðarson,
Sigurjón Veigar Þórðarson,
Ragnar Freyr Þórðarson,
Sigurður Freyr Þórðarson.
Okkar ástkæra,
GUÐMUNDA JÓHANNSDÓTTIR
Hlíf 2,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði laugar-
daginn 12 mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Fjölskylda hinnar látnu.
Faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og
langafi,
JÓN V. JÓNSSON
múrarameistari,
áður til heimilis Stóragerði 16,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi sunnudaginn
6. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Víðinesi fyrir góða
umönnun.
Jónas Hörðdal Jónsson, Árnheiður Guðnadóttir,
Einar Hörðdal Jónsson, Una Árnadóttir,
Dóra Jónsdóttir,
Ólafur Magnússon, Guðbjörg Hafsteinsdóttir,
börn, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
FRIÐRIK GUÐMUNDSSON
Sunnuvegi 9,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 12. mars sl.
Útförin auglýst síðar.
Elín Kristbergsdóttir
Kristján S. Sigurgeirsson, Þorgerður Erlendsdóttir,
Friðrik Friðriksson, Guðrún Helga Sigurðardóttir,
Herborg Friðriksdóttir, Guðjón Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ég var að undirbúa
afmæli mitt þegar sam-
eiginlegur vinur okkar
hringdi í mig og sagði
mér að þú værir látin.
Ég varð dofinn, neitaði
að trúa því og síðan fóru tárin að
streyma. Ég var að verða 35 ára og
þú aðeins 27 ára og í blóma lífsins.
Ég kynntist Hafdísi árið 2001 í
Reykjavík en hún er fædd og uppalin
í Keflavík. Það leið ekki langur tími
þar til ég fluttist til hennar til Kefla-
víkur. Það var ekki mikið hægt að
gera í Keflavík og því voru margar
ferðirnar til Reykjavíkur með ynd-
islegu börnin hennar, Kolfinnu og
Sindra. Við fórum niður að Tjörn að
gefa öndunum, í Húsdýragarðinn, í
sólbað niður á ströndina og í stóra
skemmtigarðinn með fullt af tækjum
sem krakkarnir dýrkuðu og var mjög
HAFDÍS LÁRA
KJARTANSDÓTTIR
✝ Hafdís LáraKjartansdóttir
fæddist í Keflavík 19.
mars 1977. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 16. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Keflavíkurkirkju
25. febrúar.
vinsæll hjá þeim.
Hennar draumur var
að flytja til Reykjavík-
ur og árið 2003 fluttum
við í Árbæinn og
blómstruðu þau þar.
Strákurinn fór að æfa
fótbolta og þykir bara
efnilegur en stelpan
hafði meiri áhuga á að
teikna, safna blómum
og dýrum. Þær voru
ófáar teikningarnar
sem hún teiknaði handa
mömmu sinni og færði
henni oft blóm sem hún
tíndi úti. Hafdís fór að
vinna við neglur sem hún lærði og
starfaði í Keflavík. Draumur hennar
var að vinna sjálfstætt og vinna
heima við en lítið varð úr í þeim efn-
um. Hún hafði mikinn áhuga á tísku,
hafði gaman af því að dansa, tónlist
og bílum. Einnig hafði hún mikinn
áhuga á módelstörfum og tók hún
þátt í fegurðarsamkeppnum og gekk
vel enda forkunnarfögur stúlka og
höfðu margir orð á því hve fögur hún
væri. En það var ætíð hræðsla í
henni sökum sjúkdómsins sem hún
erfði og reyndi hún að virkja sam-
tökin og setti af stað fjáröflun og
hafði árangur sem erfiði. Hún var
mjög ákveðin, þrjósk og hafði gott
hjartalag en þar sem hún hafði átt
erfiða lífsgöngu þá litaði það per-
sónuleika hennar. Okkar leiðir lágu
ekki saman en hún kynntist yndis-
legum manni sem gerði hana og
börnin hennar hamingjusöm.
Ég votta Begga, Kolfinnu, Sindra,
Kjartani, Maríu og Billa mína dýpstu
samúð og Guð gefi ykkur styrk á
þessari erfiðu stundu. Megi börnin fá
góðan lífsveg, mikla ást og umhyggju
og ég veit að móðir þeirra mun fylgj-
ast með þeim á lífsleiðinni.
Örlygur Viðarsson.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið
í fliparöndinni – þá birtist valkostur-
inn „Senda inn minningar/afmæli“
ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Minningargreinar