Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MICHAEL Christiansen, arkítekt á Teiknistofu Hennings Larsens, hef- ur unnið skipulagstillögur vegna há- skólahverfis í tengslum við bæði fyrirtæki og íbúðabyggð í Urriða- holti en eins og fram hefur komið hefur Garðabær áhuga á því að há- skólinn í Reykjavík komi til bæj- arins til að mynda kjarnann í vís- inda-, fyrirtækja- og íbúðasamfélagi þar. Teiknistofa Hennings Larsens hefur mikla reynslu af hönnun há- skóla og háskólasamfélaga, bæði á Norðurlöndum og eins á Bretlandi. Christiansen tekur þó fram að verkefnið í Urriðaholti sé í raun ein- stakt, þar spili saman hraun og grænir reitir og stórkostlegt útsýni yfir Faxaflóann. Eins þurfi að taka tillit til veðráttunnar á Íslandi og skammdegisins. Þetta sé því alveg sérstaklega spennandi verkefni fyr- ir arkítekt að kljást við en grunn- hugsunin gangi út á að skapa eins konar suðupott þekkingar. Verður allt að 14–15 þúsund manna samfélag Christiansen segir að í sinni út- færslu að þekkingarþorpinu í Urr- iðaholti, þar sem sé gert fyrir ráð fyrir að allt að 14–15 þúsund manns geti komið til með búa, leggi hann áherslu á að skapa umgjörð fyrir samfélag þar sem sé mannlíf jafnt á kvöldin sem og á daginn en ekki, eins og stundum vilji brenna við í háskólasamfélögum, að göturnar tæmist á kvöldin. Þess vegna gangi hugmyndin út á að byggja þétt um miðpunkt samfélagsins í holtinu þar sem verði skólar, bókasöfn, kaffi- hús, verslanir o.s.frv.Og raunar stúdentaíbúðir einnig í háum turn- um sem líkist einna helst kínversk- um lömpum og verði eins konar kennileiti fyrir samfélagið. Mik- ilvægt sé að stúdentarnir búi í sam- félaginu miðju og að lífið deyi þar ekki út að loknum skólatíma. Christiansen segir að nokkrar megingötur virki sem eins konar líf- æðar um miðhluta holtsins en í því efni hafi einnig þurft að taka tillit til íslenskrar veðráttu og því sé hluti kjarnans undir þaki. Fjölskyldu- byggðin verði síðan frekar á jöðrum svæðisins. Eins konar nútímaútgáfa af þorpi í Toskana Christiansen segir að í raun megi líkja hugmyndum sínum við nútíma- lega útgáfu af þorpi í Toskana með þéttri byggð, þröngum strætum og iðandi lífi en dreifðari byggð til út- jaðranna. Christiansen segist einnig hafa lagt mikla áherslu á sameiginleg rými þar sem hugmyndin sé að skapa eins konar suðupott þekk- ingar og öll hönnunin taki því mjög mikið mið af hinum félagslega þætti við sköpun þekkingar og nýrra hug- mynda. Útgangspunkturinn sé sá að þekking sé félagslegt afsprengi, að hún verði til í samskiptum fólks en ekki í einangrun. Þess vegna megi líta á byggðina sem netverk fyrir upplýsingaflæði milli fólks, sem eins konar landa- mæralausa háskólabyggð, að mati Michael Christiansen. Hugmyndir danska arkítektsins Michaels Christiansen um háskólasamfélag í Urriðaholti Vill skapa suðu- pott þekkingar Morgunblaðið/Árni Sæberg Michael Christiansen: „Ótrúlegt umhverfi og náttúra.“ HÁSKÓLASETUR Vestfjarða var formlega stofnað á laugardaginn var. Um þrjátíu aðilar eru stofnaðilar að setrinu, þar á meðal allir háskólarnir í landinu átta að tölu og ýmsar rann- sóknastofnanir, eins og Hafrann- sóknastofnun, Veðurstofan og fleiri. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sagði að til að byrja með yrðu sex stöðugildi hjá setrinu, auk stöðugilda sem yrðu í þróunarverk- efnum og slíku. Þessi stofnun myndi taka yfir þjónustu við fjarnáms- nema, sem væri verkefni sem hefði verið í þróun á undanförnum árum, jafnframt því sem sú þjónusta yrði efld og boðið upp á eins fjölbreytt nám og mögulegt væri að bjóða upp á í fjarnámi. Þá myndi Háskólasetur Vestfjarða bjóða upp á staðbundið nám og í þriðja lagi myndi það vera samstarfsvettvangur fyrir rann- sóknastofnanir og samþætta at- vinnulíf, rannsóknir og menntun. „Meiningin er ekki bara sú að vera með kennslu fyrir þá sem eru að byrja í háskólanámi heldur einnig vera með aðstöðu fyrir meistara- námsnema vegna þeirrar nálægðar sem er hér við öflugar rannsóknir,“ sagði Halldór. Hann sagði að þeir ætluðu að byggja á sérstöðu Vestfjarða, þar sem væru veiðarfærarannsóknir, snjóflóðarannsóknir og rannsóknir á þorskeldi í sjó, en öll þessi rann- sóknasvið væru að byggjast upp á Vestfjörðum nú. Fleiri verkefni væru einnig inni í myndinni í þessu sambandi, þar á meðal verkefni um Vestfirði á miðöldum undir stjórn Torfa Tuliníusar og sama gilti um verkefni í tengslum við friðlandið á Hornströndum og önnur verkefni tengd sérstöðu Vestfjarða. 500 nemendur innan fimm ára Halldór sagði aðspurður að þeir bindu vonir við að þetta yrði öflug starfsemi í framtíðinni. Háskólasetr- ið yrði þróað áfram á næstu árum og stefnan væri sú að innan fimm ára yrðu nemendur orðnir um 500 en þeir væru 160 talsins í dag. „Einhvern tíma á þessu tímabili munum við stíga það skref, finnst mér ekki ólíklegt að sækja um að gera Háskólasetur Vestfjarða að sjálfstæðum háskóla,“ sagði Halldór einnig. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Gestir voru glaðir í bragði á stofnfundi Háskólasetursins, sem haldinn var á Ísafirði á laugardag. Allir háskólar landsins aðilar að Háskólasetri Vestfjarða ÞINGI unga fólksins, sem haldið var í fyrsta sinn um helgina, lauk í gær. Ungliðahreyfingar allra stjórnmálaflokkanna stóðu fyrir þinginu en það fór fram í hátíð- arsal Háskóla Íslands. Á þinginu áttu sæti fulltrúar ungliðahreyf- inga allra stjórnmálaflokkanna og samsvaraði fulltrúafjöldi hverrar hreyfingar sætafjölda viðkomandi stjórnmálaflokks á Alþingi. Mark- miðið með þinginu var að vekja umræðu um málefni sem snerta ungt fólk og leiða í ljós hvort ná mætti þverpólitískri sátt um ákveð- in mál. Davíð Þorláksson, einn skipu- leggjenda þingsins, sagði að víðtæk samstaða hefði náðst um flestar þær tillögur sem lagðar voru fram. „Það gekk mjög vel að ná samstöðu og betur en margan hefði grunað. Lagðar voru fram rúmlega áttatíu ályktanir á þinginu og meirihluti þeirra var samþykktur. Þá er það athyglisvert að mál sem útilokað er að samstaða myndi nást um á Al- þingi voru samþykkt á þessu þingi líkt og aðskilnaður ríkis og kirkju, full réttindi samkynhneigðra og frelsi í innflytjendamálum,“ sagði Davíð. Að sögn Davíðs sveif andi frjálsræðis yfir vötnum á þinginu. „Allar ungliðahreyfingarnar eiga það sameiginlegt að vera meira fyrir frjálsræði en fulltrúar flokk- anna á Alþingi og niðurstöður þingsins benda til þess að það séu ekki flokkslínur sem aðgreina fólk heldur kynslóðabil. Öll þessi mál verða vafalítið að veruleika þegar kynslóðaskipti hafa átt sér stað.“ Tillögur þingsins verða sendar alþingismönnum og ungliðahreyf- ingarnar munu þrýsta á sína þing- menn að beita sér í þessum málum. Davíð sagði að almenn ánægja hefði verið með framkvæmd þings- ins og ákveðið hafi verið að gera það að árlegum viðburði. „Að sjálf- sögðu gekk þetta ekki hnökralaust fyrir sig en það sem mestu máli skipti var að umræðan var mál- efnaleg og jákvæð. Þarna var ekk- ert um pólitískt skítkast.“ Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra, Hallgrímur Helgason rithöf- undur og Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, héldu fyrirlestra á þinginu. Morgunblaðið/Árni Torfason Fulltrúar á þinginu hlýða á umræður á fundinum í gær. Víðtæk samstaða á þingi unga fólksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.