Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Bach ómaði í öllu sínu veldiþegar gengið var inn íBorgarneskirkju. Þaðfyrsta sem bar á góma í samtali við organistann, Steinunni Árnadóttur, var hvort ekki væri ólíkt að leika á orgel og píanó og hvernig tilfinning það væri fyrir píanóleikara að leika á orgel. „Þetta er svipuð tilfinning og að aka allt í einu kraftmiklum bíl,“ segir Steinunn. „Og maður verður að passa sig á að fara ekki yfir strikið því tónlistin má ekki vera yfirþyrm- andi í kirkjunni þótt það sé skemmti- legt að spila.“ Byrjaði að læra á píanó átta ára Steinunn ólst upp á Brennistöðum í Flókadal. Hún byrjaði að læra á píanó hjá Pétri Jónssyni í Tónlistar- skóla Borgarfjarðar þegar hún var átta ára. Leiðin lá svo í Tónlistar- skóla Kópavogs þar sem hún lærði hjá Kristni Gestssyni. Þaðan tók hún burtfararpróf og settist í Píanókenn- aradeild Tónlistarskóla Reykjavíkur og nam hjá Halldóri Haraldssyni. „Þetta var þriggja ára mjög mark- visst nám,“ sagði hún. „Ég veit að margir sakna þessarar deildar því þegar píanókennaranámið var flutt í Listaháskólann breyttist námið mik- ið. Annars er tónlistarnám að breyt- ast. Það er orðið mjög dýrt og ekki lengur inni í grunnskólunum. Þess vegna hafa ekki allir tækifæri til að læra. Þeir sem stunda tónlistarnám hljóta þá að leggja meira á sig enda mætti stundum gera meiri kröfur til barna um að þau æfi sig meira.“ Eftir að náminu lauk byrjaði Stein- unn að kenna við Tónlistarskóla Borgarfjarðar. „Fljótlega fór ég þó að halla mér að kirkjunni. Ég tók að mér að leysa af sem organisti í Hvanneyrarkirkju í eitt ár en nú hef ég verið þar í 12 ár. Eftir að ég tók við starfi organista Borgarneskirkju ætlaði ég að sleppa takinu af Hvann- eyri, en enn hefur ekki verið ráðinn organisti þar svo ég starfa þar enn. Það er erfitt að sleppa þessu alveg því mér hefur líkað mjög vel að vinna með fólkinu sem þar er. Þegar ég tók við starfinu á Hvanneyri fékk ég leið- sögn í orgelleik, en byrjaði síðan að læra fyrir sex árum.“ Organistastarfið vakti áhuga „Þegar starf organista Borgarnes- kirkju var að losna vakti það áhuga minn. Ég sótti því um og var mjög ánægð þegar ég fékk starfið. Mér hefur líkað stórkostlega vel frá því ég byrjaði. Kirkjukór Borgarneskirkju hefur vaxið og telur allt upp í 40 manns þegar allir mæta, bæði úr Borgarnesi og nágrannasveitunum. Þetta er sérstaklega góður og skemmtilegur félagsskapur. Það sem mér þykir sjarmerandi við kórstarf er samveran, ekki bara söngurinn. Það myndast oft svo skemmtilegt andrúmsloft í kórum.“ Steinunn tók við Barnakór Grunn- skólans í Borgarnesi og stjórnar nú tveimur kórum, einum fyrir eldri nemendur og öðrum fyrir yngri. „Ég vildi taka við þessum kórum en ákvað strax í upphafi að gera það með það fyrir augum að sameina þá kirkjukórnum við ákveðin tækifæri. Þetta hefur verið gert og kemur mjög vel út. Börnin eru ánægð að fá að syngja í kirkjunni og fullorðna fólkið hefur mjög gaman af þessu samstarfi. Þetta tilraunastarf hefur mér þótt mjög skemmtilegt og ég nýt mín virkilega ef ég fæ svolítið að leika lausum hala. Ég fæ tækifæri til að gera það hér og er þakklát fyrir það.“ Söngur og myndlist til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni Steinunn á þrjú börn, 19 ára son og tvær dætur, 8 og 9 ára. Þótt mikið sé að gera og hún þurfi að sinna störfum á mörgum stöðum segir hún það ganga ágætlega að koma öllu heim og saman. Píanókennslunni sinnir hún heima enda segist hún þannig geta haft kennsluna eftir sínu eigin höfði. „Ég vil hafa mikla nærveru við nemendur mína og geta fylgt þeim vel eftir,“ segir hún. Framundan eru fermingar í kirkjunni og messur á páskahátíðinni. Á föstudaginn ætlar hún að leika á píanó á tónleikum Freyjukórsins í Logalandi í Reyk- holtsdal og í dymbilvikunni mun Kirkjukórinn taka þátt í tónleikum í Reykholtskirkju. „Eftir páska stendur mikið til því þá verður Fúsakvöld til heiðurs Sig- fúsi Halldórssyni tónskáldi og mynd- listarmanni í Logalandi. Sýning verð- ur á myndum eftir Sigfús, sonur hans Gunnlaugur segir frá lífi og starfi föður síns og Kirkjukór Borgarnes- kirkju ásamt einsöngvurum úr hér- aðinu flytja lögin hans. Meðleikari verður Guðjón Pálsson sem starfaði eitt sinn sem tónlistarkennari í Borg- arfirðinum og var góður vinur Sig- fúsar. Undirbúningur er þegar haf- inn og ég hlakka mikið til að taka þátt í þessu verkefni,“ sagði Steinunn Árnadóttir. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Organistinn Má ekki fara yfir strikið. Steinunn Árnadóttir leikur á orgelið. Eins og að aka kraftmiklum bíl Það er í ýmsu að snú- ast hjá Steinunni Árnadóttur organista í Borgarnesi. Hún er einnig organisti á Hvanneyri, stjórnar kirkjukór og tveimur barnakórum, leikur undir hjá Freyjukórn- um og kennir á píanó svo eitthvað sé nefnt. Ásdís Haraldsdóttir hitti hana við orgelið. asdish@mbl.is VESTURLAND Hellnar | Stofnuð hafa verið Hollvina- samtök Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará. Tilgangur samtakanna er að heiðra minningu Þórðar sem var margbrotinn og fjölhæfur ein- staklingur. Þórður lést árið 2003, en hinn 25. nóvember á þessu ári verða liðin 100 ár frá fæðingu hans. Hann var meðal annars þekktur sem sjómaður, nátt- úruunnandi, refaskytta, listmálari, hagyrðingur, sagnamaður og heilsu- frömuður. Mikið efni er til eftir Þórð svo sem viðtalsbækur, kveðskapur og málverk. Þórður heitinn var mikill áhuga- maður um ölkelduvatn og hollustu þess, en fyrstu árin ólst hann upp í Bjarnarfosskoti í Staðarsveit þar sem ölkeldur eru nokkrar í næsta ná- grenni bæjarins. Síðar bjó hann á Dagverðará í Breiðuvíkurhreppi og kenndi sig æ síðan við þann bæ. Þótt Þórður flytti frá Snæfellsnesi gætti hann þess að eiga ávallt ölkelduvatn til drykkjar og baðaði sig í Lýsuhóls- laug þegar færi gafst. Um þrjátíu manns mættu á stofn- fund Hollvinasamtakanna, þar á meðal Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra. Í stjórn samtakanna voru kosin Haukur Þórðarson, Reynir Ingibjartsson, Stefán J. Sigurðsson, Sæmundur Kristjánsson og Ólína Gunnlaugsdóttir. Markmið Hollvina- samtaka Þórðar Halldórssonar er út- gáfa á minningarriti og gerð heim- ildarmyndar um Þórð, auk þess sem samtökin vilja beita sér fyrir kynn- ingu á aukinni nýtingu á ölkeldu- vatni á Snæfellsnesi, þar á meðal stofnun heilsubaða við Lýsuhólslaug. Orkuveita Suðurnesja mun starfa með Hollvinasamtökunum að rann- sókn og kynningu á ölkelduvatninu. Á heimasíðunni www.refaskytta.is er hægt að fá nánari upplýsingar um Hollvinasamtökin og skrá sig í þau. Stofnuð Hollvinasamtök Þórðar frá Dagverðará Morgunblaðið/Guðrún Bergmann Heiðra minningu Stofnfundur Hollvinasamtaka Þórðar frá Dagverðará var haldinn í Lýsuhólsskóla. Umræðan  Daglegt málþing þjóðarinnar líka á Netinu: mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.