Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞÓRARINN Eggertsson, matreiðslumaður á Hótel Sögu, bar sigur úr býtum í landskeppni matreiðslumanna sem fram fór á Akureyri um helgina. Bjarni G Kristinsson, matreiðslumað- ur á Hótel Sögu, hafnaði í öðru sæti og Sigurð- ur Helgason, matreiðslumaður á Skólabrú, í því þriðja. Jafnframt kepptu nemar í fram- reiðslu, matreiðslu og kjötiðnaði. Þetta er í 11. sinn sem keppt er um titilinn matreiðslumaður Íslands og að þessu sinni mættu 16 keppendur til leiks. Keppt var í kennslueldhúsi Verkmenntaskólans á Akur- eyri og þurftu keppendur að elda bæði forrétt og aðalrétt en uppistaðan í þeim réttum var saltfiskur og lúða. Galdurinn felst í góðum mat Þórarinn var að vonum ánægður þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. „Þetta var frábært og ég er að sjálfsögðu ánægður með úrslitin. Í keppni sem þessari getur brugðið til beggja vona og úrslitin komu mér því nokkuð á óvart. Ég er mjög ánægður með sigurinn enda er þetta er mesti heiður sem matreiðslumanni á Íslandi getur hlotn- ast,“ sagði Þórarinn en með sigrinum öðlaðist hann keppnisrétt á Norðurlandamóti mat- reiðslumanna 2006. Aðspurður sagði Þórarinn að galdurinn á bak við velgengni í keppni sem þessari fælist í því að framreiða góðan mat sem bragðaðist vel. Rúmlega fjögur þúsund manns lögðu leið sína í húsnæði Verkmenntaskólans á Akureyri um helgina, en samhliða keppninni fór þar fram matarsýningin Matur-inn 2005, þar sem norðlensk fyrirtæki kynntu sig og sínar vörur. Tuttugu og fimm fyrirtæki voru með sýning- arbása en á annan tug fyrirtækja ásamt öllum veitingastöðum Akureyrar stóð að þessum at- burði. Þórarinn valinn mat- reiðslumaður Íslands Morgunblaðið/Jón Svavarsson Þórarinn Eggertsson með verðlaunagripinn sem hann hlaut fyrir sigurinn. JÓNÍNA Soffía Tryggvadóttir, kaffibarþjónn frá Tei & kaffi, bar sigur úr býtum á Íslandsmóti kaffibarþjóna sem fram fór í Smáralind um helgina. Þetta var í sjötta sinn sem mótið var haldið og voru 26 keppendur skráðir til leiks. Jónína hefur starfað sem kaffibarþjónn hjá Tei & kaffi í rúm fjögur ár og segist að mestu leyti undirbúa sig undir keppni sem þessa í vinnunni. „Samband mitt við espressóvélina hófst fyrir fjórum árum og ég er vön því að útbúa hefðbundna kaffidrykki fyrir viðskiptavini mína. Undirbúningurinn hjá mér snýst því að mestu leyti um það að gera frjálsa drykkinn en ég hef eytt mörgum kvöldum í að undirbúa hann. Þó er það mikilvægast af öllu að hafa gaman af þessu því þá gengur manni vel,“ segir Jónína. Jónína var að vonum ánægð með sigurinn en þetta er í þriðja skipti sem hún tekur þátt í mótinu. Tekur þátt í heimsmeistarakeppninni „Ég tók þátt árið 2002 en þá komst ég ekki í úrslit. Árið 2004 gekk mér betur en þá fékk ég verðlaun fyrir besta frjálsa drykkinn og komst í landsliðið,“ sagði Jónína en þeir sem lenda í sex efstu sætunum í þessari keppni skipa landslið kaffibarþjóna sem tekur þátt í heimsmeistara- móti kaffibarþjóna sem fram fer í Seattle. Jónína Soffía Tryggvadóttir Íslandsmeistari kaffibarþjóna „Mikilvægast að hafa gaman af þessu“ Morgunblaðið/Júlíus Jónína Soffía Tryggvadóttir ÞRÁTT fyrir að nafnið Placido Dom- ingo þýði rólegur sunnudagur var allt annað en rólegt í Egilshöllinni í gær- kvöldi. Spenningurinn áður en tón- leikarnir í þessum risastóra sal hófust var nánast þrúgandi, enda einn fremsti söngvari heims í þann veginn að stíga fram á svið. Söngvari sem hefur unnið meira en tíu Grammy- verðlaun, komið fram í yfir hundrað mismunandi hlutverkum á óperu- sviðinu og stjórnað hljómsveitum. Óneitanlega var um viðburð í ís- lensku tónlistarlífi að ræða. Domingo er eldri en búast mátti við; myndirnar af honum á ótölu- legum fjölda geisladiska, blaðagreina og auglýsinga á síðustu árum sýna yngri mann en þann sem birtist á sviðinu í gærkvöld. Röddin hefur líka elst; hún hefur dökknað eins og óhjá- kvæmilega gerist með aldrinum – en það er allt í lagi. Domingo er ekki bara einhver sterabaulari sem fer upp á háa C-ið af minnsta tilefni; hann er fyrst og fremst listamaður. Wintersturme úr Valkyrju Wagners, Tout est bien fini úr Le Cid eftir Massenet, Dein ist mein ganzes Herz eftir Lehár og annað þvíumlíkt var afar áhrifamikið; túlkunin var tilfinn- ingaþrungin og litrík; röddin dásam- leg. Sópransöngkonan fræga, Ana Maria Martinez, kom fram með Dom- ingo, bæði í dúettum og einsöngs- atriðum. Hún var glæsileg á sviðinu, í gylltum kjól. Söngurinn gaf klæða- burðinum ekkert eftir; Je veux vivre eftir Gounod, Carcelas eftir Chapi og annað áþekkt var ákaflega fallegt, röddin var svo tær, jöfn og kraftmikil án þess að það væri á nokkurn hátt þvingað að unaður var á að hlýða. Því miður var ekki eins gaman að hlýða á Óperukórinn í Reykjavík, en hann var áberandi á tónleikunum. Freudig begrussen úr Tannhauser eftir Wagner var óttalega losaralegt og innkomurnar í Una vela…Fuoco di gioia eftir Verdi voru ónákvæmar. Að hluta til má kenna hljómnum í salnum um; Egilshöllin er risastór geimur og til að eitthvað heyrist þar þarf að magna allt saman upp. Ótölu- legur fjöldi míkrófóna var á sviðinu, en þeir voru ekki nægilega vel stað- settir; styrkleikajafnvægið á milli mismunandi raddhópa í kórnum var undarlegt, t.d. heyrðist nánast ekkert í tenórunum en nokkrir bassar voru alltof háværir. Heildarhljómurinn var jafnframt einkennilega loðinn. Svipaða sögu er að segja um leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Eugene Kohn. Spilamennskan var fremur sundurlaus og var það ekki fyrr en nokkuð var liðið á seinni hálfleik að hljómsveitin tók við sér. Hljóðkerfið í höllinni bjagaði auk þess hljóminn; óþægilega mikið heyrðist í einstaka strengjaleikara, blásararnir voru of veikir en dynk- irnir í slagverkinu voru svo ægilegir að það var eins og fallbyssuskothríð þegar verst lét. Domingo er síðastur tenóranna þriggja til að syngja hér á landi; Pav- arotti kom hingað fyrir rúmum tutt- ugu árum og Carreras hefur tvisvar haldið hér tónleika. Eins og fram kom í grein minni um seinni tónleika hans voru þeir sérlega vel heppnaðir; í samanburðinum voru tónleikarnir í gærkvöld talsvert síðri. Aðalsöku- dólgurinn var Egilshöllin; okkur vantar almennilegt tónlistarhús – og það sem fyrst! Fyrst og fremst listamaður TÓNLIST Egilshöll Placido Domingo og Ana Maria Martinez fluttu ásamt Óperukórnum í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes og Sinfóníu- hljómsveit Íslands tónlist eftir Wagner, Gounod, Massenet, Mascagni, Cilea, Verdi, Lehár og fleiri. Eugene Kohn stjórnaði. Sunnudagur 13. mars. Söng- og kórtónleikar Jónas Sen Morgunblaðið/Árni Torfason Placido Domingo og Ana Maria Martinez voru hyllt vel og lengi í lok tónleikanna af þakklátum gestum sem fylltu Egilshöllina. TÆPLEGA árs tafir verða á fram- kvæmdum við stækkun áhorfenda- stúkunnar við Laugardalsvöll. Byrja framkvæmdir að líkindum í septem- ber sem þýðir að hægt verður að nota hana í apríl 2006 í stað júní 2005. Fjölga á stúkusætum úr 7 þúsund í 10 þúsund. Stefnt var að því að bjóða út upp- steypu á húsinu og stúkuvængjunum síðari hluta október 2004 og sömu- leiðis þakið í desember. Að sögn Eggerts Magnússonar formanns KSÍ tók undirbúningsvinn- an lengri tíma en áætlað var og því fara útboð ekki fram fyrr en í byrjun apríl. „Ég sé fyrir mér að við byrjum á þeim framkvæmdum sem við getum í sumar án þess að það trufli notkun mannvirkisins í sumar, bæði í Lands- bankadeildinni, landsleiki og aðra leiki sem þurfa að fara fram á Laug- ardalsvelli. Ég reikna því ekki með því að það verði hafist handa við stúk- urnar fyrr en í september, að loknum landsleikjum. Stúkurnar yrðu því ekki tilbúnar fyrr en í apríl á næsta ári. Til að vera raunhæfir þurfum við því að breyta upphaflegum áætlun- um.“ Fyrirtæki hafa áhuga á stúkusætum Til stendur að byggja þriggja hæða húsnæði við stúkuna að framanverðu sem að hluta til verður nýtt til mót- töku sérstakra gesta að erlendri fyr- irmynd. Eggert segir þó ekki um neina heldri manna sérstúku að ræða, heldur venjuleg sæti með aðstöðu til að bera fram veitingar. Með þessu fyrirkomulagi er ætlunin að fyrirtæki og aðrir geti boðið viðskiptavinum sínum á völlinn og haft móttöku fyrir hópinn í þessu húsnæði. KSÍ hefur verið í viðræðum við fyr- irtæki um kaup á miðum sem fela í sér þessa þjónustu þótt Eggert sé ekki tilbúinn á þessu stigi að upplýsa hver þau eru. „En það er ljóst að mörg fyrirtæki hafa áhuga á að gera þetta. Á síðustu árum hafa fyrirtæki nýtt sér þann möguleika að kaupa af okkur miða, en þurft að leigja sér sal úti í bæ fyrir uppákomur fyrir við- skiptavini eða starfsfólk.“ Byrjað á nýju stúkunni í september Tafir á stækkun stúku við Laugardalsvöll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.