Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR           !"#$% %&%'( %)  &%*(                          Eru þetta svo takkarnir sem ég á að ýta á, hr. útvarpsstjóri? Erlendir knatt-spyrnumenn hafaverið fyrirferðar- miklir í íslenskri knatt- spyrnu frá því fyrir 1990. Í upphafi komu þeir nær all- ir frá fyrrum Júgóslavíu en í seinni tíð hefur það færst í vöxt að erlendir leikmenn komi frá Skand- inavíu og Bretlandi. Margir þeirra erlendu leikmanna sem komu á fyrstu árunum hafa sest hér að og meðal annars tekið að sér þjálfun ís- lenskra liða eftir að þeir hættu sjálfir að spila. Það fylgir því töluverð- ur kostnaður að fá erlenda leikmenn til íslenskra liða og það er langt frá því að þeir hafi allir staðið undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar. Það eru ekki aðeins liðin í efstu deild sem hafa verið með erlenda leikmenn á sín- um snærum, því slíkir leikmenn hafa verið í liðum í öllum deildum en þó ekki í öllum liðum. Á sama tíma og erlendir leik- menn hafa komið til íslenskra liða hefur það einnig færst í vöxt að ís- lenskir leikmenn hafa haldið út í heim til að leika knattspyrnu og sumir þeirra hafa farið út mjög ungir og án þess að hafa nokkru sinni, eða lítið leikið með sínum fé- lögum í meistaraflokki. Margir leika erlendis Halldór B. Jónsson, varafor- maður Knattspyrnusambands Ís- lands, sagði að það væri ein skýr- ingin á fjölgun erlendra leik- manna að margir Íslendingar lékju erlendis. „Það er mikill fjöldi félaga í deildakeppninni á Íslandi og því þarf talsvert af leikmönn- um. Einnig heyrir maður oft þá skýringu varðandi útlendinga í efstu deild að það sé ódýrara en að reyna að ná í mjög góðan íslensk- an leikmann. Þar eru menn þó að miða við örfáa Íslendinga sem eru á góðum kjörum. Oft er líka verið að semja við erlenda leikmenn yfir grastímabilið, þ.e. frá vori til hausts. En það er mikill metnaður í íslenskri knattspyrnu og menn ætla sér stóra hluti. Þegar forsvarsmenn og þjálfar- ar eru að fara yfir leikmannahóp- inn og telja að styrkja þurfi liðið í einhverjum stöðum, kemur sú spurning upp hvort hægt að fá innlenda leikmenn eða hvort menn þurfi að leita til útlanda. Þetta leitar allt í eitthvert jafn- vægi að lokum, félagslegt, mann- legt og fjárhagslegt.“ Varðandi leikmenn í neðri deildum sagði Halldór að þar gætu verið menn sem hefðu sest hér að af öðrum ástæðum. „Ég sá leik Víkings í Ólafsvík og KS í 2. deildinni í fyrra en þetta eru liðin sem fóru upp um deild sl. haust. Í báðum liðum voru útlendingar og leikmenn af erlendum uppruna. Sumir þeirra höfðu verið í efri deildum áður og það er alveg ljóst að þeir bættu þessi tvö lið.“ Gunnar Sigurðsson, knatt- spyrnufrömuður á Akranesi, sagði að alltof margir lélegir er- lendir leikmenn hefðu komið til ís- lenskra liða í gegnum tíðina. „Þeir hafa svo fengið að spila á kostnað strákanna heima, bara af því að það var búið að borga þeim fyrir það. Við höfum verið með marga þannig leikmenn á Skaganum en þetta þurfa að vera leikmenn sem eru mun betri en þeir íslensku, þannig að réttlætanlegt sé að fá þá. Það hafa þó komið hingað menn sem hafa staðið sig vel.“ Gunnar sagði að ástæðan fyrir því að erlendu leikmennirnir kæmu nú í seinni tíð frekar frá Norðurlöndunum eða Bretlandi en Austur-Evrópu, væri verðið, auk þess sem menn ættu auðveld- ara með að fá upplýsingar um leikmenn í löndunum nær okkur. „Það er búið að plata mann oft.“ Varðandi útrás íslenskra leik- manna til liða erlendis sagði Gunnar að ekki væri nóg með að bestu leikmennirnir færu utan heldur líka þeir næstbestu. „Það er þróun sem erfitt er að ráða við og ég sé enga breytingu verða á þessu í náinni framtíð.“ Hafa staðið sig vel Ólafur Jóhannesson, þjálfari Ís- landsmeistara FH, hefur verið með erlenda leikmenn undir sinni stjórn. Hann sagði að dönsku leik- mennirnir sem leikið hefðu með FH síðustu ár hefðu reynst mjög vel og í sumar yrðu þrír danskir leikmenn í herbúðum félagsins. „Þeir koma úr svipuðu umhverfi og hafa því fallið mjög vel að öllu og aðlagast vel. Það hafa líka kom- ið hingað Skotar og Bretar og þeir hafa einnig reynst mjög vel. Þeir sem eru frá Balkanskaganum koma úr annars konar menningu og margir þeirra hafa átt erfitt með að fóta sig en þeir eru líka margir sem hafa staðið sig vel.“ Ólafur segir að erlendir leik- menn kosti ekki meira en góðir ís- lenskir knattspyrnumenn og jafn- vel minna. „Það er nú líka þess vegna sem við höfum verið að fá þessa erlendu leikmenn.“ Ólafur sagði að þróunin væri m.a. til komin vegna þess að æ fleiri yngri leikmenn færu utan. „Það fara líka út miðlungsleikmenn og því eru úrvalsdeildarliðin að sækjast eftir útlendingum.“ Fréttaskýring | Erlendir leikmenn fyrirferðarmiklir í íslenskri knattspyrnu Útlendingar í öllum deildum Erlendir leikmenn kosta minna en þeir bestu íslensku í einstaka tilvikum Útlendingar eru í mörgum liðum. Of margir erlendir leik- menn sem koma lélegir  Það hafa verið fluttir alltof margir lélegir erlendir leikmenn til landsins í gegnum tíðina, að mati Gunnars Sigurðssonar, knattspyrnufrömuðar á Akra- nesi. Hann taldi að kaup á leik- mönnum væru að sliga sum fé- lög. Það ætti þó ekki bara við varðandi erlenda leikmenn því menn væru farnir að borga allt að 5 milljónir króna á ári fyrir ís- lenska leikmenn. „Þá er ekki orðinn mikill munur á íslenskum og erlendum leikmönnum.“ krkr@mbl.isÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.