Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 33 UPPTÖKUR á Netinu hjálpuðu fyrstu kínversku hipp hopp-sveitinni að ná athygli umheimsins. Sveitin heitir Hi-Bomb og í henni eru Lionel „Litla ljón“ og Shang Hao en þeir rappa á ensku, mandarínsku og sjanghæmállýsku. Tvíeykið átti fyrsta smellinn sinn, „Number One“, seint á síðasta ári. „Ég var bara að frístæla á kínversku,“ sagði Lionel í samtali við BBC. „Ég setti það á Netið og fullt af fólki fór að hlaða lag- inu niður og þá hafði EMI samband.“ Lionel fæddist í Kína en flutti síðar til Bandaríkjanna þar sem hann kynntist hipp hoppi og fékk áhuga á tónlistinni og lífsstílnum. Þegar hann sneri aftur til Sjanghæ, heimaborgar sinnar, fékk hann Shang til liðs við sig en hann hafði þegar vakið athygli í klúbbum borgarinnar. Þeir tóku síðan höndum saman með taívanska upptökustjóranum J Wu áður en skrifað var undir samning við EMI. Lionel telur að hipp hopp nái þó ekki almennt eyrum ungs fólks í Kína fyrr en eftir fjögur til fimm ár. „Það eru ekki margir sem vita hvað hipp hopp er. Það er neðanjarðar- tónlist,“ sagði hann en rapp Hi-Bomb er sagt vera fyndið og ögrandi. Sveit- in gerir grín að samfélaginu og for- eldrum, sem halda að hipp hopp sé hættulegt. Tónlist | Fyrsta hipp hopp-sveitin frá Kína Netið hjálpaði Kínversku hipp hoppararnir Shang og Lionel „Litla ljón“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.