Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 7 FRÉTTIR                                     ! " # ! $ %% & ! '''( ( & )*      +   + ,   ,      (     -    ,           .        /         .                .  ,   /&       012 345 ( ,67   $  /   ( 08926:3)2 / &(  ,0;24 <=>>769 / 88?@AAB=6 C41DB82*0   &  &  $ EF F F F E F GF   ,( G/,   /   "    . /    ,',  H            . / &  ,,   +          JKI   -    -   .   - , +  + +  +   ((((     $    $    $ 'E    + J     $      SEXTÁN tæknimönnum ratsjár- stöðva Ratsjárstofnunar á Stokks- nesi og Gunnólfsvíkurfjalli hefur ver- ið sagt upp frá og með 1. apríl nk. Átta starfsmenn hafa verið á hvorri stöð um sig og hafa þeir unnið að upplýsingaöflun um flugumferð, sem nýttar eru af Flugmálastjórn, bandaríska varnarliðinu og NATO. Til stendur að auka sjálfvirkni í rat- sjárstöðvunum og fjarstýra þeim frá Miðnesheiði. Verða þannig sólar- hringsvaktir óþarfar en starfsemi mun þó ekki eiga að leggjast af í stöðvunum að öllu leyti. Ekki er enn ljóst hvernig sú starfsemi verður mönnuð. Erfitt fyrir bæjarfélagið Rúmlega 130 manns búa á Bakka- firði, en stöðinni á Gunnólfsvíkurfjalli hefur verið sinnt þaðan. Áki Her- mann Guðmundsson, oddviti, sagði í samtali við Morgunblaðið, að þessar uppsagnir væru vissulega erfiðar fyr- ir bæjarfélagið. Að vísu byggju ekki allir þeir sem sagt hefði verið upp í bænum, en þeir vonuðu að þeir sem byggju þar myndu fá vinnu áfram, enda byggju það fáir í bæjarfélaginu að það yrði mjög erfitt ef stofnuninni yrði lokað alfarið. Það stæði hins veg- ar ekki til, en það lægi fyrir að það yrði verulegur samdráttur í starf- seminni á Gunnólfsvíkurfjalli. Breytingum af þessu tagi fylgdi alltaf ákveðið óöryggi, einkum þegar ekki lægi alveg fyrir með hvaða hætti framhaldið yrði. Tæknimönnum rat- sjárstöðva sagt upp TOGARINN Brettingur kom með nótaskipið Oddeyri í togi inn til Fá- skrúðsfjarðar í fyrrinótt en Brett- ingur tók Oddeyrina í tog eftir að hún varð vélarvana og var á reki sunnan við Papey á laugardaginn. Dæla þurfti sjó upp úr astiklest Oddeyrarinnar með dælum í landi en samkvæmt upplýsingum Ægis Kristinssonar hafnarvarðar komst sjór í lest skipsins. Ægir segir að allar vélar skipsins hafi verið óstarfhæfar er það kom að landi en fljótlega tókst að koma ljósavél um borð í gang. Viðgerð var lokið í gærdag og heldur skipið síðan til Seyðisfjarðar. Morgunblaðið/Albert Kemp Oddeyrin komin að bryggju í höfninni á Fáskrúðsfirði. Oddeyrin dregin vél- arvana til hafnar EINN vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins, Laugardagskvöld með Gísla Marteini, sem verið hefur á dagskrá Rík- issjónvarpsins frá því í október 2002, hættir göngu sinni áður en langt um líður. Að sögn um- sjónarmanns þáttarins, Gísla Marteins Bald- urssonar, munu að öllum líkindum ekki verða framleiddir fleiri en tíu þættir í viðbót. „Þátturinn um kom- andi helgi verður númer hundrað og ég tel ekki miklar líkur á því að þætt- irnir verði fleiri en hundrað og tíu talsins,“ segir Gísli Marteinn og telur að það sé kærkomið, bæði fyrir sig og áhorfendur, að láta staðar numið. „Þetta hefur gengið vel og þátturinn ávallt fengið mikið áhorf en á milli 50 og 60 prósent landsmanna horfa á þáttinn á hverju kvöldi. Það verður þó að hafa hugfast að þáttur sem þessi hefur sinn líftíma á landi sem okkar og fólk hefur eflaust ekki áhuga á því að sjá sömu viðmælend- urna aftur og aftur.“ Framtíðin er óráðin Gísli segir að framtíð sín hjá Sjón- varpinu sé óráðin en ekki sé loku fyr- ir það skotið að hann muni taka að sér einhver verkefni verði þess ósk- að. „Ég mun fara utan og lýsa Evr- óvisjónkeppninni í maí en veit ekki hvað tekur við eftir það. Þá hef ég ákveðið að einbeita mér að því að koma borginni undan mislögðum höndum R-listans og það verkefni fer eflaust ekki vel saman við það að vera stjórnandi vinsæls dægur- málaþáttar í sjónvarpi.“ Laugar- dagskvöld hættir göngu sinni Gísli Marteinn Baldursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.