Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 37  Mbl.  DV HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS LIFE AQUATIC SÝND KL. 4-5.30-8-10.20. LIFE AQUATIC VIP SÝND KL. 5.30-8-10.20. CONSTANTINE SÝND KL. 5.30-8-10.20. B.I. 16 ÁRA PHANTOM OF THE OPERA SÝND KL. 6-8-10. B.I. 10 ÁRA WHITE NOISE SÝND KL. 5.30-8-10.20. B.I. 16 ÁRA BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL SÝND KL. 3.45-6.15. LEMONY SNICKETS SÝND KL. 3.45. CONSTANTINE SÝND KL. 8-10.30. B.I. 16 ÁRA BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL SÝND KL. 6. ísl tal COACH CARTER SÝND KL. 5.30-8-10.30. MILLION DOLLAR BABY. SÝND KL. 5.30-8-10.30 CONSTANTINE SÝND KL. 10.10. B.I. 16 ÁRA HITCH SÝND KL. 8-10.20. CLOSER SÝND KL. 8 CONSTANTINE SÝND KL. 8-10.20. B.I. 16 ÁRA RAY SÝND KL. 8-10.30 ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK Sló í gegn í USA t mynd. Töff tónlist E með Twista, BALLA Da Hood & Mack 10). ð á sannri sögu. Með m eina sanna töffara, amuel L. Jackson y . ff t li t i t , ). ri . i t ff r , l . Cesar-verðlaunin eru virt-ustu kvikmyndaverð-laun fyrir franskar bíó-myndir. Nú hafa þau nýlega verið veitt, í þrítugasta skipti. Bíómyndin sem var sigurvegari hátíðarinnar; besta mynd, besta leikstjórn, besta handrit, fékk góða dóma í Frakklandi en litla aðsókn. Hún fjallar um unglinga í innflytjendahverfi á jaðri Parísar, sem setja á svið leikrit eftir átjándu aldar skáldið Marivaux í skólanum sínum. Myndin er ódýr (um áttatíu miljónir íslenskra króna), tekin á digital vídeóvél, framleidd af óháðum framleið- anda, eins og aðrar helstu myndir sem komust þarna á blað. Hún heitir L’esquive (Sá sem víkur sér undan) og leikstjórinn Abdellatif Kechiche. Það er stórkostlegt að sjá heilan klasa af barnungu fólki vinna leikafrek eins og hér. Þau halda athyglinni hvert augnablik, jafnvel fyrir þá sem skilja ekki mikið af hröðu talinu allan tímann, á frönsku sem ber arabískan keim. En myndin situr í minninu, andlit leikendanna og óborganlegar að- stæður, til dæmis ein, mjög vel byggð upp, þegar allt unglinga- gengið er komið í að knýja fram svar hjá söguhetjunni um það hvort hún hugsi sér að segja já eða nei við strákinn sem er skot- inn í henni og bíður eftir svari. Hópumræðurnar enda reyndar með afskiptum lögreglunnar og er meðferð hennar á unglingunum sterkt atriði og sérstaklega óþægi- legt. Atriðin í myndinni eru yf-irleitt löng, varla nokk-urn tímann þögn, end-urtekningar margar og taktfastar, leikmyndin er aðeins blokkarumhverfið og skólinn, gæti verið hvar í heiminum sem er. Breiðholti þess vegna. Þetta má kannski kalla nokkurs konar mínímalisma og ber líka keim af heimildarmynd. En leikstjórinn treystir sínu efni og leikurunum algjörlega og hann gerði rétt í því. Les Choristes (Kórdrengirnir) er sú mynd frönsk sem hefur sleg- ið alveg í gegn upp á síðkastið. Meira en átta miljónir áhorfenda hafa séð hana. Hún fékk Cesar- verðlaun fyrir bestu frumsamda tónlist en varð af aðalverðlaunum. Kórdrengirnir eru dásamlega upplífgandi mynd, gott ef ekki mannbætandi og aðgengileg öll- um. Ég vona að hún verði sýnd hið fyrsta á Íslandi, ef það er ekki þegar búið að því. Hún er líka komin á mynddiski og á erindi inn á hvert heimili. Nýr umsjónarmaður, at-vinnulaus tónlistar-kennari, hefur störf áheimavistarskóla fyrir vandræðastráka, sem stjórnað er af illum skólastjóra. Þessi rólegi og mildi umsjónarmaður, sem er uppalandi af guðs náð, gerir kór úr strákunum og semur sjálfur fyrir þá. Hann hefur djúp og var- anleg áhrif á líf þeirra og framtíð til hins betra. Hér er valið í hlutverkin af al- gjörri snilld. Varla er hægt að ímynda sér að maður muni nokk- urn tímann gleyma kórdrengj- unum, síst af öllu tveimur sem hittast fyrir tilviljun á gamals aldri og rifja upp, annar þeirra frægur hljómsveitarstjóri. Myndirnar fjalla hvor með sínu móti um áhrifin sem list getur haft á lífið, og um kennara sem auðga og bæta líf barna og unglinga og geta skipt sköpum um framtíð þeirra. Og áhorfandinn er minntur á það gleðiefni að svona fólk er til í alvörunni. B í ó k v ö l d m e ð v e r ð l a u n a m y n d u m Sá sem víkur sér undan Atriði úr Cesar-verðlaunamyndinni L’esquive. Eftir Steinunni Sigurðardóttur BJÖRK Guðmundsdóttir vinnur nú að því að semja tónlist fyrir nýja kvikmynd unnusta síns, Matthew Barney, Drawing Restraint 9, sem á að frumsýna í Japan í júní. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við söngkonuna í The Observer um helgina. Þetta er að sögn Observer í fyrsta sinn sem þau Björk og Barney vinna saman. Í viðtalinu segir Björk það frels- andi að vinna að verkefni sem snýst ekki um hana sjálfa eingöngu. Hún segist elska að vera persónulegt söngvaskáld en henni finnist líka gaman að vera vísindamaður eða landkönnuður. Morgunblaðið/Einar Falur Björk snýr aftur að kvik- myndatónlist ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem dansarar fylla Laugardalshöll af áhugasömum gestum, en það tókst Pilobolus á laugardaginn. Sýningin var líka stórkostleg, að sögn þeirra sem á horfðu, bæði fyrir augu og eyru. Þeir voru heldur ekki ama- legir loftfimleikarnir sem liðsmenn Pilobolus tóku fyrir gesti hallar- innar. Morgunblaðið/Árni Torfason Tilþrif hjá Pilobolus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.