Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 29 DAGBÓK Atvinnuauglýsingar Baadermaður óskast á frystitogarann Þór frá Hafnarfirði. Upplýsingar í símum 555 2605 og 892 2222. Raðauglýsingar 569 1111 Kennsla Study Medicine and Dentistry in Hungary 2005 Admission now available into five and six year Enghlish Language General Medicine, Dentistry and pharmacy Programs at the University of Debrecen, Medical school for secondary school, high school and college students. P.S. Hungary joined EU in May 2004. For further details contact Dr. Omer Hamad, 4003 Debrecen, P.O. Box 4, Hungary. Sími: +36 209 430 492, fax: +36 52 439 579. Netfang: omer@hu.inter.net Heimasíða: http://www.tinasmedical.com Félagslíf  MÍMIR 6005031419 III  HEKLA 6005031419 VI  Hamar 6005031419 I Raðauglýsingar sími 569 1100  GIMLI 6005031419 I I.O.O.F. 10  18503148  Fl.Þakkir HÖRÐUR Ágústsson, myndlistar- maður og endurreisnarmaður ís- lenskra sjómennta. Þakka og til hamingju með góða, fagra og sanna sýningu að Kjarvalsstöðum 15. febr- úar sl. Gunnar Sigurður Magnússon. Hægvirkt dómskerfi í Japan UNDANFARNAR vikur hefur mik- ið verið rætt og skrifað um mál Bobby Fischers. Sem kunnugt er situr hann í fangelsi í Japan og mjög óvíst um framvindu mála hans vegna hægfara dómsmála þar. Fyrir mörgum árum var ég stadd- ur á skipi í Osaka í Japan. Lá skipið við svokallada delphins í höfninni þar sem bryggjupláss var ekki fyrir hendi. Djúpur ágreiningur hafði myndast milli 1. og 2. matsveins skipsins. 2. matsveinn, sem var fil- ippseyskur, hafði kært sinn yfir- mann til tollgæslunnar fyrir vörslu fíkniefna. Árla dags komu tveir hraðbátar á mikilli ferð og lögðust að skipshlið og um borð ruddist flokkur tollþjóna grár fyrir járnum. Eftir að þeim hafði verið vísað á eld- hús skipsins, þar sem yfirmatsveinn stóð við sín störf, fóru þeir til íbúðar hans og gerðu umfangsmikla leit. Að henni lokinni höfðu þeir fundið 2,5 grömm af hassi, sem falið var í eldspýtustokki í skrifborði hans. Matsveinninn var handjárnaður á stundinni og færður til fangelsis í bænum. Er við yfirgáfum Japan 13 dögum síðar, eftir lestun á fleiri stöðum, var ekkert farið að gera í hans málum og þá hófst þriggja mánaða orlofsfrí dómara. Ekki spurðist ég fyrir um endalok þessa máls enda kominn til Evrópu og farinn í sumarfrí. Virðingarfyllst, Svanur Jóhannsson. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Gabriel Chagas. Norður ♠6 ♥KG7 ♦42 ♣Á1087542 Vestur Austur ♠Á1074 ♠D952 ♥Á64 ♥32 ♦D108 ♦G9653 ♣K93 ♣D6 Suður ♠KG83 ♥D10985 ♦ÁK7 ♣G Suður spilar fjögur hjörtu og fær eitr- að útspil – smátt tromp frá ásnum þriðja. Er einhver vinningsvon? Spilið er frá ÓL 1980. Í suðursætinu var Brasilíumaðurinn Gabriel Chagas. Hann sá strax að hann ynni spilið aldrei hjálparlaust, svo hann ákvað að biðja um aðstoð. Það gerði hann með því að spila laufgosa í öðrum slag og hleypa honum yfir á drottningu austurs! Austur sá lauflitinn sem mikla ógn og ákvað að veikja trompin í blindum með því að spila spaðadrottningu. Vörnin er enn á góðu lífi, en Chagas átti annan snilldarleik uppi í erminni – hann dúkk- aði spaðadrottninguna! Austur hélt að hann hefði hitt á veikleikann og spilaði áfram spaða, en nú lét Chagas kónginn og trompaði ás vesturs. Hann stakk svo tígul og henti spaða niður í laufás, sem gaf honum tíu slagi í allt. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 c5 2. Rc3 d6 3. f4 g6 4. Bc4 Bg7 5. Rf3 Rc6 6. O-O Rf6 7. d3 O-O 8. De1 e6 9. e5 Re8 10. Bb5 Dc7 11. Bxc6 Dxc6 12. Dh4 d5 13. Rg5 h6 14. Rf3 f5 15. exf6 Rxf6 16. Re5 De8 17. Dg3 Kh7 18. a4 Bd7 19. b3 d4 20. Rxd7 Dxd7 21. Re4 Rxe4 22. dxe4 d3 23. e5 Staðan kom upp á Norðurlanda- mótinu í skólaskák sem lauk fyrir skömmu. Björn Ívar Karlsson (2224) hafði svart gegn Bryn Askild (2009). 23... Bxe5! 24. fxe5 Hxf1+ 25. Kxf1 Hf8+ 26. Ke1 Dd4 27. De3 hvítur hefði einnig lotið í lægra haldi hefði hann reynt að halda í hrókinn eftir 27. Ha2 þar sem kóngur hans hefði farið á ver- gang í framhaldi af 27...Dg1+ 28. Kd2 Hf2+. 27... d2+ 28. Bxd2 Dxa1+ 29. Bc1 g5 30. h4 Hf5 31. c3 Db1 32. g4 Hf4 33. Kd2 Da2+ 34. Ke1 Dc2 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Bókabíllinn kl. 13.30, félagsvist kl. 14 vinnustofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10 allir velkomnir. Hár- og fótsnyrtistofan opin alla daga til kl. 16. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl. 9–16.30, söngstund kl. 10.30, smíði/ útskurður kl. 13–16.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, bútasaumur, samverustund, fótaaðgerð. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 10–13.45 leikfimi, kl. 11.15– 12.15 matur, kl. 13–16 brids, kl. 13–16 samverustund með Guðnýju, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl 10 til 11.30. Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Gullsmára 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30, línudanskennsla byrjendur kl. 18, sam- kvæmisdans framhald kl. 19 og byrj- endur kl. 20. Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK Gullsmára 13 spilar mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á hádegi. Eldri borgarar vel- komnir. Þátttökugjald kr. 200. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.10. Vatnsleikfimi fellur niður á morgun 15. mars. Kvennaleikfimi kl. 9.15 kl. 10 og kl. 11, bókband kl. 10 og postulín kl. 13, pílu- kast og spilað í Garðabergi kl. 12.30, tölvur í Garðaskóla kl.17. Félagsvist í Garðabergi fimmtudaginn 17. mars kl. 13, ekki 18. mars eins og auglýst er í dagatalinu. Félagsstarf Gerðubergs | Frá kl. 9–12 er veitt framtalsaðstoð frá Skattstof- unni í Reykjavík, kl. 9–16.30 vinnustof- ur opnar, kl. 10.30 sund og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14.30 kóræfing, veitingar í Kaffi Berg. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun, keramik, perlusaumur, kortagerð og nýtt t.d. dúkasaumur, dúkamálun, saumað í plast, kl. 10 fótaaðgerð og bænastund, kl. 12 hádegismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa, glermálun o.fl. kl. 9–15 hjá Sigrúnu, jóga kl. 9–11, frjáls spilamennska kl. 13– 16. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll- um opið. Betri stofa og Listasmiðja 9– 16: Handverk og framsögn/leiktúlkun, félagsvist kl. 13.30. Vetrarferð Gullfoss og Geysir fimmtudag kl. 9.30. Páska- gleði 21. 22. og 23. mars. Aðstaða fyr- ir frjálsa hópa/námskeið virka daga. Upplýsingar í s. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi á morgun kl. 9.30 í Grafarvogslaug. Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10 ganga, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 13–16.30 opin vinnustofa. SÁÁ félagsstarf | Tveggja kvölda dansnámskeið verður 14. og 15. mars í sal I.O.G.T., Stangarhyl 4. Námskeiðið hefst kl. 20. Byrjendanámskeið og SALSA. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð- borgarsvæðinu | Brids í kvöld kl. 19. Skátamiðstöðin | Endurfundir skáta eru annan mánudag í mánuði í Skáta- miðstöðinni, Hraunbæ 123. Samvera í dag kl. 12. Súpa og brauð. Arnbjörn Kristinsson spjallar um skátaflokkinn Útlaga. Skátasöngvar í lokin. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 kóræfing, kl 14.30–15.45 kaffiveitingar. Þórðarsveigur 3 | Félagsvist kl. 13.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | TTT–starf (5.–7. bekkur) kl. 15–16. Bústaðakirkja | Fundur verður hjá Kvenfélagi Bústaðasóknar í safn- aðarheimilinu kl. 20. Gestur fundarins verður Lovísa Einarsdóttir. Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf 6–7. bekkur. Alla mánudaga kl. 16.30–17.30. Fella- og Hólakirkja | Æskulýðsstarf f. 8.–10. bekk, alla mánudaga kl. 20–22. Grafarvogskirkja | Helgistund með Passíusálmalestri alla virka daga kl.18 í Grafarvogskirkju, í dag les Einar K. Guðfinnsson alþingismaður. Grensáskirkja | Fundur kvenfélags Grensáskirkju verður haldinn kl. 20. Spilað verður páskaeggjabingó. Allar konur velkomnar. Laugarneskirkja | Kl. 18 Opinn 12 sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir í bata. Sjá www.laugarneskirkja.is. Morgunblaðið/Ómar Árangursstjórnun og frammistöðumat eruviðfangsefni ráðstefnu sem fram fer áHótel Loftleiðum í dag milli kl. 13 og16.30 á vegum Stjórnvísi og faghópa um þekkingarstjórnun og stefnumiðað árangursmat. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Bernard Marr dósent við Cranfield School of Management og gestaprófessor við University of Bacilicata á Ítal- íu. Mun erindi hans fjalla um árangursstjórnun og frammistöðumat. Bernard er leiðandi hugsuður á sviði stefnumiðaðrar virðisstjórnunar og einn af virtustu fræðimönnum heims um frammistöðumat og hugbúnað því tengdan. Hann hefur átt innlegg í yfir 100 bækur, skýrslur og greinar um tengd efni. Bernard hefur lagt áherslu á rannsóknir sem snúast um frammistöðumat fyrirtækja og stefnu- miðaða myndun virðis. Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni eru Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Tölvumiðlunar hf., Símon Þorleifsson, stjórnunarráðgjafi hjá IMG og Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Flug- leiðum. Hrefna Sigríður Briem, formaður faghóps um stefnumiðað árangursmat, segir mikinn feng í því að fá Bernard til landsins til að deila þekkingu sinni með hérlendum stjórnendum, en hugmyndir um stefnumiðað árangursmat hafi átt mikið upp á pallborðið undanfarið. „Stefnumiðað árangursmat er aðferðafræði sem hjálpar stjórnendum skipu- lagsheilda við að innleiða, miðla og fylgjast með framgangi stefnu með hjálp virkra árangursmæl- inga,“ segir Hrefna. „Verkfæri þess eru stefnu- og skorkort. Kjarni aðferðafræðinnar er að koma stefnu og framtíðarsýn skipulagsheildarinnar í virkni, þannig að starfsmenn skilji og skynji hvað er stefna og hvað er framtíðarsýn. Ef vel gengur að innleiða aðferðafræðina og festa hana í sessi myndast árangursdrifin fyrirtækjamenning þar sem framkvæmd og hönnun stefnunnar er í hönd- um allra starfsmanna og árangurinn er undir því kominn hvernig til tekst að framkvæma stefnuna og ná jafnvægi á stjórnun skipulagsheildarinnar.“ Er sífellt hægt að bæta stjórnun? „Það er alltaf hægt að gera betur og stjórn- endur þurfa sífellt að vera á tánum og afla sér þekkingar á þeim nýjungum sem eru í gangi hverju sinni. Félag eins og Stjórnvísi er vett- vangur fyrir stjórnendur og aðra áhugasama til þess að ræða nýjungar á sviði stjórnunar og miðla eigin reynslu, en félagið aflar og miðlar þekkingu um framsækna stjórnun og árangursríkar aðferð- ir innan hennar.“ Skráning á ráðstefnuna fer fram á www.stjorn- visi.is. Stjórnun | Ráðstefna Stjórnvísi um árangursstjórnun og frammistöðumat Alltaf hægt að gera betur  Hrefna Sigríður Briem er fædd í Reykja- vík 1969. Hún lauk BSc-prófi í við- skiptafræði við Háskóla Íslands árið 2001 og MSc. í stjórnun og stefnumótun frá sama skóla 2004. Hrefna veitir forstöðu fyrir- tækjasviði Sparisjóðs vélstjóra í Árbæ. Þá veitir hún formennsku faghópi um stefnu- miðað árangursmat (Balanced Scorecard) hjá Stjórnvísi sem eru frjáls félagasamtök sem hafa það að markmiði að stuðla að umbótum í stjórnun íslenskra fyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.