Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 15
800 7000 - siminn.is Stundum er betra að senda SMS! úr heimasíma Ekki þarf að greiða fyrir SMS sendingar úr heimasíma til 1. apríl 2005 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 15 ERLENT YFIRVÖLD á Spáni hafa kom- ið upp um alþjóðlegan glæpa- hring sem er m.a. talinn hafa stundað umfangsmikið pen- ingaþvætti í tengslum við fíkni- efnaviðskipti, vopnasölu, vændi og morð, að sögn spænskra embættismanna um helgina. Þeir sögðu að grunur léki á að hluti fjármunanna hefði komið frá rússneska olíufyrirtækinu Yukos en það neitaði því. „Þetta er bull,“ sagði tals- maður Yukos í Moskvu í gær. „Næst verðum við bendlaðir við peningaþvætti á Mars.“ Um 40 menn frá sex löndum voru handteknir á föstudag þegar löglegan lét til skarar skríða gegn hringnum í hafn- arbænum Marbella. Talið er að hringurinn hafi komið um 250 milljónum evra, sem samsvarar um 20 milljörðum króna, í um- ferð. Lögreglurannsókn vegna málsins hafði staðið yfir í tíu mánuði og komu alþjóðalög- reglan Interpol og lögregla víða í Evrópu að henni. Fólkið, sem var handtekið er af spænskum, frönskum, finnsk- um, rússneskum, úkraínskum og marokkóskum uppruna. Einn sakborninganna, yfir- maður lögmannastofu í Mar- bella, kom fyrir dómara í gær. Stórfellt peninga- þvætti af- hjúpað Madríd, Moskvu. AFP. 44 ÁRA maður, vopnaður skammbyssu, skaut sjö manns til bana og síðan sjálfan sig á hóteli í Wisconsin-ríki í Bandaríkj- unum á laugardag. Trúfélag, sem árás- armaðurinn tilheyrði, var með guðsþjón- ustu á hótelinu þegar hann hóf skothríðina. Á meðal þeirra sem létu lífið voru tvær stúlkur á táningsaldri og 72 ára karlmaður. Fjórir aðrir í trúfélaginu særðust alvar- lega. Árásin var gerð í Brookfield, úthverfi borgarinnar Milwaukee. Árásarmaðurinn er sagður hafa verið mjög kirkjurækinn og áhugasamur um garðyrkju. Þrír myrtir í dómhúsi Lögreglan í Georgíuríki handtók um helgina 33 ára mann sem myrti dómara og tvo aðra í dómhúsi í Atlanta þegar hann var færður fyrir rétt, sakaður um nauðgun og mannrán. Hann komst undan og talið er að hann hafi myrt lögreglumann á flótt- anum. Eftir umfangsmikla leit að mann- inum í sólarhring gafst hann upp í húsi konu sem hann hafði haldið í gíslingu í nokkrar klukkustundir. Skaut sjö til bana við messu Brookfield. AP. Reuters Kona faðmar barn sitt við krossa sem settir voru upp við Sheraton-hótelið í Brookfield í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum í gær til minningar um þá sem létu lífið í skotárás í hótelinu á laugardaginn var. PALESTÍNSKAR konur hrópa á ísraelska hermenn á mótmæla- fundi gegn aðskilnaðarmúr ná- lægt þorpinu Bilin á Vesturbakk- anum. Skýrt var frá því í gær að Ísraelsher hygðist setja upp nýja girðingu umhverfis Jerúsalem. Hún á að rísa fyrir lok júlí og standa á meðan fyrirsjáanleg málaferli vegna hennar fara fram. Málaferli hafa þegar staðið mánuðum saman og tafið áætlanir Ísraela um að reisa aðskilnaðar- múr og girðingar á þessum slóð- um. Fyrirhuguð girðing mun hindra aðgang Palestínumanna á Vesturbakkanum að austurhluta Jerúsalem sem er hefðbundin miðstöð verslunar þeirra og þjón- ustu.Reuters Aðskilnaðarmúr Ísraela mótmælt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.