Morgunblaðið - 09.04.2005, Side 24
24 LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Stykkishólmur | Bæjarráð Stykk-
ishólms fagnaði á fundi í fyrradag
ákvörðun sjávarútvegsráðherra
um að flytja hluta af starfsemi
veiðieftirlits Fiskistofu í Stykkis-
hólm. Samkvæmt ákvörðun ráð-
herra verður útibú frá Fiskistofu
opnað í Stykkishólmi árið 2007,
með þremur eftirlitsmönnum auk
yfirmanns og árið 2008 verða þrír
eftirlitsmenn til viðbótar ráðnir,
þar af 1-2 á Vestfjörðum. Sam-
kvæmt breytingum sem ráðherra
hefur kynnt á veiðieftirliti Fiski-
stofu verða fjögur ný útibú Fiski-
stofu, í Eyjum á Höfn, í Stykkis-
hólmi og Grindavík. Bætt verður
við 4 nýjum stöðum í veiðieftirliti
en þeir sem við það starfa eru nú 35
og búa á höfuðborgarsvæðinu.
er því hjónasvipur með þeim en hve-
nær varð Hippabandið til?
„Það byrjaði árið 2000 og árið eftir
var fyrsta Hippahátíðin,“ svarar
Helga og strax sést hvað þetta er
henni mikið hjartans mál. „Við höfum
frá byrjun verið átta þótt alltaf hafi
verið einhver mannaskipti í hljóm-
sveitinni,“ segir Arnór og heldur
áfram. „Við hittumst einu sinni í viku
næstum allt árið og æfingaaðstaðan
er í bakhúsinu okkar.“
Helga segir að þau Arnór séu einu
alvöru hipparnir því hin í hljómsveit-
inni hafi ýmist verið barnung eða
ófædd á blómaárum blómabarna og
hippanna. „Við erum þau einu sem
upplifðum þetta og tileinkuðum okk-
ur hippamenninguna. Forveri Hippa-
bandsins var hljómsveit sem við vor-
um ekki í en þegar okkur var boðið á
æfingu höfðum við nokkur lög með
okkur. Þau hin urðu strax mjög hrifin
og þar með varð ekki aftur snúið,“
sagði Helga.
Og hún heldur áfram. „Um leið
opnuðust augu þeirra fyrir allri þeirri
listsköpun sem tengist tímabilinu.“
Á Hippahátíð klæðast allir hippa-
fötum sem í fljótu bragði er ekki svo
sjálfsagt en þau segjast hafa reynt
það áður að fólk er til í slaginn. „Það
var árgangsmót hjá Helgu sem er í
rauninni byrjunin, þá sáum við að
þetta er hægt. Við fengum Einar
Hallgrímsson, margreyndan söngv-
ara og gítarspilara í lið með okkur.
Það var öllum sagt að mæta í hippa-
fötum sem fólk gerði og við spiluðum
þessi lög sem svo sannarlega slógu í
gegn,“ sagði Arnór.
„Þetta var alveg yndislegt því það
skapast ákveðin stemmning sem
minnir á gömlu góðu dagana, fólk
Vestmannaeyjar | Það sést hvergi
betur en í minni samfélögum hvað
fjölbreytni mannskepnunnar er mik-
ilvæg og hvað það skiptir miklu máli
að þeir sem eru utan við meg-
instraum mannlífsins fái að vera til.
Og það ekki síst þegar þetta fólk hef-
ur eitthvað fram að færa og hefur
viljann og kraftinn til að miðla því til
okkar hinna sem líkar best að njóta.
Dæmi um þetta er Hippabandið í
Vestmannaeyjum sem helgina 22. til
23. apríl blæs til fjórðu Hippahátíð-
arinnar sem stöðugt dregur til sín
fleira fólk um leið og umfangið eykst.
Hippabandið skipa átta hljóðfæra-
leikarar og söngvarar, fólk á mismun-
andi aldri sem á það sameiginlegt að
hrífast af tónlistinni sem varð til á ár-
unum í kringum 1970 og kennd er við
blómabörn 68 kynslóðarinnar.
Þau hittast einu sinni í viku til að
sinna þessu áhugamáli sínu og einu
sinni á ári fær almenningur tækifæri
til að sjá og heyra afraksturinn. Og
hann hlýðir kallinu, með blóm í hári,
íklætt víðum skræpóttum mussum og
útvíðum gallabuxum, með fyr-
irferðamiklar hárkollur, friðarmerki
um háls eða í barmi, vísifingur og
löngutöng í vaff mætir fólk á öllum
aldri og er hippar eina kvöldstund.
Andi friðar og kærleika svífur yfir
vötnunum, allir skemmta sér frábær-
lega.
Dylan og Donovan
Hipparnir í bandinu eru hjónin
Helga Jónsdóttir og Arnór Her-
mannsson bakarameistari sem reka
saman bakarí kennt við eiginmann-
inn. Þau bera það svo lítið utan á sér
að vera hippar á þó mjög borg-
aralegan hátt, hann þó meira með
mikið hár og skegg og kringlótt vís-
dómsgleraugu í anda hippanna. Það
verður rólegra og í tónlistinni ægir
öllu saman. Það er oft talað háðslega
um hippa og hippatímabilið en frá
mínum bæjardyrum séð á hvoru
tveggja alla virðingu skilið. Tímabilið
í kringum 1970 var einstakur tími og
bylting varð á svo mörgum sviðum.
Ekki bara í tónlist heldur líka mynd-
list, bókmenntum og fatnaði. Allt í
einu kom það mér við að það var verið
að drepa ungan mann í Víetnam þótt
hann væri á móti stríðinu og skildi
ekki af hverju hann var þátttakandi í
því. Um þetta sungu Bob Dylan í
Blowing in the Wind og Donovan í
Universal Soldier. Allt í einu opnaðist
gluggi að heiminum sem þú komst
ekki hjá að skoða. Allt í einu voru til
lög með ádeilu og boðskap sem
breyttu heimssýn heillar kynslóðar,“
sagði Helga og leiftraði af henni á
meðan endurminningarnar streymdu
fram.
Fylltu Höllina í þrígang
Helga og Arnór segjast viðurkenna
að Hippabandið sé ekki alveg á þess-
um nótum. „En við viljum halda í for-
tíðarljómann og það er alveg ótrúlegt
að átta manns, fólk á öllum aldri,
skuli hittast einu sinni í viku til að
spila þessa tónlist. Það er heldur ekk-
ert kynslóðabil til, við komum bara
saman til að spila þessa frábæru tón-
list frá þessum tíma,“ sagði Arnór.
Saman hafa þau í þrígang fyllt
Höllina í Vestmannaeyjum af hippum
á öllum aldri og nú er blásið til fjórðu
hátíðarinnar og duga ekki minna en
tveir dagar, föstudagur og laug-
ardagur helgina 22. og 23. apríl. „Á
föstudeginum verður opnuð mynd-
listarsýning sem tengist þessu
tímabili og þar verða í boði ris-
aplaköt, gamalkunnug, sem ættu að
gleðja margan hippann. Á laug-
ardagskvöldið er það tónlistin sem
ræður ríkjum og saman skemmtum
við okkur í Höllinni þar sem hljóma
lögin eins Joy to the world, Dream a
little dream, Give peace a chance, Si-
lence is golden, Proud Mary, Have
you ever seen the rain, Blowing in the
wind, Aqarius, Happy together og
San Francisco,“ segir Arnór.
Hippabandið skipa Arnór Her-
mannsson rytmagítar og söngur,
Ágúst Ingvarsson ásláttur, Grímur
Þór Gíslason trommur, Helga Jóns-
dóttir söngur, Hrafnhildur Helga-
dóttir söngur og trompet, Jóhann
Ágúst Tórshamar bassi, Páll Viðar
hljómborð og Sæþór Vidó sólógítar
og söngur. Og lagalistinn telur 70 lög.
Hippahátíðin haldin í fjórða sinn í aprílmánuði
Hippar í Eyjum koma saman
Ljósmynd/Sigurgeir
Á æfingu Hrafnhildur, Helga og Arnór á æfingu í bakhúsinu.
Bæjarráð fagnar
ákvörðun ráðherra
Ný útibú Fiskistofu
LANDIÐ