Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 1

Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 109. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ekki alveg heilagur Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við gítarleikarann Slash | Menning Tímaritið og Atvinna Tímaritið | Hin káta angist Mugisons  Heilsan skiptir öllu máli í sumar  Er Lisa Marklund rosaleg frekja?  Þarf að skapa og fegra Atvinna | Atvinnuleysi á fyrsta ársfjórðungi 3% Launavísitala hækkar 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 að þessu sinni og lónuðu í ytri höfn- inni og fylgdust með skepnunni. Um hádegisbilið hafði hvalnum tek- ist að synda úr höfninni hjálp- arlaust. Lenda í sjálfheldu á grunnsævi Droplaug Ólafsdóttir, líffræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir ekkert óeðlilegt við að hvali reki á land. Þegar þeir syndi á grunnt komist þeir gjarnan í sjálf- heldu og villist og reki á land og drepist undan eigin þunga. Ómögu- legt sé að segja til um orsakir þessa. Að sögn Droplaugar hefur hnúfu- baksstofninn stækkað hér við land síðustu áratugi en hann hefur vet- ursetu hér að einhverju leyti. Hnúfubakur hefur verið friðaður í hafinu kringum Ísland síðan 1964. Hann er 11–19 metrar á lengd og 25–45 tonn að þyngd. Fyrir um áratug synti sand- reyður inn í Reykjavíkurhöfn, en þá tókst ekki að bjarga henni. HNÚFUBAKUR synti inn í Reykja- víkurhöfn í gærmorgun og vakti talsverða athygli viðstaddra eins og við var að búast. Að sögn Helga Magnússonar, hafnsögumanns hjá Reykjavíkurhöfn, sást fyrst til hans fyrir framan Kaffivagninn en hann hafi síðan synt um alla höfnina. Fjölmargir hafi fylgt hvalnum eftir við hafnarbakkann í gærmorgun. Hvalaskoðunarbátar í Reykjavík- urhöfn þurftu ekki að fara langt út á Faxaflóa með hvalaskoðunarfólk Morgunblaðið/Sverrir Hnúfubakur synti inn í Reykjavíkurhöfn Fjölmargir fylgdu hvalnum eftir KÍNVERJAR flytja nú inn um 40% af þeirri olíu sem þeir nota en ætla að draga úr innflutningsþörfinni með aukinni áherslu á kjarnorku og ýmsa endurnýjanlega orkugjafa. Kom þetta fram í máli Ma Kai, yfir- manns þróunar- og umbótanefnd- ar Kína, á alþjóð- legri ráðstefnu í Boao í Kína í gær. „Hagvöxtur er geysimikill í Kína núna en hann mun alls ekki valda miklu álagi á orkubirgðir í heiminum,“ sagði Ma. Hins vegar gæti erlend orka orðið gagnleg viðbót við þá sem framleidd væri í landinu sjálfu. Áhyggjur manna af orkuþörf Kín- verja í kjölfar hratt vaxandi iðnaðar- framleiðslu í landinu hafa vaxið mikið síðustu árin, segir í frétt AFP-frétta- stofunnar. Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn, IMF, spáir því að olíunotkun í heiminum muni aukast úr 82 millj- ónum fata á dag í fyrra í nær 140 milljónir fata um 2030. Um fjórðung- ur af þessari aukningu verður vegna hagvaxtar og mikils mannfjölda í Kína. Goldman Sachs-fjárfestingabank- inn bandaríski birti nýlega skýrslu þar sem spáð er að olíuverð, sem nú er um 50 dollarar fatið, verði um 105 dollarar þar sem ekkert bendi til þess að hagvöxturinn í Kína sé að minnka. Kínverjar stefna að því innflutt olía verði komin niður í 35% af orkuþörf- inni árið 2020. Jia Qinglin, sem situr í fastanefnd stjórnmálaráðs kommún- istaflokksins og er fjórði valdamesti maður Kína, benti á að innflutt orka væri aðeins brot af innanlandsnotk- uninni. Kínverjar myndu ekki minnka orkunotkunina en leggja sig fram um að nýta hana betur og auka innlenda orkuframleiðslu. Kol eru nú mikilvægasta orkulind Kínverja. „Við munum styðja við bakið á öðr- um orkugjöfum en kolum eins og kjarnorku, vindorku, sólarorku og öðrum endurnýjanlegum orkulind- um,“ sagði Jia. Hann hét því einnig að öryggi í kolanámum yrði bætt en mannskæð námuslys eru afar tíð í Kína. Kínverjar leggja áherslu á kjarnorku Gert er ráð fyrir að hlutur kjarnorku muni vaxa mjög í orkubúskap Kínverja. Jia Qinglin Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Róm. AFP. | Silvio Berlusconi, for- sætisráðherra Ítalíu, birti ráðherra- lista nýrrar samsteypustjórnar sinn- ar gær og var búist við að þeir myndu sverja embættiseið síð- degis. Virðist því sem lokið sé erf- iðustu stjórnar- kreppu sem Berlusconi hefur lent í síðan hann tók við stjórnar- taumunum 2001. Ráðherrahóp- urinn er að miklu leyti sá sami og var en Giulio Tremonti, fyrrverandi efnahags- málaráðherra og náinn samstarfs- maður Berlusconis, kemur aftur í stjórnina. Verður hann aðstoðarfor- sætisráðherra. Berlusconi sagði af sér á miðvikudag en fékk nýtt stjórn- armyndunarumboð hjá Carlo Azegl- io Ciampi forseta á föstudag. Berlusconi hefur setið lengur sam- fleytt en nokkur annar forsætisráð- herra á Ítalíu síðan í lok seinni heimsstyrjaldar. Næstu þingkosn- ingar eiga að verða ekki síðar en 2006 en flokkur Berlusconis, Forza Italia, stendur illa í könnunum. Er stjórnarandstöðu vinstrimanna spáð sigri ef kosið væri núna. Berlusconi myndar nýja stjórn Silvio Berlusconi DANSKA tryggingafélagið Alka hyggst innan skamms taka upp nýja þjónustu. Samþykki bíleigendur að settur sé svo- nefndur „svartur kassi“ í farar- tækið, er skráir stöðugt upplýs- ingar um ökuhraðann, geta þeir fengið 20–50% afslátt á iðgjöld- um, að sögn Jyllandsposten. Hafi menn lent í tjóni en kass- inn sýnir að ekið var of hratt minnka bæturnar. „Sem stend- ur borga 18–20 ára gamlir öku- menn sjö til níu sinnum hærri ið- gjöld fyrir bílatryggingu en fimmtugir ökumenn, ástæðan er að tjónaútgjöld vegna ungra ökumanna eru svo geysilega há. En það er minnihluti unga fólks- ins sem veldur tjónum. Með svarta kassanum er hægt að ákveða iðgjöld sem eru raun- hæfari, til gleði fyrir þá sem ekki valda tjóni,“ segir Jørgen Knudsen, deildarstjóri hjá Alka. Deildar meiningar eru um hugmyndina í Danmörku. Lene Espersen dómsmálaráðherra segist hafa efasemdir um rétt- mæti þess að auka eftirlit með hegðun fólks en hún vill ekki banna fyrirkomulagið sé það valfrjálst. Hraðafíkl- ar borgi meira

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.