Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 2

Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFLA KJARNORKUVER Kínverjar ætla að leggja áherslu á að auka orkuframleiðslu í kjarn- orkuverum en einnig ýta undir notk- un endurnýjanlegra orkugjafa eins og vinds og sólar. Kom þetta fram á ráðstefnu í Kína í gær. Talsmenn Kínastjórnar segja að ekki sé hætta á að geysihraður hagvöxtur í landinu verði of mikið álag á orkuframleiðslu í heiminum eins og margir óttast. Benda þeir einnig á að mikil orku- framleiðsla sé í Kína sjálfu. LHÍ forgangsverkefni Byggingarmál Listaháskóla Ís- lands eru, að sögn Þorgerðar Katr- ínar Gunnarsdóttur menntamála- ráðherra, nú forgangsverkefni stjórnvalda eftir að ákvörðun var tekin um Háskólatorg Háskóla Ís- lands. Að sögn Hjálmars H. Ragn- arssonar, rektors LHÍ, ríkir ófremd- arástand í húsnæðismálum skólans og mikilvægt að koma skólanum undir eitt þak hið bráðasta til þess m.a. að ná fram raunverulegum ávinningi af sampili listgreina. Hvalur í höfninni Hnúfubakur synti óvænt inn í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun og vakti talsverða athygli viðstaddra. Fyrst sást til hans fyrir framan Kaffivagninn en síðan synti hann um alla höfnina. Um miðjan dag sást ekki lengur til hans og er talið að hann hafi synt hjálparlaust út úr höfninni. Hnúfubakur hefur verið friðaður í hafinu kringum Ísland síð- an 1964. Engar upplýsingar selt Helgi Steinar Hermannsson, fyrr- um dagskrárstjóri Skjás eins, segist engar upplýsingar hafa selt út úr Skjá einum til 365 prent- og ljós- vakamiðla eins og Magnús Ragn- arsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, heldur fram í Morgunblaðinu í dag. Þá hafi honum ekki verið sagt upp störfum heldur hafi hann hætt að eigin ósk. Helgi segir Magnús hafa farið vísvitandi með rangt mál og raunar lengi lagt sig í einelti á vinnu- stað. Berlusconi áfram við völd Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra Ítalíu, kynnti í gær nýja sam- steypustjórn sína og nýtur hún stuðnings sömu flokka og fyrr. Berlusconi hefur verið við völd í fjögur ár samfleytt, lengur en nokk- ur annar forsætisráðherra eftir seinni heimsstyrjöld. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 44/49 Fréttaskýring 8 Myndasögur 50 Ummæli vikunnar12 Dagbók 50/53 Veiði 28 Víkverji 50 Hugsað upphátt 28 Staður og stund 52 Sjónspegill 30 Menning 53/61 Forystugrein 32 Af listum 54 Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 54 Umræðan 34/41 Bíó 58/61 Bréf 41 Sjónvarp 62 Auðlesið efni 43 Staksteinar 63 Hugvekja 44 Veður 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HELGI Steinar Hermannsson, fyrr- verandi dagskrárstjóri Skjás eins, segist engar upplýsingar hafa selt út úr Skjá einum til 365 prent- og ljós- vakamiðla eins og Magnús Ragnars- son, sjónvarpsstjóri Skjás eins, held- ur fram í Morgunblaðinu í gær. Þá hafi honum ekki verið sagt upp störfum heldur hætt að eigin ósk. Helgi segir Magnús hafa farið vís- vitandi með rangt mál og raunar lengi lagt sig í einelti á vinnustað. „Það er mikil óánægja á Skjá einum og ég er ekki sá eini sem hefur sagt þar upp störfum og væntanlega ekki sá síðasti.“ Að sögn Helga er atburðarásin í kringum starfslok sín önnur en Magnús heldur fram. Helgi segist hafa sagt upp störfum 4. apríl sl. á skrifstofu Magnúsar og Magnús þá óskað eftir því að hann ynni út upp- sagnarfrestinn, sem hann sam- þykkti. Daginn eftir sendi Helgi tölvupóst á alla starfsmenn Skjásins þar sem hann tilkynnti að hann væri að láta af störfum og frétt birtist í Fréttablaðinu daginn eftir um að hann hafi ráðið sig til 365 prent- og ljósvakamiðla til að taka við þróun- arstarfi erlendra verkefna. Ákvað upp úr miðjum mars að láta af störfum Helgi segist hafa ákveðið upp úr miðjum mars að láta af störfum hjá Skjá einum og fór að hugsa sér til hreyfings. Í ráðningarsamningi hans sé sérstaklega kveðið á um að hann hafi fullan rétt til að taka að sér slík verkefni á erlendri grundu á borð við þau sem felast í starfinu hjá 365 miðlum. Um tölvupóstsamskipti sín og Árna Þórs Vigfússonar segir hann að þau hafi snúist um kjaraviðræður við 365 en á sama tíma var einnig verið að ráða Árna Þór til starfa hjá 365 miðlum. Árni Þór hafi viljað nota nafnið Circus sem er heiti á við- skiptahugmynd sem Helgi hafði þró- að yfir þriðju kynslóð farsíma og m.a. boðið Símanum áður, en þeir hafnað. Helgi undirstrikar að hann hafi á engan hátt hafið störf hjá 365 á þessum tíma, hvorki verið á launa- skrá né með starfsstöð. Aðgangs- kort að 365 sem Magnús segi að hann hafi haft, hafi hann fengið eftir að hann hafi sagt upp störfum hjá Skjá einum. „Ég hef starfað hjá Skjá einum í sex ár og búið í raun til margt af því og flest sem þar er til, þ.á m. enska boltann. Eina ástæðan fyrir því að ég er að fara af þessum stað er vegna Magnúsar og út af engum öðrum ástæðum í rauninni.“ Helgi segir að 9. apríl hafi Magn- ús beðið sig að koma á skrifstofu sína að undirbúa ferð til Cannes sem stjórnendur Skjás eins áformuðu daginn eftir. Magnús hafi borið á hann að hann hefði haldið starfs- mannafund með starfsmönnum FM957 og Popp tíví en hann hafi neitað því og fengið staðfest hjá þriðja aðila að enginn slíkur fundur hefði verið haldinn. Afhenti stjórnarformanni gögn Helgi segir að Orri Hauksson, stjórnarformaður Íslenska sjón- varpsfélagsins, hafi sett sig í sam- band við sig og þeir rætt ítarlega saman og Helgi afhent öll þau gögn sem þeir óskuðu eftir sama kvöld, en vinnutölvu sinni hafi hann skilað mánudaginn eftir í viðurvist lög- manns síns til að kvitta fyrir mót- töku. Helgi undirstrikar að hann hafi engum viðskiptahugmyndum eða trúnaðarupplýsingum miðlað til 365 ljósvakamiðla, t.d. rekstrartölum úr rekstri Skjás eins eða áætlunum um framtíð Símans í sjónvarpi. Helgi Steinar Hermannsson fyrrverandi dagskrárstjóri Skjás eins Seldi engar upplýsingar út úr Skjá einum til 365 miðla Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is ÞEIM SEM lögðu leið sína í Laugalækjarskóla nú um helgina gafst kostur á að hlýða á ævin- týri H.C. Andersens. Voru það nemendur í 9. bekk U í skólanum sem vöktu í einn sólarhring, frá kl. 18 á föstudagi til sama tíma á laugardag, og lásu ævintýri And- ersens upphátt til skiptis allan tímann, fimmtán mínútur í senn. Að sögn Jórunnar Frímanns- dóttur, móður eins nemanda í bekknum, var upplesturinn liður í fjáröflun bekkjarins því hann er á leið í námsferð til Hørsholm í Danmörku í júní nk. að heim- sækja vinabekk sinn þar. Er hann þannig að endurgjalda heimsókn vinabekkjarins frá því í haust. Aðspurð segir Jórunn upplesturinn hafa gengið afar vel og að margir hafi lagt leið sína í skólann til að hlusta á lest- ur barnanna. Að sögn Jórunnar er mikil eft- irvænting meðal krakkanna með Danmerkurferðina. Morgunblaðið/Sverrir Nemendur 9. bekkjar U í Laugalækjarskóla skiptust á að lesa upp úr ævintýrum H.C. Andersens í fjáröflunarskyni. Lásu H.C. Andersen í sólarhring GUNNAR Smári Egilsson, fram- kvæmdastjóri 365 prent- og ljós- vakamiðla, segir það alrangt hjá Magnúsi Ragnarssyni, sjónvarps- stjóra Skjás eins, að Helgi Steinar Hermannsson, fyrrverandi dag- skrárstjóri fyrirtækisins, hafi selt sig með upplýsingum um Skjá einn til 365 ljósvakamiðla. „365 ljósvakamiðlar hafa ekki fengið neinar upplýsingar um starf- semi Skjás eins,“ segir Gunnar Smári. „Þetta eru þungar ásakanir á hendur Helga og 365 ljósvakamiðlum þannig að ég vona Magnúsar vegna að þessu máli ljúki sem fyrst. Við höf- um hvorki falast eftir né fengið upp- lýsingar um starfsemi, rekstur eða framtíðaráform Skjás eins enda höf- um við engan áhuga á þeim. Ásakanir Magnúsar byggjast á tölvupóstsam- skiptum Helga við gamlan vin hans, Árna Þór Vigfússon, áður en Árni hóf störf hjá 365 ljósvakamiðlum. Það var vaðið í tölvupóst Helga án heim- ildar og brotið á honum sem starfs- manni Skjás eins. Viðbrögð félagsins við brotthvarfi þessa starfsmanns, sem hefur verið lykilmaður í upp- byggingu Skjás eins í fimm ár, eru óskiljanleg. Félagið reynir hvað það getur til að sverta mannorð hans al- gerlega að tilefnislausu. Helgi er ráðinn til þess að stýra er- lendum þróunarverkefnum fyrir 365 ljósvakamiðla þannig að störf hans fyrir fyrirtækið skarast ekkert við fyrri störf hans á Skjá einum. Sá ótti sem ræður orðum og gjörðum Magn- úsar er því tilefnislaus.“ Framkvæmdastjóri 365 miðla Hafa ekki áhuga á áformum Skjás eins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.