Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 9
HEIMSKRINGLA
List á Ferð!
BERLIN - DRESDEN - LEIPZIG
TOPPFERÐ ÁRSINS í EVRÓPU!
Einstakt tækifæri
9.-20. júní
Hefur þú velt fyrir þér spurningunni:
Hvar geta Íslendingar nálgast listfjársjóði
heimsins og þá hámenningu, sem þeim fylgir?
HEIMSLISTIN býr ekki á Íslandi heldur í helstu
menningarborgum Evrópu og víðar og blasir við augum í
bestu söfnum heimsins, sem fæstir vita nokkur deili á, í fögr-
um byggingum, höggmyndum, sviðslistum, tónleikahöllum,
óperu og hvers konar afrekum snillinga.
DRESDEN nýendurreist í upprunalegum stíl er
eitt mesta undur nútímans, barmafull af endur-
reisn og barrokki, kölluð „Flórens við Elbu.“
Zwinger - eitt merkasta listasafn heims, Semper
óperan, Frúarkirkja o.m.fl.
GISTING: 3 d. HOTEL KEMPINSKI - í tölu bestu
hótela heims með morgunverði.
LEIPZIG er órjúfanlega tengd tónlist Bachs og
allra tónsnillinganna, sem lögðu þar grunn að
heimstónlistinni, Thomanerkirkja, Gewandhaus
o.fl.
GISTING: 3 d. HOTEL MARRIOTT
með morgunverði. í hjarta borgarinnar.
BERLIN - nýtískulegasta höfuðborg Evrópu og
mesti suðupottur listar og menningar, sem allir
þurfa að kynnast.
5 d. HOTEL HOLLYWOOD MEDIA -
með morgunverði hið fræga „filmstjörnuhótel“
við sjálfa Kürfurstendamm.
Ómetanlegt tækifæri að kynnast heimslistinni!
Hvergi í Evrópu hefur átt sér stað önnur eins uppbygging á síðasta einum og hálf-
um áratug og í BERLIN og lista- og menningarborgunum DRESDEN og LEIPZIG, eft-
ir fall Múrsins. Þessar borgir tengjast menningu Íslands með mjög sérstökum hætti,
eru afar forvitnilegar og gefandi áfangastaðir Íslendinga í dag, sem allt of fáir
þekkja.
Dagana 9.-20. júní nk. býðst þér einstakt tækifæri til að kynnast þessum stöðum,
sem allir verða hlekkir í sögu mannkyns til frambúðar. Það er ólýsanleg tilfinning
að standa við Brandenburghliðið í BERLIN og rifja upp samtímasögu, sem nú hefur
gjörbreytt Evrópu. Það geta talist forréttindi að njóta til þess leiðsagnar Ingimund-
ar Sigfússonar, sem opnaði hið glæsilega sendiráð okkar í Berlín og gjörþekkir sög-
una, og halda síðan þjóðhátíð okkar í boði sendiráðsins 17. júní.
Ágæti listunnandi.
Ég vil vekja athygli þína á HEIMSKRINGLU, ferðaklúbbi Ingólfs, sem stofnaður var fyrir rúmu ári með
það að markmiði að bjóða Íslendingum þátttöku í vönduðum ferðum með sérstakri áherslu á listir og
menningu, s.s. vandaða tónleika með bestu
flytjendum, ballettsýningar, óperuflutning, leik-
hús, jafnframt því að kynnast fögrum mann-
virkjum, byggingarlist fortíðar og nútíðar og
síðast en ekki síst myndlistararfinum í stór-
merkum söfnum í helstu listaborgum heimsins.
Stóra Ítalíuferðin, sem lengi var árviss viðburð-
ur undir stjórn Ingólfs, er dæmi um ferð með
slík markmið að leiðarljósi. Sumarið 2004 voru
farnar tvær ferðir til BERLINAR undir merkjum
Heimskringlu með ágætri þátttöku og árangri.
TILBOÐSVERÐ m. 20.000 kr. afslætti á mann aðeins kr. 139.900 í tvíb.
Innif. beint flug til og frá Berlín m. sköttum, akstur til Dresden,
Leipzig-Berlin, 11 n. gisting á 5* hótelum m. morgunv.
Fararstjórn: Ingimundur Sigfússon og Ingólfur Guðbrandsson.
AÐEINS 10 SÆTI - TILB. til 27.05.
Hnattreisan - 2 viðbótarsæti.
HEIMSKRINGLA
Ferðaklúbbur Ingólfs
Pantanir: sími 893 3400 og
861 5602 - fax 581 4610
í fylgd
Ingimundar Sigfússonar
og Ingólfs Guðbrandss.
Ótrúleg ferð á tilboðsverði!
Lista- akademia - Dresden
Konserthús - Berlin
Gewandhaus - Leipzig Brandenburg - Hlíð - BerlinSixtínska Madonnan
Frúarkirkja - Dresden
Grímsey | Glæsilegur 15 tonna bát-
ur, Björn EA 220, leysir af eldri
Björn hjá þeim útgerðarfeðgum
Henning Jóhannessyni og sonum
hans, Jóhannesi Gísla, Henning og
Sigurði hjá Fiskmarkaði Gríms-
eyjar.
Nýi Björn er smíðaður hjá
Trefjum í Hafnarfirði og sagði
Henning eldri að öll samskipti við
það fyrirtæki hefðu verið til fyr-
irmyndar. Í Birni eru öll bestu
tæki sem fáanleg eru til veiða nú.
Björn EA 220 mun veiða á línu og
ráða þeir bræður Jóhannes Gísli
og Sigurður ríkjum um borð, en
Henning yngri er markaðsstjóri
Fiskmarkaðarins.
Henning Jóhannesson sagði þá
feðga bjartsýna, nýlega hefðu þeir
fest kaup á útgerðarfyrirtækinu
Kræki sem fylgdi ágætis bland-
aður kvóti og tveir bátar. Að end-
ingu sagði hann að ekki þýddi að
kvarta þótt fiskverð væri ekki al-
veg nógu hagstætt, það eina sem
gilti væri bjartsýni, sérstaklega
með hækkandi sól.
Bjartsýnir
útgerðarfeðgar
Morgunblaðið/Helga Mattína
Útgerðarfeðgarnir hjá Fiskmarkaði Grímseyjar. Frá vinstri Jóhannes
Gísli, Henning Jóhannesson, Sigurður og Henning yngri.
GUÐRÚN Anna Jónsdóttir varði
doktorsritgerð sína í frumulíffræði
frá Harvard University í Boston í
Bandaríkjunum 19. nóvember síðast-
liðinn. Heiti ritgerðarinnar er „The
Role of Myosin I
in Actin Ass-
embly and
Endocytosis in
Budding Yeast“.
Andmælendur
voru Danesh
Moazed, prófess-
or í frumulíffræði,
og Sheila Thom-
as, prófessor í
læknavísindum,
bæði við Harvard
Medical School, og Frank Solomon,
prófessor í líffræði við Massachus-
etts Institute of Technology.
Rannsóknir Guðrúnar Önnu sner-
ust um hlutverk mýósíns í stjórnun
frumugrindarinnar og í innfrumun
(endocytosis). Gersveppir voru not-
aðir sem líkan en prótínin sem koma
að þessum ferlum eru mjög áþekk í
gersveppum og mönnum. Mýósín eru
fjölskylda hreyfiprótína sem breyta
orku í hreyfingu. Þau hreyfast með-
fram aktín þráðum sem eru ein
helsta uppistaðan í frumugrindinni.
Ein tegund af mýósíni, mýósín I, var
rannsökuð, en fjöldi annarra tegunda
er þekktur, þar á meðal mýósín II
sem tekur þátt í vöðvasamdrætti.
Niðurstöður rannsóknanna sýna að
mýósín I getur tekið þátt í myndun
aktín þráða. Því getur þetta mýósín
stjórnað myndun þess hluta frumu-
grindarinnar sem það sjálft notar til
hreyfingar. Jafnframt sýna niður-
stöðurnar að mýósín I á mikilvægan
þátt í seinni hluta innfrumunar sem
er það ferli þegar frumuhimnan
umlykur efni í umhverfinu og tekur
inn í frumuna. Þessar niðurstöður
hafa verið birtar í vísindatímarit-
unum Journal of Cell Biology og
Current Biology.
Leiðbeinandi rannsóknaverkefn-
isins var Rong Li, prófessor í frumu-
líffræði við Harvard Medical School.
Aðrir doktorsnefndarmenn voru
Timothy Mitchison, prófessor í kerf-
islíffræði, og Tom Rapoport, prófess-
or í frumulíffræði, báðir við Harvard
Medical School, og Bruce Goode,
prófessor í líffræði við Brandeis Uni-
versity.
Guðrún Anna er fædd í Reykjavík
1974. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1994
og B.Sc. prófi í taugalíffræði frá
Oberlin College í Bandaríkjunum
1997. Eiginmaður hennar er Jóhann-
es Magnússon, nemi í hagfræði við
Háskóla Íslands. Foreldrar eru
Bryndís Ísaksdóttir fagstjóri við
Landsbókasafn Íslands - Háskóla-
bókasafn og Jón Torfi Jónasson, pró-
fessor í uppeldis- og menntunarfræði
við Háskóla Íslands. Systkini eru
Ragnheiður háskólanemi, Kristín
Eva (d. 2001) og Stefán Árni
menntaskólanemi.
Guðrún Anna starfar hjá rann-
sóknastofnuninni WiCell á Íslandi
sem er með höfuðstöðvar í Wisconsin
í Bandaríkjunum. WiCell hefur það
að leiðarljósi að efla stofnfrumurann-
sóknir og kanna þá möguleika sem
stofnfrumur búa yfir.
Doktor í
frumulíf-
fræði
Guðrún Anna
Jónsdóttir
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050