Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 11

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 11 Vilja ekki „þjóðhátíðarstemningu“ Hugsanlega má einnig skoða hinn hvassa tón formannsins í því ljósi að tvær skoð- anakannanir í byrjun febrúar sýndu að um eða yfir 60% studdu Ingibjörgu Sólrúnu eða töldu líklegra að hún yrði formaður. Stuðn- ingsmenn hennar hafa raunar gjarnan vísað til skoðanakannana og bent á að hún njóti meiri vinsælda, meira trausts og sé almennt talin betur til þess fallin að standa uppi í hárinu á foringjum annarra stjórnmálaflokka. Einn nánasti samstarfsmaður Össurar vildi þó ekki meina að það hefðu verið skoðanakann- anirnar sem hefðu hreyft við Össuri og hans stuðningsmönnum heldur hefði gagnrýni Öss- urar beinst að því að breyta þeirri „þjóðhátíð- arstemningu og persónudýrkun“ sem verið væri að búa til í kringum Ingibjörgu Sólrúnu. Stuðningsmenn hennar hefðu, líkt og þrisvar hefði verið gert hjá Reykjarvíkurlistanum, reynt að skapa þá stemningu að hún hefði yf- irburðarstöðu og að kosningin væri unnin fyr- irfram, án þess að færa sérstök rök fyrir því að Ingibjörg ætti skilið að vinna. Kosninga- baráttan þyrfti og ætti að snúast um málefni og muninn á frambjóðendunum en stuðnings- menn Ingibjargar hefðu lítið viljað ræða um það en þess í stað ýtt undir persónudýrkun á foringja sínum. Þrátt fyrir að Össur hafi sótt meira að keppinaut sínum má ekki gleyma því að Ingi- björg Sólrún og stuðningsmenn hennar hafa gagnrýnt formanninn að fyrra bragði, m.a. fyrir að vera fljótfær, hlaupa út undan sér og hafa ekki nægjanlegt samráð við aðra í for- ystu flokksins. Þá sé Ingibjörg Sólrún trú- verðugri, höfði frekar til kjósenda og sé lík- legri til að afla flokksins nægjanlegs fylgis til að sigra í næstu kosningum. Gagnrýni af þessu tagi á flokksformann getur á engan hátt talist léttvæg. Össur og stuðningsmenn hans hafa á móti bent á að Össuri hafi tekist vel til við að byggja upp flokksstarfið, fjármálin séu í góðu lagi og staða flokksins í skoðanakönnunum sýni alls ekki fram á að skipta þurfi um for- mann. Össur eigi að fá að njóta þessara góðu verka. Össur hefur sjálfur lagt áherslu á framtíðarsýn sína og hvernig ríkisstjórn hann vilji mynda að loknum kosningum. Efla þurfi velferð, gæta að hagsmunum aldraðra og ör- yrkja, fjölskyldunnar og ýta undir starfsemi smáfyrirtækja. Með þessu hefur Össur leitast við að gefa framboði sínu sérstöðu en það er þó erfitt að sjá fyrir sér að Ingibjörg Sólrún geti ekki tekið undir með formanninum. Í samtali við Morgunblaðið sagði einn stuðn- ingsmaður Össurar að þetta væri til marks um að Össur leiddi en Ingibjörg Sólrún „jánk- aði bara“ því sem formaðurinn segði. Stuðn- ingsmaður Ingibjargar benti á hinn bóginn á að engu líkara væri en Össur teldi að verið væri að kjósa til Alþingis en ekki um for- mannsembættið og ítrekaði að kosningarnar snerust um ekki um málefni heldur um stíl og vinnubrögð og hvor væri líklegri til að leiða flokkinn til sigurs. Verður að sækja Þó að staða Ingibjargar Sólrúnar sé ekki talin eins sterk og hún var fyrir landsfundinn árið 2003 er þó almennt talið að hún hafi um- talsvert forskot á Össur. Hann hafi því ekki haft um annað að velja við upphaf barátt- unnar en að blása til sóknar. Össur hefur væntanlega verið í sóknar- gírnum á miðvikudaginn í liðinni viku þegar hann gagnrýndi Reykjavíkurlistann fyrir að vera lokaður inni í ráðhúsinu og gaf undir fót- inn með nánara samstarf Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna. Sagðist hann telja að draumur vinstri manna um sameiningu væri nær en oft áður, velferðaráherslurnar væru nánast þær sömu og það eina sem skildi þá að væri afstaðan til Evrópusambandsins. Það er óhætt að segja að þetta útspil for- mannsins hafi fengið blendnar viðtökur, bæði meðal Samfylkingarmanna og stuðnings- manna Vinstri-grænna. Þeir Samfylking- armenn sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að þessi tilkynning formannsins hefði komið mjög á óvart og ekkert slíkt hefði verið rætt innan forystunnar. „Þetta er alveg út í hött og er að mælast mjög illa fyrir, bæði meðal stuðningsmanna Össurar og Ingibjargar, maður er búinn að heyra mikið um það. Þetta eru talin röng skilaboð til kjósenda og til at- vinnulífsins. Maður skilur ekki af hverju hann sagði þetta. Sameiningin í Samfylkingunni er að takast, þetta er ekkert til umræðu lengur og að rifja þetta upp með þessum hætti er al- veg út í hött. Þó að flokkarnir geti unnið vel í stjórnarandstöðu þá er ekki hægt að sameina þá í einn flokk,“ sagði einn þingmaður flokks- ins. Annar þingmaður var ekki síður undrandi á þessum ummælum og sagði að þó að flokk- arnir gætu vel unnið saman í stjórnarand- stöðu og hefðu að mörgu leyti svipaða stefnu í sveitarstjórnarmálum væri tómt mál að tala um sameiningu flokkanna. Of mikið bæri á milli í landsmálunum, sérstaklega varðandi afstöðuna til Evrópusambandsins og til at- vinnulífsins. Lítill munur á málefnum Þó að Össur hafi bent á nokkur málefni sem skilji hann að frá Ingibjörgu Sólrúnu, er erfitt að koma auga á verulegan málefnalegan ágreining milli frambjóðendanna. Fæstir þeirra Samfylkingarmanna sem rætt var við gátu nefnt verulegan málefnalegan ágreining og sögðu að við slíku væri ekki að búast; verið væri að velja milli formanns og varaformanns sama stjórnmálaflokksins sem að auki hefðu verið samherjar og vinir um árabil. Það væri hreinlega ekki hægt að búast við miklum mál- efnalegum ágreiningi í slíkum tilfellum. Gamlar flokkslínur skipta heldur ekki máli að mati viðmælenda blaðsins. Í vissum til- vikum mætti þó sjá þess merki að gamlir kratar styddu Össur frekar og fyrrum liðs- menn Kvennalistans, þeir tiltölulega fáu sem enn tækju þátt í flokksstarfi Samfylking- arinnar, styddu nánast allir Ingibjörgu Sól- rúnu. Sumir töldu þó hugsanlegt að ef kosn- ingabaráttan myndi harðna til muna gætu gamlar flokkslínur komið skýrar upp á yf- irborðið. Fæstir þeirra sem rætt var við könnuðust við að stuðningur við frambjóðendurna færi eftir því hvort fólk búi á landsbyggðinni eða á höfuðborgarsvæðinu. Hugsanlega væri for- ystan í ákveðnum bæjarfélögum hallari undir Össur, og var Akureyri og Ísafjörður nefnd sem dæmi, en þetta ætti ekki við um hinn al- menna flokksmann. Spurðir um hvort afstaða frambjóðendanna til Reykjavíkurflugvallar skipti máli sögðu langflestir viðmælendanna að svo væri ekki. Viðtöl blaðamanns við Sam- fylkingarmenn sem beðnir voru að lýsa sínum skoðunum og því sem þeim sýndist um af- stöðu flokksfélaga sinna gefa að sjálfsögðu takmarkaða mynd af því andrúmslofti sem er innan flokksins í aðdraganda kosninganna. Það er þó rétt að taka fram að við efnisöflun í þessa grein var rætt við á annan tug Samfylk- ingarmanna víða af landsbyggðinni og svip- aðan fjölda af höfuðborgarsvæðinu. Stuðningur kvenna mikilvægur Búseta virtist því litlu skipta en í samtölum við Samfylkingarmenn kom á hinn bóginn í ljós að konur eru mun líklegri til að styðja Ingibjörgu, það hafa skoðanakannanir einnig margoft sýnt og kemur þetta því ekki sérlega á óvart. Að mati flestra þeirra sem Morg- unblaðið ræddi við er þó ekki um að ræða að sérstök stemning hafi myndast meðal kvenna um að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu til formanns þó að vissulega skipti það miklu máli fyrir margar konur að hún verði kjörin formaður. Aðrir sögðust hins vegar finna fyrir talsverðri undiröldu í þessa átt. Löngum hefur verið rætt um að Össur ætti meiri stuðning innan forystu flokksins, hvort sem væri á höfuðborgarsvæðinu eða á lands- byggðinni en almennir flokksmenn væru lík- legri til að styðja Ingibjörgu Sólrúnu. „Hann hefði unnið 500 manna flokksfund og hugsan- lega þúsund manna landsfund en þetta er mun erfiðara fyrir hann þegar kjósendurnir eru 20.000,“ sagði einn þingmanna í samtali við Morgunblaðið. Hvað varðar þingflokk Samfylkingarinnar skiptist hann nánast ná- kvæmlega í tvennt með tilliti til stuðnings við frambjóðendurna, eins og rakið var í þing- pistli Örnu Schram í Morgunblaðinu í vikunni. Hver verður varaformaður? Þegar þetta var ritað var Ágúst Ólafur Ágústsson sá eini sem hafði tilkynnt um framboð sitt til varaformanns. Aðrir hafa ver- ið orðaðir við embættið, m.a. alþingismenn- irnir Guðmundur Árni Stefánsson, Kristján L. Möller, Jóhanna Sigurðardóttir, Lúðvík Bergvinsson og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði. Framboðsfrestur til embættisins rennur ekki út fyrr en á landsfundi og því er alls óvíst að aðrir tilkynni um framboð sitt fyrr en þá. Margir Samfylkingarmenn telja að varaformannskjörið muni taka mið af því hver verður kosinn formaður, þ.e. að hann verði valinn úr stuðningsmannahópi þess frambjóðanda sem býður lægri hlut í for- mannskjörinu. Það er þó alls ekki víst að svo verði, sérstaklega í ljósi þess að stuðnings- menn Ingibjargar Sólrúnar og Össurar virð- ast ekki skiptast í fylkingar eftir málefnum, kjördæmum eða gömlu flokkslínunum. var hópunum falið að endurskoða tillögurnar í ljósi þeirra hugmynda og athugasemda sem komu þar fram. 15. janúar var sjö hópum til viðbótar ýtt úr vör og áttu þeir að skila nið- urstöðum á landsfundi sem þá var talið að yrði í haust. Eftir að landsfundinum var flýtt vegna formannskosninganna tilkynnti Ingi- björg Sólrún að vinnu hópanna yrði hraðað og þótt tíminn væri naumur væri stefnt að því að leggja eitthvað fram á landsfundinum. Þessa ákvörðun hefur Össur sömuleiðis gagnrýnt og sagt tímann of nauman. Einn þeirra sem rætt var við, stuðningsmaður Ingibjargar Sól- rúnar, benti á hinn bóginn á að þó að vissu- lega væri betra ef hóparnir hefðu lengri tíma fengju þeir mun meiri tíma en þeir hópar sem unnu að málefnaundirbúningi flokksins fyrir kosningarnar 2003, en á því starfi bar Össur ábyrgð sem formaður flokksins. Helsti vettvangur Ingibjargar Gagnrýni Össurar á framtíðarhópinn hlýtur að þurfa að skoða í því ljósi að hópurinn hefur verið einn helsti vettvangur Ingibjargar Sól- rúnar í flokksstarfinu og hefur hún getað haft mikil áhrif á starf hans sem formaður verk- stjórnarhópsins. Ingibjörg hefur því mikið að vinna ef starfsemi framtíðarhópsins mælist vel fyrir en að sama skapi liggur hún vel við höggi ef starfsemin gengur ekki sem skyldi. Ef Ingibjörgu Sólrúnu sveið undan gagnrýn- inni á framtíðarhópinn hefur ekki síður sviðið undan þeim orðum Össurar að umræðu- stjórnmál væru „fix idea“ og stórar umbúðir utan um lítið. Þó að Össur hafi einstaka sinn- um rætt um kosti „samræðustjórnmála“ hef- ur það verið Ingibjörg Sólrún sem hefur fyrst og fremst verið talsmaður þessarar aðferðar innan flokksins. Þar að auki er starfsemi framtíðarhópsins tilraun til að beita umræðu- stjórnmálum við raunverulega stefnumótun. Það er því ekki að undra þó að Ingibjörg Sólrún hafi ítrekað vísað þessari gagnrýni á bug og m.a. sagt að hún verði ekki gerð ábyrg fyrir einstökum hugmyndum sem komi frá framtíðarhópnum jafnvel þó að hún hafi yf- irumsjón með starfi hans. Þá hafi umræðu- stjórnmál margsannað kosti sína og hefur hún m.a. bent á örlög fjölmiðlafrumvarps rík- isstjórnarinnar síðasta sumar samanborið við nýlegar tillögur fjölmiðlanefndar. Andsvar hennar um að betur hefði farið á að beita um- ræðustjórnmálum þegar frægt frumvarp um eftirlaun ráðherra og alþingismanna var lagt fyrir haustið 2003 var býsna eitrað en stuðn- ingur Össurar við það frumvarp hefur reynst honum dýrkeyptur, ekki síst þar sem fjöl- margir frammámenn í verkalýðshreyfingunni brugðust ókvæða við því. Á þeim for- ystumönnum í verkalýðshreyfingunni var að heyra sem þetta mál væri alls ekki gleymt og stæði stuðningi við Össur fyrir þrifum. í kosningabaráttunni Morgunblaðið/ÞÖK Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og stuðningsmenn hennar bera saman bækur sínar. runarp@mbl.is ’Þó að staða Ingibjargar Sólrúnar sé ekki talin eins sterk og hún var fyrir lands- fundinn árið 2003 er þó al- mennt talið að hún hafi umtals- vert forskot á Össur. Hann hafi því ekki haft um annað að velja við upphaf baráttunnar en að blása til sóknar.‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.