Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Guðmundur Ingi Hauksson,sem er annar tveggja úti-bússtjóra Landsbankans íAusturstræti, hinn er
Árni Emilsson, segir fyrirtækjaþjón-
ustu ætíð hafa verið veigamikinn þátt
í starfsemi Landsbankans í þau 119
ár, sem saga hans nær til. Stofnun
Landsbankans hafi þjónað lykilhlut-
verki í sjálfstæðisbaráttunni og saga
hans sé samtvinnuð sögu framfara og
velmegunar í landinu allar götur síð-
an. Guðmundur segir, að í kjölfar
verzlunarfrelsisins 1855 hafi menn
búist við gífurlegri sprengingu, en
hún lét bíða eftir sér og raunverulegt
verzlunarfrelsi komst ekki á fyrr en
þjóðin eignaðist banka. Án lánsfjár-
magns og skilvirks peningakerfis
áttu fyrirtæki mjög erfitt uppdráttar.
Áður en Landsbankinn kom til sög-
unnar lánaði enginn íslenzkum fyr-
irtækjum eða einstaklingum fé nema
kaupmenn. Þetta var geysilega haml-
andi á alla framþróun í landinu, því
án lánsfjár áttu fyrirtæki lands-
manna litla vaxtarmöguleika. Árið
1853 fór að miklu leyti í að ræða pen-
ingaekluna í þjóðfélaginu og 1855
sendi Alþingi bænaskrá til konungs,
þar sem hann var hvattur til að koma
á bankastarfsemi í landinu. Tveimur
árum síðar svaraði konungur er-
indinu neitandi eftir að hafa ráðfært
sig við danska Þjóðbankann, sem
taldi ekki mikla framtíð í bankavið-
skiptum á litla Íslandi.
Sumarið 1885 samþykkti Alþingi
lög um stofnun innlends banka;
Landsbankans, sem tók til starfa 1.
júlí árið eftir.
„Sérstaða Landsbankans er þessi
langa samfellda saga hans og þýðing
fyrir þjóðina. Hér í þessu húsi finnur
maður vel fyrir þessari löngu sögu og
það er ekki hægt annað en bera djúpa
virðingu fyrir þeim mönnum sem hér
hafa verið síðustu öld,“ segir Guð-
mundur. Hann segir bankann hafa
farið hægt af stað. „Það var eins og
menn áttuðu sig ekki á mögu-
leikanum framan af, en svo fóru
menn að nýta sér þjónustu bankans,
stofna fyrirtæki og taka lán til fram-
kvæmda.
Það sem vekur sérstaka athygli
manns við skoðun á sögu bankans er
að hann hefur sjaldnast verið langt
undan þegar íslenzk fyrirtæki hafa
tekið vaxtarkippi og oft leikið lykil-
hlutverk í uppbyggingu heilla at-
vinnugreina.
Vaxið og dafnað með hverju árinu
Þótt það hafi skipzt á skin og skúr-
ir í sögu Landsbankans hefur bank-
inn náð að vaxa og dafna og stækka
með hverju árinu. Hlutverk hans hef-
ur verið frá upphafi að styðja við fyr-
irtækin í landinu og er það í mjög rík-
um mæli enn.“ Útibúið í Austur-
stræti er eitt af 26 kjarnaútibúum
bankans, staðsett í höfuðstöðvunum.
„Meginhlutverk okkar er að ann-
ast dagleg mál fyrirtækja og einstak-
linga. Við höfum komið upp tengiliða-
kerfi, sem virkar þannig, að einstak-
lingarnir geta leitað til sinna þjón-
ustufulltrúa og fyrirtækin til sér-
fræðinga. Við erum með tólf manna
hóp í fyrirtækjaþjónustunni. Við
leggjum nú megináherzluna á að ná
til millistórra fyrirtækja, en þau hafa
til þessa orðið útundan, þar sem
stóru fyrirtækin hafa fengið mjög
góða þjónustu hjá bönkunum og
minni fyrirtækin hjá útibússtjórun-
um. Millifyrirtækin hafa goldið þess
að vera of lítil til þess að ná athygli
fyrirtækjasviðanna og of stór fyrir
útibúin. Það má segja það, að þetta
útibú og ein tvö önnur hjá Lands-
bankanum séu nógu burðug til þess
að veita millifyrirtækjunum góða
þjónustu, en aðeins eitt hjá Íslands-
banka og annað hjá KB-banka.“ Guð-
mundur segir, að lánveitingalands-
lagið hafi gjörbreytzt. Áður hafi
pólitíkin ráðið þar miklu. Það megi
segja, að bankarnir hafi gegnt hlut-
verki nýsköpunarsjóða, sem þýddi að
útlánatöp voru bæði stærri og tíðari
en nú, sem aftur þýddi meiri vaxta-
mun. Áður fyrr gátu lánveitendur
haft rangt fyrir sér um gjaldhæfi lán-
takenda í þrjú skipti af hverjum
hundrað. Það segir Guðmundur of
hátt hlutfall í dag; tvö skipti af hverj-
um hundrað er of mikið. Nú eru allar
lánveitingar á faglegum forsendum,
sem hefur lækkað útlánatöpin veru-
lega. Bankarnir reyni að halda út-
lánatöpum undir 1% og það hafi
Landsbankanum tekizt undanfarin
misseri. Og með lækkun útlánatapa
lækkar vaxtamunurinn, sem „kemur
öllum til góða“, segir hann.
Með peningana eins og bensínið
„Við leggjum áherzlu á að þekkja
okkar viðskiptavini vel og hafa við þá
gott samband. Með því getum við
verið fljótir til að svara þeim á fagleg-
um forsendum. Hraðinn í uppbygg-
ingu fyrirtækja hefur sjaldan verið
meiri og í því samkeppnisumhverfi,
sem nú ríkir, er mikilvægt að hafa
snör handtök, þegar fyrirtæki þurfa
á þjónustu okkar að halda.
Það er með peningana eins og
bensínið; þetta er sama varan hjá öll-
um. Það sem greinir í milli er þjón-
ustan á bak við viðskiptin. Sam-
keppnisforskot okkar er snerpa.
Við höfum náð því orðspori, að við
getum svarað mönnum mjög hratt án
þess að hraðinn sé á kostnað faglegra
vinnubragða. Snerpa og þjónustulip-
urð skipta öllu máli fyrir okkar við-
skiptavini og geta okkar til þess að
Megináherzlan er á millistóru
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðmundur Ingi Hauksson: Finnur vel fyrir langri sögu í Landsbankahúsinu.
„Við bjóðum alla velkomna
í viðskipti við okkur; fólk
og fyrirtæki, en viljum hér
og nú halda sérstaklega
fram þjónustu okkar við
millistór fyrirtæki, sem hafa
verið útundan í bankakerf-
inu,“ segir Guðmundur Ingi
Hauksson, útibússtjóri
Landsbankans í Austur-
stræti, í samtali við
Freystein Jóhannsson um
starfsemi bankans.
Aðalbanki Landsbanka Ís-
lands var reistur 1922—24 á
rústum gamla Landsbanka-
hússins sem tekið var í notk-
un 1899, en brann til kaldra
kola 1915. Byggt var við
bankahúsið 1971.
Mjólkurbúsmenn höfðu betur
Nú fyrir skömmu fór fram á Flúð-
um hin árlega bridskeppni á milli
starfsmanna Mjólkurbús Flóamanna
og Hreppamanna. Keppni þessi hef-
ur verið árleg í aprílmánuði á fjórða
áratug og er spilað til skiptis á Sel-
fossi og Flúðum. Góður vinskapur
hefur skapast milli manna og til-
hlökkun að hittast. Það er þó svo
komið að meðalaldurinn er orðinn
nokkuð hár. Fátt af ungu fólki spilar
brids.
Allnokkrir fyrrum starfsmenn
Mjólkurbúsins taka þátt í keppninni
og eins hefur þurft að kalla til nokkra
úr Bridsfélagi Selfoss til að fylla uppí
töluna. Hreppamenn fengu nú „að
láni“ tvo ágæta bridsmenn úr Hraun-
gerðishreppi. Spilað var á fjórum
borðum, þ.e. 32 tóku þátt í keppninni.
Svo fóru leikar nú að Mjólkurbús-
menn unnu með yfirburðum, úrslitin
urðu 78 gegn 38 stigum.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ, mánudaginn 18.4.
Spilað var á 11 borðum og með-
alskor var 216 stig.
Árangur N-S
Oddur Halldórsson - Viggó Nordqvist 258
Ingibj. Stefánsd. - Ingveldur Viggósd. 254
Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 239
Árangur A-V
Alda Hansen - Jón Lárusson 257
Eysteinn Einarsson - Kári Sigurjónss. 248
Elín Jónsdóttir - Gunnar Pétursson 246
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Bjarni H. Ansnes afhendir Guðjóni Einarssyni farandbikarinn fyrir sigur
Mjólkurbúsmanna gegn Hreppamönnum á Flúðum.
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson