Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 29
smáauglýsingar mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 29 FRÉTTIR Markáætlun um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Rannsóknamiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum í mark- áætlun Vísinda- og tækniráðs um rannsóknir á sviði erfðafræði í þágu heilbrigðis og á sviði örtækni. Umsóknarfrestur er til 10. júní 2005. Erfðafræði í þágu heilbrigðis beinist að lífvísindum í kjölfar raðgreiningar á erfðamengjum fjölda lífvera. Áhersla verður lögð á notkun erfðafræði- legrar þekkingar til grunnrannsókna á líffræðilegum ferlum er tengjast sjúkdómum og heilbrigði, sem og á hagnýtingu hennar til að þróa grein- ingartækni, lyf eða meðferðarform. Örtækni vísar til vísinda og tækni á örsmæðarkvarða þvert á hefðbundin fagsvið eðlisfræði, efnafræði og líftækni. Í markáætluninni verður miðað við að efri mörk smæðarkvarðans liggi við 10 míkrómetra. Markáætlunin var samþykkt á fundi Vísinda- og tækniráðs 17. desember sl. Gert er ráð fyrir að á fyrstu tveimur árum áætlunarinnar verði varið 200 m. kr., þar af 90 m. kr. á yfirstandandi ári og 110 m. kr. á næsta ári. Til næstu þriggja ára þar á eftir verða tryggðir nauðsynlegir fjármunir til áætl- unarinnar, en hún mun standa yfir í 5 ár (2005-2009). Tilgangur markáætlunarinnar er að efla þverfaglegt samstarf hér á landi og auka styrk okkar á ofantöldum sviðum á alþjóðavísu. Reynt verður að hámarka nýtingu tækjabúnaðar og aðferðafræði sem fyrir er í landinu á þessum sviðum, styrkja frekari uppbyggingu á færni og þekkingu og rann- sóknir og rannsóknahópa sem þegar hafa öðlast alþjóðlega viðurkenn- ingu. Lögð er áhersla á grunnrannsóknir sem og hagnýt verkefni í nánu samstarfi fyrirtækja, rannsóknastofnana og háskóla til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. Hver styrkur verður á bilinu 5 til 10 milljónir króna á ári. Gert er ráð fyrir að í fyrri lotu (2005 til 2006) verði styrkir veittir til allt að tveggja ára fyrsta árið og til eins árs annað árið. Í seinni lotu (2007 til 2009) er gert ráð fyrir að veittir verði styrkir til þriggja ára verkefna. Í fyrri lotu er heimilt að leggja fram verkáætlun til lengri tíma en tveggja ára. Frekari styrkveiting til verkefnisins verður í samkeppni við aðrar nýjar umsóknir. Styrkir mark- áætlunar geta numið frá fjórðungi til helmings af heildarkostnaði verkefnis og í sérstökum tilvikum allt að tveimur þriðju hlutum heildarkostnaðar. Styrkirnir verða verkefnisstyrkir hliðstæðir styrkjum sem veittir eru úr öðr- um samkeppnissjóðum. Sérstök umsóknareyðublöð gilda fyrir markáætlunina, sameiginleg fyrir bæði svið hennar. Þau er hægt að nálgast ásamt upplýsingum um áætlun- ina og frekari leiðbeiningum á heimasíðu Rannsóknamiðstöðvar Íslands - Rannís. Slóðin á heimasíðu Rannís er: http://www.rannis.is. Umsóknum og öllum fylgiskjölum skal skila á ensku. Umsóknir verða metnar faglega í fagráði að fengnum umsögnum innlendra og/eða erlendra sérfræðinga. Þetta gerðist uppi á Skaga nokkrum árum eftir stríð. Ílandinu ríktu innflutningshöft og daglegur kostur lands-manna var soðning og mjólkurgrautur, stöku sinnumkjötbollur og sunnudagslæri um helgar ef pyngjan leyfði.Eitt sinn bar svo við húsfreyja kom heim frá Reykjavík með Eldborginni gömlu og hafði meðferðis litfagra ávexti. Börnin fengu vatn í munninn við þessa sjón en móðir þeirra sagði einbeitt en þetta mættu þau ekki borða fyrr en næsta dag. Hún setti mun- gætið í skál sem blasti við öllum og sagði að nú ætlaði hún að kenna börnum sínum að standa freistingar. Sú lexía væri nauðsyn- leg fyrir lífið. Litla stúlkan, sem tvísté lengi fyrir framan ávaxtaskálina, er grannkona mín og báðar nálgumst við óðfluga það takmark að komast í hóp aldraðra. Kannski er það ekki síst hollum uppeldis- háttum að þakka að hún er einn heilsteyptasti og besti vinur sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Trygglyndi hennar er gullvægt, og ég efast um að hún hafi nokkurn tímann stigið á strik eða svindlað svo að vitnað sé til sígildra barnaleikja. En hún er líka með skemmti- legri konum og á það raunar til að falla í meinlitla freistni þegar svo ber undir því allt orkar nú tvímælis þá gert er eins og Njáll gamli sagði. En hversu margir foreldrar leggja það á sig að kenna börnum sínum staðfestu gagnvart freist- ingum? Oft var þörf en nú er nauðsyn. Þær blasa hvarvetna við, í verslunum, fjölmiðlum, auglýs- ingapésum sem varla verður þverfótað fyrir þegar hátíðir eða fermingar eru í nánd. Þær getur að líta í ranni nábúans, á sviði afþreyingar og skemmtunar og jafnvel þar sem hvatt er til útivistar og hreyfingar. Með lævíslegum hætti er því komið inn hjá börnum og ungling- um að rándýr útbúnaður sé nauðsynlegur þeim sem ætli að stunda skíðaíþrótt, hjólreiðar, golf eða hvert sem áhugamálið er. Og for- eldrarnir bíta á agnið, oft af misskilinni umhyggju fyrir afkvæmum sínum eða bara af einskærri leti eins og téð grannkona mín orðaði það þegar við vorum báðar að ala upp börn. ,, Auðvitað er langþægilegast að losna við suðið, sleppa öllu þrasi, segja bara já og borga, “ sagði hún og svo stálumst við báðar í súkkulaðibita með kaffinu, þrátt fyrir yfirlýstan vilja um nýja megrunarkúrinn. Og þegar bragðlaukarnir höfðu unnið vel á freist- ingunni – kannski líka á nýjustu slúðursögunni – og við orðnar svo- lítil skömmustulegar, urðum við sammála um að sá vandi, sem blasti við uppalendum í landi allsnægtanna, væri síst minni en þeg- ar skortur vofði yfir og dugnað og hyggindi þurfti til að koma börnum til manns. Gamla aðferðin ofan af Skaga væri enn í góðu gildi. Nú fylgjumst við með afkomendum okkar heyja baráttuna við að koma ungviði sínu á legg í samfélagi sem býður upp á enn meiri allsnægtir og freistingar en áður. Þar þarf enn að beita dugnaði og hyggindum, en ekki síst til að setja skynsamleg mörk og koma börnum í skilning um að lífið snýst um svo margt betra en falboð- inn varning. Við vitum vel að það er ekki í verkahring ömmu eða langömmu að setja þessi mörk sem stöðugt þenjast út enda er allt í heiminum hverfult. Og hvaða barn lítur núna á það sem þolraun að standast vínber í skál? Að standast vínber í skál HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Guðrúnu Egilson CARITAS á Íslandi hefur nýlega afhent Barna- og unglingageð- deild Landspítalans 410 þúsund krónur. Þetta var ágóði af styrktartón- leikum sem fram fóru í Krists- kirkju við Landakot. Sigríður Ingvarsdóttir, formað- ur Caritas á Íslandi, segir í til- kynningu: „Þrátt fyrir velferð þegar á heildina er litið þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna hjálparþurfendur sem við getum lagt lið. Komið hefur fram að fimmtungur barna og unglinga eigi við geðheilsuvandamál að stríða einhvern tíma fyrir 18 ára aldur, í lengri eða skemmri tíma. Landsþekktir listamenn komu og gáfu vinnu sína sem þeir hafa alltaf gert varðandi styrktartón- leika Caritas. Eitt af meginverkefnum Car- itas á Íslandi er að styðja við bakið á þeim sem hafa farið góðra hluta á mis eða settir hjá í tilverunni.“ Caritas styrkir BUGL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.