Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 34

Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 34
34 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÖLDUGATA - HF. - SÉRHÆÐ Hraunhamar fasteignasala hefur tekið í einkasölu neðri hæð í tvíbýli, ásamt kjall- ara, samtals um 143,5 fermetrar, vel stað- settu við Hamarinn í hjarta Hafnarfjarðar. Eignin er í góðu standi og stuðst hefur við upphaflegt skipulag eignarinnar. Eignin skiptist í inngang, hol, eldhús, góða borð- stofu, gestasnyrtingu, stóra stofu, barna- herbergi, gott hjónaherbergi með skáp- um. Frá gangi er gengið niður stiga. Þar er sérinngangur, hol, baðherbergi og þvottahús. Gott unglingaherbergi og geymsla. Gólfefni eru gólffjalir, flísar og dúkur. Skemmtilegur bakgarður snýr í suður upp að Hamrinum. Eign sem vert er að skoða. Verð 21,9 millj. KLETTABERG - HF. - PARHÚS Hraunhamar fasteignasala hefur tekið í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað glæsilegt arkitektahannað parhús með innbyggðum 60 fm bílskúr, samtals ca 220 fm. Eignin er smekklega innréttuð m. vönduðum innréttingum og gólfefnum. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borð- stofu, eldús, gestasnyrtingu, þvottahús og herbergi. Á efri hæð eru tvö herbergi, alrými sem auðvelt er að útbúa herbergi, baðherbergi. Fal- legur sólpallur og bílastæði hellulögð með lýsingu. Góðar 20 fermetra svalir. Glæsilegt útsýni. Glæsileg eign. Myndir af eigninni á mbl.is og heimasíðu hraunhamars. Verð 39,9 millj. BURKNAVELLIR - HF. - EINBÝLI Hraunhamar fasteignasala hefur tekið í sölu mjög gott nýtt einbýli á einni hæð með innbyggðum bílskúr samtals um 206 fermetrar vel staðsett við hraunjaðarinn í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Húsið hefur ver- ið nýlega innréttað með fallegum innrétt- ingum og gólfefnum. Eignin skiptist í for- stofu , hol, eldhús, borðstofu, stofu, 4 góð herbergi , tvö baðherbergi, þvottahús og stóran bílskúr. Afgirt verönd. Frábær stað- setning. Friðlýst svæði austan við húsið. Verð 41 millj. LAUTASMÁRI - 3JA KÓPAVOGI Hraunhamar fasteignasala hefur tekið í sölu mjög fallega 95,1 fermetra íbúð á annarri hæð í góðu og vel staðsettu fjöl- býli í Smárahverfi í Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, tvö góð herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Glæsilegar innrétt- ingar og gólfefni eru parket og flísar. Góðar suðursvalir. Stutt í alla þjónustu. Verð 21,5 millj. Húseignir við Laufásveg - 101 Reykjavík Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Tvær frábærlega staðsettar samliggjandi húseignir í sunnanverðum Þingholtum við Laufásveg eru til sölu. Annars vegar er fjögurra hæða hús í mjög góðu ásigkomu- lagi, sem er samtals 320 fm og einnig sambyggt og nýlega endurbyggt hús með sér (samþykktri) 3ja herbergja 80,5 fm íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi. Góður afgirtur bakgarður með heitum potti og saunahúsi. Tvö sérbílastæði. Í stærri eign- inni er nú rekið huggulegt gistiheimili á heilsársgrunni með frábæru orðspori til margra ára. 8 gestaherbergi fyrir um 20 manns með 4 baðherbergjum ásamt gesta- móttöku, skrifstofu, setustofu, borðsal og eldhúsi á jarðhæð. Til greina kemur sala eignanna eingöngu eða sala eignanna ásamt rekstri. Verð tilboð. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, sími 588 4477 eða 822 8242 Til leigu glæsilegt húsnæði í Bæjarlind 12 Kópavogi 250 og 50 fm Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Um er að ræða ca 250 fm glæsilegt verslunar- og þjónusturými á 1. hæð (aðalhæð), auk þess er 50 fm rými á sömu hæð. Húsnæðið hentar mjög vel undir hvers lags þjónustu, svo sem verslun, apótek og þjónustu og/eða læknastofur, læknatengda starfsemi, sjúkraþjálfun o.m.fl. Húsnæðið er að hluta til opið rými, eldhús, skrifstofur, (læknastof- ur), og salerni. Sérinngangur frá götu. Frábær staðsetning. Góð bílastæði. Mjög gott auglýsingagildi. Í húsinu er í dag m.a. læknatengd starfsemi. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Þorragata Vorum að fá í einkasölu glæsilega 108 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Þorragötu. Auk þess fylgir íbúðinni 19 fm innbyggður bílskúr (innan- gengt). Vandaðar innréttingar. Glæsilegar stofur. Stórar svalir sem eru yfirbyggðar að hluta til. Einstakt útsýni. Húsvörður er í húsinu. Verð 39 millj. MIKIÐ hefur verið rætt síðustu ár innan Evrópu um einkaleyfis- vernd tölvutengdra uppfinninga, þ.e. uppfinninga sem framkvæmdar eru með hjálp tölvuforrita, og hvaða afstöðu Evrópusambandið eigi að taka í þessu máli. Þó nokk- uð hefur verið deilt um það hvort einkaleyfisvernd henti tölvu- forritum og eru viðhorfin mjög mis- munandi hjá framleiðendum hug- búnaðar, hinum ýmsu hagsmunaaðilum og áhugamönnum innan Evrópu. Með grein þessari er ætlunin að skýra í stuttu máli frá því hvernig þessi mál hafa þróast og skoða stöðuna í dag. 20. febrúar 2002, lagði framkvæmda- stjórn ESB fram til- lögu að tilskipun um einkaleyfishæfi tölvu- tengdra uppfinninga (Proposal for a Directive on the patentability of computer- implemented invent- ions). Tillagan hefur verið mikið rædd bæði af þingi ESB og fram- kvæmdaráði ESB en þingið samþykkti til- löguna 2003, með tals- verðum breytingum. Breytingarnar fólu í sér þýðingarmikla tak- mörkun á einkaleyf- ishæfi hugbúnaðar, en samkvæmt þeim var ekki hægt að fá einka- leyfi á tölvutengdum nýjungum á sviði gagnavinnslu né nýjum lausnum byggðum á gagnasamskiptum. Þrátt fyrir andstöðu nokkurra að- ildarríkja og samhljóða ákvörðun þings ESB um að fara þess á leit við framkvæmdastjórn ESB að til- skipunin yrði dregin til baka, tók framkvæmdaráðið þá ákvörðun í mars, að afgreiða tilskipunina að mestu eins og hún hafði komið frá framkvæmdastjórninni en þó var tekið tillit til einhverra breytinga þingsins. Umræðu um þetta efni má rekja til ársins 2000 þegar fram- kvæmdastjórn ESB gaf út skýrslu um einkaleyfisvernd tölvuforrita. Almenningi og aðildarríkjum var boðið að gera athugasemdir við meginefni hennar. Í meirihluta at- hugasemdanna kom fram að þörf væri á skýrri afstöðu til einkaleyf- isverndar tölvuforrita og töldu flestir að sú lagalega óvissa sem væri ríkjandi á þessu sviði og ósamræmi í túlkun aðildarríkja, hefði slæm áhrif á iðnað og efna- hagslíf innan Evrópusambandsins. Hins vegar má segja að þeir sem komu fram með athugasemdir hafi klofnað í tvennt í afstöðu sinni til hvaða aðgerða ætti að grípa, ann- ars vegar voru það þeir sem vildu sjá strangar takmarkanir á einka- leyfisvernd tölvuforrita og hins vegar þeir sem studdu meira eða minna núverandi framkvæmd innan Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) en núverandi tillaga er að mestu byggð á þeirri framkvæmd. Samkvæmt þeirri tillögu sem nú liggur fyrir er ekki veitt einkaleyfi á tölvuforritum sem slíkum, þ.e. einum og sér, heldur tæknilegum uppfinningum (tölvu, tölvukerfi eða Einkaleyfisvernd forrita Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir skrifar í tilefni af alþjóðlega hugverkaréttar- deginum 26. apríl Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.