Morgunblaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 43
DANSKI djass-bassa-
leikarinn Niels-Henning
Ørsted Pedersen lést í svefni
19. apríl, tæplega 59 ára
gamall. Hann fékk
hjarta-áfall. Hann var einn
merki-legasti djass-leikari í
Evrópu. Hann lék inn á meira
en þúsund plötur. Sagt er að
hann hafi getað leikið á
kontra-bassann sinn það
sem gítar-istar leika á sitt
hljóð-færi.
Niels-Henning var mikill
Íslands-vinur og hélt næstum
Merki-legur
bassa-leik-
ari látinn
Niels-Henning Ørsted
Pedersen
tuttugu tónleika hér-lendis, á
meira en 25 árum.
Hann kom fyrst til Íslands
árið 1977 með tríóinu sínu.
Þá spilaði hann sig inn í hjörtu
íslenskra djassunnenda og
þar býr hann enn.
ÞJÓÐ-VERJINN Joseph
Ratzinger var 19. apríl kosinn
páfi í stað Jóhannesar Páls II.
sem lést 2. apríl sl. Hann
verður vígður í dag.
Nýi páfinn tekur sér nafnið
Benedikt páfi sextándi. Hann
er númer 265 í röð páfa
kaþólsku kirkjunnar. Meira
en 1 millj-arður manna játar
kaþólska trú.
Ekki eru allir jafn ánægðir
með valið á nýja páfanum.
Sumum finnst hann alltof
gamal-dags í skoðunum, ekki
síst þegar kemur að vígslu
kven-presta, notkun getn-
aðar-varna, hjóna-skilnaði og
sam-kyn-hneigðum.
Benedikt sextándi er 78
ára og fyrsti Þjóð-verjinn til að
sitja á páfa-stóli í næstum
1.000 ár.
Hann var náinn sam-starfs-
maður Jóhannesar Páls og
mun lík-lega fylgja stefn-unni
sem hann mótaði.
Reuters
Benedikt páfi sextándi í miðjunni.
Nýr páfi vígður
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 43
AUÐLESIÐ EFNI
Landa-mæra-deila leyst
For-sætis-ráð-herrar
Indlands og Kína hafa náð
sam-komu-lagi í erfiðri deilu
ríkjanna út af landa-mærum.
Indland og Kína eru tvö
fjöl-mennustu ríki heimsins.
Landa-mærin á milli þeirra
eru um 4.000 kílómetra löng.
Þessi landamæri eru ekki
alltaf mjög nákvæm.
Ríkin tvö fóru í stríð út af
þeim fyrir 40 árum.
Þetta sam-komu-lag þykir
mjög merki-legt skref í átt að
betra sam-komu-lagi
ríkjanna, m.a. í efna-hags- og
viðskipta-málum.
Ríkisstjórnin 10 ára
Í gær voru 10 ár eru liðin frá
því ríkis-stjórn Sjálf-stæðis-
flokks og Framsóknar-flokks
tók við völdum. Á
föstu-daginn héldu Halldór
Ásgrímsson, for-sætis-ráð-
herra, og Davíð Oddsson,
utan-ríkis-ráð-herra, blaða-
manna-fund af þessu tilefni.
Þeir sögðu að sam-starf
flokkanna þeirra hefði gengið
mjög vel og að miklar
fram-farir hefðu orðið í
land-inu á þessum tíma.
Forseti Ekvador vikið frá
Þingið í landinu Ekvador í
Suður-Ameríku vék í vikunni
forseta landins úr embætti.
Einnig hætti herinn stuðningi
við hann. Lucio Gutierrez var
kosinn forseti árið 2002 en
undan-farið hafa verið mikil
mót-mæli gegn honum.
Alfredo Palacio vara-forseti er
nú orðinn forseti Ekvador.
Brasilía hefur veitt Gutierrez
hæli.
Guðmundur þjálfar Fram
Guðmundur Þ.
Guðmundsson hefur verið
ráðinn þjálfari karla-liðs Fram
í hand-knattleik í stað Heimis
Ríkarðssonar sem þjálfað
hefur liðað síðustu fjögur ár.
Heimir er auðvitað ekki
ánægður með þessa
ákvörðun stjórnar-manna
Fram, og telur hana ranga og
ekki gæfu-spor fyrir félagið.
Stutt
ÞINGMENN Fram-sóknar-
flokksins ætla að birta opin-
ber-lega upp-lýs-ingar um
eigur sínar, hluta-bréfa-eign,
önnur störf og hags-muni.
Jónína Bjartmarz, þing-maður
flokksins, sendi forseta
Alþingis bréf og óskaði þess
að for-sætis-nefnd myndi
setja reglur um slíkar
upp-lýsingar. Það myndi auka
trú-verðug-leika þings-ins.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra fagnar þessari
um-ræðu, og eru for-menn
annarra þing-flokka opnir fyrir
því að upplýst verði um eignir
þing-manna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jónína Bjartmarz þingmaður.
Þing-menn upp-lýsa
um eignir sínar
HAUKAR sigruðu Val á
Hlíðar-enda á fimmtu-daginn.
Þetta var undan-úrslita-leikur
úrvals-deildar karla,
DHL-deildar í hand-knatt-leik.
Marka-staða í lok leiks var
29:27. Nú bíða Haukar
spenntir eftir að fá að vita
hvort þeir leika við ÍBV eða ÍR
til úrslita.
Morgunblaðið/Sverrir
Vignir Svavarsson átti stórleik með Haukum.
Haukar leika til úrslita
Bjargaði lífi
tveggja
barna
KONA sem var að tína skeljar
með vinum sínum í Kol-grafa-
firði bjargaði lífi tveggja barna.
Stúlka og drengur, sem
bæði eru 3 ára, voru í för með
konunni. Þau hlupu niður
háan sjávar-kamb, en gátu
ekki stoppað sig og féllu í
sjóinn. Var vaðið á eftir þeim
og drengnum náð fyrst upp.
Síðan var stúlkunni náð upp,
en hún var orðin með-vitundar-
laus. Konan kann skyndi-hjálp
og notaði blásturs-með-ferð á
stúlkuna og bjargaði þannig
lífi hennar. Miklir straumar eru
í sjónum þarna, og því voru
börnin í mikilli lífs-hættu.
Frakkar
vildu Ísland
FRAKKAR veltu fyrir sér á 18.
öld að skipta við Dani á
Íslandi og ný-lendunni
Louisiana í Norður-Ameríku.
Frakkar vildu byggja
flota-stöð hér á landi til að
ógna veldi Breta bæði í
austur og vestur.
Í Frakklandi er til skjal,
merkt sem leyndarmál, frá
þessum tíma. Það var skrifað
af fremsta stjórn-mála-manni
Frakk-lands og nánum vini
Loðvíks sextánda Frakka-
konungs. Hann hélt að Danir
vildu ná fót-festu í Norður-
Ameríku, og var viss um að
þeir hefðu lítið gagn af Íslandi
og væru því til í skiptin.
FORSETI Íraks greindi í gær
frá að meira en 50 lík hefðu
fundist Tígris-ánni, rétt hjá
höfuð-borginni Bagdad.
Þessu fólki var rænt í bænum
Madain af hryðju-verka-
mönnum fyrir nokkrum
dögum. Fólkið var hneppt í
gísl-ingu og drepið, og síðan
hent í ána.
50 lík í ánni Tígris
Reuters
Jalal Talabani, forseti Íraks.