Morgunblaðið - 24.04.2005, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Málþing um reynsluna af nýju kerfi sam-keppnissjóða vísinda- og tæknirann-sókna verður haldið á Hótel Loftleið-um fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.
Boðað er til málþingsins af Rannís, starfsnefndum
Vísinda- og tækniráðs, menntamálaráðuneytinu og
iðnaðarráðuneytinu.
Hans Kristján Guðmundsson er forstöðumaður
Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís), en Rannís
sér um að reka hina nýju samkeppnissjóði. Hans
Kristján segir að undanfarin tvö ár hafi verið í
gangi nýtt opinbert stjórnkerfi vísinda og tækni og
á málþinginu sé ætlunin að skoða hvernig þetta
nýja kerfi hafi skilað sér. „Fyrir tveimur árum var
stefnumótun í vísindum og tækni flutt inn í nýstofn-
að Vísinda- og tækniráð sem hefur tvo ráðherra
innanborðs. Til að auka fjármagn til rannsókna í
samkeppni var sjóðakerfinu á sama tíma breytt á
þann hátt að þeir tveir sjóðir sem fyrir voru undir
hatti Rannís og hétu Vísindasjóður og Tæknisjóð-
ur, voru sameinaðir í einn sjóð sem heitir Rann-
sóknarsjóður. Í þennan sjóð sækja vísindamenn,
tæknimenn, fyrirtæki, stofnanir og háskólar, fé til
verkefna, allt frá grunnrannsóknum til hagnýtra
rannsókna. Einnig var stofnaður nýr sjóður á veg-
um iðnaðarráðuneytisins sem heitir Tækniþróun-
arsjóður og er hann rekinn af Rannís. Á málþinginu
ætlum við að velta upp spurningum um það hvort
þessar breytingar hafi orðið til góðs eða ills, fara í
gegnum úthlutunarstefnu sjóðanna og einnig verð-
ur skoðað á hvern hátt er unnið úr umsóknum,
hvernig matið fer fram og hver reynslan sé af því.
Við í Rannís ætlum að bregða upp mynd af árangri
stofnana og fyrirtækja í þessu nýja kerfi og skoða
hvort eitthvað megi betur fara og ég efast ekki um
að lífleg umræða skapast um það, því mikill slagur
er um það fjármagn sem til boða stendur. Einnig
munu fulltrúar þeirra stofnana og fyrirtækja sem
sækja í sjóðina, tjá sig um hvernig þetta nýja kerfi
virkar. Við verðum með pallborðsumræður þar sem
púlsinn verður tekinn á þessu nýja kerfi styrkt-
arsjóða, en allir í vísindasamfélaginu eru mjög
gagnrýnir á að þessir sjóðir séu ekki nógu stórir.“
Hans Kristján segir að úthlutað sé einu sinni á ári
bæði úr hinum nýja Rannsóknarsjóði og Tækniþró-
unarsjóði. „Úthlutun úr þessum samkeppnis-
sjóðum er mikilvæg viðbót við vísindasamfélagið,
því eingöngu er úthlutað til gæðaverkefna. Í heild-
ina er það mín tilfinning að ýmislegt hafi batnað
með þessu nýja kerfi og þá fyrst og fremst í formi
aukins fjármagns í sjóðunum.“
Frekari upplýsingar um málþingið má finna á
slóðinni www.rannis.is.
Málþing | Um reynslu af nýju kerfi samkeppnissjóða vísinda- og tæknirannsókna
Púlsinn tekinn á nýju sjóðakerfi
Hans Kristján Guð-
mundsson er fæddur
árið 1946. Hann lauk
prófi í eðlisverkfræði
(civ.ing) við Tæknihá-
skólann í Stokkhólmi
1973 og doktorsprófi í
eðlisverkfræði frá
sama skóla 1982. Hans
Kristján hefur gegnt
starfi forstöðumanns
Rannís frá því árið
2003. Hans Kristján er kvæntur Sólveigu
Georgsdóttur og saman eiga þau soninn
Gunnar Ólaf.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 skraut, 4 hnött-
um, 7 ánægja, 8 lagvopn, 9
voð, 11 heimili, 13 hlífa, 14
gróði, 15 dæld, 17 klúr-
yrði, 20 bókstafur, 22 út-
deilir, 23 ávani, 24 stal, 25
hás.
Lóðrétt | 1 mergð, 2 grein-
in, 3 mjó gata, 4 köggul, 5
nam, 6 skadda, 10 uxans,
12 miskunn, 13 tré, 15
vökvi, 16 rolan, 18 læsum,
19 lofar, 20 stríði, 21 bjart-
ur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 geðprúðar, 8 lútur, 9 Ingvi, 10 kol, 11 tinna, 13
linna, 15 flagg, 18 snæða, 21 ætt, 22 skarf, 23 aular, 24
hlunnfara.
Lóðrétt | 2 ertin, 3 purka, 4 úrill, 5 aggan, 6 hlýt, 7 fita, 12
nag, 14 inn, 15 fisk, 16 aðall, 17 gæfan, 18 starf, 19 ætlar,
20 aurs.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Akureyjakirkja | Kirkjulistaviku lýkur um
helgina með kantötuguðsþjónustu kl. 11 á
sunnudag. Fluttir verða þættir úr kant-
ötunni: „Es ist euch gut dass ich hingehe“
eftir Bach. Í messunni prédikar sr. Jón A.
Baldvinsson, vígslubiskup. Hátíð-
artónleikar kl. 16. Flutt verða verk eftir
Widor og Duruflé. Æðruleysismessa kl.
20.30.
Langholtskirkja | Söngsveitin Fílharmónía
flytur verkið Carmina Burana eftir Carl
Orff í Langholtskirkju 24. og 26. apríl kl.
20. Í flutningnum taka þátt einsöngv-
ararnir Hallveig Rúnarsd., Ólafur Kjartan
Sigurðars. og Þorgeir J. Andréss.,
drengjakór Kársnesskóla og hljómsveit
skipuð 2 píanóum og 6 slagverksleikurum.
Stjórnandi er Óliver Kentish.
Laugarborg | Kristinn Sigmundsson og
Jónas Ingimundarson flytja þýska ljóða-
söngva kl. 15.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Kamm-
ertónleikar kl. 17. Kristján Matthíasson,
fiðluleikari, Ásdís Arnardóttir, sellóleikari
og Þórunn Hulda Guðmundsdóttir, píanó-
leikari, flytja verk eftir Bach, Saint-Saëns,
Jón Nordal og Erik Júlíus Morgensen.
Tónleikarnir eru í tónleikaröð kennara Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar í tilefni
af 40 ára afmæli skólans á síðsta ári.
Seltjarnaneskirkja | Te deum eftir
Charpentier. Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju og Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna kl. 15. Auk þess flytja söngvarar úr
kammerkórnum ýmsar einsöngsaríur með
hljómsveitinni eftir Mozart, Puccini og
Bizet.
Fyrirlestrar
Þjóðmenningarhúsið | Dagskrá í töluðu
máli og tónum um Hallgrím Pétursson –
skáld mánaðarins fer fram kl. 15–16. Stein-
unn Jóhannesdóttir rithöfundur leitar
svara við spurningunni hvað gerði Hall-
grím að skáldi – með áherslu á uppvaxtar-
og mótunarár hans. Bára Grímsdóttir og
Chris Foster leika og spila kvæði Hall-
gríms.
Myndlist
101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson –
Skáhalli tilverunnar (Theo van Doesburg,
Goya og aðrir).
Café Karólína | Myndlistarsýning Baldvins
Ringsted.
Eden, Hveragerði | Davíð Art Sigurðsson
sýnir olíumálverk.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar.
Ólöf Björg.
Gallerí Dvergur | Baldur Bragason sýnir
skúlptúra. Sýningin ber heitið „Vasa-
málverk – vasinn geymir bæði andann og
efnið“.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson Af-
gangar.
Gallerí i8 | Hrafnkell Sigurðsson.
Gallerí Sævars Karls | Regína Loftsdóttir
sýnir olíumálverk máluð á striga.
Gallery Terpentine | Odd Nerdrum og
Stefán Boulter.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gull-
þræðir. Klippimyndir, verk úr muldu grjóti,
olíumálverk og fleira í Boganum.
Grafíksafn Íslands | Daði Guðbjörnsson
sýnir vatnslitamynd.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Sýning Jóhannesar Dags-
sonar, „Endurheimt“. Í samvinnu við
Sophienholm í Kaupmannahöfn og Hafn-
arborg, hefur Johannes Larsen-safnið
sett saman stóra sýningu um danska og
íslenska listamenn og túlkun þeirra á ís-
lenskri náttúru á 150 ára tímabili. Þema
sýningarinnar er „List og náttúra með
augum Norðurlandabúans“.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson –
Sólstafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menn-
ingarsalnum, 1. hæð.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal – eitt verk,
ekkert upphaf né endir.
Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Friðjónsson.
Olíumálverk og skúlptúrar unnir í leir og
málaðir með olíulitum.
Listasafnið á Akureyri | Erró.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–
1945. Rúrí – Archive Endangered waters.
Síðasta sýningarhelgi.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjórar
glerlistasýningar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur
Jónsson og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían
– Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World. Síðasta
sýningarhelgi.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Markmið XI. Hörður Ágústsson. Yfirlits-
sýning. Síðasta sýningarhelgi.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Norræna húsið | Farfuglarnir, sýning sex
norrænna myndarlistarmanna frá Finn-
landi, Danmörku og Íslandi.
Norska húsið í Stykkishólmi | Mál-
verkasýning Péturs Péturssonar.
Saltfisksetur Íslands | Sýning Fríðu
Rögnvaldsdóttur, „Fiskar og fólk“. Allar
myndirnar eru unnar með steypu á striga.
Salurinn | Andi Manns er heiti á sýningu
Leifs Breiðfjörðs. Stórir steindir gluggar,
svífandi glerdrekar, eru uppistaða sýn-
ingar Leifs. Í dag kl.14 verður Leifur með
leiðsögn um sýninguna.
Smáralind | Sýning Amnesty Int-
ernational „Dropar af regni“ stendur yfir í
Smáralind.
Yzt – gallerí og listverslun | Vatnsheimar
– verk Mireyu Samper.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýn-
ingarnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione – ljósmyndir úr fórum Manfroni-
bræðra.
Þrastalundur, Grímsnesi | Sveinn
Sigurjónsson frá Galtalæk 2 í Rang-
árvallasýslu sýnir olíumálverk í Þrasta-
lundi.
Leiklist
Hvolskóli, Hvolsvelli | Fundur hjá Leik-
félagi Rangæinga kl. 20.
Listasýning
Suðsuðvestur | Birta Guðjónsdóttir sýnir í
Suðsuðvestri. Verkin á sýningunni eru
unnin útfrá vangaveltum um upplifun okk-
ar á tímanum. Opið fimmtud. og föstud.
kl. 16–18, um helgar kl. 14–17.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10–17.
Hljóðleiðsögn um húsið, margmiðl-
unarsýning um ævi skáldsins og umhverfi.
Sími 5868066 netfang: gljufrasteinn-
@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu. Hallgrímur er eitt
fremsta skáld Íslendinga fyrr og síðar.
Sýningin gefur innsýn í verk hans og út-
gáfur á þeim hér á landi og erlendis og
þann innblástur sem þau veita listamönn-
um, ekki síst í nútímanum. Drepið er á
æviatriði Hallgríms og staldrað við at-
burði sem marka hvörf í hans ferli.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menn-
ing og samfélag í 1.200 ár. Ómur – Landið
og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Í vesturheimi 1955,
ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslend-
ingar í Riccione, ljósmyndir úr fórum Man-
froni-bræðra. Opið kl. 11–17.
Mannfagnaður
Wesak-hátíðin | Helgasta hátíð ljóssins,
Wesak-hátíðin, er haldin í Síðumúla 15, 3.
hæð, um helgina.
Fréttir
ITC-samtökin á Íslandi | Landsþing ITC á
Íslandi verður haldið dagana 29.–30. apríl
í Oddfellow-húsinu, Vonarstræti 10 í
Reykjavík og er öllum opið. Uppl. fást:
www.simnet.is/itc, eða s: 698–7204/897–
4439.
Fundir
AA-samtökin | Uppkomin börn, aðstand-
endur og alkóhólistar halda 12-spora fundi
öll mánudagskvöld kl. 20–21.30 í Tjarn-
argötu 20, Rvík.
Eineltissamtökin | Eineltissamtökin eru
með fundi alla þriðjudaga kl. 20–21, í húsi
Geðhjálpar, Túngötu 7.
ITC-Harpa | Fundur 26. apríl kl. 20, á
þriðju hæð í Borgartúni 22. Gestir vel-
komnir. Tölvupóstfang ITC Hörpu er itc-
harpa@hotmail.com, heimasíða http://
itcharpa.tripod.com. Nánari uppl. Guðrún
Rut, s: 898 9557.
Kraftur | Aðalfundur Krafts, sem er
stuðningsfélag ungs fólks sem greinst
hefur með krabbamein og aðstandenda
þeirra, verður haldinn 26. apríl í Skóg-
arhlíð 8, 4. hæð. Veitingar í boði Krafts.
Norræna húsið | Á opnum fundi Félagsins
Ísland-Palestína í dag kl. 15–17, munu al-
þingismennirnir Jónína Bjartmarz og
Magnús Þór Hafsteinsson greina frá ný-
yfirstaðinni ferð sinni til hertekinnar Pal-
estínu og Ísraels. Fundurinn hefst með
söng systkinanna Díönu og Mohamads
Einars Laham.
Rauði krossinn | Rauða kross-deildin
heldur aðalfund á Hvolsvegi 31, Hvolsvelli,
á morgun, kl. 20.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nýir vinir og ný andlit gera líf þitt
spennandi og skemmtilegt. Fjárfesting
í nýjum tækjabúnaði og skyndi-
hugdettur í innkaupum koma ánægju-
lega á óvart.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinur segir eða gerir eitthvað sem kem-
ur þér verulega á óvart. Kannski verður
óvenjuleg eða sérvitur manneskja á
vegi þínum. Þú hefur gaman af skrýtnu
fólki en býður því helst ekki heim.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn fær tækifæri til þess að vinna
að hugðarefnum sínum með fulltingi op-
inberra samtaka eða gegnum stóra
stofnun. Vertu opinn fyrir öllum mögu-
leikum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn gælir við ýmsar óvenjulegar
hugmyndir í kollinum. Einhverjir
kynnu að segja að þær væru út í hött,
en hann hefur vegið og metið áhættuna.
Gangi þér vel.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið tekur afstöðu í mikilvægu máli í
dag og kemur öðrum á óvart, ekki síst
tilteknum aðilum. Þú óttast ekki að
standa á sannfæringu þinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan fær hugsanlega óvænt tækifæri
til þess að ferðast, mennta sig eða
þjálfa. Gríptu þau. Ef gæfan brosir við
manni, verður maður að vera móttæki-
legur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin gleðst yfir litlum breytingum
henni í hag, gjöf eða hlunnindum af ein-
hverju tagi. Fólk lítur hana jákvæðum
augum núna. Vertu opin og móttækileg.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn finnur ef til vill til eirð-
arleysis í nánu sambandi í dag. Hann
þráir kannski meiri spennu. Farðu var-
lega, það þýðir ekki að hrista upp í
hlutunum bara af því manni leiðist.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn fær tækifæri til þess að
fræðast um raftæki og tækni í dag.
Kynntu þér framfarir á sviðum sem þú
þekkir ekki. Tæknin er komin til þess
að vera, svo mikið er víst.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ást við fyrstu sýn, spennandi daður,
óvænt partí og skemmtileg dægrastytt-
ing gera daginn spennandi fyrir stein-
geitina. Leyfðu þér að fljóta með.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Óvæntra tíðinda er von í málum sem
varða fasteignir, en jafnframt eru
nokkrar líkur á hagnaði. Óvæntar uppá-
komur tengdar heimili og fjölskyldu
verða á næstunni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samræður við systkini og fólk í daglegu
umhverfi fisksins verða spennandi í
dag. Óvænt slúður berst þér til eyrna.
Samskipti einkennast af gleði og hress-
leika.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú tjáir þig á áhrifaríkan hátt og ert
jafnframt tilfinninganæm og umhyggju-
söm manneskja. Þú kýst öryggi fjölskyldu-
lífsins en ert líka metnaðargjörn í starfi.
Þú ert frábært foreldri.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.