Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 53

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 53
Spoex | Aðalfundur SPOEX, Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, verður hald- inn 27. apríl kl. 20, á Grand Hótel Reykja- vík, Sigtúni 38. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa fjallar Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunardeildarstjóri um: Bláa lónið – Ný húðlækningastöð. Einnig verður fjallað um breytingar á húsnæði félagsins. Kynning Kringlan | Skógræktarfélögin kynna starf- semi sína, með það að markmiði að laða nýja félagsmenn til liðs við hreyfinguna. Þar verður yngri kynslóðunum boðið að skrifa óskir sínar á miða og hengja á ós- katré. Þetta er liður í dagskrá vegna 75 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands á árinu. Smáralind | Skógræktarfélögin kynna starfsemi sína, með það að markmiði að laða nýja félagsmenn til liðs við hreyf- inguna. Þar verður yngri kynslóðunum boðið að skrifa óskir sínar á miða og hengja á óskatré. Þetta er liður í dagskrá vegna 75 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands á árinu. Málþing Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían – Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs- dóttir – Myndheimur. Námskeið Mímir-símenntun ehf | Kristinn R. Ólafs- son útvarpsmaður í Madríd mun sjá um tveggja kvölda námskeið um höfuðborg Spánar dagana 26. og 28. apríl kl. 20–22, hjá Mími-símenntun. Stiklað verður á stóru í máli og myndum um sögu, listir og menningu í Madríd. Skráning hjá Mími- símenntun, s. 5801800 eða á www.mim- ir.is. MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir landsbyggðarfólk um MS-sjúkdóminn verður haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk með nýlega greiningu MS, upp að 2–3 árum. Taugasérfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkr- unarfræðingur, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari veita fræðslu. Námskeiðið verður í húsi MS-félags Íslands á Sléttuvegi 5, Reykja- vík. Upplýsingar veitir Margrét, fé- lagsráðgjafi, í síma 5688620, 8970923. www.ljosmyndari.is | Þriggja daga nám- skeið (12 klst.) fyrir stafrænar myndavélar, 18., 20. og 21. apríl og 25., 27. og 28. apríl kl. 18–22, alla dagana. Verð 14.900 kr. Einnig er boðið upp á fjarnámskeið. Nem- endur fá eigin vefsíðu og eru í tengslum við sinn leiðbeinanda í gegnum tölvupóst. Skráning á www.ljosmyndari.is eða síma 898–3911. Íþróttir Árhús | Boltinn í beinni, sérstakt tilboð í sal þegar meistarakeppnin er. Útivist Ferðafélagið Útivist | Á mánudögum kl. 18 er farið frá Toppstöðinni við Elliðaár og farinn hringur í Elliðaárdalnum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 53 DAGBÓK Myndlistaskólinn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 602 Akureyri http://www.myndak.is/ - info@myndak.is Umsóknarfrestur um skólavist er til 25. maí 2005. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 462 4958. auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 2005 - 2006 FAGURLISTADEILD-FRJÁLS MYNDLIST Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni. LISTHÖNNUNARDEILD-GRAFÍSK HÖNNUN Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og margmiðlun. Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum með því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa rannsóknarritgerð. Með prófskírteini fylgir skrá um námsárangur nemenda allan skólaferilinn ásamt umsögn prófdómara um lokaverkefni. Námseiningar: 90 SÝNINGAR hefjast í dag hjá Leik- félagi Sauðárkróks á leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar, Þrek og tár. Leikritið var frumsýnt í Þjóðleikhús- inu árið 1995 þar sem það sló ræki- lega í gegn. Mörg skemmtileg dæg- urlög prýða verkið sem gerist í vesturbænum á sjöunda áratug síð- ustu aldar. Þar býr venjulegt fólk og fjallar leikritið um þeirra daglega líf og störf með skini og skúrum og óvæntum uppákomum, rétt eins og líf okkar allra. Undir stjórn Jóns Stef- áns Kristjánssonar leikstjóra stíga þar á svið 19 leikarar, margir reyndir, nokkrir nýliðar og flestir góðir söngv- arar, að því er segir í kynningu. Þeim til halds og trausts á sviðinu er hljóm- sveit sem undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar flytur í sýningunni fjölmörg lög sem færa okkur nær stemmningu sjöunda áratugarins. Um 20 manns í viðbót koma að sýn- ingunni eða uppsetningu hennar á einn eða annan hátt. Áætlaðar eru 10 sýningar. Þrek og tár á Sauðárkróki 24. apríl Hvað gerði Hallgrím að skáldi? Þjóðmenningarhús. Kl. 15. Dag- skrá í töluðu máli og tónum um Hall- grím Pétursson (1614–1674). Stein- unn Jóhannesdóttir rithöfundur leitar svara við spurningunni hvað gerði Hallgrím að skáldi og skoðar sérstaklega uppvaxtar- og mótunarár skáldsins. Bára Grímsdóttir, söng- kona, kvæðamaður og tónskáld, syngur og kveður nokkur kvæða Hallgríms, Chris Foster leikur undir á gítar. Ókeypis aðgangur og allir vel- komnir. www.thjodmenning.is. Kaffitilboð á veitingastofunni Mat- ur og menning. Heimur ljóðsins Ljóðaþing í stofu 101 í Odda. Kl. 9.30–17. Helgina 23.–24. apríl verður haldið ljóðaþing í Háskóla Íslands þar sem 32 fræðimenn munu halda erindi um ljóðagerð. Þingið verður með sama sniði og skáldsagnaþing sem haldið var árið 2001 en afrakstur þess varð greinasafnið Heimur skáld- sögunnar sem út kom sama ár. Ljóð- listin verður án landamæra á þinginu, eins og yfirskriftin Heimur ljóðsins ber með sér, þ.e. fjallað verður jafnt um ljóð sem frumort eru á íslensku, þýdd ljóð og óþýdd erlend ljóð. Þingið er öllum opið og stendur frá 9.30–17 báða dagana í stofu 101 í Odda. Vika bókarinnar Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Seljum vegakerfið ÉG VAR að velta því fyrir mér hvort ríkissjóður ætti ekki að selja vegakerfið. Það er algengt í sumum löndum að einkaaðilar eigi vegi, brýr og jarðgöng, eins og t.d. Spöl- ur. Á Íslandi eru líka til margir einkavegir og líklega á þeim eftir að fjölga þegar fleiri auðmenn kaupa jarðir út um allt land. Svo eiga sveitarfélögin götur í þéttbýli sem allir landsmenn geta notað. Það liggur því ljóst fyrir að ríkið er í beinni samkeppni við einkaaðila um rekstur vega. En eins og allir vita geta einkaaðilar rekið vegafyr- irtæki miklu betur en ríkið, og samkeppnin sem þeir þurfa að standa í eftir að þeir hafa keypt vegina mun leiða til þess að kostn- aður við viðhald og rekstur mun lækka og þar með verður ódýrara fyrir okkur að aka um landið okkar. Augljóst er að nauðsynlegt er að einn kjölfestufjárfestir kaupi ráð- andi hlut í vegakerfinu svo stjórn þess verði sterk þannig að fyr- irtækið geti staðið sig í samkeppn- inni. Að vísu eru nokkrir staðir í dreifbýli þar sem einkaaðilar eru ekki tilbúnir til að leggja fé í nauð- synlegar vegabætur vegna þess að umferð verður of lítil til að vegtoll- ar standi undir fjárfestingunni. Þess vegna verður ríkið að nota hluta af hagnaðinum af sölunni til að byggja upp vegina á þessum stöðum. Þetta mun reyndar leiða til þess að ríkið er aftur komið í sam- keppni við einkaaðila, en þá er bara að selja aftur og græða meira. Þetta mun einnig skapa aukna vinnu sérfræðinga í landinu, því nauðsynlegt verður að setja á stofn eftirlitsstofnun sem fylgist með því að nýja fyrirtækið hafi ekki ólög- legt samráð við sjálft sig um gjald- töku af umferð, og fullnægi öllum kröfum sem því eru settar um hreinlæti, umgengni, framkomu við verkafólk o.s.frv. Núverandi starfs- menn Vegagerðarinnar eru tilvaldir til að sinna þessu eftirliti, enda er ljóst að erlendi kaupandinn mun ekki vilja nota dýrt íslenskt vinnu- afl við framkvæmdir, og verður því að segja þeim öllum upp. Þekkt er í Íslandssögunni að svokallaðir Tyrk- ir, eru sérfræðingar í svona vinnu- aflsleigu. Miklu hagkvæmara er að fá starfsmenn á 6 mánaða leigu- kjörum frá þeim en að ráða Íslend- inga sem eru með alls konar sér- kröfur. Þegar upp er staðið getum við öll ekið eftir ódýrum íslenskum vegum með bros á vör, gegn sann- gjörnu gjaldi og glaðst yfir því hve skynsamlega ríkið varði pening- unum sem það fékk fyrir vegina sem við gáfum því. Sigurjón Jónsson, Skólastíg 25, Stykkishólmi. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Gallerí Dvergur Einkasýning Baldurs Geirs Bragasonar; „Vasamálverk – vas- inn geymir bæði andann og efnið“, í sýningarrýminu Galleríi Dvergi, hefur verið framlengd til sunnu- dagsins 1. maí nk. en þá verða gestum veittar rauðlitaðar veit- ingar. Á sýningunni sýnir Baldur Geir nýlega skúlptúra sína og hljóðverk. Sýningarrýmið Gallerí Dvergur er í kjallara við Grundarstíg 21 í Þingholtunum og er sýningin opin föstudaga til sunnudaga frá 17–19 og eftir samkomulagi (s. 865-8719). Sýning framlengd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.