Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 55
MENNING
INNRITUN ð2005-2006i
restur til 30. aprílf
ðalhljóðfæri:
ánari upplýsingar eru
skrifstofu skólans að
aut 54, sími 552 7366
18 alla virka daga, en
g innritun fer rafrænt
en.reykjavik.is/rrvk/.a
Söngskólinn í Reykjavík
sitja þeiru
príl
Búdapest
5. maí - Uppstigningardag
frá kr. 39.990
Helgarferð í 4 nætur - Flug og gisting
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða helgarferð til þessarar stórkostlegu borgar í hjarta
Evrópu 5. maí (Uppstigningardag). Búdapest býður einstakt mannlíf,
menningu og skemmtun að ógleymdri gestrisni Ungverja. Þú velur um
góð hótel í hjarta Búdapest og spennandi kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferða.
Verð kr. 39.990
Flug, gisting, skattar og íslensk farar-
stjórn. M.v. 2 í herbergi í 4 nætur
á 3* hóteli með morgunmat. Netverð.
GARÐVERKFÆRI
Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070
KEÐJUSAGIR
TILBOÐSDAGAR
GREINAKURLARAR
HEKKKLIPPUR
GREINAKLIPPUR
HEKKKLIPPUR
ÚÐAKÚTAR
GARÐSLÖNGUR
SLÖNGUTENGI
ÓDÝRAR HJÓLBÖRUR
DÝRASTA fiðla sögunnar var keypt
á föstudag þegar greiddar voru yfir
tvær milljónir dollara fyrir Stradiv-
arius-fiðlu á uppboði í New York.
Samsvarar þetta um 125 milljónum
króna.
Fiðla lafði Tennant
Fiðlusmiðurinn Antonio Stradiv-
ari smíðaði fiðluna árið 1699 þegar
hann var 55 ára gamall. Nefndist
hún fiðla lafði Tennant, eða „The
Lady Tennant violin“. Hún var seld
hjá Christiés en fyrir uppboðið var
búist við því að 1,2 milljónir dollara
fengjust fyrir hana. Hljóðfærið sem
áður hafði verið dýrasta hljóðfæri í
heimi var líka Stradivarius-fiðla sem
seldist á 1,8 milljónir dollara hjá
Christiés í London.
Reuters
Adela Pena úr Eroica-tríóinu handleikur fiðluna góðu.
Dýrasta
fiðla
sögunnar
ELDRI félagar Karlakórs Reykja-
víkur ásamt sópransöngkonunni
Hönnu Dóru Sturludóttur halda vor-
tónleika í Ými í dag kl. 17.
Efnisskráin er fjölbreytt eins og
kórinn á vanda til, en á þessum tón-
leikum verður starfsemi kvart-
ettsins Leikbræðra sérstaklega
heiðruð, þar sem á þessu ári eru 60
ár frá því að þeir byrjuðu að syngja
saman. Af því tilefni mun kórinn
syngja syrpu af lögum sem kvart-
ettinn gerði vinsæl, en tveir eftirlif-
andi meðlima kvartettsins, Ástvald-
ur Magnússon og Friðjón
Þórðarson, eru meðlimir í eldri fé-
lögum Karlakórs Reykjavíkur. Þá
verður Jóns frá Ljárskógum einnig
minnst með nokkrum lögum við
texta hans, og einu lagi sem hann
sjálfur samdi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur halda vortónleika sína í tónlistarhúsinu Ými í dag kl. 17 en einsöngvari á tón-
leikunum er Hanna Dóra Sturludóttir sópransöngkona. Stjórnandi kórsins er Kjartan Sigurjónsson.
Leikbræðra og Jóns frá
Ljárskógum minnst
KANADÍSKUR fyrrver-
andi blaðamaður að nafni
Paul Kennedy hefur
hleypt af stokkunum her-
ferð, til að tilnefna
söngvarann og lagahöf-
undinn Leonard Cohen
til Nóbelsverðlaunanna í
bókmenntum. Frá þessu
greindi Rachel Rawlins,
menningarblaðamaður á
breska ríkisútvarpinu, í
vikunni.
Kennedy heldur því
fram að Cohen líkist í
mörgu gríska sagnaskáldinu Hómer
og segir hann eiga verðlaunin skilin
fyrir texta sína, sem einkennist af
hæðnislegri sjálfsíróníu. Hann
bendir ennfremur á að talið sé að
Hómer hafi sjálfur verið söngvari.
Virðist fáránleg hugmynd
Í grein sinni bendir Rawlins á að
í mörgum menningarheimum séu
lagatextar mikils virtir, og bendir á
rússneska ljóðahefð sem dæmi þar
sem söngljóðahöfundar hafi þróast
yfir í rokktónlist samtímans, og
lagahöfundar hljóti ósjaldan ljóða-
verðlaun. Hins vegar virðist hug-
myndin um að veita listamanni á
borð við Leonard Cohen Nóbels-
verðlaun mjög óvenjuleg í hinum
enskumælandi
heimi. Verk sumra
söngvara og laga-
höfunda á borð við
John Lennon og
Bob Dylan hafi ver-
ið rannsökuð og við-
urkennd sem „bók-
menntaverk“, en þó
hafi verið hæðst að
nýlegu málþingi um
verk breska laga-
höfundarins Morr-
isseys í nokkrum
breskum fjöl-
miðlum.
Rawlins veltir því
fyrir sér hvort
ástæðan fyrir hinni litlu virðingu
sem vinsælir lagahöfundar njóti í
hinum enskumælandi heimi stafi af
mennta-elítisma – að sjá allt sem er
vinsælt sem ómerkilegt – eða hvort
staðreyndin sé sú að lagatextar á
ensku hafi ekki verið nægilega góð-
ir til þessa.
Mætti Cohen fá
Nóbelsverðlaun?
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Leonard Cohen
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122