Morgunblaðið - 24.04.2005, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.04.2005, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ mbl.is Þriðjudagur 11. janúar 2005 Viðskipti Íþróttir Afþreying Fólkið Fasteignir Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðSmáauglýsingarAtvinnaForsíða Á Atvinnuvef mbl.is er nú hægt að bóka atvinnuauglýsingar, til birtingar í Morgun- blaðinu og á mbl.is, hvort sem þú ert að leita að vinnu eða vantar starfskraft. mbl.is Birtingar einn dagur í Morgunblaðinu og 10 dagar á mbl.is Auðvelt að bóka þú getur pantað auglýsingu þegar þér hentar Auðvelt að leita tekur örskot að finna það sem leitað er að Vöktun þú færð tölvupóst eða SMS þegar rétta starfið finnst Vaktmappan geymir auglýsingar til frekari skoðunar ...atvinna í boði Yfirlit auglýsinga til að skoða og fjarlægja ef óskað er. Einnig prenta út reikning. Panta auglýsingu Upplýsingar um pantanir Spurt og svaraðBreyta netfangi og lykilorði Ný störf í dag Það mátti helst ekki tala mik-ið við hann um Guns N’Roses, að minnsta kostiekki tala bara um þessa fornfrægu sveit sem kom banda- rísku rokki til bjargar á ögurstundu þegar allir voru gjörsamlega að kafna í hárlakki og andlitsfarða; yf- irborðsmennskan algjör. Sem er kannski skiljanlegt ef út í það er hugsað. Ekki myndi ég nenna að tala út í eitt um gamla kærustu, harðgiftur maðurinn. Harðgiftur Slash er reyndar líka harðgiftur, og það í tvöfaldri merkingu. Hann er orðinn fjölskyldumaður; á eiginkonu og tvö börn, Perlu Ferrar, sem hann giftist fyrir fimm árum og synina London og Anthony, sem eru þriggja og eins árs gamlir. En hann er líka harðgiftur inn í nýja hljóm- sveit, Velvet Revolver, sem vænt- anleg er til landsins og mun halda tónleika í Egilshöll 7. júlí. „Hei, já, ég er að koma til Íslands. Ég hlakka til,“ segir hann eins og hann hafi bara áttað sig þá fyrst á því að hann ætlaði að koma við á eyj- unni litlu í miðju Atlantshafi og spila þar í fyrsta sinn. Það var einmitt eig- inkonan sem kom fyrst í símann, kallaði á manninni sinn: „Slash! Slash! Blaðamaður frá Íslandi í sím- anum!“ Hann er staddur á ónefndu hóteli á vesturströndinni þar sem hann er skráður inn undir bráðfyndnu – ónefndu – dulnefni, á miðri tónleika- ferð um Bandaríkin. Hljóðin í kring- um hann koma ekki úr hávaðasömu partíi, hrópandi og ælandi rokk- hundum að fleygja sjónvörpum út um gluggann. Nei, það er fjöl- skyldustund hjá rokkaranum hrokk- inhærða, þeim hinum sama og gaf sig út hér í eina tíð fyrir að vera dug- legasti drykkjubolti rokksins og skartaði stuttermabol með íslensk- ættaða Svartadauðanum til að sanna það, þeim hinum sama og oftar en einu sinni hefur verið talinn af vegna ofneyslu eiturlyfja en alltaf rankað við sér úr rotinu á síðustu stundu. „Ég er alveg orðinn laus úr viðjum þessara harðari efna, en ég slæ samt ekki hendinni á móti einu og einu rauðvínsglasi og skoti öðru hverju. Það fer mér ekki að vera alveg heil- agur,“ segir hann og hlær eins og tíu ára prakkari. Svartidauði „Ég á ennþá stuttermabolinn, hélt mikið uppá hann á Svartadauða- tímabilinu. Það var þegar ég lifði á vodka, drakk flösku – að ég hélt til að koma skapinu í lag. Nú veit ég betur. Er eldri, vitrari – og úthalds- minni. Ætli sé bara ekki hægt að segja að ég sé skynsamari náungi núorðið, þekki mín takmörk. Svo hef ég miklu meira að tapa núna en hér áður fyrr, þarf að axla stærri ábyrgð eftir að ég eignaðist fjölskyldu – og er fullkomlega meðvitaður um það. Svo er það spilamennskan, sem mað- ur lifir náttúrlega enn fyrir.“ Slash segir líf sitt hafa gjörbreyst eftir fæðingu fyrsta barnsins fyrir þremur árum. „Án þess að vilja hljóma eins og ég sé hjá Opruh þá verð ég samt að segja að þá fyrst sá ég lífið í réttu ljósi og áttaði mig á hvað skiptir mestu máli. Ég fór að setja mér markmið og velta fyrir mér hvað ég virkilega vildi fá út úr því að vera tónlistarmaður. Þetta var ekki lengur spurning um að vera bara endalaust í tómu rugli – þótt það sé nú stundum ansi gaman.“ Saul Hudson er fertugur og hefur ekki verið í hljómsveitinni sem má helst ekki tala um í heil níu ár, eða síðan hann gafst endanlega upp á söngvara sveitarinnar, hinum snar- geggjaða og sjálfumleiða Axl Rose. „Ég hef ekki talað við hann síðan þá,“ svarar hann þegar blaðamaður vogar sér að spyrja út í samband þeirra. „Leiðir okkar hafa ekki legið saman og ég sé það heldur ekki ger- ast. Hvers vegna?“ Hópmeðferð Fyrir þremur árum fóru þeir svo að djamma saman þrír félagarnir úr Guns N’ Roses, Slash, Duff McKag- an og Matt Sorum. Strax á fyrstu æfingunni fundu þeir að krafturinn og hungrið til að búa til alvöru rokk og ról væri sannarlega enn til staðar, svo ekki sé minnst á frelsið sem í því fólst að vera laus við nagið í bless- uðum Axl Rose. Þeir fengu því Dave Kushner, gamlan félaga úr Los Ang- eles-rokksenunni, til að leika á gítar og ákváðu að gera hæfilega alvöru úr, stofna hljómsveit. Eftir að hafa prófað nokkra óþekkta söngvara án þess að finna neistann stakk McKagan upp á Scott Weiland, söngvara Stone Temple Pilots, sá væri á svipuðu róli og þeir, og meira að segja búinn að ganga í gegnum meira helvíti en þeir allir til samans. „Ég þekkti hann ekkert persónulega áður. En ég þekkti auðvitað Stone Temple Pilots og var með Weiland á topp fimm yfir þá söngvara sem ég vildi helst hafa í bandinu. Hann hafði rétta fasið, sömu sýn og við. Var tilbúinn að hætta allri steypunni og þráði af hafa á ný gaman af því að búa til tónlist, þráði tilfinninguna sem maður fær þegar maður er að stofna sína fyrstu hljómsveit.“ Og þrátt fyrir að virka sem hálf- gerð hópmeðferð – með fimm fyrr- verandi dópistum innanborðs – þá er töggur í Velvet Revolver, þeir gera það sem þeir geta best; rokka og það hrátt og hátt, nákvæmlega þá tónlist sem þeir fíla best og vinir þeirra líka. Og þessir vinir eru greinilega ansi margir því þegar fyrsta plata sveitarinnar Contraband kom út í fyrra þá seldist hún hraðar en nokk- ur önnur fyrsta plata hljómsveitar hefur áður gert í Bandaríkjunum og stærstu leikvangar eru jafnan troð- fullir þegar þeir eru á sviðinu. Slash segir tónlistina ekki litaða af fjölskyldulífinu, hann sé ekkert á leiðinni að fara að semja um það hversu gott það er að elska konu eins og Perlu, rokkhjartað tifi ennþá af sama ógnarþunga, jafnstíft og áð- ur. „En ég er ekki eins upptekinn af sjálfum mér og áður.“ Fantagóðir Slash áréttar líka að þeir félagar í bandinu hafi aldrei sest niður og rætt málin á einlægan og opinskáan hátt, engin tími hefði gefist fyrir slíka naflaskoðun því rokkið væri þeirra tjáningarmáti fyrst og síðast. Aðspurður hvers konar tónleika íslensku áhofendurnir eiga í vænd- um segir Slash erfitt að lýsa því með orðum. „Við erum einfaldlega fanta- góðir á tónleikum, njótum okkar best á sviði. Ólíkir öllu öðru sem komið hefur fram í rokkinu síðasta áratuginn; frakkir, sexí … nei, strákurinn er í Velvet-bol og með Velvet-hatt,“ segir Slash og er far- inn að fylgjast með syni sínum London. „Segðu Velvet Revolver,“ heyrist í Perlu og síðan í þeim stutta með upprennandi rymjandi þunga- rokksröddu: „Vevet revove! Vevet revove!“ „Hann er ansi upptekinn af vinnunni hans pabba,“ segir Slash, og stoltið leynir sér ekki í annars af- slappaðri og vissulega örlítið lifaðri röddinni. Aðspurður hvort búast mætti við einhverjum Guns N’ Roses og Stone Temple Pilots-lögum inn á milli Velvet-laganna á tónleikunum í Eg- ilshöllinni sagði Slash það líklegra en ekki. „Við erum vanir að taka nokkur með hvorri sveit, lög sem okkur standa næst. Engin ástæða til að grafa þau þótt við séum ekki leng- ur í sveitunum sem fluttu þau fyrst.“ Og að endingu er Slash minntur á að gleyma ekki stuttermabolinn fræga; hann ætti að framkalla sælar minningar og sannan fögnuð meðal íslensku tónleikugestanna. „Ég ætla að reyna að muna það, takk.“ Tónlist | Gítarhetjan Slash er væntanleg til landsins með hljómsveit sinni Velvet Revolver Harðgiftur í hópmeðferð Gamla gítarhetjan úr Guns N’ Roses er aftur komin á beinu brautina og nýtur lífsins í nýju hljómsveitinni sinni Velvet Revolver. Hann segir Skarphéðni Guðmundssyni að þótt hann sé nú orðinn reglufastur fjölskyldumaður sé rótleysið og villimennskan enn við lýði þegar að rokkhjartanu kemur. Reuters Slash og Scott Weiland, söngvari Velvet Revolver, í góðum málum á tónleikum í Las Vegas í desember 2004. „Scott er frábær rokksöngvari, einn sá besti, og það sannast best þegar hann er á sviðinu,“ segir Slash um félaga sinn. Miðasala á tónleika Velvet Revolv- er hefst í dag sunnudag í útibúum Íslandsbanka í Kringlunni og Smáralind kl 12.00 á hádegi. Einn- ig verða seldir miðar í Pennanum Akranesi og Vestmannaeyjum, Dagsljósi Akureyri, Hljomsýn Keflavík og Hljóðhúsinu Selfossi. Netsala verður á www.farfugl- inn.is. Miðaverð í A svæði 6.500 kr. og 5.500 í B svæði. Mínus hitar upp, seinni upphitunarhljómsveit tilkynnt síðar. skarpi@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.