Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 59

Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 59
Þriðja platan kemur út í haust og Týr spilar bæði á Prix-inu og í G!-há- tíðinni í Götu í sumar, þar sem við- staddir verða útsendarar frá Road- runner, þekktustu þungarokks- útgáfu heims. Knút Háberg Eysturstein Knút er hljómborðsleikari Gesta, sigurvegara Prix Föroyar frá því í hitteðfyrra. Bræðurnir Torfinnur og Ólavur Jákupssynir sömdu að mestu efni þeirrar sveitar og steig Knút því fram með eigið efni á plötunni Havs- glóð sem út kom fyrir jól. Hann fær aðstoð frá hinum og þessum, m.a. Högna Lisberg, en í litlu samfélagi virðist sem allir sem vettlingi geta valdið leggi ætíð hönd á plóg. Tón- listin er lágstemmd og einlæg, og fer frá kassagítarpoppi yfir í dramatískt síðrokk að hætti Sigur Rósar. 200 Önnur plata pönksveitarinnar 200, Viva La Republica, er nýkomin út og það í einkar glæsilegri pakkningu. Sveitin lék á Íslandi fyrir u.þ.b. þremur árum og á bassa er Mikael Blak, sonur Kristian Blak, eiganda Tutl, helsta tónlistargúrus eyjanna (Kristian er einskonar blanda af Ás- mundi Jónssyni og Árna Matthías- syni). Hiklaust eitt besta færeyska bandið starfandi í dag og hefur náð að þróa með sér mjög sérstæðan og persónulegan stíl. Líkt og finnskur Elvis Presley hefði ákveðið að stofna pönksveit. Meðlimir eru róttækir sambandsslitssinnar. Með plötunni fylgir bæklingur, sem inniheldur op- inber dönsk skjöl sem gefa til kynna ýmsar vafasamar aðferðir til að treysta stöðu herraþjóðarinnar. Makrel Makrel er nú um stundir vinsæl- asta sveit Færeyja og lá við upp- þotum þegar það kom í ljós að það átti ekki að hleypa þeim í úrslit Prix- ins. Dómnefndin er víst leynileg og hefur þetta valdið miklum úlfaþyt á meðal tónlistaráhugamanna í eyj- unum. Plata Makrel, Wonderland, er önnur plata sveitarinnar og mikil framþróun frá þeirri síðustu, Makrel stinkar. Sú plata var tekin upp í Geimsteini fyrir verðlaunafé sem sveitinni áskotnaðist úr Músíktil- raunum árið 2002, en þá lenti hún í þriðja sæti. Var það Kiddi úr Hjálm- um sem tók upp á þremur dögum. Nýja platan er hins vegar einkar metnaðarfull – framsækið rokk sem minnir á köflum á Tool/A Perfect Circle, þó blessunarlega sé ekki ver- ið að reyna að afrita þær sveitir. Enekk Enekk er þjóðlagasveit sem er dýrkuð og dáð af Færeyingum þó að hún sé lítt þekkt utan eyjanna. Höf- undur getur vottað um að þetta er glæpsamlegt, enda hreint frábær sveit á ferðinni, en hún er leidd af Kára nokkrum Sverrissyni. Ein af fyrri plötum þeirra, Ver sterk mín sál, er algjört meistaraverk, ein besta plata sem ég hef á ævi minni heyrt. Meðan vit nærkast jörðini er fjórða plata Enekk og kom út síðasta haust. Hún var tekin upp á um viku og þar er einstakri sýn Kára og fé- laga um hvernig þjóðlagatónlist eigi að vera enn og aftur hrint í fram- kvæmd. Annað … Við skulum að lokum stikla á stóru yfir fleiri markverðar plötur sem eru nýkomnar út. Platan Litleysir blettir er eftir efnilegt söngvaskáld, Krist- leif Zachariasen sem vann söngva- skáldakeppnina Singer/Songwriter sem nýbyrjað er að halda í eyjunum. Gogo Blues er eins og nafnið gefur til kynna blúshljómsveit og gaf hún út sína fyrstu plötu fyrir stuttu, Live in Studio. Sveitin nýtur nú feiki- vinsælda í eyjunum og keppir til úr- slita í Prix Föroyar á laugardaginn. Nýútkomin er einnig plata ungsveit- arinnar Zink, Totally Love Songs, en hún leikur einskonar brettapönk að hætti Green Day, galgopalegt og blátt áfram. Safnplatan Ampaljóð kom út í fyrra en er ekki á vegum Tutl, held- ur einskonar tónlistarmiðstöðvar í Þórshöfn sem kallast Margarin Fabriken. Hér eiga Zink lög en einn- ig Lama Sea og sveitirnar 48 Pages og Speaker en þær tvær heimsóttu Ísland síðasta sumar. Tutl er virt útgáfufyrirtæki í þjóð- lagatónlistinni og stundum teygir það sig út fyrir landsteinana og gef- ur út tónlist frá öðrum Norður- löndum og jafnvel víðar. Þannig blandar hljómsveitin Sula saman skandinavískum og skoskum straumum á nýrri plötu sinni, Over Seas. Þess má geta að nokkur tón- listarlegur samgangur er á milli Færeyja og hinna nærliggjandi Orkneyja og Shetlandseyja, Deja Vu, sem náði öðru sæti í Prix Föroyar í hitteðfyrra er þá að fara að gefa út plötu og einnig Braquet, rokksveit sem hefur verið starfandi giska lengi og eru miklar vonir bundnar við breiðskífu þeirra. Þá er komin út tónleikaplata með sveitinni Yggdrasil sem ætti að kæta aðdáendur Eivarar en hún sér þar um söng. Sveitin hefur og á að skipa þeim feðgum, Mikael og Kristian Blak og tónlistin er einskonar heims- tónlistardjass. Greint hefur verið ítarlega frá annarri starfssemi Eivarar á þess- um síðum, en nýjasta plata hennar, Tröllabundin, var tekin upp með hljómsveit danska ríkisútvarpsins. Söngvaskáldið Teitur Lassen, eða einfaldlega Teitur, hefur þá náð mjög langt alþjóðlega en plata hans, Poetry & Aeroplanes, kom út á veg- um Universal árið 2003 og hefur hann verið að flengjast um á tón- leikaferðalagi síðan. Ekkert liggur fyrir enn um nýja plötu frá honum. Plötubúðin og útgáfan 12 Tónar hefur séð um innflutning á plötum frá Tutl en færeyskar plötur ætti þó að vera hægt að nálgast í öllum betri plötubúðum hér á landi. Knút Háberg Eysturstein, hljóm- borðsleikari Gesta, gaf út hina prýðilegu Havsglóð í haust. 200 – róttækt pönk af bestu gerð. Deja Vu leikur þekkilegt popprokk í anda Coldplay og Leaves. – ww.tutl.com – www.pop.fo – www.prix.fo arnart@mbl.is Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 5.50 Sýningartímar Sýnd kl. 6 o g 9 Kinsey Sýnd kl. 3.40 Door in the Floor Sýnd kl. 4 Darkness Sýnd kl. 10.40 Túlkun Bruno Ganz á Hitler er stórkostleg. Ein besta stríðsmynd allra tíma. Magnþrungið meistaraverk um síðustu dagana í lífi Hitlers séð með augum Traudl Junge sem var einkaritari Hitlers i i í í lí i i l l i i i i l Every family could use a little translation F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS S.K. DV Sýnd kl. 8 Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl. 5.50 og 8 Sýnd kl. 3.40 og 10.15 Sýnd kl. 3.40, 8 0g 10.15 Nýjasta mynd eins allra virtasti leikstjóri heims Pedro Almódavar sem hefur fengið lof gagnrýnenda og verðlaun um allan heim. „Sterkasta mynd Almódavar í tvo áratugi.“ (Village Voice). Í aðalhlutverki er latneska súperstjarnan Gabriel Garcia Bernal og Fele Martinez. HOUSE OF FLYING DAGGERS Sýnd kl. 6  FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SCREAM MYNDIRNAR! Hún fær þig til að öskra! Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven! f r i til r ! a a r r llv kj tryllir frá s rav !  FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SCREAM MYNDIRNAR!I Hún fær þig til að öskra! Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven! Sýnd kl. 2 og 4 m/ísl. taliSýnd kl. 2 og 4. m. ísl. tali Magnaður spennutryllir T H E INTERPRETER Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina sem getur fundið morðingjann JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS A FILM BY LOIS LETERRIER HÖRKU SPENNUMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA FEMME NIKITA Hann var alinn upp sem skepna og þjálfaður til að berjast. Nú þarf hann að berjast fyrir lífi sínu! Heimsfrumsýnd á Íslandi Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi 16 ára Sýnd kl. 5.45, 8 og 10 B.I 16 ÁRA Heimsfrumsýnd 29. apríl - BARA LÚXUS553 2075☎ T I L B O Ð Á F Y R S T U S Ý N I N G A R D A G S I N S - A Ð E I N S 4 0 0 K R . A T H : t i l b o ð s s ý n i n g a r e r u s é r m e r k t a r m e ð r a u ð u Sýnd kl. 6, 8 og 10 Er hægt að fyrirgefa hið ófyrirgefanlega? Kevin Bacon sýnir stórleik sem dæmdur barnaníðingur er reynir að koma lífi sínu í eðlilegan farveg eftir 12 ára fangelsisvist. Tilnefnd til fjölda verðlauna. Frá framleiðendum Monsters ball Kevin Bacon MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 59

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.