Morgunblaðið - 25.04.2005, Blaðsíða 28
MINNINGAR
28 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Bílamálarar
Bílaspítalinn, þjónustuaðili fyrir Heklu hf. í
Hafnarfirði, vantar bílamálara, bifreiðasmið
og mann vanan undirvinnu til starfa sem fyrst.
Aðeins vandvirkir, stundvísir og reglusamir
aðilar koma til greina.
Upplýsingar gefur Ingvi í síma 565 4332 frá
kl. 8-18 virka daga og 897 3150 eftir kl. 19.00.
Bifvélavirki
Viljum ráða vanan lærðan bifvélavirkja til starfa
sem fyrst. Tölvukunnátta æskileg.
Aðeins stundvís og reglusamur kemur til greina.
Upplýsingar gefur Ingvi í síma 565 4332 virka
daga og 897 3150 eftir kl. 19.00 og um helgar.
Bílaspítalinn, þjónustuaðili Heklu.
Raðauglýsingar 569 1111
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður
haldinn kl. 20:00 þriðjudaginn 26. apríl 2005
í Skútunni, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning í kjörstjórn.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Fjarðargata 35a, fnr. 212-5522, Þingeyri, þingl. eig. Gunnar Jakob
Línason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Ísafjarðarbær, föstu-
daginn 29. apríl 2005 kl. 10:30.
Hafnarstræti 2, versl.hús fnr. 212-5562, Þingeyri, þingl. eig. Kristján
Fannar Ragnarsson, gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Ísafjarðar-
bær, föstudaginn 29. apríl 2005 kl. 10:45.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
22. apríl 2005.
Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi.
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um
að eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum
nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Sjóvörn við Hvaleyrarhöfða, Hafnarfirði.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
23. maí 2005.
Skipulagsstofnun.
Fundarboð
Opinn fundur um skipulag
á Bílanaustreit
Þriðjudaginn 26. apríl nk. verður íbúafundur
á vegum skipulags- og byggingarsviðs
Reykjavíkur og Hverfisráðs Laugardals, þar
sem kynnt verður fyrirhugað skipulag á Bíla-
naustreit. Deiliskipulagstillagan er nú í aug-
lýsingu og rennur frestur til athugasemda út
þann 4. maí nk.
Fundurinn verður haldinn á skipulags- og
byggingarsviði, Borgartúni 3, 4. hæð, og hefst
hann kl. 20:00.
Skipulagshöfundar, Kanon arkitektar og Teikni-
stofan Tröð, kynna skipulagið.
Að auki verða eftirtaldir aðilar frá Reykjavíkur-
borg á fundinum:
Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs,
Salvör Jónsdóttir, sviðsstjóri skipulags- og
byggingarsviðs og Björk Vilhelmsdóttir, borg-
arfulltrúi, formaður hverfisráðs.
Fundarstjóri Björk Vilhelmsdóttir.
Allir eru velkomnir
Skipulags- og byggingarsvið,
Hverfisráð Laugardals.
Félagslíf
HEKLA 6005042519 IV/V Lf.
I.O.O.F. 19 1854258 M.R.
I.O.O.F. 10 1854258
Aðalfundur
Slysavarnadeildarinnar Þorbjörns,
Björgunarsveitarinnar Þorbjörns,
Björgunarbátasjóðs Grindavíkur og
unglingadeildarinnar Hafbjargar verður
haldinn í björgunarstöðinni í Grindavík sunnu-
daginn 1. maí nk. kl 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnir.
Morgunblaðið óskar eftir að ráða starfsmann í mötuneyti.
Í mötuneytinu er framreiddur aðkeyptur matur, en starfsmenn sjá jafnframt um að útbúa
kaffimeðlæti. Starfið felst auk þess í frágangi og þrifum í eldhúsi, þjónustu vegna funda
o.þ.h. Um er að ræða vinnu á vöktum frá kl. 9.00-20.30 virka daga.
Við leitum að starfsmanni sem hefur reynslu af ofangreindu, er snyrtilegur, þjónustulipur og
samstarfsfús. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Bjarnadóttir í síma 893 8633.
Umsóknarfrestur er til 10. október nk.
STARFSMAÐUR Í MÖTUNEYTI
Sölustjóri á nýju sölu- og markaðssviði Árvakurs hf., útgáfufélags
orgunblaðsins, óskast til starfa.
Við leitum að einstaklingi sem hef r reynslu, hæfni og enntun til að
sinna daglegri stjórn n söludeildar, hefur talsverða reynslu af
sölumálum og getur veitt viðskiptavinum okkar ráðgjöf varðandi
sölumál, auk þess að sjá um gerð tilboða og sölusamninga.
Viðkomandi þarf að ve a m naðarfullur, sýna frumkvæði, vera
sveigjanlegur, skipulagður og hafa hæfileika í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Kr Sigurðardóttir
ÖLU TJÓRI AUGLÝSINGA
Umsóknir er hægt að fylla út á mbl.is:
http://www.mbl.is/morgunblaðið/ :
Sækja um starf hjá Morgunblaðinu.
Mötuneyti.
Einnig liggja umsóknareyðublöð frammi í
afgreiðslu Morgunblaðsins. Og þangað
skal skila umsóknum merktum mötuneyti
Morgunblaðsins
Umsóknir er hægt að fylla út á
mbl.is, http://mbl.is/, neðst á
forsíðu, sækja um starf, velja
markaðsstörf. Einnig má skila
umsóknum í afgreiðslu Morgun-
blaðsins, Kringlunni 1. Þar liggja
einnig frammi umsóknareyðublöð.
Vegna aukinna umsvifa í sölu óskar Morgunblaðið eftir starfsmönnum
til starfa á sölu- og markaðssviði.
Starfið felur í sér sölu auglýsinga í Morgunblaðið.
Við l itum að dugmiklum og líflegum starfsmönnum sem haf
brennandi áhug á sölumennsku. Reynsla á sviði sölustarfa er æskileg.
Nánari upplýsingar u starfið fást hjá Gylfa Þór Þorsteinssyni
sölustjóri auglýsinga í síma 569 1133 eða gylfi@mbl.is, eða hjá
starfsmannah ldi í sím 5691342
FÓLK ÓSKAST
Umsóknir e hægt að fylla út á
mbl.is, http://mbl.is/, neðst á
forsíðu, sækja um starf, velja
auglýsingasala. Einnig má skila inn
umsóknum í afgreiðsl
Morgunblaðsins, Kri glunni 1.
Þar liggja ein ig frammi
umsókn reyðublöð.
Nágranni okkar í tæpa fimm ára-
tugi Hjörtur Guðmundsson hefur nú
kvatt þessa jarðvist. Minningar okk-
ar af Hirti eru allar á einn veg, hann
var öðlingur, traustur, trúr, hjarta-
hlýr og mikill húmoristi. Fyrstu
kynni okkar urðu á sjötta áratug síð-
ustu aldar þegar fjölskyldan hóf hús-
byggingu í Löngubrekku 47 í Kópa-
vogi. Á þeim árum höfðu Hjörtur og
eiginkona hans Guðrún eignast sex
börn en tvö bættust síðan við í
Löngubrekkunni. Framgangsmáti
við að grafa grunn á þessum árum
var yfirleitt sá að vinnuvélar fengust
til verksins en hjónin grófu grunn að
húsinu sínu sjálf með haka og skóflur
að vopni og byggðu húsið með eigin
höndum. Húsið reis og fjölskyldan
stóra hreiðraði þar um sig. Heimili
Hjartar og Guðrúnar einkenndist af
gleði og góðum samskiptum. Menn-
ing skipaði þar stóran sess, píanó í
stofunni og mikið sungið og spilað.
Hjörtur var um margt á undan sinni
samtíð, matargerð og þá sérstaklega
bakstur lék í höndum hans. Nágrann-
arnir á 43 og 47 stofnuðu sælgætis-
gerð í kjallaranum á 43 og framleiddu
þar karamellur eftir uppskrift Fjólu-
pabba sem var faðir Hjartar. Börnin
á bæjunum tveimur sáu um innpökk-
un áður en þeim var komið á markað.
Hann átti lengi Willysjeppa sem tók
ótrúlega marga farþega og ekki mun-
aði um að bæta nágrannastelpunum í
bílinn þegar farið var í sunnudags-
bíltúr.
Á langri samleið sem spannar nú
næstum hálfa öld viljum við þakka
samfylgdina sem aldrei hefur borið
skugga á. Vottum við eftirlifandi eig-
inkonu hans, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum innilegustu samúð
okkar.
Hvíl í friði
Jórunn og Jón,
Helga og Torfhildur.
HJÖRTUR MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
Mig langar til að
minnast góðrar vin-
konu minnar, hennar
Guggu, í örfáum orð-
um. Þó að ég hafi ekki
þekkt Guggu nema í örfáa mánuði
þá fannst mér ég samt þekkja
hana eins vel og ömmu mína er ég
kvaddi staðinn sem ég hitti hana á
er ég útskrifaðist. Guggu kynntist
ég í lok septembermánaðar á síð-
GUÐRÍÐUR
HANSDÓTTIR
✝ Guðríður Hans-dóttir fæddist í
Reykjavík 29. des-
ember 1929. Hún lést
í St. Franciskusspít-
alanum í Stykkis-
hólmi 11. apríl síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá
Fossvogskapellu 19.
apríl.
astliðnu ári. Ég var
nýlagstur inn á spítala
er ég tók eftir þessari
brosmildu konu sem
sat inni í stofunni og
benti mér að koma til
sín. Hún spurði mig
hverra manna ég væri
og hvers vegna ég
hefði verið lagður inn.
Þegar í ljós kom að
við áttum við sama
vandamál að stríða þá
urðum við góðir vinir.
Mér er einkum minn-
isstætt hversu góða
umönnun Gugga fékk
á spítalanum og má segja að hún
hafi verið besta vinkona hverrar
einustu konu sem vann þar. Oft
þegar við sátum inni í stofunni á
kvöldin þá leyfðum við Guggu að
ráða hvaða sjónvarpsstöð horft var
á og einkum á miðvikudögum því
þá var Þórhallur miðill á dagskrá
og hún hafði gaman af því að horfa
á hann.
Gugga var alltaf elskuleg við
mig og ég bar alltaf mikla virðingu
fyrir henni. Að lokum langar mig
til þess að segja það hversu þakk-
látur ég er fyrir að hafa kynnst
henni Guggu. Hún var yndisleg
kona. Ég votta aðstandendum
hennar mína innilegustu samúð.
Tryggvi Rafn Tómasson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningar-
greinar