Morgunblaðið - 28.07.2005, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.lyfja.is
- Lifið heil
VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR
- ALDREI OF SEINT!
Vectavir
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum
stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar
framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2
klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við
ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram
ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir
minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
GL
†S
IN
GA
ST
OF
AN
/S
IA
.I
S
L
YF
2
84
55
06
/2
00
5
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi – Laugarási
LANDMÆLINGAR Íslands hófu í
gær, í samvinnu við Landhelg-
isgæsluna, Jarðvísindastofnun Há-
skóla Íslands og Veðurstofu Íslands,
mælingar á Hvannadalshnúk, hæsta
tindi landsins. Flogið var með mæli-
tæki sem munu safna gögnum í tvo
sólarhringa áður en þau verða sótt
aftur. Í sömu ferð var einnig komið
fyrir mælitækjum á tveimur öðrum
stöðum í nágrenni hnjúksins til að
fylgjast með hreyfingum jarðskorp-
unnar undir Öræfajökli.
Að sögn Þórarins Sigurðssonar,
forstöðumanns mælingasviðs Land-
mælinga Íslands, gekk vel að koma
GPS-staðsetningartækjunum fyrir
enda veður með eindæmum gott, en
GPS-búnaðurinn er með nákvæm-
ustu mælitækjum sem völ er á í dag.
„Núna mun það mæla fram á föstu-
dag og þá er farið aftur upp og tækin
tekin niður. Síðan, eftir versl-
unarmannahelgi, munum við vinna
úr þessum mælingum og við erum að
vonast til þess að geta komið með
niðurstöður í enda næstu viku,“ seg-
ir Þórarinn. Umræddur búnaður er
þrífótur sem loftnet er sett á, sjálft
mælitækið auk rafgeymis sem knýr
búnaðinn áfram. „Það eru gervitungl
á braut umhverfis jörðu sem senda
merki frá sér sem loftnetið og mót-
takarinn taka við, og á þessu byggj-
um við þessar mælingar sem við er-
um að gera. Við hlöðum niður
mælingum og það gerir tækið sjálf-
virkt þarna uppi.“
Hvannadalshnúkur hefur verið
talinn 2.119 metrar á hæð allt frá því
að danski liðsforinginn Johan Peter
Koch mældi hnjúkinn ásamt leiðang-
ursmönnum vorið 1904, og rataði sú
tala inn í allar kennslubækur og
fræðirit um Ísland. Í júní í fyrra
mældist hnjúkurinn hinsvegar 2.111
metrar þegar félagar í Jöklarann-
sóknarfélagi Íslands tóku sig til og
mældu hann með GPS-búnaði.
„Fyrst þessi vísbending kom frá
Jöklarannsóknarfélaginu þá fannst
okkur alveg tilvalið að taka þetta á
100 ára fresti og mæla hæðina,“ seg-
ir Þórarinn sem býst við að fá sömu
tölur og fengust í fyrra. „Þetta verð-
ur örugglega einhverstaðar á milli
2.110 og 2.112 metra, hugsa ég.“
Hvanna-
dalshnúkur
mældur
Vænta má að hnúkurinn sé lægri
en almennt hefur verið talið
Þórarinn Sigurðsson og Guðmundur Valsson sáu um að koma GPS-búnaðinum fyrir sem mun
mæla sjálfvirkt fram á föstudag. Þá verður búnaðurinn sóttur og unnið úr upplýsingunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Séð yfir Hvannadalshnúk úr suðri. Á toppnum sést í menn sem virka afar smáir í samanburði við umhverfið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti menn og búnað á Hvannadalshnúk í blíðskaparveðri í gær.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG
Vestfjarða mun fara yfir stöðu fyr-
irtækja í sjávarútvegi og fiskvinnslu
á Bíldudal sem hlutlaus aðili og
ákveðið vinnuferli fer í gang sem
ganga þarf hratt fyrir sig, að sögn
Guðnýjar Sigurðardóttur, skrif-
stofustjóra bæjarskrifstofu Vestur-
byggðar og staðgengils bæjarstjóra.
Þetta var niðurstaða fundar sem
haldinn var á þriðjudaginn, en hann
sátu allir þingmenn kjördæmisins,
nema Magnús Stefánsson, Sturla
Böðvarsson samgöngumálaráð-
herra, fulltrúar frá Atvinnuþróun-
arfélagi Vestfjarða og bæjarstjórn
Vesturbyggðar. Uppsagnir allra
starfsmanna fiskvinnslufyrirtækis-
ins Bílddælings hf. á Bíldudal tóku
gildi fyrsta júlí og misstu þá um 50
manns vinnuna. Fyrirtækið var
stærsti vinnuveitandi bæjarins og
með lokuninni lagðist af eina fram-
leiðsluatvinnugreinin á staðnum,
þar sem rækjuverksmiðjunni var
lokað í vetur.
Ákvörðun væntanleg bráðlega
Þreifingar hafa verið uppi um
hvort starfsemi verði haldið áfram á
staðnum og segir Guðný að vænt-
anlega verði ákvörðun tekin bráð-
lega.
„Nú fer þessi greining á fjárhags-
legri og rekstrarlegri stöðu í gang
og síðan verður að taka afstöðu til
þess hvort opinber aðstoð komi til
eða hvernig staðið verði að þessu
miðað við þær niðurstöður sem
fást,“ segir Guðný.
Hún getur ekki svarað því á þess-
ari stundu hvort sömu aðilar muni
taka að sér rekstur á ný. Hún bend-
ir hins vegar á að það segi mikið að
þarna hafi verið fimm rekstrarað-
ilar á tólf árum. „Þess vegna vilja
menn fara í ýtarlega greiningu
núna,“ segir Guðný.
Þreifingar í atvinnumálum á Bíldudal
Hlutlaus aðili fer
yfir stöðu mála „ÉG sef þegar það er vont veð-ur,“ segir Kjartan Jakob Hauks-
son, sem nú rær kringum landið
til styrktar hjálparliðasjóði
Sjálfsbjargar, en hann vonast til
að geta lagt af stað frá Ingólfs-
höfða til Víkur í Mýrdal í dag.
Róðurinn myndi taka hann rúm-
an sólarhring en Kjartan segist
vel geta róið á annan sólarhring
ef veðrið er í lagi.
Kjartan náði að Jökulsárlóni í
fyrradag en komst ekki lengra
vegna veðurs, m.a. þoku. „Ég
hefði viljað fara mikið lengra í
dag [gær] en veðrið stoppaði
mig. Fyrir hádegi var ágætis
veður en síðan var ég með vind-
inn í fangið og strauminn á móti
mér,“ segir Kjartan sem þarf að
hafa mun meiri áhyggjur af
veðrinu en af umferðaröngþveiti
um verslunarmannahelgina.
„Ég fylgist vel með veðrinu og
stekk af stað um leið og þetta lít-
ur vel út,“ segir Kjartan.
Sefur þegar
veður
er vont