Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fljótfærni, 8 ör-
lög, 9 ól, 10 veiðarfæri, 11
tálga, 13 tómum, 15 toll,
18 óhamingja, 21 blóm, 22
skóf í hári, 23 að baki, 24
léttlyndur.
Lóðrétt | 2 erfið, 3 drátt-
ardýrin, 4 hefja, 5 fléttað,
6 tuddi, 7 tölustafur, 12
dreg úr, 14 ótta, 15 stofu-
húsgagn, 16 stétt, 17 ófús,
18 reykti, 19 kynið, 20
beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 breks, 4 fjöld, 7 líðum, 8 örgum, 9 ill, 11 römm, 13
alur, 14 ærleg, 15 bjór, 17 grun, 20 hal, 22 keyta, 23 eljan,
24 nýtin, 25 tunna.
Lóðrétt | 1 bílar, 2 eyðum, 3 sómi, 4 fjöl, 5 öngul, 6 dæmir,
10 lúlla, 12 mær, 13 agg, 15 bókin, 16 ólykt, 18 rýjan, 19
nenna, 20 hann, 21 lest.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Aukin ábyrgð vegna barnauppeldis er
líkleg á næstu misserum. Hrúturinn
veltir því mikið fyrir sér hvað hann eigi
að gera við líf sitt á meðan.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Viðgerðir og endurbætur verða í brenni-
depli á næstunni. Nautið einbeitir sér að
því að festa ráð sitt og búa sér tryggan
grundvöll í lífinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Flutningar eða breytingar á starfs-
högum eru líklegar á næstu árum. Eitt-
hvað gerist sem breytir sýn þinni á ver-
öldina. Vertu opinn fyrir því.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn veltir því mikið fyrir sér hvað
skipti máli í lífinu núna. Á yfirborðinu
virðist hann upptekinn af tekjumögu-
leikum sínum, innst inni skoðar hann
gildismat sitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Satúrnus, lávarður karmalögmálsins, er
í ljóni núna. Afleiðing þess er alger upp-
stokkun; ljónið á eftir að læra ýmislegt
nýtt á næstu tveimur árum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan þarf að spá í leiðir til þess að
skera niður í lífi sínu. Einhverjir í meyj-
armerkinu ákveða að gefa frá sér eigur,
hætta í vinnu eða slíta sambandi á næst-
unni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin finnur fyrir sífellt sterkari hvöt til
þess að vera hluti af einhverju æðra.
Hún þráir að láta til sín taka í heiminum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er byrjaður að átta sig á
því hvað virkar í lífi hans og hverju þarf
að breyta. Þannig vex máttur hans og
megin. Drekinn er mjög sterkur um
þessar mundir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gerðu áætlanir um að auka menntun
þína eða þjálfun á sviði sem vekur áhuga
þinn. Þú værð væntanlega tækifæri til
þess á næstu tveimur árum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hægðu ferðina aðeins, maki þinn gæti
skipt um vinnu á næstu tveimur árum.
Eitthvað neyðir steingeitina til þess
reiða sig alfarið á sjálfa sig. Hún fer létt
með það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nánustu sambönd vatnsberans þurfa að
þola ýmsar raunir um þessar mundir.
Komið er að því að horfast í augu við
nokkur úrlausnarefni. Endapunktur er í
sjónmáli í sumum tilfellum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Búðu þig undir að þurfa að leggja heil-
mikið á þig á komandi árum. Spenntu
beltið og haltu af stað. Ekki hafa áhyggj-
ur, þú ferð létt með það sem framundan
er.
Stjörnuspá
Frances Drake
Ljón
Afmælisbarn dagsins:
Þú ferð létt með að ná árangri á því sviði
sem þú kýst og setur markið hátt. Þér læt-
ur vel að eiga samskipti við almenning
og jákvæðni og rausnarskapur eru þér
eiginleg. Árið ætti að verða þér gott.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Peter Fredin.
Norður
♠7652
♥103
♦DG105
♣G109
Vestur Austur
♠K1084 ♠D93
♥D82 ♥54
♦6 ♦K872
♣86532 ♣KD74
Suður
♠ÁG
♥ÁKG976
♦Á943
♣Á
Suður spilar fjögur hjörtu og fær út
lítið lauf.
Svíinn Peter Fredin er að góðu
kunnur á Íslandi, enda tíður gestur á
Bridshátíð. Fredin er nú staddur í
Atlanta í Bandaríkjunum á Sum-
arleikum bandaríska bridssambands-
ins. Í fyrsta móti leikanna, Live Mast-
ers-tvímenningnum, varð Fredin
sagnhafi í fjórum hjörtum í suður.
Útspilið var smátt lauf og austur
lét drottninguna. Tíu slagir eru aug-
ljóslega auðsóttir, en Fredin vildi
meira. Hann valdi að spila hjartaníu í
öðrum slag til að skapa innkomu í
borði á tíuna fyrir tígulsvíningu.
Vestur horfði nokkra stund á níuna,
en lét svo lítið hjarta!?
Fredin stakk upp tíunni og hefði nú
getað tryggt sér toppskor með því að
taka trompin. En mikið vill meira.
Fredin taldi víst að vestur ætti fjórlit
í trompi, svo hann svínaði tvisvar í
tígli. Því miður – vestur stakk síðari
tígulinn og spilaði laufi og nú var
Fredin aftur kominn niður í tíu slagi.
En Fredin sætti sig ekki við það.
Hann tók öll trompin og spaðaás.
Austur henti vandað spaðadrottningu
í ásinn og Fredin spilaði enn spaða í
þeirri von að austur ætti kónginn og
yrði að spila frá tígulkóngi í lokin.
Þvert á móti átti vestur spaðakónginn
og þrjá slagi á spaða, svo spilið fór
einn niður og Fredin fékk tæran botn.
Það er engin furða að bridshöf-
undar hafi gaman af að fylgjast með
Svíanum við borðið. Reyndar var það
Fredin sjálfur sem kom spilinu á
framfæri við ritstjóra mótsblaðsins
og hann benti líka á leiðina að tólf
slögum: Ef sagnhafi notar innkomuna
á hjartatíu til að trompsvína í laufi
fær vörnin aðeins einn slag á tíg-
ulkóng!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Tónlist
Bar 11 | Hljómsveitirnar Hölt hóra og Astara
spila frá kl. 21 á Bar 11. Tónleikarnir eru hluti
af Grapevine Bad Taste-tónleikaröðinni.
Café Rosenberg | Hljómsveitin Maður með
Hund leikur djass og funktónlist. Hljómsveit-
ina skipa þeir Jóhannes Þorleiksson á
trompet, Kristján Martinsson á píanó, Leifur
Gunnarsson á bassa og Snorri Páll Jónsson
á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er
aðgangur ókeypis.
Grand Rokk | Á fimmtudag: The Heavy
Coats frá Bandaríkjunum. Á föstudag: Jon-
athan Richman og Tommy Larkins.
Græni hatturinn | Gleðitríóið Hvanndals-
bræður heldur tónleika á Græna hattinum á
Akureyri kl. 21. Á efnisskránni verða ný lög í
bland við gömul.
Hallgrímskirkja | Hádegistónleikar. Sig-
urður Flosason saxófónleikari og Gunnar
Gunnarsson orgelleikari flytja efnisskrá sem
þeir nefna „Íslensk ættjarðarlög í nýju ljósi“.
Á efnisskránni eru þekkt íslensk ættjarð-
arlög eins og Land míns föður, Hver á sér
fegra föðurland, Nótt, Ísland er land þitt og
fleiri.
Hótel Borg | Stórsveit Nix Noltes heldur
tónleika með Balkansveiflu í Gyllta sal Hót-
els Borgar kl. 20. Einnig kemur fram hjóm-
sveitin Hudson Wayne. Aðgangseyrir 500
kr.
Leiklist
Skemmtihúsið | Ferðir Guðríðar, leikrit í
Skemmtihúsinu á Laufásvegi 22 á hverju
fimmtudagskvöldi kl. 20 og alla sunnudaga
kl. 18 til loka ágústmánaðar. Leikkonan Car-
oline Dalton. Leikstjóri og höfundur er
Brynja Benedikdóttir. Flutt á ensku.
Myndlist
101 gallery | Þórdís Aðalsteinsdóttir til 9.
sept. Opið fimmtudaga til laugardaga frá kl.
14–17 eða eftir samkomulagi.
Austurvöllur | Ragnar Axelsson. Ljós-
myndasýningin Andlit norðursins til 1. sept.
Árbæjarsafn | Unnur Knudsen sýn. til 4.
ágúst. Opið frá 10–17 alla daga.
BANANANANAS | Ragnar Jónasson til 30.
júlí.
Café Karólína | Eiríkur Arnar Magnússon. Til
26. ágúst.
Café Presto | Reynir Þorgrímsson, Skart-
gripir Fjallkonunnar.
Eden, Hveragerði | Jón Ingi Sigurmundsson
sýnir olíu-, pastel- og vatnslitamyndir til 7.
ágúst. www.joningi.com.
Galíleó | Árni Björn Guðjónsson til 29. júlí.
Gallerí 100° | Dieter Roth til 21. ágúst.
Gallerí Ash Varmahlíð | Hlynur Hallsson
sýnir í Gallerí Ash í Varmahlíð til 1. ágúst.
Gallerí Humar eða frægð! | Myndasögur í
sprengjubyrgi. Til 31. ágúst.
Gallerí Terpentine | Gunnar Örn til 13. ágúst.
Gallerí Tukt | Sigrún Rós Sigurðardóttir til
30. júlí.
Gel Gallerí | Kristrún Eyjólfsdóttir sýnir mál-
verk sín til 30. júlí.
Gerðuberg | Lokað vegna sumarleyfa.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til 1.
ágúst.
Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Bene-
diktsson, Fiskisagan flýgur – ljósmyndasýn-
ing til 31. ágúst.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21 ágúst.
Ute Breitenberger og Johann Soehl til 31.
júlí.
Hótel Klöpp | Mark Keffer til 28. júlí. Boreas
Salons.
Hrafnista Hafnarfirði | Trausti Magnússon
til 23. ágúst.
Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í
Bergen. Til 4. sept.
Laxárstöð | Sýning Aðalheiðar S. Eysteins-
dóttur, Hreindýr og dvergar, í göngum Lax-
árstöðvar.
Listasafn ASÍ | Sumarsýning Listasafns
ASÍ 2005, til 7. ágúst. Aðgangur er ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Skrímsl – Óvættir
og afskræmingar, til 21. ágúst.
Listasafn Ísafjarðar | Katrín Elvarsdóttir
sýnir nýja ljósmyndaseríu sem kallast
„Heimþrá“. Mánudaga – föstudaga frá kl. 13
til 19 og laugardaga frá kl. 13 til 16.
Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel
Kuri, Jennifer Allora og Guillermo Calzadilla,
Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir, John
Latham, Kristján Guðmundsson til 21. ágúst.
Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn-
ingu má nú sjá sænskt listgler.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischert il 21. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sumarsýning Listasafns Íslands.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sum-
arsýning – Aðföng, gjafir og lykilverk eftir
Sigurjón Ólafsson. Safnið er opið milli klukk-
an 14 og 17.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | 28. maí – 28.
ágúst 2005. „Rótleysi“ markar þau tíma-
mót að tíu ár eru liðin frá stofnun lýðræðis í
Suður–Afríku. Opið kl. 12–19 virka daga, kl.
13–17 um helgar.
Norræna húsið | Grús – Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir, Helgi Þórsson, Magnús Logi Krist-
insson. Terra Borealis – Andy Horner. Til 28.
ágúst.
Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn til 24.
júlí.
Safnahús Borgarfjarðar | Pétur Pétursson
sýnir. Opið virka daga kl. 13 til 18. Sýningin
stendur til 19. ágúst.
Skaftfell | Myndbreytingar – Inga Jóns-
dóttir sýnir til 13. ágúst. Davíð Örn sýnir
„Þriðja hjólið“.
Skriðuklaustur | Guiseppe Venturini, stend-
ur til 14. ágúst.
Slunkaríki | Áslaug Thorlacius.
Suðsuðvestur | Olga Bergmann til 31. júlí.
Thorvaldsen Bar | María Kjartansdóttir til
12. ágúst.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson sjá www.or.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll. Port-
rettmyndir Kristins Ingvarssonar. Story of
your life – ljósmyndir Haraldar Jónssonar.
Sýningin varpar ljósi á margbrotið eðli ljós-
myndarinnar, náin og um leið flókin tengsl
hennar við einstaklinginn, raunveruleikann,
umhverfið, tímann, frásögnina og minnið.
Sýningin Mynd á þili er afrakstur rannsókna
Þóru Kristjánsdóttur á listgripum Þjóð-
minjasafns Íslands frá 16., 17. og 18. öld.
Listasýning
Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi,
Röndótt – köflótt, í Kornhúsinu. Opið í sumar
frá kl. 10–17.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á
efni sem tengist ferðamönnum í Reykjavík.
Aðgangur er ókeypis.
Handverk og Hönnun | „Sögur af landi“. Til
sýnis er bæði hefðbundinn íslenskur listiðn-
aður og nútímahönnun úr fjölbreyttu hrá-
efni.
Listasafn Ísafjarðar | Sýningin Heimþrá eft-
ir Katrínu Elvarsdóttur. Stendur til 1. októ-
ber. Mán.–fös. kl. 13–19, lau. kl. 13–16.
Norska húsið í Stykkishólmi | Sýning til-
einkuð samfelldum veðurathugunum á Ís-
landi í 160 ár.
Saltfisksetur Íslands | Fært úr stað – Ólöf
Helga Guðmundsdóttir og María Jónsdóttir
til 16. ágúst. Saltfisksetrið er opið alla daga
frá kl. 11–18.
Undir stiganum. Bæjarbókasafnið í Þor-
lákshöfn | „Húsdýrin okkar og aðrar vætt-
ir“. Til 30. júlí. Lokað sun.
Vínbarinn | Rósa Matthíasdóttir sýnir
mósaíkspegla.
Söfn
Árbæjarsafn | Útiminjasafn með fjöl-
breyttum sýningum, leiðsögumönnum í
búningum og dýrum í haga.
Bókasafn Kópavogs | Dagar villtra blóma.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17.
Nánar á www.gljufrasteinn.is.
Lindasafn | Núpalind 7, Kópavogi. Safnið er
opið alla daga í sumar. Skáld mánaðarins er
Arnaldur Indriðason. Safnið er opið mán. kl.
11–19, þri. til fim. kl. 13–19, fös. kl. 13–17.
Minjasafnið á Akureyri | Eyjafjörður frá
öndverðu, saga fjarðarins frá landnámi fram
yfir siðaskipti. Akureyri – bærinn við Pollinn,
þættir úr sögu Akureyrar frá upphafi til nú-
tímans. Myndir úr mínu lífi… Ljósmyndir
Gunnlaugs P. Kristinssonar frá Akureyri
1955–1985.
Ráðhús Þorlákshafnar | Margar tegundir
uppstoppaðra fiska.
Skriðuklaustur | Sýning um miðalda-
klaustrið að Skriðu og fornleifarannsókn á
því. Sýndir munir úr uppgreftri síðustu ára
og leiðsögn um klausturrústirnar.
Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík | Granda-
garði 8. Fyrsta sýning safnsins, „Togarar í
hundrað ár“. Opnunartími: kl. 11–17. Lokað
mánudaga.
Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu eru opnar alla daga frá kl.
11 til 17. Helstu sýningar eru Handritin, Fyr-
irheitna landið og Þjóðminjasafnið – svona
var það. Norrænt bókband 2005. Á sýning-
unni er áttatíu og eitt verk eftir jafnmarga
bókbindara frá Norðurlöndunum. Sýningin
fer um öll Norðurlöndin og verður í Þjóð-
menningarhúsinu til 22. ágúst. Opið frá kl.
11–17.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1200 ár, á að veita innsýn í sögu
íslensku þjóðarinnar frá landnámi til nútíma.
Á henni getur að líta um 2000 muni allt frá
landnámstíð til nútíma auk um 1000 ljós-
mynda frá 20. öld.
Skemmtanir
Café Victor | DJ’s lifandi tónlist alla fimmtu-
daga í sumar. Fjör og fimm í fötu fílíngur.
Kaffi Sólon | Lifandi músik á efri hæð Sólon.
Neðri hæð – dj Andrés með eletronic ses-
sion.
Útivist
Þjóðgarðurinn Þingvöllum | Sverrir Jak-
obsson sagnfræðingur fjallar um Þingvelli
og heimsmynd Íslendinga á tímabilinu 1100–
1400 í göngu á Þingvöllum kl. 20. Gangan
hefst við fræðslumiðstöð þjóðgarðsins við
Hakið ofan Almannagjár.
Markaður
Ferðaþjónustan Lónkot | Markaður í tjald-
inu að Lónkoti í Skagafirði 31. júlí. Markaður-
inn er opinn kl. 13–17. Sölufólk getur pantað
borð hjá ferðaþjónustunni í Lónkoti í síma
453–7432.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
HLJÓMSVEITIN Ísafold heldur
svokallað Húkkaraball í bænum á
Hressó, Austurstræti, í kvöld og
segir í tilkynningu að með tónleik-
unum vilji hljómsveitin stuðla að
því að allir eigi ástríka og ham-
ingjusama Verslunarmannahelgi.
Meðlimir Ísafoldar eru þau Bene-
dikt Brynleifsson á trommum,
Birgir Kárason á bassa, Guðrún
Lísa Einarsdóttir söngkona, Vignir
Stefánsson á hljómborði og Krist-
ján Grétarsson gítarleikari. Hljóm-
sveitin stígur á svið kl. 21.30 og
spilar úti í garði. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis.
Húkkaraball í bænum
mbl.is
smáauglýsingar