Morgunblaðið - 28.07.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.07.2005, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 28. júlí kl. 12.00: Sigurður Flosason, saxófón og Gunnar Gunnarsson, orgel 30. júlí kl. 12.00: Anne Kirstine Mathiesen, orgel 31. júlí kl. 20.00: Danski organistinn Anne Kirstine Mathisen, leikur m.a. verk eftir Bach og Widor. OPNUNARSÝNINGU Richard Wagner- hátíðarinnar í Bayreuth var illa tekið af áhorf- endum, en hún fór fram síðastliðinn mánudag. Frá þessu greindi The New York Times. Um var að ræða nýja uppfærslu á Wagner- óperunni Tristan og Ísold eftir svissneska leik- stjórann Christophe Marthaler, sem leikstýrði nú í fyrsta sinn í Bayreuth. Í titilhlutverkum voru Ro- bert Dean Smith og Nina Stemme, og hljómsveit- arstjóri var Eiji Oue, fyrsti asísk-ættaði hljóm- sveitarstjórinn sem stjórnar í Festspielhaus, konserthúsinu í Bayreuth. Sýningin á Tristan og Ísold var sögð „kuldaleg“ og „skurðstofuleg vitsmunaleg túlkun“. Alls verða þrjátíu sýningar á fimm óperum; Tristan og Ísold, Lohengrin, Hollendingnum fljúgandi, Tannhäuser og Parsifal, á Wagner- hátíðinni í ár. Uppselt er á hverja einustu sýningu. AP Orðin kuldaleg og skurðstofuleg hafa verið notuð til að lýsa opnunarsýningu Wagner-hátíðarinnar í ár, á óperunni Tristan og Ísold. Púað en uppselt í Bayreuth Í ANDA Baudelaire tekst Hörður Gunnarsson á við prósaljóð í þriðju bók sinni Með mér er Regn. Ljóðin eru ort í látlausum stíl og á góðu máli; þau eru vel uppbyggð, hnitmiðuð og mynd- málið einfalt. Þessi hreini stíll gerir ljóðin oft mjög sterk og þung undiralda fylgir þeim. Oft hefur maður á til- finningunni að stormur sé í aðsigi eða að minnsta kosti hellidemba. Ekki dregur þar úr að maður finnur sterkt fyrir einsemd og söknuði. Höfundur nær þó að sneiða algerlega hjá allri tilgerð og tekst á við þessar þungvægu tilfinningar af heiðarleika. Barns- leg angurværð í garð fyrri tíma – liðinna augnablika – einkennir þau ljóð sem takast hvað best. Eins og í „Skuggi af dreng“, „Sálufélagi“ og eftirfarandi ljóði, „Gamlárs- kvöld“. „Ég hef ekki enn fundið fyrir þessum ekka/ yfir því að hafa fæðst. Ég er inni í bílnum/ með valhoppandi stúlkunni. Hún horfir út/ um hliðarrúðuna sem er þakin frostrósum./ við erum að aka á milli lífs og dauða./ Öll þessi kerti í kirkjugarðinum ljósin/ í lífi ein- hverra. Skyndilega fer stúlkan/ að tala „Amma, við vorum að kaupa/ flugelda ég hef aldrei séð þig nema/ á ljósmynd. Er gaman hjá þér/ er afi þarna líka./ Gleðileg jól Amma.““ Það sem fer höfundi þó best er hversu hreinskiptinn hann er, eins og sjá má í „Þunglyndið verður ekki flúið“. „Sumir morgnar eru sjálfs- heimsendalegir/ enginn á ferli. Sólin kemur ekki upp/ fyrr en á hádegi. Það er gráskýjað/ og rign- ir eins og í kvikmynd. Ef vel er hlustað má enn heyra/ Chopin spilaðan./ Því minna sem ég um- gengst fólk/ því sýnilegri verður Regn“ Það eina sem finna mætti að þessari annars ágætu bók er að á nokkrum stöðum gera vélrænar endurtekningar vart við sig sem draga úr mætti ljóðanna. En á heildina litið er Með mér er Regn býsna heilsteypt og vel samin. Regn- skuggi BÆKUR Ljóð Höfundur Hörður Gunnarsson, 56 bls. Lafleur 2005 Með mér er Regn Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir SUMARSÝNING Listasafns ASÍ inniheldur málverk og vatns- litamyndir úr stofngjöf safnsins frá Ragnari í Smára og eru flest frá fimmta áratug síðustu aldar. Sýn- ingunni er skipt niður á milli sala þannig að í arinstofu má sjá af- straktmyndir eftir Svavar Guðna- son og Þorvald Skúlason, í gryfju eru verk eftir Jóhannes S. Kjarval og í Ásmundarsal eru mannlífs- myndir og uppstillingar eftir Gunn- laug Scheving, Jóhann Briem, Jón Engilberts, Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur og Snorra Ar- inbjarnar auk höggmyndar eftir Sigurjón Ólafsson. Texti eftir Kristínu G. Guðnadótt- ur, listfræðing og forstöðumann listasafnsins, sem skrifaður var í til- efni sýningarinnar Gjöf Ragnars í Smára í fyrra er látinn nægja sem texti fyrir þessa sýningu líka, enda að mestu sömu verk þó upphengið sé annað. Þetta ber ákveðinn vott um þreytu endurtekningarinnar eða það að úr of litlu fjármagni er að moða við uppsetningu sýning- arinnar. Það vekur til umhugsunar um nýlegar hugmyndir Ólafs Kvar- ans um tiltekna uppstokkun milli listasafna Íslands og Reykjavíkur og í því sambandi hvort tuttugustu aldar myndlistarverk Listasafns ASÍ ættu ekki að vera inni í þeirri hugmynd á einhverjum ásætt- anlegum forsendum. Í fyrrgreindum texta segir að Nútímalistasafnið í New York hafi haft augastað á mynd Kjarvals, Fjallamjólk, en Ragnar hafi haft aðrar hugmyndir um framtíð verks- ins og skrifað til safnsstjóra Nú- listasafnsins: „Þær (myndirnar) verða ekki seldar vegna þess að líf þessarar þjóðar byggist á því að við höfum þær stöðugt hjá okkur eins og streymandi vatnið í fossinum, sem knýr vélarnar, hitar húsin og kveikir á tundrinu í sálinni. Það væru svik við eitthvað í sjálfum mér að flytja þær burtu til frambúðar.“ Núna rúmum fjörutíu árum eftir að Ragnar í Smára gaf 120 verk sem stofngjöf að listasafni ASÍ er ljóst að samhugur og samstarf inn- an hins íslenska listheims ásamt pólitísku brautargengi þarf til að láta draum hans um stöðugt að- gengi íslenskrar alþýðu að þessum verkum svo og annarra sem eru í eigu listasafnanna í landinu rætast. Svo ekki sé minnst á aðgengi út- lendra listunnenda að menningar- arfi sem þjóðin ákvað að halda hér heima, lágmark er að bjóða upp á stöðugt aðgengi, sérstaklega á tím- um þar sem útrásarhugmyndir eru í algleymi. Ræktarsemi, virðing og rannsóknir á íslenskri myndlist- arsögu eru grundvöllur þess að tengja menningarlega vitund okkar við menningarstarf annarra þjóða og gegna lykilhlutverki í að vekja upp raunverulegan áhuga á ís- lenskri samtímalist á sömu for- sendum. Flest verkin í ASÍ eru gerð um miðja síðustu öld á tímum sem eru gjörólíkir okkar. Í desem- ber 1950 þegar jólaappelsínurnar komu að mestu ónýtar til landsins og fjölskylduskammturinn var minnkaður í kjölfarið var auglýst vegleg listaverkabók um Kjarval með orðunum „fegursta gjöfin sem þjóðin getur eignast.“ Á sama tíma var haldin stór yfirlitssýning á ís- lenskri myndlist í hinu nýja Þjóð- minjasafni sem fjöldi manns borgaði sig inn á. Í tilefni þessarar sýningar var tekið viðtal við Jón Stefánsson listmálara sem sagði í lok þess: „Og eitt er víst, að þeir sem ekki sjá neytt nýtilegt í nútímalist, þeir sjá ekki heldur hið besta og dýrmæt- asta í hinni gömlu.“ Nútímalist þessara ára er orðin gömul í sam- anburði við list samtímans sem er aðgreind með heitinu samtímalist. En orð Jóns Stefánssonar eiga við í dag jafnt sem þá. Daglegt aðgengi að Fjallamjólk og öðru listmeti síðustu aldar MYNDLIST Listasafn ASÍ Freyjugötu 41 Stendur til 7. ágúst Listasafn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17 Sumarsýning á verkum úr eigu safnsins Fjallamjólk Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals. Þóra Þórisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.