Morgunblaðið - 28.07.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.07.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 31 UMRÆÐAN Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyr- irmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum til- vikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppn- islög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á hon- um. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hags- muni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrver- andi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar HUGMYND bæjarstjóra Kópa- vogs um að gefa lóð undir óp- eruhús þar í bæ var óvænt, en lýs- ir þó vel stórhug stjórnenda bæjarins og áhuga þeirra á að gera vel við hinar ýmsu list- greinar. Þessari hugmynd hefur verið vel tekið af tals- mönnum Íslensku óp- erunnar sem og ýms- um öðrum, þar á meðal leiðaraskrif- urum stærstu dag- blaðanna. Ég vil þó leyfa mér að gera eftirfarandi athugasemdir. Tónlistarhúsið í Reykjavík á að rísa á næstu 3 árum í miðbæ Reykjavíkur. Þar er gert ráð fyrir mjög góðri aðstöðu til óperusýninga, glæsi- legum áheyrendasal, stóru sviði, hljómsveitargryfju, ljósabúnaði og öðrum tæknibúnaði, sem nota þarf við óperusýningar. Nú í vor fékkst samþykki fyrir því að svið hússins verði þannig úr garði gert að auðvelt verður að flytja sviðsbúnað inn og út á skömmum tíma, en það var áður það eina sem á vantaði til að Tón- listarhúsið hentaði vel til óp- eruflutnings. Tveir aðilar hafa gert tilboð í byggingu og rekstur Tónlistar- hússins og verða tilboð þeirra og hugmyndir kynnt innan skamms. Þá mun væntanlega koma í ljós að í húsinu verður glæsileg aðstaða til óperusýninga. Ég hef áður bent á það að Tón- listarhúsið sjálft þarf á óperu að halda ekki síður en að óperan þarfnast aðstöðu í húsinu. Ef Tónlistarhúsið ætti að nota nær eingöngu í þágu Sinfón- íuhljómsveitarinnar stæði salur þess auður 300 kvöld á ári! Mikilvægt er að hafa í huga að kjarna tónlistarhúsa og annarra listastofnana er ekki að finna í stein- steyptum veggjum, heldur fyrst og fremst í því lífi sem lifað er innan þeirra veggja. Það verður marg- víslegur ávinningur af því að óperan fái að- stöðu til sýninga í Tónlistarhúsinu, sem einnig verður heimili Sinfóníuhljómsveit- arinnar. Með því fá þessar listgreinar einstakt tækifæri til að vinna enn nánar saman, en lengi hefur legið fyrir að heppilegt væri að Ís- lenska óperan tæki upp aukna samvinnu við annaðhvort Þjóðleik- húsið eða Sinfóníuhljómsveitina. Það kæmi öllum aðilum til góða og myndi styrkja rekstrargrund- völl og starfsemi viðkomandi lista- stofnana. Undarleg yrði sú staða ef sam- tímis ætti nú að fara að byggja tvö ný hús fyrir óperuflutning, en bygging og rekstur þeirra beggja verða að mestu leyti kostuð af al- mannafé. Á undanförnum árum hefur Ís- lenska óperan sett upp 1-2 full- búnar óperuuppfærslur á ári og sýningakvöld verið 20–30. Þótt áhugi Íslendinga á óperu hafi að vísu verið mikill er vart fyrirsjáanlegt að óperusýningum muni fjölga svo mikið á næstu ár- um að augljóst tilefni sé til þess að byggja tvo nýja óperusali. Staðsetning skiptir líka máli fyrir óperuhús. Í fljótu bragði man ég ekki eftir óperuhúsi annars staðar en í hjarta miðborgar, sums staðar eru óperuhúsin einmitt sjálft hjarta viðkomandi borgar. Hvað Reykjavík viðvíkur þá tel ég að það fari vel á því að óperan verði áfram staðsett í miðborginni. Tvö óperuhús? Árni Tómas Ragnarsson fjallar um byggingu tónlistarhúss ’Í fljótu bragði man ég ekki eftir óperuhúsi annars staðar en í hjarta miðborgar…‘ Árni Tómas Ragnarsson Höfundur er læknir. Fréttir í tölvupósti ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Dalvegi 28 – Kópavogi Sími 515 8700 BLIKKÁS – www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 28 96 7 06 /2 00 5 Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 Sumir draumar rætast Avensis - Upplifun Verð frá 2.340.000 kr. Avensis stendur undir miklum væntingum. Bíllinn er ríkulega hlaðinn staðalbúnaði. Innri hönnun einkennist af miklu rými og þægindum fyrir ökumann og farþega. Avensis hefur sjálfvirkan regnskynjara á þurrkum, tölvustýrða loftræstingu í miðstöð, hágæða hljómflutningstæki og afar fullkominn hemlunar- og öryggisbúnað. Komdu í reynsluakstur og láttu drauma þína rætast í veruleikanum. Næst ekur þú Avensis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.