Morgunblaðið - 28.07.2005, Side 50

Morgunblaðið - 28.07.2005, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ kl. 10.40 Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i 16 ÁRA H.L. MBL   Sýnd kl. 8 og 10 B.i 16 ÁRA BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT! K&F XFM H.L. - MBL. Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre Kemur magnaðasta hrollvekja ársins! Fór beint á toppinn í USA Byggt á sannri sögu  T.V. kvikmyndir.is  BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!   Sýnd kl. 8 og 10.20 Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre Kemur magnaðasta hrollvekja ársins! Sýnd kl. 6 B.i 16 ára Miðasala opnar kl. 15.15 Sími 564 0000 i l l. 7 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! kl. 5.30 og 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I 16 ára Þorir þú í bíó? REGLA #57: FORÐIST HREINAR MEYJAR!3. ÁGÚST EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Hverju myndir þú fórna fyrir fjölskylduna? Hverju myndir þú fórna fyrir fjölskylduna? Magnaður spennutryllir af bestu gerð með Bruce Willis í toppformi Magnaður spennutryllir af bestu gerð með Bruce Willis í toppformi SÍÐUSTUSÝNINGAR Sýnd kl. 5.30 B.i 14 ÁRA Þorir þú í bíó? Fór beint á toppinn í USA Byggt á sannri sögu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20 B.i 16 ára ÞEGAR við Jim Rose hittumst hef- ur hann áhyggjur af að hann fari yfir strikið: „Ég hef heyrt að þú komir frá íhaldssömu hægriblaði – meira til hægri en Atli Húnakonungur! Það gengur kannski ekki að við lát- um taka mynd af stúlku sem lyftir bílarafhlöðu með brjóstunum?“ Jim virðist hafa fengið þá mynd af Mogganum að hann sé gefinn út af mormónum. Ég reyni að segja hon- um að blaðið sé ekki svo íhaldssamt, þó kannski væri betra að velja örlítið fjölskylduvænna myndefni. Jafn hversdagslega og hann væri að stilla upp fyrir bekkjarmynd rað- ar Jim sirkusfólki sínu upp: „Þú skalt kokgleypa þessa blöðru,“ segir hann við stúlku og við næsta segir hann: „Og þú skalt setja fingurna í þvottabjarnargildru (en ekki á tung- una, því við höfum gert það fyrir aðra myndatöku) á meðan hún togar í keðjuna sem við hengjum í tunguna á honum. Ég miða síðan sjálfur heftibyssu á hausinn á mér. Ókei! Skellum okkur í þetta!“ Þetta er sirkus Jim Rose. Hversdagsleg áhugamál trúðsins En þegar við setjumst niður og ég spyr hann hallærisspurningarinnar „How do you like Iceland?“ kemur í ljós að sirkusstjórinn er í raun jarð- bundinn og alvörugefinn maður: „Veistu, ég er viss um að allir segj- ast elska Ísland. Ég, hins vegar, er ofboðslega gefinn fyrir að fiska. Mig langar að veiða silung í hverju landi sem ég heimsæki og ég á eftir að fara og veiða hér við fyrsta tækifæri sem gefst. Ég er virkilega spenntur, og er ekki að grínast! Ef ég væri með ferðatöskuna mína við höndina myndi ég sýna þér veiðistöngina mína!“ Maður hefði fyrir fram ætlað að maður sem starfrækir furðufyr- irbærasirkus og gleypir rakvél- arblöð hefði villtari áhugamál: „Svo hef ég líka gaman af að spila golf. Ég sá golfvöll á leiðinni inn í bæinn, sem liggur niðri við sjó. Ég er ansi spenntur fyrir því.“ Jim tekur síðan nærri kollsteypu af hrifningu þegar ég segi honum að á Íslandi sé hægt að spila golf í miðnætursólinni. Hann er hins vegar ekkert spenntur fyrir rómuðu næturlífi borgarinnar og virðist raunar kunna best við sig í fá- menni: „Ég drekk ekki og ég er þannig að mig langar að veiða fisk og spila golf í næði. Ég elska konuna mína og hef mest gaman af að fara með henni í langa labbitúra þar sem við leiðumst og ræðum um vonir okkar og drauma.“ Frík með húmor Jim ferðast með fríðu föruneyti, má þar nefna heimsins feitasta fim- leikamann og, eins og Jim orðar það sjálfur, „manninn með heimsins sterkasta lim og sirkusdrottninguna Bíbí sem blæs eldi úr píkunni.“ En Jim vill samt ekki tína allt til: „Veistu, það er svo mikið að gerast hjá okkur á sviðinu að áhorfendur geta horft á það sem þá langar mest að horfa á hverju sinni. Það er næst- um eins og við séum með furðufríka- basar. Ég veit auðvitað að dagblöðin vilja endilega skrifa um hneykslandi at- riði og kynlíf, en ég held að það sem eigi eftir að koma mest á óvart á sýningunni sé grínið. Fólk á eftir að skellihlæja því við gerum þetta allt á mjög kómískan hátt. Við reynum að sýna að kynlíf getur vel verið list- form og erum ekkert að taka okkur of alvarlega.“ Íslendingar fá fyrstir manna að sjá glænýtt atriði hjá sirkus Jims Rose. Hann lýsir því hreykinn hvernig karl og kona í sirkusnum hafa bæði látið gata sín persónuleg- ustu líkamssvæði. Verður keðja með króki á hvorum enda strengd milli þeirra: „Síðan fara þau í reipitog sem við eigum von á að verði mjög kappsfullt, sannkölluð barátta kynjanna.“ Ég segi Jim þá frá umræðunni um femínisma á landinu undanfarin misseri og hann grínast: „Ég held að femínistarnir ættu að koma og hvetja hana Amber áfram. Kannski það skapi samt vandamál að í Bandaríkjunum er hún fræg klám- mynda-leikkona. Femínistarnir vilja kannski að konan vinni, þó þeir verði hugsanlega ekki alveg sáttir við það, ef hún vinnur, hvaða kona vann.“ Vann Ben Affleck í póker Jim Rose er fjölhæfur maður og með mörg járn í eldinum. Stóran hluta ársins hefur hann viðurværi sitt af að spila póker sem fagmaður fyrir bandarískan sjónvarpsþátt: „Bara um daginn vann ég 11.000 dollara frá Ben Affleck og náði 6.000 dollurum frá kóngulóarstráknum Tobey Maguire.“ Svo er hann með eigin sjónvarpsþátt þar sem furðu- sirkusinn er í aðalhlutverki. Hann skrifar bækur og ferðast vítt og breitt um heiminn og treður upp. Tökulið frá Bandaríkjunum mun mæta á sýningu sirkussins hér á ís- landi og búa til sérstakan þátt um heimsóknina: „Ef fólk vill vera í sjónvarpinu þá verður það endilega að koma á sýninguna. Mér skilst að þættirnir mínir verði síðan teknir til sýninga á Íslandi á næsta ári.“ Sirkus | Jim Rose og sirkusfólk hans skemmtir á Broadway Furðufyrirbæri og golfáhugamaður Morgunblaðið/Jim SmartSirkus Jim Rose. Sirkusstjórinn er fyrir miðju. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Skemmtun Jim Rose er á Broad- way í kvöld. Brain Police hitar upp. Miðaverð er 2.500 krónur og opn- ar húsið kl. 19.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.